Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason194
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum á hestbaki í réttunum 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 503
Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar Aldan HU 112 var nýkomin úr línuróðri. Á myndinni eru Karl Olsen til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri að undirbúa að hífa balana í land.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Kambur í friðsæld í Skagastrandarhöfn. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður sonur hans smíðuðu nokkra svona báta en þeir voru gjarnan notaðir við grásleppuveiðar.
Guðmundur Guðnason175
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir í Reykholti og Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum.
larus011
Myndin var tekin 6. október 1991 í Hólaneskirkju eldri af starfsmönnum þar. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2..2003) formaður kirkjukórsins og fyrrverandi organisti, séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari og Julian Hewlett organisti og kórstjóri.
Arnar HU 1 - safn 103
Þórarinn Grétarsson fær sér kaffisopa milli stríða í vinnslunni um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 35
Hafþór Gylfason stýrimaður gluggar í gögn í brúnni á Arnari HU 1 18. desember 2012.
Guðmundur Guðnason200
Tekist á við hross í stóðréttum í Spákonufellsrétt. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991). Maðurinn til hægri við hann er Sigmar Jóhannesson ( d. 20.4.2000) og Lárus Árnason í Ási (d.21.5.2011) er lengst til hægri. Jónas Skaftason (d.17.11.2017) er lengst til vinstri. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 í Skagastrandarhöfn. Á myndinni á að fara að koma ís um borð með íssniglinum sem teygir sig út yfir bátinn. Ólafur Magnússon var gerður út á rækjuveiðar bæði innfjarðar- og úthafsrækjuveiðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin meðan Gamla Tunnan, sem er bragginn með græna þakinu, var notuð sem áhaldahús fyrir Höfðahrepp. Nú er Spákonuhof til húsa í byggingunni. Á myndinni sést hluti starfsmanna Vinnuskólans á sumardegi.
Ólafur Bernódusson 764
Þessi mynd var tekin í æðarvarpi á Höfnum á Skaga 31. maí 2005. Bændur þar gera vel við kollurnar sínar og hafa smíðað fjölmörg svona "einbýlishús" fyrir þær til að verpa í. Leigan fyrir svona hús er handfylli af dún.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 819
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari við störf uppi í mastri á einhverjum bát 28. júlí 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Örvar Hu 14 á siglingu. Þessi bátur var sá fyrsti í eigu Skagstrendings hf sem bar nafnið Örvar. Hann kom til Skagastrandar um áramótin 1970/71. Hann var annar tveggja báta á Íslandi sem var með fiskkassa undir aflann um borð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 501
Áhöf Hafrúnar HU 12 í höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónson, Karl Olsen, Sigurjón Guðbartsson eigandi og útgerðarmaður Hafrúnar og Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórdís var björgunarbátur björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Báturinn var keyptur frá Noregi þar sem hann var smíðaður 1987. Hér er Þórdísin að koma í fyrsta sinn til Skagastrandar á bílpalli og ekki einu sinni búin að fá nafn. Um borð í bátnum eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Margrét Ólafsdóttir. Gunnlaugur Sigmarsson stendur aftan við bílinn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 123
Magnús Sigurðsson vélstjóri um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilaga var það kringum 1990.
Guðmundur Guðnason146
Í Hofsrétt sumarið 1965. Frá vinstri á myndinni eru: Óþekktur maður, Jón Árnason Náttbrún (d.11.4.1986) (Ólafsvöllum), óþekkt, Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991) Rjúpnafelli (áður Kambakoti), Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996) Sunnuhlíð, óþekktur drengur og Haraldur Árnason frá Litla Bergi.
Ólafur Bernódusson 758
Þessi smáhvalur - hnýðingur - kom í veiðarfæri Önguls ÍS 115 11. apríl 2007. Á myndinni er verið að landa hvalnum í höfninni á Skagaströnd en maðurinn á myndinni er óþekktur.
Guðmundur Guðnason186
Réttastörfum í Spákonufellsrétt 1969 að ljúka. Ágúst Jakobsson (Gústi púff) (d.1.6.1989) frá Blálandi fylgist með drætti á síðustu kindunum
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 698
Mennirnir á myndinni eru í kaffipásu í áhaldahúsi hreppsins 1. júní 2005. Frá vinstri: Gunnar Þór, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Ágúst Bragason.
Baldur Eðvarðsson - safn 8
Kolbeinn í Dal var nýsmíði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. og átti heimahöfn í Súðavík. Ekki er vitað hvenær báturinn var smíðaður en líklega var það á áttunda áratugnum.
IMG_5214
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Á myndinni eru menn úr björgunarsveitinni Strönd að létta bátinn með því að færa aflann og annað lauslegt yfir í björgunarbátinn Þórdísi. Begga var síðan dregin á flot af Húnabjörginni á næsta flóði og reyndist minna skemmd en menn óttuðust.
Ólafur Bernódusson 770
Sigurbjörn Berg Sigurðsson skipstjóri heldur á sjaldséðum fiski sem hann fékk á línuna 12. febrúar 2010. Ekki er vitað hvað fiskurinn heitir og enginn sem sáu fiskinn höfðu séð hann áður. Ef þú veist hvaða fiskur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi óhrjálegi braggi var byggður einhverntíma á árunum 1943 - 1946 í tengslum við byggingu síldaverksmiðjunnar á Skagaströnd. Í gegnum tíðina þjónaði Bragginn mörgum hlutverkum; var geymsla, slökkvistöð, vélaverkstæði og bátasmiðja. Að lokum var hann svo rifinn einhverntíma á árunum kringum aldamótin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd ekur Þröstur Líndal hjólbörum, fullum af múrbrotum, út úr kjallaranum .
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 er í eigu Stefáns Jósefssonar. Báturinn er einn af nokkrum bátum sem Stefán hefur átt með þessu nafni gegnum tíðina.
Óþekktur ljósmyndari409
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er stór loftpressa sem lengi var í notkun á Skagaströnd t.d. við hafnargerð. Ljósa húsið til hægri er líklega Höfðatún/Strandgata 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1945 - 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 447
Bátur leggur að bryggju við Sægarð í norð austan roki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á árinu 2014:
Guðmundur Guðnason185
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) í Höfðabrekku, uppi á réttarveggnum, talar við Steingrím Jónsson (d.15.1.1992) í Höfðakoti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 711
Myndin var tekin 11. febrúar 2015 af Jóhanni Rögnvaldssyni við að landa úr Sæfara SK 112 sem hann átti með bróður sínum og fleirum.
Arnar HU 1 - safn 59
Menn gera sér ýmislegt til dundurs á frívöktum um borð í Arnari HU 1. Hér hafa strákarnir komið sér upp heitum potti í fiskkari og láta fara vel um sig með pilsner í hönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fjær),óþekktur (Kristján Blöndal?), Ragnar Ásmundur Einarson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 517
Hjónin Guðbjörg Lýðsdóttir og Lýður Hallbertsson mála um borð í bát sínum Dagrúnu Hu 121 í lok ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 654
Monika Jónasdóttir við störf í Samkaupsversluninni á Skagaströnd á jólaföstunni 4. desember 2014.
Guðmundur Guðnason167
Dregið í dilka í Stafnsrétt 1963. Til vinstri á myndinni er Grétar Símonarson bóndi í Goðdölum einnig má á myndinni þekkja Steingrím Bergmann Magnússon bónda á Eyvindarstöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd brjóta þeir Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Ragnar Björnsson til hægri, upp gólfið á kjallaranum.
Guðmundur Guðnason017
Þessi mynd er af réttarstörfum í Mjóadalsrétt sem stóð sunnan við túnið í Gautsdal. Laxárdalsfjöll í baksýn Syðra- Horn til hægri Ytra- Horn og Illvirðishnjúkur til vinstri. Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ómar Ingi Ómarsson
Ómar Ingi Ómarsson um borð í Arnari HU 1, 18. maí 2013.
Björn Bergmann 021
Mennirnir sem vinna að smíði Ásdísar og Guðmundar Þórs, fyrstu nýsmíða stöðvarinnar 1970 - 1971, eru talið frá vinstri: Pálmi Sigurðsson, Sveinn Ingi Grímsson, Þórbjörn Jónsson, Eðvarð Ingvason, Karl Guðmundsson og Hinrik Jóhannesson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 668
Guðmundur Ólafsson til vinstri ræðir við starfsmenn Höfðahrepps - Sveitarfélgsins Skagastrandar í dag - þá Þröst Líndal með húfu og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) bæjarverkstjóra þar sem þeir voru að útbúa port við áhaldahúsið.
Axel Jóhann Hallgrímsson 38
Myndin var tekin sumarið 2008 við hlið Arnars HU 1 í höfninni. Mennirnir eru Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og Heiðar Sigurbjörnsson til hægri.
Baldur Eðvarðsson - safn 10
Ásdís HU 10 tilbúin til sjósetningar nýsmíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Tveir óþekktir starfsmenn standa í stafni bátsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 554
Mælingar með nýjustu tækni utan við Karlsskála 9. apríl 2014. Frá vinstri: Vilhelm Björn Harðarson, Árni Geir Ingvarsson og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Arnar HU 1 - safn 13
Tryggvi Hlynsson með kunnuglegan bakgrunn við brottför Arnars HU 1 frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Axel Jóhann Hallgrímsson 106
Gunnlaugur Sigmarsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 136
Ingvar Þór Jónsson fær sér kaffibolla um borð í Arnari HU 1 meðan beðið er eftir að trollið komi upp. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 53
Róbert Freyr Gunnarsson til vinstri og Tryggvi Hlynsson til hægri virða fyrir sér lítinn kolkrabba um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 774
Myndin var tekin 23. apríl 2010 þegar Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra var formlega opnað í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd. Viðstödd voru, meðal annarra, ráðherrar, rektorar háskólanna og ýmsir ráðamenn úr heimabyggð. Fyrsti forstöðumaður setursins, Lára Magnúsardóttir, er fjórða frá hægri í fremstu röð.
Guðmundur Guðnason177
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri á myndinni: Rúnar Jósefsson Reykholti, Elsa Lára Blöndal, Líney Jósefsdóttir Reykholti, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) Kárastöðum, Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) Sólheimum, Hrönn Árnadóttir og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) Reykholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 540
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Eygló Kristín Gunnarsdóttir og Guðmundur Ólafsson.
Arnar HU 1 - safn 118
Arnar HU 1 á siglingu í úfnum sjó 5. nóvember 2003. Þetta skip var fjórða skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist með því nafni. Smíðaður í Noregi 1986 en keyptur notaður frá Rússlandi í árslok 1995 og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í mars 1996.
Arnar HU 1 - safn 130
Björn Sigurðsson kíkir í tölvuna sína um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason210
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Hér er Skafti Fanndal Jónasson að vinna við að fara innan í skrokkana og ná innyflunum óskemmdum yfir á borð þar sem þau voru hlutuð sundur á réttan hátt og flokkuð.
Arnar HU 1 - safn 111
Svanur Árnason um borð í Arnari HU 1 2. september 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 604
Einar Gunnarsson við vinnu hjá Höfðaskóla haustið 2014.
Ólafur Bernódusson 818
Myndin í Bjarmanesi var tekin við undirskrift samnings um stofnun listamiðstöðvarinnar Nes 6. mars 2008. Magús B. Jónsson sveitarstjóri skrifar undir en hjá honum er óþekktur fulltrúi Byggðastofnunar, sem tók þátt í stofnun listamiðstöðvarinnar. Aftan við þá stendur fólk úr stjórn miðstöðvarinnar, frá vinstri: Steindór Rúberg Haraldsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd eru þeir Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Helgi Gunnarsson til hægri að koma fyrir nýrri lögn meðfram Fellsborg að sunnanverðu. Búið er að koma fyrir rakavarnadúk á sökklinum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 553
Nýr viðlegukantur gerður í apríl 2014. Á myndinni er byrjað að klæða dekkið á bryggjunni en eftir á fylla að og malbika. Mennirnir á myndinni eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Helga Björg Hu 7 nýskveruð og tilbúin til átaka við veiðar. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) vélstjóri, og einn þriggja eigenda bátsins, stendur frammá.
Arnar HU 1 - safn 27
Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson um borð í Arnari HU 1. Líklega var myndin tekin í mars 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 827
Myndin var tekin í byrjun júlí 2008 af vinnufélögunum og vinunum Eðvarð Hallgrímssyni, sem er uppi á bílnum, og Þór Arasyni (d.11.8.2018) sem tekur á móti efniviðnum af bílnum.
1
…
56
57
58
…
75
Leita í myndasafninu
Leita