Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 542
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í ferðinni, er Kristín Birna Guðmundsdóttir að kíkja í símann sinn.
Arnar HU 1 - safn 8
Jóna Fanndal Þorvaldsson í netavinnu um borð í Arnari HU 1. Til hægri er Rúnar Jósefsson við sömu störf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1180
Krakkar úr bæjarvinnunni að fara að mála gangbrautir á götur Skagastrandar um miðjan júlí 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson og Sigurlaug Máney Sæmundssen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1160
Ungt fólk vinnugallanum tyllir sér 11. júní 2009 á bekk utan við gömlu tunnuna meðan hún var ennþá notuð sem áhaldahús. Bæjarvinnufólkið er, frá vinstri: Rebekka Þórarinsdóttir, Rósa Björg Einarsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir og Elna Ragnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason163
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn á miðri mynd er Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 635
Vinnufélagarnir Einar Gunnarsson til vinstri og Hrólfur Pétursson til hægri fyrir utan trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar 6. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1185
Myndin var tekin í lok apríl 2009 af tveimur útgerðamönnum að spjalla. Gunnar Sveinsson er til vinstri en hann átti og gerði út bátinn Auðbjörgu Hu 6 um árabil. Stefán Jósefsson til hægri gerir út bátinn Ólafur Mgnússon Hu 54 en gegnum tíðina hefur hann gert út nokkra mis stóra báta sem allir báru það nafn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 116
Eitthvað óvenjulegt í gangi um borð í Örvari HU 21 því bæði skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d. 16.7.2017) í blárri peysu og fyrsti stýrimaðurinn Árni Ólafur Sigurðsson, hjálmlaus í köflóttri peysu, eru komnir á dekkið. Eiður Hilmarsson er í rauðri úlpu en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 12001
Hörður Ragnarsson til vinstri og Sigurður Bjarnason til hægri utan við vélageymslu Sorphirðu Vilhelms Harðarsons í lok júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1378
Sveinn Garðarsson 21. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1163
Þrír ungir menn á leið í kaffi í bæjarvinnunni 11. júní 2009. Frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Kristmar Ingi Ragnarsson og Alex Már Gunnarsson.
Arnar HU 1 - safn 10
Karlarnir á myndinni eru að dytta að trollinu um borð í Arnari HU 1. Jónas Þorvaldsson bograr lengst til vinstri en Rúnar jósefsson leggur handlegginn yfir axlirnar á Gunnari Helgasyn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari411
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna við grjótnám í Höfðanum. Bak við manninn sér í Caterpillar jarðýtu sem notuð var við verkið. Maðurinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Arnar HU 1 - safn 47
Magnús Filip Sævarsson við óþekktan bar í einhverjum hittingi áhafnar Arnars HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 475
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 tekur pásu frá önnum við að gera skipið sjóklárt 6. júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1126
Páll Jóhannesson í áhaldahúsi hreppsins 28. nóvember 2002 en Páll var um árabil starfsmaður þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 408
Tveir athafnamenn á spjalli við slippinn á Skagaströnd í lok febrúar 2013. Hallbjörn Björnsson rafverktaki til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1477
Sigrún Lárusdóttir og Hjalti Sævar Hjaltason á fjórhjóli að snúast við hesta 25. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1470
Spákonurnar Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri undirbúa opnun Spákonuhofsins en það var formlega opnað 30. júní 2011. Þessi mynd var tekin hálfum mánuði fyrr hinn 16. júní.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1311
Hér ræðast þeir við fyrir neðan Tjarnarbrekku á Skaga 19. september 2012 Vignir Sveinsson bóndi í Höfnum og oddviti Skagabyggðar á þeim tíma og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd. Magnús er til hægri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1484
Hundurinn aðstoðar eiganda sinn Björgvin ? við að beita í skúrnum hjá Vík ehf lok nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 539
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Ingvar Gígjar Sigurðsson og svo hjónin Runólfur Bjarni Gautason og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 474
Á þessari mynd frá 6. júlí 2013 eru yfirmenn á Arnari Hu 1 að skoða flottroll Arnars sem geymt er í gámapalli. Frá vinstri: Jónas Fanndal Þorvaldsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Guðjón Guðjónsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 568
Brimill Hu 18 er gerður út frá Hvammstanga til selaskoðana. Hér er hann í slipp á Skagaströnd 6. maí 2014 í skverun fyrir sumarvertíðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd er Rúnar Kristjánsson, einn af smiðunum sem komu að verkinu.
Guðmundur Guðnason139
Hofsrétt (gamla) sumarið 1965. Þessi rétt, sem er staðsett norðan við Steinnýjarstaði, var hringlaga, hlaðin úr torfi og grjóti. Hún var byggð í kringum 1940 og enn má skoða rústir hennar þó langt sé síðan hún var síðast notuð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1194
Sigrún Lárusdóttir til vinstri og Kristín Kristmundsdóttir ráku í þrjú ár kaffihús í Bjarmanesi undir nafninu Kaffi Viðvík í félagi við Dagný Sigmarsdóttur. Þessi mynd, af þeim stöllum við störf í eldhúsinu í Kaffi Viðvíki, var tekin í lok mars 2005.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1110
Viktor Már Einarsson í matjurtagörðunum í lok júlí 2006. Þá voru starfræktir matjurtagarðar fyrir ungmenni á vegum sveitarfélagsins. Viktori og fleirum á hans aldri fannst mest spennandi að vökva plönturnar sínar - stundum jafnvel um of.
Ísbarningur
Ís barinn af rekkverki um borð í Arnari HU 1 í janúar 2008.
Ólafur Bernódusson1011
Haraldi Friðrik Arasyni, í dökkri peysu, er fagnað þegar hann kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Haraldi og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Haraldur Friðrik, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn á myndinni með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks Jóns fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br>
Steinþór Karlsson 022
Mörg handtök þarf við að taka trollið og á myndinni eru þrír menn á fullu við það. Myndin var tekin umborð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar hann var á karfaveiðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1153
Myndin var tekin um borð í Sæljóni RE 317, líklega á vorvertíð 1961 en þá var hann aflahæstur yfir landið. Báturinn hefur líklega verið gerður út á síld á sumrin því uppi á stýrishúsinu er bassaskýli sem var notað sem skjól þegar menn voru þar uppi að skyggnast um eftir síldavöðum. mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1390
Myndin var tekin af ungum áhugamönnum um sauðfé í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Krakkarnir sem eru að kíkja á mörk kindanna eru Ólafur Halldórsson og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1407
Síðasti hluti olíutanksins við Höfðann rifinn um miðjan nóvember 2011. Upphaflega var tankurinn helmingi hærri en hann er á myndinni og við hlið hans stóða annar tankur jafn stór. Báðir voru tankarnir byggðir fyrir síladarverksmiðjuna einhverntíma á árunum 1943-1946.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 674
Brennuvargar leggja síðustu hönd á áramótabrennu kvöldsins 31. desember 2014. Efst trónir Stefán Sveinsson og neðan við hann eru Páll Halldórsson, Birkir Gunnarsson og þrír óþekktir. Maðurinn í bláa gallanum til vinstri er líka óþekktur
Fisk Seafood - safn 256
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf í kynnisferð m.a. í Norðanfiski á Húsavík. Á myndinni eru frá vinstri: Rósa B. Einarsdóttir, Baldvin Hjaltason, Cristina Silod Yecyec, Guðmundur Reynir Kristinsson, Þórarinn Grétarsson, óþekktur, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir og lengst til hægri er Magnús Guðmannsson. Ekki vitað hvenær myndin var teken líklega var það kringum 2000.
Axel Jóhann Hallgrímsson 109
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Greinilegt er að einhver snúningur er á trollinu enda er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) kominn á dekkið, í ljósri peysu, til að segja til um lausn vandans. Maðurinn í dökku úlpunni er Ragnar Högnason og lengst til vinstri er Hjörtur Guðbjartsson. Maðurinn til hægri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari414
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna á Caterpillar jarðýtu við hafnargerðina á Skagaströnd. Hugsanlega er verið að vinna við byggingu Skúffugarðsins en það var kringum 1948. Maðurinn á ýtunni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1196
Stefán Sveinsson í áhaldahúsinu í júlí 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1349
Lárus Ægir Guðmundsson í garðinum sínum við Hólabraut 24 í lok maí 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 609
Jakob Guðmundsson smiður og bóndi á Árbakka aðstoðar Sigurð Jónsson við þakviðgerðir á húsi Sigurðar að Fjallsminni. Sigurður er til vinstri á myndinni, sem var tekin haustið 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1214
Eitthvað var verið að vinna við bílinn á myndinni inni í Ketilhúsinu við höfnina 24. október 2011. Bíllinn hafði reyndar verið tekinn af númerum og átti að nota hann í varahluti. Ekki fór betur en svo að það kviknaði í honum en þá var hann dreginn logandi út úr húsinu og leyft að brenna.
Guðmundur Guðnason705
Dregið í dilka í Hofsrétt?. Maðurinn með hattinn fremst á myndinni er Konráð Klemensson (Konni gamli).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 543
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru hjónin Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Ingvar Gígjar Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari415
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna í grjótnáminu í Höfðanum. Það hófst 1934 þegar þangað var sótt grjót í uppfyllingu milli lands og Spákonufellseyjar vegna hafnargerðar. Næstu ca 30 ár var tekið grjót úr Höfðanum en með hléum. Klöppin var sprengd til að losa um grjótið en mulningurinn var líka notaður með stóru steinunum. Einnig voru járnkarlar mikið notaðir til að færa grjótið til og koma á það böndum til hífinga. Maðurinn á Caterpillar D 7 ýtunni er að hreinsa til svo hægt sé að ná grjótinu með góðu móti. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið eftir 1943 því fyrstu vélarnar af þessari gerð komu þá til landsins á vegum Bandaríska hersins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 480
Stefán Jósefsson undirbýr sig fyir að skera hákarl á bryggjunni á Skagaströnd. Vilhjálmur Skaftason er á krananum. Ekki er við hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 111
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Siglfirðingurinn Hilmar J. Stefánsson og Ragnar Högnason. Þeir eru allir með guðlax í fanginu. Guðlax er mjög sérkennilegur fiskur sem þykir herramanns matur. Hann er mjög feitur fiskur með mildu bragði og getur orðið mjög stór, allt að 185 cm og 70 kg. Hann er sjaldgæfur flækingur á Íslandsmiðum og þykir mjög fallegur. Það sérkennilegasta við hann er þó það að hann er eini fiskurinn sem vitað er um að er með heitt blóð. (Heimild: Wikipedia). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1199
Nokkrir krakkar úr bæjarvinnunni á leið í sund að Húnavöllum í lok júlí 2009. Frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Guðmundur Árnason, Freyja Einarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Ívan Árni Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1162
Torfi Friðrik Magnason í bæjarvinnunni fyrir utan gömlu tunnuna 11. júní 2009.
Hallbjörn Freyr Ómarsson
Hallbjörn Freyr Ómarsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson930
Bræðurnir Rúnar Jósefsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri hafa skotið marga refi gegnum tíðina. Þessi sem Rúnar heldur á 16. maí 2008 var merkilegur fyrir þær sakir að hann var þrífættur því hann vantaði annan framfótinn. Fótinn hafði hann misst, einhverra hluta vegna, töluvert fyrr því þar sem hann átti að vera var bara vel gróið ör.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 404
Bræðurnir Sigurður Björnsson til vinstri og Guðmundur J. Björnsson til hægri við bát þess fyrrnefnda 8. ágúst 2013. Líklega eru þeir nýkomnir úr sjóferð til að draga sér fisk í soðið.
Guðmundur Guðnason157
Björn Sigurðsson frá Leifsstöðum í Stafnsrétt 1963.
Axel Jóhann Hallgrímsson 107
Hjörtur Guðbjartsson um borð í Örvari HU 21 líklega kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 538
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Hjalti Viðar Reynisson og Guðlaug Grétarsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 19
Þessi mynd var tekin af hluta áhafnar Arnars HU 1 úti á dekki. Frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson,Ársæll Guðleifsson (Sæli), Ríkarð Svavar Axelsson (Rikki), Rúnar Jósefsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Myndina tók Baldur Magnússon 2006 eða 2007.
Arnar HU 1 - safn 64
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari HU 1 hvílir sig á bekk í borðsalnum á Arnari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hafsteinn Auðunn Björnsson
Hafsteinn Auðunn Björnsson um borð í Arnari HU 1 að bíða eftir að trollið komi upp. Myndin var tekin í maí 2013.
Arnar HU 1 - safn 62
Þessi mynd var tekin um borð í gamla Arnari HU 1 þ.e.a.s. fyrsta skuttogara Skagstrendings hf sem kom til Skagastrandar 1973. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru skipverjarnir, frá vinstri: Þorlákur Axel Jónsson, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Egill Bjarki Gunnarsson.
Glettur um borð
Það liggur vel á körlunum á myndinni sem tekin var um borð í Arnari HU 1, þeim sem var fyrstur skuttogara Skagstrendings hf. Hann var gerður út frá Skagaströnd frá 1973 til 1995 en einhverntíma á því tímabili var myndin tekin. Á henni eru frá vinstri: Axel Gígjar Ásgeirsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Hafþór Gylfason sem lyftir Magnúsi Hjaltasyni (d.16.6.2014).
1
…
52
53
54
…
75
Leita í myndasafninu
Leita