Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Helga Björg Hu 7 nýskveruð og tilbúin til átaka við veiðar. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) vélstjóri, og einn þriggja eigenda bátsins, stendur frammá.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 711
Myndin var tekin 11. febrúar 2015 af Jóhanni Rögnvaldssyni við að landa úr Sæfara SK 112 sem hann átti með bróður sínum og fleirum.
Arnar HU 1 - safn 97
Vélstjórar í "búrinu" í vélarúminu á Arnari HU 1. Til vinstri er Guðmundur Andersen en Björn Sigmundsson er til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 102
Sigurjón Ingólfsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 sem Baader-maður. Slíkir menn sjá um að halda fiskvinnsluvélunum um borð í góðu standi.
Arnar HU 1 - safn 116
Síðutogarinn Arnar HU 1 var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist en það var 1968. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er skipið að þræða sig gegnum hafíshrafl. Arnar reyndist mikið happaskip og lagði grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Arnar HU 1 - safn 110
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á heitum sumardegi. Karlarnir eru búnir að útbúa sér heita potta til að hvíla sig í á frívaktinni. Mennirnir eru frá vinstri: Sævar Berg Ólafsson, Skúli Tómas Hjartarson, Þröstur Árnason, Gunnar Þröstur Ásgeirsson? og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Baldur Eðvarðsson - safn 9
Ásdís HU 10 bíður þess að vera sjósett sem fyrsta nýsmíði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. 1971. Báturinn varð ekki langlífur því hann fórst 3. desember sama ár út af Þorlákshöfn. Mennirnir fjórir um borð björguðust um borð í annan bát.
Ólafur Bernódusson 807
Séra Fjölnir Ásbjörnsson flytur predikun í Hólaneskirkju 29. apríl 2007.
Óþekktur ljósmyndari407
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er verið að vinna við grjótnám í Höfðanum en grjótið var sprengt fram og notað til uppfyllingar við hafnargerð á Skagaströnd. Sú hafnargerð hófst 1934 en ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir ýtumanninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 704
Steinunn Steinþórsdóttir og Sigurður Björnsson spjalla saman 7. maí 2003. Ekki er vitað hvar þau voru en líklega var það í Bjarmanesi þegar endurbætur þar stóðu sem hæst.
Guðmundur Guðnason216
Þessi mynd er af síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd tekin haustið 1961. Skúrarnir hjá verksmiðjunni voru beitinga-, geymslu- og útgerðarskúrar í eigu ýmissa aðila.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hafrún Hu 12 áður en hún sökk í höfninni og var svo endurbyggð. Hafrún var í eigu Vík sf og gerð út á rækjuveiðar þegar þessi mynd var tekin. Skuttogarinn Arnar Hu1 (Japans-Arnar) í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 677
Þessar ungu stúlkur úr vinnuskólanum eru að leggja af stað frá áhaldahúsinu til að fegra bæinn með litskrúðugum blómum. Myndin var tekin 20. júní 2014. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, óþekkt, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001 var starfrækt hestaleiga. Á myndinni má sjá biðröð við hestaleiguna.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamli Ólafur Magnússon Hu 54 í Reykjavíkurhöfn á leið sinni til Grindavíkur á netavertíð..
Árni Geir Ingvarsson - safn
Um borð í björgunarbátnum Þórdísi. Óþekktur lengst til vinstri, Ástmar Kári Ástmarsson í miðunni og Ómar Haraldsson, formaður björgunarsveitarinnar Strandar á þeim tíma, er lengst til hægri.
Arnar HU 1 - safn 104
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp til myndatöku 27. júlí 2003. Krjúpandi eru frá vinstri: Gunnar Helgason, Gunnar Reynisson, Brynjar Pétursson, óþekktur, Þröstur Árnason, Finnur Kristinsson, Bæring Skarphéðinsson, Grétar Smári Hallbjörnsson og Ágúst Ómarsson. Standandi frá vinstri: Kristján Karlsson, Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Hólmgeir Kristmundsson, Björn Sigmundsson, Guðlaugur Hjaltason, Reynir Lýðsson, Tryggvi Hlynsson, óþekktur, Slavko Velemir, Stefán Sveinsson, Guðjón Guðjónsson og Svanur Árnason. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en það er greinilega verið að halda upp á eitthvað með því að skála í freyðivíni.
Guðmundur Guðnason181
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum á spjalli. Til hægri sér í Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) í Reyholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1020
Adolf Jakob Berndsen (d.27.8.2018) umboðsmaður Olís á Skagaströnd við olíuafgreiðslu um borð í Arnar HU 1 í Skagastrandhöfn 18. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd er Ragnar Björnsson að moka burt gólfinu í kjallaranum en það var brotið upp og nýjar lagnir lagðar í stað þeirra gömlu.
Guðmundur Guðnason316
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Drengurinn í úlpunni fremst á myndinni til vinstri er Guðmundur Kristinsson (Lilli), maðurinn í fjólubláu peysunni til vinstri er Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) frá Háagerði. Fremst á myndinni má sjá baksvipinn á Ólafi Guðlaugssyni (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi í blárri peysu og Hrólfi Jónssyni (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi í ljósum jakka. Aðrir eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 78
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Gunnar Helgason, Róbert Freyr Gunnarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hafbjörg Hu 100 á leið í slipp. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir um þennan bát: "Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1987 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12".
Arnar HU 1 - safn 36
Baadermenn sjá um viðhald Baader fiskvinnslvéla um borð í Arnari HU 1. Á þessari mynd eru þeir frá vinstri: Slavko Velemir, Guðmundur Gunnlaugsson og Sigurjón Ingólfsson. Myndin var tekin 18. desember 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 897
Ágúst Ingi Ágústsson kennari í Höfðaskóla við undirbúning kennslu 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1147
Jón Gunnarsson til vinstri og Reynir Lýðsson slægja á fiskmarkaðnum 17. september 2004.
Arnar HU 1 - safn 83
Skipsfélagar um borð í Arnari HU 1 á óþekktum tíma. Frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Þröstur Árnason, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Sævar Berg Ólafsson, Elvar Freyr Aðalsteinsson og Gunnar Helgason.
Guðmundur Guðnason206
<P>Hér er Kristín Sigurðardóttir á Kárastöðum á bakinu á Blesa frá Kárastöðum. Blesi varð mjög gamall og var alla tíð ákaflega barnvænn hestur. Myndin var tekin við Spákonufellsrétt eftir göngur, sennilega árið 1964.</P>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn.
Arnar HU 1 - safn 72
Tryggvi Hlynsson og Ingibjörg Skúladóttir um borð í Arnari HU 1.
Guðmundur Guðnason185
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) í Höfðabrekku, uppi á réttarveggnum, talar við Steingrím Jónsson (d.15.1.1992) í Höfðakoti.
Arnar HU 1 - safn 27
Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson um borð í Arnari HU 1. Líklega var myndin tekin í mars 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 827
Myndin var tekin í byrjun júlí 2008 af vinnufélögunum og vinunum Eðvarð Hallgrímssyni, sem er uppi á bílnum, og Þór Arasyni (d.11.8.2018) sem tekur á móti efniviðnum af bílnum.
Arnar HU 1 - safn 108
Ísing er einn af verstu óvinum sjómanna. Hún hleðst á skip í ótrúlegu magni og veldur því að skip missa stöðugleika sinn og verða hættuleg. Á þessari óskýru mynd eru menn að berja ísingu af Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sigurður Jónsson Hu 18 var smíðaður á Skagaströnd 1966 af Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Báturinn hét fyrst Sigurður en það nafn var í einkaeigu þannig að nafninu var breytt í Sigurður Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1071
Feðgarnir Stefán Jósefsson, uppi á bryggjunn, og Jón Örn Stefánsson um borð binda Ólaf Magnússon HU 54 við Skúffugarðinn 2. mars 2010.
Baldur Eðvarðsson - safn 7
Guðmundur Þór Hu 17 var annar af tveimur fyrstu bátunum sem smíðaðir voru hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Hann var 20 brl. með 188 ha. Kelvin Dorman vél. 1975 seldi Einar Guðmundsson bátinn til bræðranna Karls og Lýðs Hallbertssona á Djúpuvík en þar hlaut hann nafnið Dagrún ST 12. Síðar eignaðist Lýður bátinn einn og flutti til Skagastrandar þar sem Dagrún er gerð út enn í dag (sept. 2019) nú undir nafninu Dagrún Hu 121. (heimildir: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Axel Jóhann Hallgrímsson 114
Jón Helgason um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 724
Myndin var tekin 28. september 2010 þegar ný rannsóknarstofa BioPol var tekin í gagnið. Mennirnir á myndinni voru starfsmenn fyrirtækisins á þeim tíma. Frá vinstri Jakob Kasper líffræðingur, Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri BioPol og Sigurður Baldursson líffræðingur.
Arnar HU 1 - safn 100
Grétar Smári Hallbjörnsson um borð í Arnari HU 1 29. september 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 204
Eftir að hafa unnið í bæjarvinnunni yfir sumarið fóru krakkarnir með leiðbeinendum sínum um haustið í Kántrýbæ og borðuðu saman hamborgara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2012 eða 2013. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Arnar HU 1 - safn 84
Ernst Berndsen vélstjóri í kunnuglegu umhverfi í vélarúminu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason208
<P>Réttað í stóðrétt á Spákonufellsrétt 1964. Frá vinstri eru: Stefán Hólm (d.22.7.2018) frá Bakka, Georg Hjartarson (d.13.9.2001) frá Vík, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum með svipu í hendi, Jón Jónsson (d.9.7.1991) í köflóttri skyrtu og Jónas Skaftason (d.17.11.2017). Maðurinn með hvítu húfuna fyrir aftan Jónas er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum og síðan Vilberg Jóhannesson (d.6.11.2002). Lengst til hægri, með dökkt hár, er Birgir Þórbjörnsson frá Flankastöðum en við hlið hans með kaskeiti á höfðinu er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð. Næst okkur til hægri, með köflótta húfu er Benjamín Sigurðsson (d.30.9.2004) úr Skálholti og bak við hann sér í Jónatan Jónsson (d.17.7.1971) sem bjó í fjárhúsum á túninu fyrir ofan Fellsborg í mörg ár en síðustu æviárin í skúr sem Höfðahreppur reisti honum suður í Mýri. </P><br><P> </P>
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 10
Myndin var tekin veturinn 1991 þegar framkvæmdir stóðu yfir við byggingu Sægarðs í Skagastrandarhöfn. Til hægri á myndinni eru steinsteypt ankeri og mitt í gegnum þau er löng járnstöng sem fer gegnum skúffurnar sem mynda viðlegukantinn til vinstri og draga þær að stálbitanum sem réttir þær af. Ankerin eru síðan hulin möl og svo er steypt plan yfir allt saman.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Rækjubáturinn Erling Ke 45 strandaði í fjörunni neðan við dráttarbrautina vegna þess að gírinn í skipinu bilaði þannig að skipstjórinn gat ekki skipt yfir í bakkgírinn. Erling náðist óskemmdur af strandstað fyrir eigin vélarafli. Sennilega var myndin tekin seint á níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi bátur var smíðaður í skipasmíðastöðinni á Skagaströnd og heitir Sundhani St 3 og er frá Drangsnesi. Hann er hér í skveringu í slippnum.
Baldur Eðvarðsson - safn 11
Ásdís Hu 10 bíður sjósetningar sem fyrsta nýsmíði Skipasmíðastövar Guðmundar Lárussonar hf 1971. Ásdís varð ekki langlíf því hún fórst 3. desember 1971 fyrir utan Þorlákshöfn. Mennirnir fjórir um borð björguðust yfir í annan bát.
Arnar HU 1 - safn 68
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 um borð í skipi sínu.
Arnar HU 1 - safn 127
Magnús Filip Sævarsson í tölvuleik um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 123
Mynd frá því um 1970 tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 sem var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist. Myndin var tekin aftur á bátadekki. Á henni eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson,óþekktur, Ómar Jakobsson, óþekktur og Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1018
Óli Einar Albertsson vinnur í löndun úr Arnari Hu 1 á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) um borð í bát sínum Helgu Björg Hu 7.
Guðmundur Guðnason135
Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991) frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagaströnd, skoðar eyrnamark á lambi í Hofsrétt 1965. Hinn maðurinn á myndinni er Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði. Stúlkan er óþekkt.
Arnar HU 1 - safn 92
Risahol komið á dekkið á Arnari HU 1 þriðja ágúst 2003. Mörg handtök eftir við vinnslu aflans og að frysta hann og pakka. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 131
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 á kunnuglegum slóðum í brúnni að hífa trollið.
Baldur Eðvarðsson - safn 14
Jörvi ÞH 300 í höfninni á Skagaströnd. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf líklega einhverntíma á áttunda áratugnum fyrir aðila á Húsavík.
Arnar HU 1 - safn 75
Jónas Fanndal Þorvaldsson til vinstri og Einar Þór Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari HU 1.
Arnar HU 1 - safn 76
Nokkrir skipsfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Sveinþór Arason, Magnús Filip Sævarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Róbert Freyr Gunnarsson.
Arnar HU 1 - safn 109
Viðgerðarvinna á vinnsludekkinu í Arnari HU 1 6. maí 2002. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Slavko Velemir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), óþekktur, Ernst Berndsen, og Guðmundur Andersen.
Guðmundur Guðnason148
Sumarréttir í Hofsrétt 1965. Á myndinni eru frá vinstri: Óþekktur, Haraldur Árnason, Jón Árnason (d.11.4.1986) Náttbrún (Ólafsvöllum), Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996) Sunnuhlíð, Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) Höfðakoti, Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) Ásholti og óþekktur.
1
…
57
58
59
…
75
Leita í myndasafninu
Leita