Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Unnið við að steypa þekju á Sægarð árið 1991.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ástmar Kári Ástmarsson í útkalli á Þórdísinni.
Baldur Eðvarðsson - safn 13
Ásdís Hu 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Á myndinn bíður báturinn sjósetningar. Vegna lélegra myndgæða er ekki hægt að þekkja fólkið né börnin á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1184
Þessar ungu stúlkur fylgdust spenntar með uppsetningu á jóltrénu á Hnappstaðatúninu 24. nóvember 2010. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Telma Jónasdóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir og Sigurbjörn Björgvinsson sem reisti tréð með kranabíl sínum.
Skagaströnd - safn468
Þessi teikning er eftir listamanninn Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) sem lengi bjó á Skagaströnd. Því miður eru engar upplýsingar til um hverjir mennirnir á myndinni eru. Þeir eru örugglega Skagstrendingar að vinna við að spyrða fisk til að hengja upp í skreið. Myndin var gerð 1960 þannig að nú getur fólk, sér til gamans, giskað á hverjir þetta eru.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 863
Kristín Kristmundsdóttir hlúir að Mikael Garðari Hólmgeirssyni á leikskólanum Barnaból 17. ágúst 2009.
Guðmundur Guðnason173
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) Höfðakoti, Eggert Skarphéðinsson (d.2.6.1987) Sólheimum og Stefán Jósefsson Reykholti.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hrönn Hu 15 var smíðuð 1944 en keypt til Skagastrandar 1962 af Högna Jenssyni, Þórhalli Árnasyni og Indriða Hjaltasyni. Seinna (1964) eignuðust bræðurnir Baldur Árnason og Júlíus Árnason Hrönnina og gerðu hana út bæði frá Skagaströnd og Sandgerði. Hrönn var brennd 1967 eftir að hafa verið dæmd ónýt.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin var tekin um borð í Sæljóninu RE á netavertíð 1961. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 862
Skipstjórarnir á Arnari HU 1, Guðjón Guðjónsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri, fagna frábærum aflaverðmætum Arnars Hu 1 árið 1999. Þá var Arnar fyrsta skipið á Íslandi til að fiska fyrir meira en milljarð á einu ári. Strákurinn til vinstri er Kristján Pétur sonur Guðjóns skipstjóra. Myndin var tekin um borð rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á sjó. Þetta er Arnarborg Hu 11 á heimleið af rækjuveiðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þrír innstu bátarnir voru allir gerðir út á rækju frá Skagaströnd og Blönduósi. Auðbjörg liggur upp við bryggjuna en hana átti Gunnar Sveinsson. Þá kemur Húni en hann var gerður út frá Blönduósi af Ásgeiri Blöndal sem átti bátinn. Helga Björg var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar, Gylfa Sigurðssonar og Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998). Yst er svo trillan Lára sem Skagstrendingur hf átti til að taka af henni kvótann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1259
Þröstur Líndal Gylfason, bóndi á Kjalarlandi, að draga kindurnar sínar í dilk í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn476
Jensína Lýðsdóttir sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2002 - 2006 og síðan aftur 2010 - 2014. Myndin var líklega tekin 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Á þessari mynd er verið að koma kalki á svæði Skógræktarfélags Skagastrandar á flóanum fyrir ofan Hólabergin. Kalkinu var blandað saman við jarðveginn sem þótti of súr. Vilhjálmur Skaftason ekur bílnum og Hallbjörn Björnsson, sem lengi var formaður Skógræktarfélagsins, er í röndóttri peysu. Aðrir eru óþekktir. </P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1011
Hafsteinn Pálsson vinstra megin og Hallgrímur Hjaltason hægra megin spjalla saman í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 868
Myndin var tekin í ágúst 2009. Hjalti Reynisson rafvirki er til vinstri með yfirmanni sínum Hallbirni Björnssyni rafverktaka hjá Neistanum.
Baldur Eðvarðsson - safn 12
Ásdís Hu 10 nýsmíðuð 1971 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf bíður eftir sjósetningu. Báturinn fórst 3. desember 1971 utan við Þorlákshöfn en mannbjörg varð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 659
Sigurjón Elí Eiríksson glaðbeittur við vinnu sína á höfninni 8. desember 2014.
Arnar HU 1 - safn 69
Jónas Fanndal Þorvaldsson við vinnu um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Eitt af tækjum björgunarsveitarinnar Strandar var slöngubátur. Hér eru nokkrir félagar sveitarinnar að krunka yfir bátnum. Frá vinstri: Ómar Haraldsson, Bergþór Gunnarsson, Gísli Snorrason, óþekktur, baksvipur Vilhelms Jónssonar, Vilhelm Harðarson, Ástmar Kári Ástmarsson, baksvipur Hendriks Berndsen, óþekkt, Gunnlaugur Sigmarsson, óþekktur og baksvipur Guðmundar J. Björnssonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1232
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum, Boggu í Vík Hu 6 19. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 872
Dagrún ST 12 að koma í land úr netaróðri 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fánarnir þurrkaðir eftir notkun á ljósastaurum bæjarins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 531
Slökkviliðsmenn á æfingu 9. september 2014. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson vara slökkviliðsstjóri, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sigurjón Ingólfsson slökkviliðsmenn.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd er Árni Halldór Eðvarðsson, sem var einn af verkamönnunum sem vann verkið.
Arnar HU 1 - safn 117
Arnar HU 1. Þetta skip er líklega fjórða skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist með þessu nafni. Skipið siglir nú undir merki Fisk Seafood á Sauðárkróki því það fyrirtæki keypti Skagstrending hf sem er því ekki til lengur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 973
Sigurbjörn Björgvinsson hjálpar konunni sinni Þórey Jónsdóttur hafnarverði með rafmagnið á höfninni 3. júlí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1106
Hjalti Hólmar Indriðason málar grindverkið við húsið sitt að Hólabraut 10 í góðviðrinu 1. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1058
Skúli Magnússon í beitningaskúr Sæfara SK 112 útgerðarinnar 19. janúar 2010. Skúli beitir fyrir Sæfarann auk þess að róa stöku sinnum á eigin bát; Blæ Hu 77.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 939
Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla til hægri skemmta sér vel í vinnunni í skólanum 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grímsey St 2 í slipp á Skagaströnd
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) flytur predikun í Hofskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Eftir að trébátur er búinn að standa uppi á landi allan veturinn eru borðin í honum gjarnan rifin , þ.e. komnar sprungur í borðin, og báturinn lekur. Þá þykir gott ráð að sökkva bátnum í fjöruborðinu og bleyta vel í honum í nokkra daga því þá "hlaupa sprungurnar saman" og báturinn verður vatnsþéttur að nýju. Á þessari mynd var Páll Jóhannesson að þétta bátinn sinn fyrir sumarið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 657
Guðmundur Rúnar Kristjánsson skáld og húsasmiður við vinnu sína 12. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Anný Hu 3 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1977. Báturinn var seinna seldur austur á firði þar sem hann þjónaði lengi sem póstbátur meðal annars til Mjóafjarðar. Anný hélt nafninu eftir að hún kom austur en fékk þá einkennisstafina Su 71 . Á myndinni sést að hafnar eru undirbúningsframkvæmdir við nýjan viðlegukant Miðgarð (Arnarsbryggjuna). Til hægri sér í stefnið á Stíganda Hu 9 og aftan við Anný er Sigurður Jónsson Hu 18 og líklega Guðbjörg Hu 31.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Séð heim að Árbakka í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Fjós og hlaða í byggingu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Bátarnir sem liggja hér við Litlu bryggjuna eru: næst okkur til vinstri sést aftan á Sigurð Hu 18 í eigu Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) frá Jaðri, stóri báturinn er Stígandi Hu 9 í eigu Bjarna Helgasonar (d.30.12.1983) frá Holti. Bjarni er um borð eitthvað að búa í haginn fyrir sig. Báturinn lengst til hægri er Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988) frá Kambakoti.
Guðmundur Guðnason198
Kindur voru eitt af uppáhalds myndefnum Guðmundar Guðnasonar, sem tók þessa mynd. Myndin var tekin af fé í dilk í Spákonufellsrétt 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1164
Nýjum vigtarskúr komið fyrir á sínum stað við hafnarvogina með aðstoð fjögurra lyftara 22. október 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 257
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er af slökkviliðinu á Skagaströnd við æfingu hjá Rækjuvinnslunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 958
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 13. júní 2007. Á henni eru Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Einar Gunnarsson hægri. Þeir eru rykugir upp fyrir haus enda að vinna við trefjaplastviðgerðir í einhverjum bát.
Arnar HU 1 - safn 71
Beinhákarl er ekki vinsæll meðafli á Arnari Hu 1. Erfitt er að ná þessari risaskepnu úr trollinu. Ráðið er að skera gat á belginn og hífa hann úr og í sjóinn aftur. Ekki vilja menn fá hann niður í móttöku enda er lifrin úr þessari friðsemdar skepna ekki nýtt lengur. Á myndinni er búið að ná hákarlinum úr trollinu ásamt nokkru af karfanum í trollinu og karlarnir eru að bisa við að koma honum í sjóinn.
Ólafur Bernódusson 816
Hjónin Vignir Sveinsson og Helga Imgimarsdóttir bændur í Höfnum eru með mikið æðarvarp. Þau fullvinna æðardúninn sinn og búa til æðardúnssængur eins og þá sem Helga heldur á á myndinni. Vignir er með visk af þurrkuðum og fullhreinsuðum dún í höndunum. Myndin var tekin 24. október 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1144
18. ágúst 2004 fór starfsfólk vinnuskólans saman í rafting í Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði til halda upp á lok skólans það sumarið. Fremst, liggjandi: Aðalheiður Rögnvaldsdóttir vinstra megin og Heiða Berglind Fannarsdóttir hægra megin. Krjúpandi frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Sindri Jóelsson, Hanna María Gylfadóttir, Albert Haraldsson, Jóhann Már Berry, Ester Ösp Víðisdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir og Katrín Guðmundsdóttir. Standandi frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Alma Eik Sævarsdóttir, Oddur Aron Valdimarsson, Ragnar Björnsson, Eydís Ósk Einarsdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Arnar Hu 1 á hátíðardegi, fánum prýddur í höfn á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin í lokahófi starfsmanna Höfðahrepps 1998 í Kántrýbæ. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Guðmundur Guðmundsson, Lilja Kristinsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Rósa Björg Högnadóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
larus095
Lóðin framan við Hólaneskirkju lagfærð 12. október 1991 fyrir vígslu kirkjunnar sem var 20. október 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 984
Óli Axel Óskarsson vinnur hjá Vélaverkstæði Skagastrandar við stýri á óþekktum bát 30. maí 2008.
Arnar HU 1 - safn 135
Sigurður Svavarsson vélstjóri um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1083
Hjónin Stefán Sveinsson og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir að undirbúa opnun hárgreiðslustofunnar VIVA líklega sumarið 2010.
Baldur Eðvarðsson - safn 6
Guðmundur Þór Hu 17 var annar af tveimur fyrstu bátunum sem smíðaðir voru hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Hann var 20 brl. með 188 ha. Kelvin Dorman vél. 1975 seldi Einar Guðmundsson bátinn til bræðranna Karls og Lýðs Hallbertssona á Djúpuvík en þar hlaut hann nafnið Dagrún ST 12. Síðar eignaðist Lýður bátinn einn og flutti til Skagastrandar þar sem Dagrún er gerð út enn í dag (sept. 2019) nú undir nafninu Dagrún Hu 121. (heimildir: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Þegar myndin var tekin átti að fara að skíra bátinn og því er breitt yfir nafn hans á stefninu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Auðbjörg Hu 6 meðan hún var gerð út á snurvoð. Auðbjörgin var rifin á Skagaströnd 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Höfðaskóli málaður. Bíllinn tilheyrði Þresti Líndal, sem var húsvörður í skólanum um árabil.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1255
Gangnamenn reka hluta af safninu eftir þjóðveginum til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gangnamennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1075
Eiríkur Lýðsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að skoða færi og annan búnað sem til þarf við grásleppuveiðar. Eiríkur gerir út bátinn Dagrún HU 121 og Stefán var háseti hjá honum þessa vertíð. Myndin var tekin í norðaustan kalda 19. mars 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1017
Sigurður Ingimarsson hífir upp úr lestinni á Arnari Hu 1 í löndun á Skagaströnd 17. apríl 2008. Sigurður hefur lengi verið traustasti starfsmaður fiskmarkaðarins á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 602
Hafþór Gylfason að beita línu haustið 2014.
larus093
Kór Hólaneskirkju flísalagður 12. október 1991 áður en altarinu er komið þar fyrir. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalögnina en hann er til vinstri á myndinni. Til hægri er óþekktur aðstoðarmaður hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1112
Vinnuskólagrill sumarið 2010. Frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Anna Dís Ragnarsdóttir, Jóhann Örn Stefánsson, Ásdís Birta Árnadóttir, Guðlaugur Ómar Guðmundsson (fjær), Kristbjörg Ragnheiðardóttir (nær), Sonja Sif Ólafsdóttir, óþekkt, Aron Breki Hjartarson og Kristín Gerður Óladóttir.
1
…
58
59
60
…
75
Leita í myndasafninu
Leita