Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Arnar HU 1 - safn 39
Skúli Tómas Hjartarson á sínum stað í vélarúminu á Arnari HU 1 18. desember 2012.
Arnar HU 1 - safn 56
Myndin sýnir hljómsveitaræfingu um borð í Arnari HU 1. Tónlistarmennirnir eru frá vinstri: Ernst Berndsen spilar á munnhörpu, Magnús Líndal Þrastarson á gítar, Eiríkur Hilmisson á ukulele og Hans Birgir Högnason á gítar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 44
Ingibjörg Dúna Skúladóttir sem hefur verið matsveinn á Arnari HU 1 í mörg ár í smá pásu í matsalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni er verið að hlaða upp fúlgu austan við fjárhúsin við Akurgerði. Sennilega er bíllinn H 34 í eigu Gunnar Helgasonar. Heyið var þurrkað á túninu, sett í sátur og síðan var fenginn kranabíll til að flytja heyið heim og hlaða fúlgu úr því. Að lokum var svo gjarnan breiddur hessianstrigi yfir toppinn til að ekki rigndi niður í heyið.
Gunnar Helgason
Gunnar Helgason um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 50
Ómar Ísak Hjartarson um borð í Arnari HU 1 í maí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Myndin sýnir hluta Skagastrandarhafnar og gamla verksmiðjusvæðið.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 640
Báturinn Helga Guðrún Hu 30 er líklega elsti báturinn á Skagaströnd. Hann var smíðaður af Nóa bátasmið á Akureyri 1955 fyrir Ernst Berndsen (d.21.8.1983). Vél bátsina er af Sabb gerð. Eigendur bátsins í dag eru sonarsynir Ernst: Adolf H. Berndsen, Hendrik Berndsen og Ernst Berndsen. Þeir hafa gert vel við Helguna og haldið henni við. Þessi mynd var tekin 31. maí 2014 eftir gagngert viðhald sem Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður sá um. Í reynslusiglingunni á myndinni er Fritz Hendrik Berndsen við stýrið, Ólafur Guðmundsson er miðskips og fremst er Ernst Berndsen.
Guðmundur Guðnason183
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Inni í dilknum má þekkja Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) frá Sólheimum. Mennirnir, sem standa við grindina og fylgjast með, eru Steingrímur Jónsson (d.15.1.1991) Höfðakoti með ljósa húfu og Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) Blálandi með dökka húfu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gunnhildur St 29 sennilega nýkomin úr slipp á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 755
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Þá var gestum boðið upp á kaffi og meðlæti. Myndin var tekin af kennurum og nemendum sem sáu um að afgreiða kaffið. Frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Elva Þórisdóttir, María Ösp Ómarsdóttir, baksvipur Trostans Agnarssonar, Sigurður Gísli Guðjónsson og Sigurbjörg Laufey Sigurpálsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 744
Þessi mynd var tekin 26. febrúar 2011 af skreiðarhjalli sem var í Árbakkalandi á nesinu sunnan við Hrafnána. Upphaflega, þegar hann var byggður þarna á bakkanum, var hann tvö bil en þegar myndin var tekin hafði sjórinn brotið svo úr bakkanum að annað bilið er að mestu hrunið í sjóinn. Nokkru eftir að myndin var tekin var hjallurinn svo rifinn enda hafði ekki verið hengdur upp fiskur í honum í mörg ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni sést Litla bryggjan, fjaran upp með verksmiðjunni að austan og fjaran fyrir neðan núverandi fiskmarkað. Bátarnir við bryggjuna eru frá vinstri: Blíðfari, þá í eigu Birgis Árnasonar ( d. 2.2.2005) Straumnesi, Kópur Hu 28 í eigu Skafta Fanndal Jónassonar (d. 2.9.2006) svo sést í skutinn á Sigurði í eigu Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Bátarnir í fjörukambinum eru óþekktir og sama gildir um drengina á myndinni. Svo virðist sem undirbúningur sé hafinn fyrir framkvæmdir við nýtt stálþil sem rekið var niður upp með verksmiðjunni að austan og er notað í dag sem togarabryggja.
Axel Jóhann Hallgrímsson 115
Sævar Hallgrímsson fylgist með hífingu úr spilhúsinu á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 593
Þórarinn Brynjar Ingvarsson vert á Borginni fer yfir málin með Páli Halldórssyni fyrir einhver veisluhöld á Borginni. Myndin var tekin 1. nóvember.
Guðmundur Guðnason202
<P>Réttað í stóðrétt í Spákonufellsrétt. Sennilega 1964. </P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 660
Jóhann Hafsteinsson starfsmaður Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd í vorfagnaði starfsfólks í veiðihúsinu á Laxárdal 13. júní 2014.
Guðmundur Guðnason318
Þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt. Konan lengst til vinstri er Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d. 24.11.1994) frá Sævarlandi. Börnin sem halda í hrútinn eru Díana Kristjánsdóttir frá Grund og Heimir Sigmarsson. Stúlkan í köflóttu úlpunni, með rauða lambhúshettu, er Edda Sigurðardóttir. Brosmilda stúlkan milli Heimis og Eddu er Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti en í rauðu úlpunni er Málfríður Jóhannsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason165
<p>Í Stafnsrétt 1963. Steingrímur Bergmann Magnússon réttarstjóri frá Eyvindarstöðum til vinstri og Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) bóndi á Brandsstöðum til hægri. Hægra megin við Steingrím eru Markús Sigurjónsson frá Reykjarhóli í Skagafirði og Sigurjón Guðmundsson frá Fossum.</p>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd eu þeir Vilhelm Harðarson til vinstri og Guðjón Arason að mæla út fyir nýrri lögn meðfram Fellsborg að sunnanverðu.
Guðmundur Guðnason850
<P>Hrútasýning í Húnaveri. Hrútadómar kynntir. Maðurinn sem heldur á töskunni er Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðunautur, síðar búnaðarmálastjóri frá Guðlaugsstöðum í Blöndudal (bróðir Björns Pálssonar alþingismanns). Lengst til hægri er Júlíus Jónsson (d. 17.5.1991) á Mosfelli. Næst honum er Ingþór Líndal Sigurðsson (d. 13.10.1998) frá Uppsölum en sköllótti maðurinn er Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur á Blönduósi. Guðmundur Guðmundsson (d. 20.10.1977) frá Holti í Svínadal heldur í hrútinn. </P><br><P> </P>
Ólafur Bernódusson 858
Myndin var tekin á opnu húsi vefstofunnar Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega tekið til starfa við að vefa værðarvoðir og teppi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks til vinstri að sýna Lárusi Ægi Guðmundssyni til hægri framleiðslu á værðarvoð.
larus004
Myndin var tekin 1981 í Hólaneskirkju eldri þegar séra Oddur Einarsson til vinstri, tók við embætti sóknarprests af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem er til vinstri. Séra Pétur þjónaði sókninni í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 870
Hafrún HU 12 á landleið úr snurvoðartúr í ágúst 2006.
Arnar HU 1 - safn 59
Menn gera sér ýmislegt til dundurs á frívöktum um borð í Arnari HU 1. Hér hafa strákarnir komið sér upp heitum potti í fiskkari og láta fara vel um sig með pilsner í hönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fjær),óþekktur (Kristján Blöndal?), Ragnar Ásmundur Einarson og óþekktur.
Axel Jóhann Hallgrímsson 23
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1960. Á henni ekur maður (Hafsteinn Sigurbjarnarson??) á Farmal Cub dráttarvél sem þá voru að byrja að koma í eigu bænda á Skagaströnd og þóttu mikil þarfaþing.
Ólafur Bernódusson1016
Vinnuflokkur tyllir sér niður í tilefni af reisugilli þjónustuhússins sem þeir byggðu á tjaldstæðinu. Myndin var tekin í júlí árið 2000. Karlarnir eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), Gunnar Helgason, Sigurður Björnsson, Baldvin Hjaltason, Árni Halldór Eðvarðsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Hrólfur Pétursson.
Guðmundur Guðnason171
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Gylfi Jóhannsson Læjarbakka er lengst til vinstri, Ásgeir Axelsson (d.8.6.11) Litla-Felli er með uppbrettar ermar og Anna Bára Sigurjónsdóttir úr Sunnuhlíð er með skuplu á höfðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 654
Monika Jónasdóttir við störf í Samkaupsversluninni á Skagaströnd á jólaföstunni 4. desember 2014.
Guðmundur Guðnason167
Dregið í dilka í Stafnsrétt 1963. Til vinstri á myndinni er Grétar Símonarson bóndi í Goðdölum einnig má á myndinni þekkja Steingrím Bergmann Magnússon bónda á Eyvindarstöðum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 620
2014 voru sveitastjórnakosningar sem lentu á sjómannadegi þess árs. Kosið var í Höfðaskóla en ekki í Fellsborg eins og venja er. Á myndinni er kjörstjórnin. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Lárus Ægir Guðmundsson formaður kjörstjórnar, Ingibjörg Kristinsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 515
Hafrún Hu 12 kemur til hafnar á Skagaströnd úr snurvoðarróðri í mars 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1106
Nýr bátur, Flosi Hu 15, kemur í flota Skagstrendinga á hafísári. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Eiður Hilmarsson keyptu bátinn frá Akranesi 1960. Sigurður Árnason (d.26.3.2013) eignaðist bátinn 1965 og flutti hann með sér til Hellisands er hann flutti þangað nokkrum árum síðar. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Eins og sjá má á myndinni er búið að ýta upp sandbrekku í fjörunni til að draga bátinn á flot af bílpallinum. Ýtan er tilbúin í fjöruborðinu og íshröngl sést í baksýn. Nýju eigendurnir eru Eiður sem er nær bílnum og Gunnar fjær honum báðir peysuklæddir. Lengst til vinstri stendur Karl Berndsen (d.12.2.1995) og leiðir son sinn Ernst Berndsen. Vörubíllinn var í eigu Reykjavíkurborgar en ökumaður hans var Hjalti Skaftason frá Skagaströnd, sem vann á bílnum, mikið við að flytja efni í virkjanir á Þjórsársvæðinu. Hafði Hjalti fengið bílinn lánaðan til að flytja bátinn norður fyrir vini sína. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d. 25.5.1985).
Ólafur Bernódusson 754
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 af Árna Steinari Jóhannssyni (d.1.11.2015) stjórnarformanni RARIK að ræsa hitaveituna á Skagaströnd í fyrsta sinn í stjórn-og dæluhúsinu við Sólarveg.
Guðmundur Guðnason204
Réttað í Spákonufellsrétt, sennilega 1964.
Arnar HU 1 - safn 86
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 út á brúarvængnum að kíkja á borgarísjaka sem er á reki stutt frá.
Fisk Seafood - safn 252
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir kynnir sér hausaþurrkun á Laugum. Konan til hægri er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Arnar HU 1 - safn 114
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Þresti Árnasyni um borð í Arnari Hu 1.
Óþekktur ljósmyndari408
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Ökumaður bílsins er óþekktur en bíllinn er H-28. Árni Svanberg Jónsson á Skagaströnd átti Ford bíl með þessu númeri þannig að ef til vill er það hann sem er undir stýri á bílnum. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
larus018
Þessi mynd var líklega tekin í október 1991 þegar Hólaneskirkja var vígð. Á henni eru meðal annars fjórir prestar sem þjónuðu í Skagastrandraprestakalli. Frá vinstri á myndinni eru sérarnir: Ágúst Sigurðsson (d.22.8.2010), Bolli Gústavsson (d.27.3.2008) vígslubiskup á Hólum, Herra Ólafur Skúlason biskup, Oddur Einarsson fyrrverandi sóknarprestur, Guðni Þór Ólafsson prófastur, Sigurður Guðmundsson (d.9.1.2010) vígslubiskup á Hólum og Skálholti, Ægir Sigurgeirsson fyrrverandi sóknarprestur, Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrrverandi sóknarprestur, óþekktur, Egill Hallgrímsson sóknarprestur þegar myndin var tekin og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu prestana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 721
Sólveig Róarsdóttir við vinnu sína í saumastofunni Íris 21. janúar 2015. Sólveig - Didda - er menntaður klæðskeri og er annar af eigendum saumastofunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 701
Adolf H. Berndsen prófar nýja sláttuvél Golfklúbbs Skagastrandar 9. júní 2008.
Guðmundur Guðnason001
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), sem tók þessa mynd, hafði yndi af dýrum. Hann átti nokkrar kindur með Guðna Sveinssyni föður sínum í Ægissíðu. Þessi flekkótta kind með tvö flekkótt lömb gæti hafa heitið Flekka og var í hjörð þeirra feðga.
Arnar HU 1 - safn 40
Brugðið á leik í stakkageymslunni á Arnari HU 1 í janúar 2013. Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Elvar Freyr Snorrason til hægri bregða á leik með dauðan sel sem kom í trollið.
Arnar HU 1 - safn 65
Þessi mynd var tekin um borð í gamla Arnari HU 1 þ.e.a.s. fyrsta skuttogara Skagstrendings hf sem kom til Skagastrandar 1973. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Egill Bjarki Gunnarsson við hlerann á bak.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) bjó lengst af á Akri (Hólabraut 13). Hér er Hebbi í aðstæðum sem hann þekkti vel; á sjó á handfæraveiðum með bros á vör.
Guðmundur Guðnason127
Þennan bíl, H 275, gerði Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972), sem er á myndinni, út í vöru - og fólksflutningum milli Skagastrandar og Reykjavíkur í mörg ár. Í stóru húsi bílsins var hægt að taka 4-5 farþega og oftar en ekki var uppselt í þessi sæti. Ferðin til Reykjavíkur tók 8 - 10 tíma með hádegisstoppi í Fornahvammi þar sem starfrækt var hótel og matsala. Númi átti heima á Hólabraut 1 og byggði húsið sem þar stendur. Vöruflutningarekstur hans skýrir hvers vegna bílskúrinn við húsið er svo stór og með mikla lofthæð því hann gat bakkað bílnum á myndinni inn í skúrinn meðan hann var að afferma hann. Einnig voru þar geymdir pakkar og annað sem fólk var að senda með honum í næstu ferð suður. Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason, líklega árið 1969.
guðmundur212
Fólks-og vöruflutningabíll Engilberts Óskarssonar Dodge 1954 númer H-275. Seinna eign Valdimars Núma Guðmundsonar. Myndin er tekin frá Ægisíðu og sést í Melstað bakvið bílinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 583
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður stígur upp á bryggju úr bát sínum, Alda Hu 121, komandi úr línuróðri um miðjan október 2014.
Fisk Seafood - safn 250
Fólkið á myndinni er hluti starfsfólks Rækjuvinnslunnar hf í heimsókn hjá Norðanfiski á Húsavík. Allir gestir verða að klæðst hlífðarfatnaði. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Guðmannsson, Cornelia Silud Boncales (nær), Rósa B. Einarsdóttir (fjær), óþekktur, Cristina Silud Yecyec, Halldór Gunnar Ólafsson og tvær óþekktar konur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Guðmundur Guðnason151
Í Hofsrétt sumarið 1965. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti. Konan á miðri mynd er Guðlaug Eggertsdóttir, sem bjó um tíma á Árbakka, dóttir Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum. Stúlkan til hægri er Gígja Axelsdóttir frá Litla-Felli.<br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamla Hólaneskirkja máluð. Málararnir eru óþekktir en sennilega er um fólkið í sóknarnefndinni að ræða.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 571
Lítil jarðýta á kafi ofan við Kálfshamarsvík í maí 2014 þegar verið var að leggja rafstreng eða ljósleiðara í jörð um Skagabyggð. Grafan er komin til bjargar en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd er frá Kúvíkum í Reykjarfirði á Ströndum. Þarna var athafnasvæði Carls Fr. Jensen (d.25.6.1948) kaupmanns. Í Kúvíkum bjó líka Thorarensenfólk m.a. Jakob Thorarensen (d.29.1.1911) kaupmaður. Kúvíkur eru nú löngu kominar í eyði og allar byggingar horfnar. Á tímum einokunarverslunar 1602 - 1787 voru tvær verslunarhafnir við Húnaflóa; Skagaströnd og Kúvíkur. Kúvíkur var svokölluð lýsishöfn því aðal útflutningur þaðan var hákarlalýsi, sem var verðmætt eldsneyti í borgum Evrópu. Á myndinni er verið að skipa út eða í land varningi fyrir verslunina í Kúvíkum sem sést í baksýn. Myndin er nokkuð dæmigerð fyrir vinnubrögðin við upp- og útskipun áður en alvöru hafnir komu til sögunnar. Myndin var líklega tekin einhverntíma á bilinu 1910 - 1930.
Arnar HU 1 - safn 93
Ágúst Ómarsson í stólnum í brúnni á Arnari HU 1. Myndin var tekin 24. júní 2004
Árni Geir Ingvarsson - safn
Snjómokstur á höfninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 566
Hjalti Hólmar Indriðason á bryggjunni 29. apríl 2014 að leggja upp í túr með Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 503
Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar Aldan HU 112 var nýkomin úr línuróðri. Á myndinni eru Karl Olsen til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri að undirbúa að hífa balana í land.
larus011
Myndin var tekin 6. október 1991 í Hólaneskirkju eldri af starfsmönnum þar. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2..2003) formaður kirkjukórsins og fyrrverandi organisti, séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari og Julian Hewlett organisti og kórstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Kambur í friðsæld í Skagastrandarhöfn. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður sonur hans smíðuðu nokkra svona báta en þeir voru gjarnan notaðir við grásleppuveiðar.
1
…
55
56
57
…
75
Leita í myndasafninu
Leita