Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson773
Myndin var tekin 12. febrúar 2005 af bát sem strandaði undir Króksbjarginu. Líklegt verður að teljast að maðurinn, sem var einn um borð, hafi sofnað við stýrið og þess vegna lent uppi í fjöru. Maðurinn slapp óslasaður og báturinn skemmdist ótrúlega lítið. Björgunarsveitin Strönd kom bátnum á flot með Húnabjörginni og dró hann heim til Skagastrandar þar sem gert var við bátinn. Í baksýn sér í eyjuna eða Stapann og Fossárfoss, sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í sjó.
Jón Örn Stefánsson
Jón Örn Stefánssson um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1175
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til vinstri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubifreiðastjóri til hægri spjalla saman á bryggjunni. Báturinn í baksýn er Hafrún Hu 12 sem er í eigu Sigurjóns.
Ólafur Bernódusson985
Á degi atvinnulífsins 5. desember 2012 var Biopol útnefnt fyrirtæki ársins. Á myndinni afhendir Jón Óskar Pétursson þáverandi framkvæmdastjóri SSNV til hægri, Halldóri Gunnari Ólafssyni framkvæmdastjóra Biopol styttu til minningar um útnefninguna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1385
Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Gylfi Sigurðsson til hægri spjalla saman í lok ágúst 2012 á kynningardegi vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda á árinu 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1096
Hvalskurður á hafnarbakkanum á Skagaströnd. Hrefnuveiðibátar voru stundum við veiðar á Húnaflóa á sumrin og komu þá gjarnan með aflann í land á Skagaströnd og gerðu að hrefnunum á bryggjunni. Beinagrindina og annan úrgang tók svo viðkomandi bátur með sér í næstu veiðiferð og skilaði aftur í lífríkið í sjónum einhversstaðar utan veiðislóða. Á þessari mynd er Birgir Árnason (d.2.2.2005), hafnarvörður í köflóttri skyrtu og grænleitum buxum, að hjálp áhöfn eins hvalbátanna við hvalskurðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1431
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Fremst á myndinni sitja, frá vinstri, systkinin Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Standandi í fremri röð frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Herdís Jakobsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Dagný Hannesdóttir og Þorbjörg Bjarnadóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson, Trostan Agnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Lilja Ingólfsdóttir, Ólafur Bernódusson, Bára Þorvaldsdóttir, Hafþór Smári Gylfason og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 388
Myndin var tekin 17. júlí 2013 af Ólafi Bernódussyni í bílskúrnum sínum að tálga jólasveina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 265
Þær virðast skemmta sér vel í vinnunni hjá vinnuskólanum í júlí 2011 stúlkurnar þrjár á myndinni. Frá vinstri: Heba Líf Jónsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir og Aldís Embla Björnsdóttir.
Steinþór Karlsson 016
Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) lengst til vinstri, Sævar Berg Ólafsson og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1228
Kyrrlátt kvöld í Skagastrandarhöfn 26. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1273
Systurnar Sigríður Ólína Ágústsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Arnar HU 1 - safn 34
Gunnar Reynisson fyrir framan stefnið á Arnari HU 1 í þurrkví á Akureyri 16. desember 2012.
Ólafur Bernódusson1008
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Eins og sjá má er Sveinn á sokkaleystunum því honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Arnar HU 1 - safn 33
Myndin var tekin 16. desember 2012 í brúnni á Arnari HU 1. Hún sýnir hluta stjórntækjanna sem skipstjórinn hefur fyrir framan sig til að fara eftir. Kvöldroðinn lýsir inn um brúargluggana.
Fisk Seafood - safn 253
Guðmundur Reynir Kristinsson í skoðunarferð í hausaþurrkun á Laugum ásamt starfsfélögum sínum úr Rækjuvinnslunni hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 644
Þessi mynd var tekin í Spákonuhofinu á Skagaströnd 3. desember 2014. Á henni eru spákonurnar tvær, Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Hjá þeim situr velunnari hofsins, Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1303
Gamla salthúsið eða gamla verbúðin stendur syðst á höfðanum og hefur þjónað fjölmörgum hlutverkum gegnum tíðina. Salthús, verbúð, beitingaaðstaða, járnsmíðaverkstæði og geymsla til að eitthvað sé nefnt. Nú (2018) hefur húsið fengið uppreist æru því búið er að taka það allt í gegn og breyta í glæsilegt gistiheimili með fölmörgum herbergjum undir nafninu Salthúsið. Glæsilegra útsýni en frá því er vandfundið.
Steinþór Karlsson 007
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Á henni bíður Reynir Lýðsson eftir króknum á krananum til að hífa gúmmíbátinn - og sig- um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1464
Skógræktarfólk í Skógræktarfélagi Skagastrandar gaumgæfir skipulagsteikningu af skógrækrasvæði félagsins fyrir austan tjaldsvæðið í byrjun júlí 2012. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Kristín Björnsdóttir (Dídí), Ólafur Bernódusson (krýpur), Róbert Gunnarsson og Ari Jón Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1197
Tveir ungir menn í bæjarvinnunni í lok júlí 2009. Elías Gunnar Hafþórsson til vinstri og Unnar Leví Sigurbjörnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1216
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) að ausa bátinn sinn í júní 2011.
Axel Jóhann Hallgrímsson 105
Myndin var tekin borð í Örvari HU 21 einhverntíma kringum 1990. Á henni eru Jón Gunnar Jósefsson lengst til vinstri, Sævar Hallgrímsson í hvítu og óþekktur (?Sigurbjörn Björgvinsson?) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1316
Myndin var tekin í byrjun ágúst 2012 þegar Ólafur Bernódusson var að flytja heim fullverkaðan hákarl til geymslu í frysti. Konan hans Guðrún Pálsdóttir fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 570
Páll Jóhannesson um borð í bátnum sínum í höfninni á Skagaströnd í byrjun október 2014. Maðurinn um borð í Sveinbjörgu Hu 49 er óþekktur.
Arnar HU 1 - safn 20
Mokafla af ufsa um borð í Arnari HU 14. ágúst 2003 hleypt niður í móttökuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 16
Grétar Smári Hallbjörnsson í vinnslusalnum um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 9
Mok fiskirí af ufsa um borð í Arnari HU 1. Þröstur Árnason til vinstri og Guðmundur Níelsson ýta fiskinum að lúgunni niður í móttökuna af dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 545
Myndin var tekin 20. september 2014 utan við veitingahúsið Borgin á Skagaströnd. Í húsinu var áður veitingastaðurinn Kántrýbær og Útvarp Kántrýbær. Mennirnir eru bræður en lengst til hægri er Þórarinn Brynjar Ingvarsson sem átti og rak Borgina. Hinir bræðurnir, sem voru að hjálpa Þórarni við ýmsar breytingar á húsæðinu, eru frá vinstri: Rúnar Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson.
Ólafur Bernódusson1009
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. Á myndinni þakkar Sveinn, sem er til vinstri, skipverja á Sæbjörgu fyrir björgunina. <br><br>
Arnar HU 1 - safn 57
Hafsteinn Auðunn Björnsson í hársnyrtingu um borð í Arnari HU 1. Hér er vandað til verks því hvert hár er sléttrakað af höfði Hafsteins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver rakarinn er.
Arnar HU 1 - safn 54
Þegar vel fiskast flýtur belgurinn á trollinu upp þegar verið er að taka það. Á myndinni er stórt hal á leiðinni upp rennuna og einhver háseti skemmtir sér við að ganga á belgnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Árni Geir Ingvarsson - safn 1111
Myndin var tekin 25. júlí 2008 þegar vinna við skólalóð Höfðaskóla stóð sem hæst. Á myndinni eru systurnar Aldís Embla Björnsdóttir til vinstri og Guðný Eva Björnsdóttir til hægri með frænda sinn, Guðmund J. Björnsson gröfumann, á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1170
Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri skoða gamla muni til að hafa til sýnis í gamla húsinu Árnesi, sem er safn um heimilishald um aldamótin 1900. Myndin var tekin í júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1095
Birgir Árnason (d.2.2.2005) var lengi hafnarvörður við Skagastrandarhöfn. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann á höfninni ásamt óþekktri stúlku. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gunnar Þröstur Ásgeirsson
Gunnar Þröstur Ásgeirsson um borð í Arnari HU 1 í maí 2013.
Arnar HU 1 - safn 22
Sævar Berg Ólafsson úr áhöfn Arnars HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 313
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri
Ólafur Bernódusson1014
Í september árið 2000 voru haldnir svokallaðir Orkudagar í Fellsborg sem fjöldi manns heimsótti. Þar kynntu mörg fyrirtæki starfsemi sína og framleiðsluvörur. Allt sem kynnt var tengdist á einhvern hátt orkuframleiðslu, notkun eða sparnaði. Myndin var tekin í andyrinu í Fellsborg en sýningin var líka í aðal- og hliðarsölunum. Ragnheiður Sigurjónsdóttir er lengst til vinstri í blárri peysu við hlið manns síns Helga Gunnarssonar sem spjallar við Gunnlaug Sigmarsson í grænum jakka og með gleraugu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 032
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum. Á myndinni er góður afli kominn inn á dekkið og hluti hans farinn niður um opna lúguna til hægri, niður á vinnsludekkið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem er annar frá hægri en það er Guðjón Guðjónsson (Jonni). Ef þú þekkir hina mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1326
Stefán Jósefsson um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að landa í Skagastrandarhöfn 8. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1223
Samstarfskonurnar Sigþrúður Magnúsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir í bókasafni Skagastrandar í nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1384
Í lok ágúst 2012 var haldinn kynningardagur vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda á árinu 2013 í íþróttahúsinu. Á myndinni spjalla saman frá vinstri: Tryggvi Þór Haraldsson framkvæmdastjóri RARIK, Páll Friðriksson ritstjóri Feykis, Ingibergur Guðmundsson þáverandi Menningarfulltrúi Norðurlands vestra og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1276
Myndin var tekin 12. september 2012 af "útifundi" til að ákveða hvar setja eigi upp skilti á gamla kaupfélagið með nöfnum fyrirtækjanna sem eru þar innanhúss. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri talið: Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri BioPol, Lárus Ægir Guðmundsson hreppsstjóri og rithöfundur, Helgi Gunnarsson húsasmíðameistari og verktaki og Hrólfur Pétursson húsasmiður.
Steinþór Karlsson 014
Myndin var tekin af körlum að pakka fiski á vinnsludekkinu á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn næst okkur er líklega Sævar Berg Ólafsson og sá sem er lengt til hægri Guðmundur Henry Stefánsson. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 58
Þessi mynd var tekin af Arnari HU 1 við hlið risa borgarísjaka á miðunum í apríl 2005. Það var Arnar Ólafur Viggósson sem tók myndina úr gúmmíbát Arnars HU 1. Myndin birtist í Morgunblaðinu 25. 4. 2005 með eftirfarandi texta: "Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag."Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."
Arnar HU 1 - safn 4
Hans Birgir Högnason til vinstri og Ragnar Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 30
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Arnari HU 1. Árni var heppinn og fiskinn skipstjóri á skipum Skagstrendings hf og síðar Fisk Seafood ehf í áratugi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1187
Hjónin Steinunn Friðriksdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson hafa ný lokið við að setja niður kartöflurnar sínar í bæjar kartöflugarðinum 9. júní 2010. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 692
Félagarnir Slavko Velemir til vinstri og Árni Geir Ingvarsson til hægri í ljósmyndaleiðangri 27. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 535
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 7
Ernst Berndsen í borðsalnum á Arnari HU 1. Ernst var lengi yfirvélstjóri þar um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1467
Stefán Jósefsson til vinstri Gísli Snorrason í miðið og Sævar Rafn Hallgrímsson til hægri á spjalli í snjómuggu við höfnina 16. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1459
Þessi mynd var tekin 1. febrúar 2012 að loknum fundi í Fellsborg um hitaveitumál. Frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson sveitarstjórnarmaður, óþekktur, Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri Rarik, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Jensína Lýðsdóttir sveitarstjórnarkona, Haukur Ásgeirsson rafveitu- og hitaveitustjóri á Blönduósi, Péturína Jakobsdóttir sveitarstjórnarkona, óþekktur, Halldór Gunnar Ólafsson sveitarstjórnarmaður, Pétur E. Þórðarson aðstoðarforstjóri Rarik, Ólafur Hilmar Sverrisson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rarik og Adolf H. Berndsen oddviti sveitarstjórnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 528
Helgi Gunnarsson vara slökkviliðsstjóri á æfingu liðsins 9. september 2014.
Ólafur Bernódusson1006
Séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Guðni Þór Ólafsson til hægri í Hólaneskirkju. Myndin var tekin þegar Magnús var settur inn í embætti sem prestur á Skagaströnd í desember 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1069
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) að bennsla fótreipið við dragnótina úr Hafrúnu Hu 12. Myndin var tekin á bryggjunni 28. júlí 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1155
Þrír ungir menn í vinnugallanum tylla sér 11. júní 2009 utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Strákarnir eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson og Þórir Óskar Björnsson.
Arnar HU 1 - safn 12
Róbert Freyr Gunnarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 412
Myndin var tekin 20. ágúst 2013 þegar óþekktur kafari er að stökkva í sjóinn til að athuga eitthvað neðansjávar. Á bryggjunni standa Stefán Jósefsson og tveir óþekktir og fylgjast með.
1
…
51
52
53
…
75
Leita í myndasafninu
Leita