Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1213
Ekki er vitað hvenær þessar myndir voru teknar né um borð í hvaða bát það var. Greinilega hafa menn lent í góðum afla því stíurnar bakborðsmegin eru fullar af fiski. Mennirnirnir á myndinni eru óþekktir en maðurinn sem situr í lúkarskappanum gæti verið Árni Ólafur Sigurðsson á unglingsárum ? Ef þú veist eitthvað um þessar myndir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 859
Guðbjörg Bryndís Viggósdóttir (Gógó) í vinnunni á leikskólanum Barnaból 17. ágúst 2009.
Arnar HU 1 - safn 128
Björgunar- og slökkviæfing um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1139
Þröstur Líndal Gylfason að sinna kindunum sínum á Kjalarlandi 15. maí 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1067
Myndin var tekin 30. apríl 2010 af áhöfninni á Sæfara SK 112 sem var að koma úr grásleppuumvitjun. Frá vinstri: Steinn Rögnvaldsson Hrauni, Árni Karlsson (d.19.7.2011) Víkum og Vignir Sveinsson Höfnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1010
Myndin var tekin 13. febrúar 2007 þegar hús rafmagnsverkstæðisins Neistans við Strandgötu/Einbúastíg var rifið. Húsið átti sér merka sögu því þar rak Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) lengi verlunina Borg sem hann átti. Sigurður var kaupmaður af gamla skólanum og rak útflutning á ull og fleiri afurðum bænda frá verslun sinni og flutti jafnframt inn ýmsar vörur. Eftir að Sigurður lést keyptu tveir ungir rafvirkjar húsið undir fyrirtæki sitt Neistann. Seinna byggði fyrirtækið sér stærra og hentugra hús hinum megin við götuna og þá stóð þetta hús autt að mestu þar til það var rifið 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 820
Jósef Þorláksson færir langömmu sinni Ragnheiði Hafsteinsdóttur blóm undir réttarvegg 3. september 2006. Foreldrar Jósefs, Rakel Tryggvadóttir og Þorlákur Sigurður Sveinsson, fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1230
Myndin var tekin 19. mars 2012 þegar verið var að landa úr tveimur grásleppubátum í Skagastrandarhöfn. Báturinn hægra megin er Bogga í Vík Hu 6 en báturinn til vinstri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1048
Lárus Ægir Guðmundsson málar með gluggunum á gamla Hólanesfrystihúsinu H-59 sunnan undir Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið sumarið 2016.
Arnar HU 1 - safn 115
Hallbjörn Freyr Ómarsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn478
Péturína L. Jakobsdóttir sat í hreppsnefnd Sveitarfélgsins Skagaströnd 2010 - 2014 og var síðan kjörin aftur í nefndina 2018 - 2022.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1459
þrír ungir menn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Til vinstri eru bræðurnir frá Hofi, Ingimar Gísli Guðjónsson vinstra megin og Arnar Páll Guðjónsson hægra megin en sá sem er lengst til hægri er óþekktur.
Barnaból - safn428
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 25. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), óþekkt, Herdís Jakobsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri á Kragerö, Guðlaug Grétarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 119
Gunnar Helgason um boð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1090
Feðgar að slá 15. júní 2010. Slavko Velemir situr á sláttuvélinni og sonur hans Stefán Velemir ber grasið í kerruna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 730
Sigurjón Guðbjartsson um borð í bát sínum Hafrúnu HU 12 í snjómuggu 28. janúar 2015.
Arnar HU 1 - safn 95
Fiskvinnsla um borð í Arnari HU 1 21. júlí 2003. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Guðlaugur Hjaltason og Slavko Velemir.
Guðmundur Guðnason320
Réttað í ókunnri rétt (Hofsrétt?). Maðurinn á miðri mynd er Konráð Klemensson (d. 20.11.1981) frá Garðhúsum/Konnabænum en maðurinn til vinstri er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir. Um Konráð orti Kristján Hjartarson frændi hans: "Aldurhniginn, axlasiginn einn ég þekki mann, árans stritið, ekki vitið er að drepa hann".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1267
Tiltekt í garðinum við Hólabraut 16 12. júlí 2011. Pétur Eggertsson eigandi garðsins er lengst til vinstri, Geir Arnarson í miðið og Einar Ari Einarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1296
Myndin var tekin 3. ágúst 2012 af hjónunum Guðrúnu Pálsdóttur og Ólafi Bernódussyni. Í kerrunni er Ólafur með fullverkaðan hákarl sem hann er að koma í frost til geymslu. Þá hafði verkunin tekið rúma sex mánuði. Fyrst u.þ.b. þrjá mánuði í kæsingu og síðan rúma þrjá mánuði í þurrkun í hjallinum. Áður höfðu þunnu beiturnar - glerhákarlinn - verið teknar inn enda eru þær fljótari að þorna en þykku beiturnar - skyrhákarlinn - sem sést í kerrunni.
Arnar HU 1 - safn 105
Svanur Árnason við rennuna á Arnari HU 1 22. maí 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1057
Sefán Sveinsson um borð í Sæfara SK 112, 19. janúar 2010.
Ólafur Bernódusson 927
Örvar HU 2 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Skagstrendingur hf keypti togarann frá Neskaupstað en þar hét hann Blængur NK 117. Örvar var gerður út sem rækju-frystitogari gjarnan á Flæmska hattinum. Árið 2005 var hann gerður út á ísfisk og frystingu en þá í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 875
Krakkarnir á leikjanámskeiðinu sumarið 2006 að taka upp grænmeti 24. ágúst en það höfðu þau ræktað um sumarið. Í baksýn er svo kofabyggðin sem þau smíðuðu á námskeiðinu.
Baldur Eðvarðsson - safn 15
Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn um borð í nýsmíðinni Jörvi ÞH 300 frá Húsavík. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir eru ?Valdimar Guðmundsson? (d. 4.4.2015) til vinstri og óþekktur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1256
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli er í bláröndóttri peysu en aftan við hann sér í son hans Guðmann Einar Magnússon. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir með bróður sinn Loga Hrannar Jóhannsson, Victoria Sif Hólmgeirsdóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1236
Eiríkur Lýðsson leggur Dagrúnu HU 121 að bryggju 19. mars 2012.
Arnar HU 1 - safn 88
Þrír hressir karlar í vinnslunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson og Tryggvi Hlynsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1016
Lárus Ægir Guðmundsson hjá fiskmarkaði Örva telur kassa á bretti í löndun úr Arnari HU 1 á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Skagaströnd - safn473
Halldór Gunnar Ólafsson sat um árabil í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd meðal annars 2014 - 2018. Hann var síðan endurkjörinn fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022 og var þá oddviti nefndarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 938
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri í árlegri heimsókn í Höfðaskóla 11. desember 2007. Þá fer hann yfir ýmislegt gagnlegt í sambandi við eldvarnir á heimilum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Síldarlöndun í Skagastrandarhöfn. Skóflufæribandi var slakað niður í lest skipsins og síldinni mokað upp á færiband sem var í stokknum sem sést til vinstri á myndinni. Það færiband lá alla leið upp í þrærnar í verksmiðjunni en þar tóku síðan önnur færibönd við síldinni og færðu hana inn í vinnslusali verksmiðjunnar. Þar var framleitt lýsi og síldarmjöl úr síldinni.
Arnar HU 1 - safn 121
Sævar Berg Ólafsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 888
Helga Ólína Aradóttir sérkennari við vinnu í Höfðaskóla fyrir jólin 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ástmar Kári Ástmarsson, Hjörtur Guðbjartsson og óþekktur kíkja á vélina í björgunarbátnum Þórdísi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1007
Fólk í gönguferð 19.mars 2008. Líklega var um að ræða hreyfiátak á vegum starfsfólks Greiðslustofu vinnumálastofnunar. Frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Kristján Hjartarson sem ekur systur sinni Klöru Hjartardóttur í kerru, Hjörtur Guðmundsson og Runólfur Gautason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1481
Alda Hu 112 að koma úr línuróðri í suðvestan brælu 21. mars 2011.
Guðmundur Guðnason703
Réttastörf í Hofsrétt?. Konan fremst á myndinni er Árný Magnúsdóttir frá Sunnuhlíð. Maðurinn í köflóttu peysunni til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum. Rauðhærði strákurinn á myndinni er Óskar Jóhannesson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1140
Steindór R. Haraldsson við eimingartæki 6. maí 2003. Tækin notaði hann til að ná út ákveðnum efnum úr ýmsum hráefnum. Eimuðu efnin notaði hann svo í kryddblöndur sem hann setti á markað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1462
Börn í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Frá vinstri Almar Atli Ólafsson, systir hans Harpa Hlín Ólafsdóttir og Ólafur Halldórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1258
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst. Tanja Rán Einarsdóttir er til vinstri með svart hárband. Halla María Þórðardóttir er ljóshærð í rauðri úlpu. Linda Rún Einarsdóttir er í hvítri Henson hettupeysu til hægri. Daði Snær Stefánsson er í bláum samfestingi og Árni Halldór Eðvarðsson er með gráa húfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1080
Hjónin séra Úrsula Árnadóttir og maður hennar Guðmundur Ágúst Gunnarsson í garðvinnu við prestbústaðinn á Skagaströnd að Hólabraut 30, 24. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1073
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. mars 2010. Stefán Jósefsson útgerðarmaður á Ólafi Magnússyni HU 54 er lengst til vinstri en með honum eru verkstæðismennirnir Óli Axel Óskarsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 871
Bjartur í Vík HU 11 að koma úr færaróðri 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1278
Myndin var tekin 13. september 2012 af nokkrum konum í félagsstarfi eldri borgara í kjallara Fellsborgar. Konurnar eru frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Guðný Björnsdóttir, María Hjaltadóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Árný Hjaltadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 959
Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) við vinnu um borð í óþekktum bát við Smágarð við Skúffugarðinn 13. júní 2007.
Arnar HU 1 - safn 101
Einar Þór Ásgeirsson um borð í Arnari HU 1 24. júní 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 838
Myndin var tekin 11. júní 2008. Þá voru menn hálfnaðir með að rífa viðbyggingar við Árnes áður en uppbygging hússins hófst. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson gröfumaður, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurður Björnsson smiður og Heiðmar Kristjánsson handlangari.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fyrsti skuttogari Skagstrendingas hf Arnar Hu 1 nýmálaður í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1291
Vignir Sveinsson bóndi í Höfnum og þáverandi oddviti Skagabyggðar spjallar við Magnús B. Jónsson þáverandi sveitarstjóra á Skagaströnd 19. september 2012. Þeir eru staddir neðan við grjótskriðuna ofan við bæinn Tjörn á Skaga og í baksýn er Tjarnarbrekkan.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1225
Myndin var tekin 5. júlí 2011 þegar verið var að rífa og fjarlægja fjárhús sem var sambyggt íbúðarhúsinu að Jaðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1239
Myndin var tekin 23. mars 2012 á æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla þá um kvöldið. Á myndinni er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri að tala við nemendurna og leggja línurnar fyrir daginn. Hjá henni er Ólafur Bernódusson námsráðgjafi skólans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1094
Björn Björnsson bóndi á Ytra-Hóli í heyskap 17. júlí 2010. Honum til aðstoðar í dráttarvélinni er sonur hans Ásgeir Sigmar Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1275
Sverrir Brynjar Berndsen vinnur við að koma upp auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd við þjóðveginn 18. júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1204
Arnar Hu 1 með jólaljósum á fallegu Þorláksmessukvöldi 2010 í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 709
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri fylgist með úti á brúarvæng á Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1475
Þessi mynd af Óla Axel Óskarssyni var tekin 4. mars 2011. Á henni er Óli um borð í óþekktum bát eitthvað að laga til í lestinni.
Baldur Eðvarðsson - safn 16
Þytur frá Vopnafirði var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma á áttunda áratugnum. Á myndinni er hann nýsmíðaður í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1170
Feðgarnir Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri í réttinni við Vindhæli 10. september 2005.
Ólafur Bernódusson 803
Sigurjón Guðbjartsson á kunnuglegum slóðum í stýrishúsinu á Hafrúnu HU 12, sem hann á og gerir út. Myndin var tekin 11. apríl 2007.
1
…
60
61
62
…
75
Leita í myndasafninu
Leita