Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frá Skagastrandarhöfn
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 675
Myndin var tekin 31. desember 2014 í sameiginlegri flugeldasölu björgunarsveitarinnar Strönd og umf. Fram. Sölumennirnir eru frá vinstri: Kristinn Kristjánsson, Eiríkur Lýðsson, Reynir Lýðsson og Baldur Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1396
Í slæmum norð-austan áttum að vetri skefur snjó í báta við Skúffugarðinn. Þá verða umsjónarmenn bátanna að vakta þá og moka úr þeim snjónum til að þeir sökkvi ekki undan þunganum sem veldur ójafnvægi bátanna. Þessi mynd var tekin á einum af þessum dögum 21. nóvember 2012 þegar menn voru að bjarga bátum sínum í illviðrinu með því að létta þá.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 406
Ólafur Bernódusson leiðbeinir (h)eldri borgurum með tölvunotkun í lok febrúar 2013. Konurnar eru frá veggnum talið: Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Árný (Dúdú) Hjaltadóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og María (Bogga) Hjaltadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 471
Björk Sveinsdóttir vinstra megin og Hallbjörg Jónsdóttir hægra megin tylla sér niður yfir kaffibolla á opnunardegi málverkasýningar Herdísar Jakobsdóttur í Bjarmnesi 30. júní 2013.<br>
Axel Jóhann Hallgrímsson 118
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri talar í talstöðina í brúnni á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd er að hefjast síldarlöndun í verksmiðjuna í Skagastrandarhöfn. Stokkarnir á krananum voru látnir síga niður í lestar skipanna en inni í stokkunum voru skóflufæribönd sem mokuðu síldinn inn á færibandið fyrir miðri mynd. Færibandið flutti svo síldina upp í geymsluþrær verksmiðjunnar. Þaðan fór síldin svo í bræðslu þar sem framleitt var úr henni síldarmjöl og lýsi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 124
Slysaæfing um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990. Fremst á börunum er Rögnvaldur Ottósson. Við aftari endann er Rúnar Jósefsson en rauðhærði maðurinn er Ragnar Högnason. Jón Helgason mundar myndavélina aftast en maðurinn með bláu húfuna er Eiður Hilmarsson. Lengst til hægri er Björgvin Karlsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 382
Myndin var tekin 9. júlí 2013 af hluta starfsmanna Vélaverkstæðisins að njóta veðurblíðunnar í kaffitíma úti á palli. Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Óli Axel Óskarsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurjón Ingólfsson, Ari Jón Þórsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Í forgrunni myndarinnar eru leifarnar af rennibraut sem notuð var til að sjósetja báta sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Græni báturinn á myndinni hét Helga Björg Hu 7 en blái báturinn er Hafrún Hu 12. Aðrir bátar eru óþekktir. </P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 529
Sigurður Björnsson dælumaður í slökkviliði Skagastrandar á sínum stað við dæluna á slökkvibílnum á æfingu 9. september 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 122
Gunnar Jón Jónsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1332
Jóhann Berry til vinstri og Jóhanna Hólm starfsmenn Vinnumálastofnunar á Skagaströnd líta upp úr önnum dagsins í hólunum framan við Stjórnsýsluhúsið um miðjan ágúst 2012.
Arnar HU 1 - safn 32
Myndin var tekin í matsalnum í Arnari HU 1 13. desember 2012. Á henni eru frá vinstri: Hafsteinn Auðunn Björnsson, Magnús Filip Sævarsson, Tryggvi Hlynsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Gunnar Helgason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í félagsheimilinu Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd eru framkvæmdirnar hafnar og búið að saga göt í vegg til að stækka bókasafnið inn í herbergið sem sést á bak við Ásdísi Birtu Árnadóttur.
Guðmundur Guðnason161
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari410
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á þessari mynd er verið að byggja Ketilhúsið. Það er austasti hluti húsanna sem standa norðan við núverandi hafnarvigt og tilheyrðu síldarverksmiðjunni. Á myndinni er steypuvinna í gangi en stillansinn (turninn) vinstra megin er notaður til að hægt sé að hífa steypuna upp á efri plötu hússins sem er steypt. Líklega var spil á hrærivélinni til að hífa steypumálið upp. Myndin var tekin kringum 1945.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1386
Í lok ágúst 2012 var haldinn kynningardagur vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda á árinu 2013 í íþróttahúsinu. Bæjarbúar mættu til að kynna sér framkvæmdirnar og fá upplýsingar um framhaldið. Á myndinni eru frá vinstri: Ingvar Gígjar Sigurðsson, óþekktur, Haukur Ásgeirsson hitaveitustjóri, Sigurður Björnsson, Róbert Kristjánsson, Tryggvi Hlynsson og Guðmundur ?.
Arnar HU 1 - safn 24
Ólafur Ásgeirsson fylgist með á dekkinu á Arnari HU 1 út um glugga á stjórnhúsinu stjórnborðsmegin á togaranum. Ólafur er að hífa og þarf því að fylgast vel með til að allt fari vel. Myndin var tekin 2. janúar 2015.
Guðmundur Guðnason179
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti, Lárus Árnason (d. 21.5.2011) Ási, Ragnheiður Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð, Kristín Björnsdóttir Jaðri, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð og Kári Sigurbjörn Lárusson Ási. Á þessum tíma var mjög algengt að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur og er talið að þá hafi verið allt að 3000 fjár í eigu Skagstrendinga og starfandi var Sauðfjárræktarfélag Skagstrendinga. Í dag (2016) má ætla að kindurnar séu milli 20 og 40. Ef grannt er skoðað má sjá skátaskálann upp í hlíð Spákonufells. Skálann ber yfir höfuð Önnu Báru. Skálann byggðu skátarnir á Skagaströnd en hann stóð einungis í nokkur ár því hann sligaðist að lokum undan snjó og eyðilagðist.
Ólafur Bernódusson1010
Ungur maður kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Manninum á myndinni, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 552
Unnið við gerð nýs viðlegukants í Skagastrandarhöfn í apríl 2014. Lengst til hægri sér í hús hafnarvigtarinnar.
Steinþór Karlsson 023
Slavko Velemir um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þesi mynd sýnir Hólaneskirkju í byggingu. Unnið er að því að koma sperrunum fyrir um leið og turninn er í byggingu. Rauði turninn er kirkjuturninn á gömlu kirkjunni sem var rifin eftir að sú nýja var tekin í notkun. Litla húsið með rauða þakið, fremst á myndinni, er Rjúpnafell en það er nú horfið.
Ólafur Bernódusson1005
Spænski togarinn, Puente Pereiras Cuatro, landaði frosinn rækju í Skagastrandarhöfn til vinnslu í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd seint í október árið 2000. Áhöfn togarans landaði sjálf úr skipinu og myndin sýnir nokkra þeirra í önnum á bryggjunni við löndunina. Ekki var krani á togaranum þannig að híft var upp úr honum með vörubílskrana.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Axel Jóhann Hallgrímsson 58
Hallbjörn Björnsson rafverktaki á hryssingslegum vinnudegi í september 2009.
Arnar HU 1 - safn 86
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 út á brúarvængnum að kíkja á borgarísjaka sem er á reki stutt frá.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Myndin sýnir hluta Skagastrandarhafnar og gamla verksmiðjusvæðið.</p>
Guðmundur Guðnason087
Flekka með lömbin sín í forsælunni niðri í þurrum skurði. Kindur voru eitt af uppáhalds viðfangsefnum Guðmundar ljósmyndara
Skagaströnd - safn474
Magnús B. Jónsson var sveitastjórnarmaður á Skagaströnd í áratugi. Fyrst sem kjörinn fulltrúi í hreppsnefnd og var síðan í allmörg ár ráðinn sem sveitarstjóri. Magnús lét af störfum 2018 en myndin var líklega tekin 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 108
Gylfi Guðjónsson til vinstri og óþekktur til hægri um borð í Örvari HU 21, líklega kringum 1990. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 439
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af Birni Sigurbjörnssyni bónda í Hlíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 689
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki vinnur að viðgerðum á meiðunum í dráttarbrautinni 24. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 120
Ásgeir Blöndal um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndi var tekin en líklega var það einhverntíma kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 567
Stákarnir að gera allt klárt fyrir næsta túr á Arnari Hu 1 30. apríl 2014. Á dekkinu eru frá vinstri: Guðmundur Henrý Stefánsson, Guðjón Guðjónsson, Gunnar Helgason, Rúnar Jósefsson, og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson. Á efra dekkinu eru óþekktur til vinstri Þröstur Árnason í miðið og óþekktur til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 103
Ragnar Högnason í spilhúsinu á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1285
(H)eldri borgarar á Skagaströnd hittast reglulega tvisvar í viku yfir veturinn í Fellsborg til að njóta samvista og vinna að hugðarefnum sínum. Þessi mynd var tekin 13. september 2012 af, frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018), Bára Þorvaldsdóttir (situr), Guðrún Soffía Pétursdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir. Tvær þær síðastnefndu eru umsjónarmenn starfsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 392
Melody Woodnut til vinstri var lengi framkvæmdastjóri Nes listamiðstöðvar. Á myndinni er hún í listamiðstöðinni ásamt óþekktir konu. Myndin var tekin seint í janúar 2013.
Guðmundur Guðnason214
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Séð yfir vinnslusalinn. Talið frá vinstri Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) í Valhöll, Magnúsína ? í Grund, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Ingvi Guðnason (d.31.12.1991) í Valhöll, Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006), Bjarni Loftsson (d.?) kíkir bak við hann, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Páll Jóhannesson bróðir hans.
Arnar HU 1 - safn 11
Magnús Filip Sævarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Arnar HU 1 - safn 37
Kristján Blöndal við störf á dekkinu á Arnari HU 1 18. maí 2013.
Ólafur Bernódusson1015
Á myndinni sem tekin var í júlí árið 2000 er verið að byggja ræsi sem tók við af gamalli einbreiðri brú yfir Hallá rétt sunnan við Vindhæli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 437
Árlega stendur kvenfélagið Hekla í Skagabyggð fyrir jólabasar í Skagabúð. Þar selja hinir og þessir varning sinn og kvenfélagið selur kaffi og með því. Þessi mynd var tekin á basarnum 1. desember 2013 af Stefáni Hólm (d.22.7.2018) til vinstri og hjónunum Rafni Sigurbjörnssyni og Ingibjörgu Ólafsdóttur (d.21.7.2017) frá Örlygsstöðum 2 til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 119
Árni Geir Ingvarsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni er verið að landa úr Arnari Hu 1. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf, smíðaður í Japan og kom til heimahafnar á Skagaströnd 1973. Reyndist hann mikið happa- og aflaskip.
Jónas Fanndal Þorvaldsson
Jónas Fanndal Þorvaldsson um borð í Arnari HU 1 18. maí 2013.
Hressir karlar
Hressir karlar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Hafsteinn Auðunn Björnsson, og Róbert Freyr Gunnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 390
Guðmundur Óskarsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri utan við bílskúr þess fyrrnefnda 18. júlí 2013. Strákurinn í bakgrunninum er Ívan Árni Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1485
Myndin var tekin í beitningaskúr Víkur ehf í lok nóvember þar sem verið er að beita fyrir Ölduna Hu 112. Karlarnir eru frá vinstri: Skúli Magnússon, Gylfi Sigurðsson og Stefán Stefánsson.
Arnar HU 1 - safn 46
Þröstur Árnason býr sig undir að skera hákarl um borð í Arnari HU 1. Slíkar skepnur koma stöku sinnum í trollið og er þá gert að þeim og inyflunum skilað aftur í lífríkið í sjónum ásamt hausnum. Fiskurinn sjálfur er svo skorinn í stór stykki sem eru fryst í körum í lestinni. Töluverð eftirspurn er eftir hákarlinum af mönnum sem standa í hákarlsverkun og breyta þessum undarlega fiski í umdeilt gómsæti sem þykir ómissandi á þorrablótum landsmanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 432
Starfsmenn kjördeildarinnar á Skagaströnd í Fellsborg 27. apríl 2013. Þann dag var kosið í 21. sinn til Alþingis frá stofnun lýðveldisins, fjórum árum og tveimur dögum eftir síðustu kosningar. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundson formaður kjörstjórnar, Sigríður Gestsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 616
Myndin var tekin 22. nóvember 2014. Á henni eru að smíða, frá vinstri: Páll Halldórsson, Ólafur Bernódusson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 473
Bæjarstarfsmaðurinn Geir Arnarson býr sig undir trjáklippingar í byrjun júlí 2013.
Jón Örn Stefánsson
Jón Örn Stefánsson tilbúinn að fara frá borði í Arnari HU 1 á gúmmítuðrunni í júní 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 541
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Árný Sesselja Gísladóttir og Óskar Ársælsson.
Fisk Seafood - safn 252
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir kynnir sér hausaþurrkun á Laugum. Konan til hægri er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Guðmundur Guðnason674
Á myndinni er frystihús Kaupfélagsins sem seinna varð Hólanes hf. Myndin er tekin áður en miklar breytingar voru gerðar á húsinu og ekki var búið að fylla upp í víkina fyrir neðan sundlaugina, sem er lengst til hægri á myndinni. Í mörg ár rak Kaupfélagið sláturhús á neðri hæð hússins á hverju hausti. Þá voru líka frystigeymslur fyrir almenning uppi í millibyggingunni milli aðal frystihússins til vinstri og vélahússins til hægri. Stigin sem sést liggja upp á þak skúrsins fyrir miðri mynd var notaður til að komast í frystihólfin sem voru innan við dyrnar á risinu á millibyggingunni. Ekki er vitað hvenær Guðmundur Guðnason tók þessa mynd en ef grannt er skoðað má sá hafíshrafl á sjónum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 511
Löndun á bryggjunni á Skagaströnd í febrúar 2014. Frá vinstri: Alex Már Gunnarsson starfsmaður fiskmarkaðarins, Vihjálmur Jónsson sjómaður, Steinn Rögnvaldsson útgerðarmaður og Haraldur Árnason starfsmaður fiskmarkaðarins.
Skagaströnd - safn475
Jón Ólafur Sigurjónsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2010 - 2014. Myndin var líklega tekin 2014.
1
…
54
55
56
…
75
Leita í myndasafninu
Leita