Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Arnar HU 1 - safn 74
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Ómar Ingi Ómarsson, óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson, Þröstur Árnason, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Gunnar Helgason og Guðmundur Finnbogason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 602
Hafþór Gylfason að beita línu haustið 2014.
larus093
Kór Hólaneskirkju flísalagður 12. október 1991 áður en altarinu er komið þar fyrir. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalögnina en hann er til vinstri á myndinni. Til hægri er óþekktur aðstoðarmaður hans.
Arnar HU 1 - safn 80
Guðmundur Finnbogason í vinnslunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 11
Myndin var tekin haustið 1990 af byrjunarframkvæmdum við Sægarð í Skagastrandarhöfn. Byrjað var á að keyra út kjarna úr möl og er það í gangi á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1015
Finnur Kristinsson vélstjóri á Arnari Hu 1, með húfu á höfðinu, spjallar við olíuafgreiðslumann á bryggjunni á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 706
Myndin var tekin 4. febrúar 2015 um borð í Arnari HU 1. Á henni spjalla saman Hólmgeir Kristmundsson til vinstri og Guðmundur Andersen til hægri.
Arnar HU 1 - safn 94
Það er kalsamt og erfitt starf að berja ísingu af heilu skipi. Það skiptir þó miklu máli að það sé gert í tíma því hún hefur mikil áhrif á stöðugleika skipsins og mörg dæmi eru þekkt um slys sem urðu vegna mikillar ísingar á skipum. Á myndinni er verið að berja ísingu af rekkverki um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 892
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við vinnu sína á bókasafni Höfðaskóla 11. desember 2007.
Arnar HU 1 - safn 134
Ingvar Þór Jónsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1162
Gamli vigtarskúrinn fjarlægður til að rýma fyrir nýjum, stærri og betri. Sigurbjörn Björgvinsson hífir, Rúnar Kristjánsson og Hallbjörn Björnsson passa upp á rafmagnskaplana en maðurinn við hornið á skúrnum er óþekktur. Myndin var tekin 24. september 2010.
larus013
Séra Egill Hallgrímsson les úr ritningunni fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en séra Egill var vígður sóknarprestur í Skagastrandarprestakalli í maí 1991 og nýja kirkjan var svo vígð í október sama ár. Myndin hefur því verið tekin einhverntíma sumarið 1991 og messan hefur verið ein af síðustu athöfnunum í gömlu kirkjunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1180
Vilhjálmur Jónsson landar með lyftara á Skagastrandarhöfn 2. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 708
Grétar Smári Hallbjörnsson um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 808
Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri og útgerðarmaður á leið, í einni af mörgum ferðum sínum, inn í vigtarskúrinn við höfnina. Myndin var tekin í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 705
Róbert Freyr Gunnarsson til vinstri og Hallbjörn Freyr Ómarsson hægra megin um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1047
Frímann Lúðvíksson að mála gamla Hólanesfrystihúsið H-59 við Höfðann sem nú hýsir m.a. rannskóknastofur BioPol. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2016.
Ólafur Bernódusson 777
Bjarni Jónasson fyrrverandi starfmaður BioPol við skrifborðið sitt 26. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo: "<em>Megas Hu 69 6646 (1646). Báturinn var smíðaður úr plasti í Hafnarfirði 1984 og var 4,9 brl. með 165 ha. Volvo Penta vél. Gylfi Guðjónsson og Hjörtur Guðbjartsson keyptu bátinn og settu sjálfir niður vélina. Þeir áttu bátinn þar til hann var seldur til Stykkishólms 1988 og þaðan var hann seldur til Grænlands 1993".</em> Á þessri mynd sést Gylfi Guðjónsson standandi í dökkum jakka en aðrir eru óþekktir. Líklega var myndin tekin á sjómannadegi því drengurinn í gulu buxunum er rennblautur og staurinn efst á myndinni til hægri hefur sennilega verið notaður í koddaslag.</p>
Arnar HU 1 - safn 99
Á myndinni eru menn að berjast við að koma ísingu af Arnari HU 1 í sjóinn. Ísing sem hleðst á skip í vondum veðrum er stórhættuleg því hún hefur mikil áhrif á stöðugleikann. Mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 96
Jóhannes Heiðmar Indriðason við vinnu um borð í Arnari HU 1 25. mars 2004.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Um tíma var rekin spunaverksmiðja á Skagaströnd í húsnæði gamla frystihússins undir Höfðanum. Fyrirtækið sem hét Árblik keypti spunavélar og lager úr þrotabúi Foldu á Akureyri . Spunnin voru ullarteppi og aðrar vörur úr ull í verksmiðjunni sem Fannar Viggósson stýrði sem framkvæmdastjóri. Reksturinn gekk ekki vel og lagði verksmiðjan upp laupana eftir nokkurra ára rekstur. Þessi mynd er úr spunasal verksmiðjunnar meðan allt var í fullum gangi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1410
Myndin var tekin í Kjörbúðinni á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konan með hattinn er Monika Jónasdóttir en lengra frá er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 132
Karl Rósinbergsson (d.29.3.2003) til vinstri og Níels Grímsson til hægri við aðgerðaborðið, líklega á Arnari HU 1 - Japans Arnari- ,sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf gerður út af félaginu 1973 - 1995.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1485
Myndin var tekin á bryggjunni 19. október 2011. Vilhjálmur Jónsson sjómaður til vinstri og Haraldur Árnason, starfsmaður fiskmarkaðarins, til hægri. Þeir eru að fara yfir stærðarflokkunina á fiskinum í körunum svo kaupendur fái réttar stærðir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 968
Vilborg GK 320 að koma úr línuróðri 14. október 2006 í suð-vestan brælu í höfn á Skagaströnd.
Arnar HU 1 - safn 70
Hljómsveitaræfing á frívaktinni um borð í Arnari HU 1 fimmta maí 2004. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Guðlaugur Hjaltason, Þröstur Árnason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen og Fannar Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 707
Um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015. Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson og Guðmundur Andersen. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Arnar HU 1 - safn 77
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 af nokkrum áhafnarmeðlimum. Í fremri röð frá vinstri: Gunnar Helgason, Hafsteinn Auðunn Björnsson og óþekktur. Standandi frá vinstri: Baldur Magnússon, Valdimar Viggósson, tveir óþekktir, Hans Birgir Högnason, óþekktur og Elvar Freyr Aðalsteinsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1277
Myndin var tekin 13. september 2012 af konum í félagsstarfi eldri borgara á Skagaströnd í kjallara Fellsborgar. Konurnar eru frá vinstri: sér í Árný Hjaltadóttur, Sylvía Hrólfsdóttir og óþekkt kona aftan við hana, Guðný Finnsdóttir, Margrét Matthildur Björnsdóttir, Svava Valgerður Kristinsdóttir, Dagný Hannesdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Hjá þeim stendur Guðrún Soffía Pétursdóttir, önnur umsjónarkvenna félagsstarfsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 í eigu hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hér er verið að sjósetja Sundhana St 3 eftir skverun í slippnum. Ekki er vitað hverær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 973
Sigurbjörn Björgvinsson hjálpar konunni sinni Þórey Jónsdóttur hafnarverði með rafmagnið á höfninni 3. júlí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1217
Myndin var tekin 7. júní 2011 af löndun úr strandveiðibátnum Bogga í Vík Hu 6. Sigurgeir Árnason, sem var með bátinn á þessum tíma, stærðarflokkar fisk upp úr kari en Sigurður Ingimarsson hjá fiskmkaðnum er við kranann. Til hægri eru kappróðrabátarnir Gustur og Gola bundnir við flotbryggjuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 664
Hjónin Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri og Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri í kaffistofunni í Höfðaskóla. Saman stýrðu þau skólanum 2014 til 2019.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hér er verið að steypa þekjuna á Sægarð 1991. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1040
Myndin var tekin 20. júní 2006 þegar krakkar voru að undirbúa skólagarðana sunnan við íþróttavöllinn og setja niður kartöflur og planta grænmeti.
Arnar HU 1 - safn 138
Fjórir skipverjar á bátadekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 sem var fyrsta skip Skagstrendings hf keyptur í janúar 1969. Arnar reyndist vel og lagði grunn að velgengni Skagtrendings hf í útgerðarmálum. Skipverjarnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Þór Kristinsson, Ómar Jakobsson og Jón Haukdal Þorgeirsson (d. 21.1.2017)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1272
Systurnar Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Ólafur Bernódusson 850
Félagar í Lionsklúbbi Skagastrandar máluðu Hólaneskirkju í september 2007. Málararnir eru frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson, Halldór Gunnar Ólafsson, Magnús B. Jónsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Adolf H. Berndsen, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Guðjón Guðjónsson og séra Fjölnir Ásbjörnsson.
Arnar HU 1 - safn 107
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvernær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 106
Guðjón Guðjónsson - Jonni Ebba - skipstjóri á Arnari HU 1 á sínum stað í brúnni 20. júlí 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 807
Þórey Jónsdóttir hafnarvörður Skagastrandarhafnar kíkir út um gluggann á vigtarskúrnum í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 873
Sigurgeir Árnason tilbúinn með landfestina um borð í Hafrúnu HU 12 þegar lagt var að bryggju í Skagastrandarhöfn 23. ágúst 2006.
Arnar HU 1 - safn 125
Baldur Magnússon veifar til barna sinna og konu við komu Arnars HU 1 til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 794
Feðgarnir Pétur Eggertsson til vinstri og Hrólfur Eggert Pétursson til hægri flaka þorkafla sinn eftir sjóferð snemma í september 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 843
Kvistur smíðaður á húsið á Fellsbraut 4 6. maí 2008. Á myndinni eru eigendurnir og hjónin, Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir með son sinn Einar Ara Einarsson á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Björgunarskipið Húnabjörg sem staðsett er á Skagaströnd og er í umsjón björgunarsveitarinnar Strönd. Á þessari mynd undirbýr Húnabjörg sig fyrir að snúa togaranum Arnari Hu1 í höfninni til að auðvelda honum brottför.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1135
Myndin var tekin 26. apríl 2003 í kaffistofu rafmagnsverkstæðisins Neistans. Á henni eru Hjalti Reynisson rafvirki til vinstri og Hallbjörn Björnsson rafvirki og eigandi Neistans er til hægri.
larus090
Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt til vinstri og Örnólfur Hall arkitekt til hægri framan við gömlu Hólaneskirkju. Þeir félagar hönnuðu nýja Hólaneskirkju sem reist var 3-4 metra vestan við þá gömlu. Myndin var tekin 10. október 1989 en nýja kirkjan var vígð 20. október 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 876
Uppskera hjá krökkunum á leikjanámskeiðinu sumarið 2006. Fjöldi barna sótti námskeiðið og eitt af því sem þau gerðu var að rækta eigið grænmeti. Þessi mynd var tekin 24. ágúst þegar uppskeran stóð sem hæst. Allt var skolað eftir kúnstarinnar reglu eins og sjá má áður en þess var neytt.
Ólafur Bernódusson 903
Áhugasamir nemendur á námskeiði um rekstur fyrirtækja í Höfðaskóla í febrúar 1999.
Ólafur Bernódusson 854
Árni Geir Ingvarsson gerir við holu í malbikinu á Bogabrautinni haustið 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1496
Myndin var tekin 9. nóvember 2011 af Þór Arasyni (d.11.8.2018) þar sem hann var að vinna við einhverjar lagnir við Bogabraut 17.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Stígandi Hu 9 í plássinu sínu í Skagastrandarhöfn. Stígandi var í eigu Bjarna Helgasonar (d.30.12.1983) í Holti. Stígandi sökk í höfninni í vitlausu veðri 1966 en var síðan gerður upp og m.a. sett í hann ný vél. Stígandi var tekin af skrá 1974 og þá talinn ónýtur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1163
22. október 2010 var nýi vigtarskúrinn fluttur frá verkstæði Helga Gunnarssonar, þar sem hann var smíðaður, niður að hafnarvigtinni þar sem honum var svo komið fyrir. Helgi Gunnarsson gengur á undan bílnum til að vara vegfarendur við plássfrekum flutningi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1260
Myndin var tekin af réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Fremst á myndinni er Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey. Vinstra megin við hann er Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka með skegg á spjalli við frístundabóndann Árna Halldór Eðvarðsson með grá húfu. Milli þeirra grillir í Magnús Guðmannsson bónda á Vindhæli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 860
Myndin var tekin á opnu húsi hjá vefstofunni Árbliki í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf í desember 1999. Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks, sem er annar frá vinstri, er að sýna óþekktum mönnum hvernig vefstóll virkar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1101
Myndin var tekin 29. júlí 2010 þegar athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harðarsonar var opnað formlega. Á bekknum hvíla lúin bein feðgarnir Adolf H. Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri. Milli þeirra situr vinur þeirra Lárus Ægir Guðmundssson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 746
Ekki er vitað um borð í hvaða bát myndin var tekin né hvenær en líklega hefur það verið kringum 1965. Á vinstri helming hennar eru að gantast, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og óþekktur. Á hægri helmingnum sést að þetta var hafísár og Strandafjöllin eru í baksýn. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
59
60
61
…
75
Leita í myndasafninu
Leita