Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 533
Löndun úr Arnari Hu 1 19. mars 2014. Stefán Þór Árnason til vinstri og Sigurður Ingimarsson til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 21
Helga Björg HU 7 í höfn á Skagaströnd (Höfðakaupstað). Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Báturinn var smíðaður úr eik á Akranesi árið 1962 og var 139 brl. með 525 ha. MWM vél. Hann var endurmældur 1966 og mældist 114 brl. Aftur var endurmælt 1971 og taldist hann þá 101 brl. Árið 1981 var sett í bátinn 500 ha. Grenaa vél. Hann hét Sigrún AK 1 þegar Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn 1965 og gerði út þar til í júní 1971 þegar hann var seldur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Hólmsberg KE 16. Afar sjaldgæft var og kannski einsdæmi að eikarbátar væru smíðaðirr með perustefni eins og þessi bátur."
Ólafur Bernódusson976
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna eða SH var stofnað í febrúar 1942. 1992 hélt SH upp á 50 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki hraðfrystihúsanna, sem mynduðu sölumiðstöðina, til kaffiveislu. Þessi mynd var tekin í veislunni í kaffistofu Hólaness hf. Hægra megin við borðið eru, talið frá hægri: Málfríður Jóhannsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, og óþekkt stúlka. Standandi við borðsendann er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) en sitjandi er Katrín Sigurjónsdóttir (Stella)(d. 8.12.2003). Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Sólveig Róarsdóttir, tvær óþekktar konur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Guðrún Angantýsdóttir og óþekktir. Við borðið til vinstri sér í Hauk Gunnlaugsson (d.18.1.2004) með gleraugu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 397
Skipsstrand 30. júlí 2013. Sædís Bára Gk 88 strandaði rétt innan við höfnina á Skagströnd á leið heim úr róðri. Sædís Bára komst af strandstað fyrir eigin vélarafli á næsta flóð og skemmdir urðu í algjöru lágmarki. Mennirnir tveir um borð sluppu líka ómeiddir frá óhappinu.
Ólafur Bernódusson1018
Baldvin Hjaltason í júlí 2000 í reisugilli vegna þjónustuhúss á tjaldsvæðinu en Baldvin vann við byggingu hússins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1152
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af kvennaskólanum á Blönduósi og nágrenni hans. Skólahald hófst á þessum stað 1901 í húsi sem brann 1911 en húsið á myndinni var byggt á sama stað 1912. Skólinn starfaði til 1978.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1412
Magnús B. Jónsson til vinstri og Rúnar Jósefsson til hægri í einhverju hrossastússi í byrjun júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1456
Matartími í leikskólanum Barnabóli 1. febrúar 2012. Sesselja Guðmundsdóttir gefur börnum að borða. Börnin eru frá hægri: Ísak Andri Jónsson, Ellert Atli Þrastarson, Alexander Áki Hall Sigurðsson, Lazer Casper en hinir tveir drengirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 590
Gísli Reynisson vinnur að endurbótum á dráttarbrautinni í maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frigg Hu 15 á síldveiðum. Á dekkinu er síld og karlarnir eru á útkikki uppi á stýrishúsinu eftir síldarvöðum til að kasta á. Maðurinn hægra megin er líklega Jón Vilhjálmsson (d. 31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur.
Guðmundur Guðnason212
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Á myndinni salta og binda gærur þeir Ágúst Jakobsson (d. 1.6.1989) frá Blálandi til vinstri og Henry Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum til hægri. Takið eftir hinni ómissandi neftóbaksdós í forgrunninum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 64
Feðgarnir Magnús Filip Sævarsson og Sævar Hallgrímsson í réttunum í september 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 624
Hjónin Stefán Berndsen og Sólveig Róarsdóttir skoða húsnæði í kjallara gamla kaupfélagsins 28. nóvember 2014 með það í huga að færa saumastofuna Iris á staðinn. Það var síðan gert en við það stækkaði athafnasvæði saumastofunnar um helming.
Ingibergur Guðmundsson 317
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er Halldór Gunnar Ólafsson í handlöngun með pabba sínum Ólafi Bernódussyni er þeir voru að smíða grindina í skálanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1248
Ólafur Bernódusson um borð í bát sínum, Benna Ólafs Hu, í september 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Löndun í gangi úr Arnari Hu 1 og líka úr lítilli trillu með gamla hafnarkrananum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1476
Ekki er vitað hvaða tveir menn eru hér að bjarga bíl úr snjóskafli í vonsku veðri 21. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1369
Tengdamæðgurnar Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) til vinstri og Erna Berglind Hreinsdóttir til hægri fylgjast með fyrirlestri um hafnargerð á Skagaströnd í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélaginu sem haldin var 13. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 438
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af tveimur kvenfélagskonum í eldhúsinu, Dagný Rósa Úlfarsdóttir frá Ytra-Hóli til vinstri og María Kristjánsdóttir (d. 27.6.2017) frá Tjörn til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 117
Gylfi Guðjónsson í brúnni á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 537
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru hjónin Guðfinnur Bjarni Ottósson og Jensína Lýðsdóttir.
Guðmundur Guðnason119
Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) stendur á stíflunni í Hrafnánni. Myndin er tekin á gangnadegi 1967.
Arnar HU 1 - safn 45
Valdimar Viggósson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1472
Í Spákonuhofinu má sjá vaxmynd í fullri stærð af Þórdísi spákonu frá Spákonufelli. Á þessari mynd hefur Jensína Lýðsdóttir, sem var fyrirmyndin við gerð styttunnar, stillt sér upp við hlið Þórdísar. Þær stöllur eru óneitalega mjög líkar þó hárgreiðslan sé ekki sú sama enda rúmlega 1000 ár á milli þeirra. þær eiga einnig það sameiginlegt að vera, eða hafa verið, áhrifakonur í samfélaginu á Skagaströnd. Myndin var tekin 23. júní 2011.
Axel Jóhann Hallgrímsson 108
Gylfi Guðjónsson til vinstri og óþekktur til hægri um borð í Örvari HU 21, líklega kringum 1990. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason023
<P>Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni (d.21.11.1988). Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen (d. ?) hjálpa Lárusi Jónssyni (d.3.7.1983) lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni. </P><br><P>Hálfnað verk þá hafið er. Hér er Lárus komin hálfa leið yfir milligerðið og ætlar að komast af án hjálpar Ole.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 406
Ólafur Bernódusson leiðbeinir (h)eldri borgurum með tölvunotkun í lok febrúar 2013. Konurnar eru frá veggnum talið: Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Árný (Dúdú) Hjaltadóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og María (Bogga) Hjaltadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 556
Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) málar bátinn Helgu eftir viðgerð á þessum gamla trébáta sem Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála lét smíða fyrir sig fyrir miðja síðustu öld.
Arnar HU 1 - safn 63
Gunnar Þröstur Ásgeirsson tekur í kríulöpp um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1478
Árni Geir Ingvarsson uppi í körfunni að byrja að koma fyrir ljósaperum á jólatrénu á Hnappstaðatúninu í lok nóvember 2012. Sigurbjörn Björgvinsson stjórnar krananum á bíl sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 605
Smiðirnir Helgi Gunnarsson til vinstri og Rúnar Kristjánsson til hægri hressir í vinnunni haustið 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 505
Þorlákur Sigurður Sveinsson að koma úr línuróðri í febrúar 2014. Ekki er vitað hver báturinn er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 691
Sigurður Bjarnason við vinnu hjá sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar 2. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1328
Sigurður Jónsson með rauða húfu og Sigurjón Ástmarsson með hvíta skoða Þetta fallega eintak af Massey Ferguson dráttarvél Hd 7, sem Sigurjón hafði umráð yfir. Myndin var tekin 15. ágúst 2012.
Arnar HU 1 - safn 15
Kristján Pétur Guðjónsson um borð í Arnari HU 1. Rúnar Jósefsson snýr baki í okkur en lengst til vinstri er ?Gunnar Þröstur Ásgeirsson? Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1327
Sævar Rafn Hallgrímsson að hífa upp úr bát í Skagastrandarhöfn í október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 508
Adolf H. Berndsen einbeittur og þungt hugsi á skrifstofunni heima hjá sér í febrúar 2014.
Arnar HU 1 - safn 51
Ingimar Vignisson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1277
Helgi Gunnarsson er vara-slökkviliðsstjóri í liðinu á Skagaströnd. Hér er hann að prófa einn af vatnshönunum í bænum á æfingu slökkviliðsins í byrjun apríl 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 481
Steinn Rögnvaldsson bóndi á Hrauni á Skaga að koma úr línuróðri á bát sínum Sæfara. Á myndinni er Steini að fá sér nokkrar ýsur í soðið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 536
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Sigurjón Ingólfsson, Hjalti Viðar Reynisson og Guðfinnur Bjarni Ottósson.
Vaktfélagar
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Sigurður Thoroddsen, Jón Örn Stefánsson, Ríkarð Svavar Axelsson (fjær) , Hafsteinn Björnsson (nær), Elvar Freyr Svavarsson (nær), óþekktur, Baldur Magnússon, óþekktur og Grétar Smári Hallbjörnsson. Myndin var tekin 11. september 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 565
Vírasplæsing á bryggjunni áður en lagt er af stað í næsta túr 29. apríl 2014. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur, Ingvar Jónsson skipverji á Arnari Hu 1 og Jón Sveinsson netagerðarmeistari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1408
Myndin, sem tekin var 5. maí 2011, sýnir niðurrif á síldarþrónum við suðurenda síldarverksmiðjunnar. Niðurrifið var mikið verk enda þrærnar vel byggðar og mikið járnbundnar. Mala þurfti alla steypu niður til að ná úr henni öllu járni áður en steypumolunum var fargað. Með því að fjarlægja þrærnar fékkst stóraukið athafnasvæði á höfninni.
Arnar HU 1 - safn 31
Elvar Freyr Aðalsteinsson til vinstri og Sindri Hafþórsson til hægri á leið á vinnslusdekkið í Arnari HU 1 eða að koma af því. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
larus099
Þessi mynd var líklega tekin um 1960 af beitingamönnum í "Aðalbjargarskúrnum" sem var beitingaskúr sem stóð nokkurn veginn þar sem vestari hluti Vélaverkstæðis Skagastrandar er í dag. Beitingamennirnir á myndinni voru í mörg ár landmenn/beitingamenn fyrir Aðalbjörgu Hu 7. Mennirnir eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti (Bankastræti 3), Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) á Flankastöðum (Bankastræti 7), Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) á Lækjarbakka, Hörður Ragnarsson frá Ásgarði og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) í Skeifunni (Hólabraut 25). Framan við karlana standa svo synir Jóhanns; Gissur Jóhannsson fyrir framan pabba sinn og Pétur Jóhannsson framan við Guðmund.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 509
Guðrún Pálsdóttir að mála grindverkið kringum garðinn við heimili sitt í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1203
Ásdís Birta Árnadóttir við afgreiðslustörf í "Djásn og Dúllerí" í kjallaranum í gamla kaupfélaginu 17. júlí 2012.
Óþekktur ljósmyndari413
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Grjótflutningar úr Höfðanum í uppfyllingu við hafnargerðina. Líklega var myndin tekin kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvennaskolinn_oldhouse[1]
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) var rekinn í þessu húsi.Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Á myndinni eru skólastúlkur ásamt kennurum og gestum einhverntíma á þessu tímabili.Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss. Við þjóðveginn sunnan við Ytri-Ey er minnismerki um þennan merka skóla. Fyrsta skólastýra skólans var sú merka kona Elín Briem sem var þá nýútskrifuð úr húsmæðrakennaraskóla í Kaupmannahöfn. Hún kenndi og stýrði skólanum frá stofnun til 1895 er hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún stofnaði hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Elín kom svo aftur norður og tók við stjórn kvennaskólans er hann flutti 1901 til Blönduóss í tvö ár og svo enn á ný 1910 til 1915. Elín fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorði árið 1921 og var þá önnur af tveim fyrstu konunum sem þann heiður hafa hlotið. <br>
Guðmundur Guðnason144
Í Hofsrétt sumarið 1965. Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti leggur hendurnar á axlir Eiðs Hilmarssonar frá Hofi. Til vinstri er Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri að leita að sínu fé í safninu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 391
Slavko Velemir við slátt í júlí 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 661
Sighvatur Smári Steindórsson mokar snjó úr bát sínum Smára Hu 7 í hríðarkófi 14. desember 2014 til að koma í veg fyrir að hann missi jafnvægið og sökkvi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1348
Eftir vikulangt dansnámskeið í Höfðaskóla og Barnabóli var haldin danssýning 12. október 2012 þar sem nemendur sýndu það sem þeir höfðu lært. Á þessari mynd dansa yngri nemendur undir stjórn danskennarans Köru Arngrímsdóttiur til hægri
Axel Jóhann Hallgrímsson 121
Sigurbjörn Björgvinsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1315
Í lok september 2012 var haldið námskeið í grjóthleðslu á Skagaströnd. Gjótið sem notað var var sótt í grjótskriðurnar nærri bænum Tjörn á Skaga og saman byggðu nemendurnir vegg sem stendur vestan við Spákonuhofið á Skagaströnd. Á myndinni eru þrír nemendur á námskeiðinu ásamt einum hjálparkokki. Talið frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Bjarney Jónsdóttir, Ólafur Halldórsson hjálparkokkur og Geir Arnarson.
Arnar HU 1 - safn 26
Unnið við færiband um borð í Arnari HU 1 við að pakka þorskhausum. Næst okkur er Grétar Smári Hallbjörnsson, síðan Jónas Fanndal Þorvaldsson en maðurinn lengst frá er óþekktur. Myndin var líklega tekin í janúar 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1213
Á þessari mynd frá 8. október 2010 má glögglega sjá hvernig sjórinn étur af landinu hægt en örugglega. Hjallurinn lengra frá var byggður í "öruggri" fjarlægð frá fjöruborðinu á sínum tíma en eins og sjá má var sjórinn búinn að éta landið undan helmingi hans þegar myndin var tekin. Báðir hjallarnir, sem stóðu á nesinu sunnan við Hrafná, hafa nú (2018) verið rifnir fyrir nokkrum árum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 689
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki vinnur að viðgerðum á meiðunum í dráttarbrautinni 24. júní 2014.
1
…
53
54
55
…
75
Leita í myndasafninu
Leita