Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Gunnar Jónsson008
Blóðgaður fiskur í öllum stíum á dekkinu á Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973
Gunnar Jónsson002
Finnur Kristinsson fylgist með þegar verið er að taka trollið inn á síðuna á Örvari Hu 14
055
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum við heyskap. Í baksýn eru gömlu fjárhúsin á Efri-Harrastöðum
Guðrún Guðbjörnsdóttir025
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
054
Jón Árnason frá Steinnýjarstöðum - seinna á Ólafsvöllum á Skagaströnd
Sigmar Hróbjartsson - safn006
1945 - 46 verið að byggja strompinn og stoðirnar í skemmuna eru að rísa. Maðurinn á myndinni vinnur við fráslátt.
Gunnar Jónsson003
Jón Jósefsson æfir skotfimi á frívakt á Örvari Hu 14. Gylfi Guðjónsson fylgist með.
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Stefán Jósefsson - safn003
Vísir Hu 10 heldur í róður frá Skagaströnd upp úr 1960
30680019
Unnið í löndunarkrananum
Ólafur Bernódusson014
Frá vígslu Bjarmaness eftir endurbyggingu. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Halldór G. Ólafsson, Elías Björn Árnason, Sigríði Stefánsdóttur, Adolf J. Berndsen og Sigurð Björnsson
Gunnar Jónsson013
Ólafur Ingibjörnsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar)
30680028
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi á hafnarplaninu.
Guðmundur Guðnason710
Smalamennska í Borginni. Féð rekið heim að rétt.
Ólafur Bernódusson012
Fjölmenni var við vígslu Bjarmaness eftir endurbygginguna 19. júní 2004
Gunnar Jónsson006
Allar stíur fullar af fiski um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973.
Gunnar Jónsson001
Finnur Kristinsson bindur fyrir pokann um borð í Örvari HU 14.
Evald Hemmert032
Myndin er tekin árið 1906 upp eftir bryggjustúf sem stóð í fjörunni austan við Einbúann. Þar er nú uppfylling og stór tvöföld skemma - síldarskemman. Upp af bryggjunni eru verslunarhús Höphnersverslunar næst en hærra húsið var pakkhús verslunarinnar. Assistentastofa er til vinstri við verslunina en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Lengst til vinstri á myndinni er fjós og hesthús sem tilheyrði versluninni og verslunarstjóranum. Mennirnir sem eru við vinnu á bryggjunni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir022
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (með húfu) salta grásleppuhrogn
Gunnar Jónsson010
Gott hal híft um borð í Arnar Hu 1 (Japans-Arnar)
Þórður Jónsson120
Áhöfnin á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Jósef Stefánsson, Sigurður Árnason skipstjóri, Bernódus Ólafsson og Jón Stefánsson.
Ólafur Bernódusson015
Adolf H. Berndsen oddviti þakkar Lárusi Ægi Guðmundssyni vel unnin störf í framkvæmdanefnd um endurbyggingu Bjarmaness 19. júní 2004.
Guðrún Guðbjörnsdóttir033
Davíð Reynisson frá Neðri-Harrstöðum og Gunnar Albertsson frá keldulandi í saltfiskvinnslu
Sigmar Hróbjartsson - safn004
Á þessari mynd er verið að byggja húsin sem voru upp á þrónum beggja megin við þrærnar sjálfar 1945 - 46
046
Hyrntur hrútur frá Brandaskarði í taumi
Guðrún Guðbjörnsdóttir061
Grasfræi útdeilt í fötur til að dreifa á melinn ofan við Skíðaskálann. Fullorðnir á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Eygló Gunnarsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir042
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir selja kæstan hárkarl á Kántrýhátíð 1998 á sölumarkaði á Hnappstaðatúni.
Guðmundur Guðnason703
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti, Þórunn Bernódusdóttir frá Stórholti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Kristinn Lúðvíksson frá Steinholti, Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti, Tveir óþekktir leikarar, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) frá Höfðaborg (Bankastræti 9) og tveir óþekktir leikarar. Ef þú þekkir óþekktu leikarana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir023
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 19.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir045
Gylfi Sigurðsson veiðir þorsk um borð í Hafrúnu Hu 12. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Jón Örn Stefánsson fylgjast spenntir með.
Guðrún Guðbjörnsdóttir031
Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Þórhalla Þórhallsdóttir, Danica Zupancic, Sigfús Sævar Sigurðsson, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Sigmar Hróbjartsson - safn014
Réttað í Landsendarétt. Réttin stóð á sjávarbakkanum norðan við Réttarholt - á Landsenda
Stefán Jósefsson - safn001
<p>Á þessari merkilegu mynd sést innrásarkarið sem keypt var til Skagastrandar til að nota í hafnargarðinn (Útgarð). Karið kom hingað í júlí 1948 og var þá sett í geymslu þarna sem sést á myndinni. Í desember brotnaði karið og ef myndin er skoðuð vel sést að karið er brotið í tvennt. Karið var síðan notað til að lengja hafnargarðinn eftir mikið japl og jaml og fuður. Þar hefur það verið til endalausra vandræða því það misseig og á það komu göt neðan við sjávarmál. Einnig hefur komið í ljós að verksvik hafa verið stunduð við smíði þess því járnið, sem átti að binda sem stoðgrind í veggjum karsins, var bara skellt í stórum búntum ofan í steypuna og gerði því lítið gagn. Báturinn á myndinni, sem er að koma úr róðri, er Stígandi Hu 9 sem var í eigu Bjarna Helgasonar frá Holti</p>
Gunnar Jónsson005
Mokafli um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971- 1973
Guðmundur Guðnason700
Myndin er tekin í Spákonufellsrétt. Stúlkan í köflóttu skyrtunni er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi og ljóshærða stúlkan er Guðbjörg Kristinsdóttir. Skeggjaði maðurinn með húfuna er Einar Haraldsson fá Kjalarlandi (seinna í Dagsbrún). Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Bernódus Ólafsson og til hægri við hann er Jóhann Jakobsson.
Gunnar Jónsson012
Trollið tekið um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Gunnar Jónsson004
Um borð í Örvari Hu 14. Jón Jósefsson bíður á dekkinu meðan verið er að hífa.
035
Skemma úr torfi og timbri við Efri-Harrastaði
Sigmar Hróbjartsson - safn001
Á myndinni er verið að byggja færibandið á löndunarbryggjunni 1945 - 46. Skipið sem sjá má við bryggju er varðskipið Ægir, smíðað árið 1929.
Þórður Jónsson121
Bernódus Ólafsson í síldarvinnu á Skagaströnd einhverntíma á sjötta áratugnum.
Sigmar Hróbjartsson - safn003
Skemman, strompurinn og verksmiðjan rísa 1945 - 46
Ólafur Bernódusson007
Hrólfur Pétursson og Sigurður Björnsson við vinnu að endurbyggingu Bjarmaness 2003 - 2004
30680018
Unnið að málun og viðhaldi löndunarkranans
Sigmar Hróbjartsson - safn010
Strompurinn að ná fullri hæð 1945 - 46
Gunnar Jónsson007
Finnur Kristinsson bátsmaður á Örvari Hu 14 leysir frá fullum poka af fiski.
043
Kári Kristjánsson ? snýr heyi einhverntíma í kringum 1938 með snúningsvél frá bænum Efri-Harrastöðum.
Ólafur Bernódusson010
Frá vígslu Bjarmaness 19. júní 2004. Lárus Ægir Guðmundsson flytur ávarp af tröppum hússins.
Sigmar Hróbjartsson - safn002
Verksmiðjan byggð 1945-46. Á myndinni er verið að byggja þrærnar og rörið milli skemmu og verksmiðju er ekki komið.
Guðrún Guðbjörnsdóttir029
Kaffitími í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Gunnar Albertsson, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir, Erla Theodórsdóttir, Danica Zupancic, Inga Kristjánsdóttir, Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, Óþekkt, Sigrún Benediktsdóttir og Ottó Ákason
Gunnar Jónsson014
Unnið í trolli um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari)
Sigmar Hróbjartsson - safn009
Strompurinn í byggingu og skemman líka 1945 - 46.
Guðrún Guðbjörnsdóttir026
<P>Frá vinstri á myndinni: Hallgrímur Kristmundsson, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (Daddi). Þeir sitja við borðið niðri í lúkarnum á Helgu Björgu Hu 7 sem þeir áttu og réru til fiskjar á í 20 ár. Hallgrímur V. Húnfjörð Kristmundsson (d. 9.10.1998) var vélstjóri um borð en hann átti þrjú börn með konu sinni Ingibjörgu Axelmu Axelsdóttur áður en þau skildu. Börnin voru: Jóhanna, Sævar Rafn og Axel Jóhann. Gylfi var stýrimaður um borð í Helgunni. Hann á þrjú börn: Hafþór, Guðbjörgu og Jóney með Guðrúnu Guðbjörnsdóttur konu sinni. Lengst til hægri er Jón Ólafur eða Daddi eins og hann er alltaf kallaður. Daddi var skipstjóri á Helgu Björgu og hann á fjögur börn með konu sinni Guðrúnu Sigurðardóttur - sem er reyndar systir Gylfa. Börn þeirra Dadda og Guðrúnar eru: Þórey, Hallbjörg, Sigrún og Ingvar Þór. Þessir þrír menn voru ákaflega samhentir um að láta hlutina ganga í útgerðinni og þrátt fyrir titlatogið hér að ofan gengu þeir allir í öll störf um borð Í Helgu Björgu, enda gekk útgerðin vel hjá þeim félögum.</P><br><P> </P>
Ólafur Bernódusson016
Helgi Gunnarsson yfirsmiður við endurbygginguna fer yfir sögu framkvæmdanna við vígsluna 19. júní 2004
Guðmundur Guðnasonr680
Óþekktur við réttarstörf í Hofsrétt
Stefán Jósefsson - safn006
Gunnar Sveinsson um borð í Auðbjörgu Hu 6 á leið í netaróður 1968.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir - safn069
Við lendinguna í Bæjarvíkinni á Finnsstaðarnesi. Maðurinn sem stendur aftan við bátinn er Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum og maðurinn fremst við bátinn er Davíð Sigtryggsson frá Neðri-Harrastöðum. Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Útræði var úr Bæjarvíkinni og enn má sjá ummerki eftir byggingar við víkina. Bátar voru sjósettir með handafli og síðan róið og eða siglt á miðin. Þegar komið var úr róðri var báturinn síðan dregin á land oft með hjálp snúningsspils en einnig oft bara á höndum. Þá skipti miklu máli að hafa góða hlunna til að draga bátinn eftir til að draga úr mótstöðunni. Þegar báturinn var svo kominn á sinn stað var oft borið í hann grjót til að hann fyki nú ekki og skemmdist. Aflanum var svo skipt á milli sjómannanna í fjörunni eftir ákveðnum reglum þar sem eigandi bátsins fékk meira en hinir.
Guðmundur Guðnason704
Réttarstörf - rúningur - í Hofsrétt. Lengst til hægri er Rúnar Jósefsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001)snýr bakinu í myndavélina. Þá kemur Laufey Jónsdóttir (d.25.12.1969) og konan í rauðköflóttu skyrtunni er Sigríður Guðlaugsdóttir (d.23.5.1996) frá Bjarmalandi. Ari Ólafsson hjálpar móður sinni Jóninnu Þórey Hafsteinsdóttur (d.24.11.1994) að troða ull í poka. Ullarpokar sjást á réttarveggnum.
Stefán Jósefsson - safn011
Gissur Jóhannsson situr í léttabát frá dýpkunarskipinu Gretti en þar starfaði Gissur sem aðstoðarkokkur. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur en gæti verið kokkurinn um borð. Myndin er tekin við Hrísey á Eyjafirði.
Guðrún Guðbjörnsdóttir062
Grasfræ gengur á milli manna fyrir dreifingu þess í hlíðum Spákonufells. Frá vinstri: Elísabet Kristjánsdóttir (Elsa), Elínborg Jónsdóttir kennari, Jón Ingi Ingvarsson rafvirki, Sigfús Jónsson sveitarstjóri og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Guðmundur Guðnason702
Réttastörf í Hofsrétt á Skaga. Fremst á myndinni er Páll Jóhannesson en maðurinn vinstra megin á myndinni í ljósum jakka er Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og stúlkan í köflóttu skyrtunni í miðjum fjárhópnum er Áslaug dóttir hans. Stúlkan í grænu peysunni er Guðbjörg Kristinsdóttir. Maðurinn lengst frá okkur fyrir miðju í ljósum buxum og brúnni peysu er Jón Hinrik Árnason (d.4.11.1986) sem var bóndi á Steinnýjarstöðum.
1
…
5
6
7
…
75
Leita í myndasafninu
Leita