Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 859
Myndin var tekin á opnu húsi í vefstofunni Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega hafið starfssemi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks lengst til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson er annar frá hægri. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1092
Um miðjan júlí 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd af síli og makríl í ca vikutíma. Menn voru fljótir að átta sig á þessu og í nokkur kvöld var fjöldi manns á Skúffugarðinum að veiða þennan gráðuga og sprettharða fisk á stöng. Þessi mynd var tekin af veiðimönnum 12. júlí 2010. Nær okkur á myndinni er Guðmundur Baldvinsson með einn á og fjær er Karl Olsen nýbúinn að setja í annan. Strákurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 864
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp við Arnar rétt fyrir jólin 1999 til að fagna því að vera fyrsta skipið á Íslandi að skila meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári. Fyrir framan áhöfnini sitja Gylfi Guðjónsson útgerðastjóri til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri til hægri. Standandi aftan við þá er stjórnarformaðurinn Adolf H. Berndsen.
Ólafur Bernódusson 904
Myndin er af hópi kvenna, ásamt leiðbeinanda, á námskeiði um rekstur fyrirtækja, sem haldið var í Höfðaskóla í febrúar 1999. Hörður Ríkarðsson leiðbeinandi er lengst til vinstri. Næst honum er Fjóla Jónsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir fyrir miðju í grárri peysu en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1089
Myndin var tekin 11. júní 2010 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhefndir eigendum Spákonuhofsins lyklana að Gömlu tunnunni þar sem Spákonuhofið er til húsa í dag. Áður hafði áhaldahús hreppsins verið í húsinu. Kaupendurnir eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 747
Á myndinni er verið að hífa inn - eða út - vél fyrir vefstofuna Árblik sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsi Hólaness hf. Mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1226
6. júlí 2011 varð það óhapp á hafnarvoginni að kör með fiski ultu á voginni. Hafnarvörðurinn Þórey Jónsdóttir fylgdist með þegar fiskurinn var tíndur í körin aftur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Katrín Hu 110 í eigu Hjalta Kristinssonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1216
Myndin var tekin 13. október 2011. Á henni eru Pétur Eggertsson til vinstri, Geir Arnarson í miðjunni og óþekktur til hægri að fjarlæga gróðurleyfar úr garðinum hjá Pétri við Hólabraut 16. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 818
Guðmundur Rúnar Kristjánsson smiður við vinnu sína 27. mars 2007. Auk þess að vera húsasmiður er Rúnar afkastamikið skáld og rithöfundur.
Barnaból - safn430
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í Noregi. Konurnar eru, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekktur strákur, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 740
Myndin var tekin í réttinni við Vindhæli 10. sept 2005. Á henni eru Einar Guðmannsson til vinstri og föðurbróðir hans Guðmundur Einarsson bóndi á Vindhæli til hægri.
Arnar HU 1 - safn 87
Myndin var tekin 1. ágúst 2003 þegar tveir úr áhöfn Arnars HU 1 eru að flytja umbúðir milli skipa á gúmmítuðrunni á Arnari.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Dagrún St 12 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Þá hét báturinn Guðmundur Þór Hu 17. Lýður Hallbertsson eignaðist bátinn, gaf honum nýtt nafn og gerði út frá Djúpavík í mörg ár. Lýður flutti svo til Skagastrandar og gerir Dagrúnina út þaðan. Á myndinni er óþekktur maður til vinstri en til hægri er Eiríkur Lýðsson. Myndin var tekin þegar Dagrúnin var að koma úr grásleppuróðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1136
Vinnufélagar hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar fyrir utan verkstæðið 25. mars 2003. Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1297
Skipverjar á Arnari Hu 1 splæsa vír á bryggjunni áður en lagt er í veiðiferð 16. maí 2012. Frá vinstri: Magnús Líndal Þrastarson, Sveinþór Ari Arason, Baldur Magnússon og Róbert Freyr Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 854
Starfsstúlkur Landbankans/Póstsins í vinnunni 17. ágúst 2009. Signý Richter til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1102
Kristín Jóna Sigurðardóttir bakar vöfflur ofan í gesti við formlega opnun athafnasvæðis Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 27. júlí 2010. Stúlkurnar litlu, sem eru dætur Kristínar, eru Vala Berglind Valsdóttir standandi og Þóra Karen Valsdóttir sem situr.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1161
Gísli Snorrason hjá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu niður á höfn 14. september 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1308
Myndin var tekin 6. nóvember 2011 þegar verið var að grjótverja betur gamla hafnargarðinn - Útgarð. Grjót í vörnina var sótt út á Skaga í hæðarnar ofan við Brekkubæina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1183
Í mikilli hláku 26. desember 2010 stíflaðist ræsi neðan við Læk og þá fór að flæða inn í kjallarann þar. Menn úr slökkviliðinu mættu á staðinn til að dæla upp úr kjallaranum. Gísli Snorrason er við dæluna en sonur hans, Arnór Snorri Gíslason, fylgist með til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1160
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) að koma úr línuróðri 27. febrúar 2003 á Öldunni Hu 112 með góðan afla.
Ólafur Bernódusson 833
Myndin var tekin í skíðaskálanum 6. desember 2007 en þá höfðu Gígja Óskarsdóttir og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir breytt skálanum í jólahús. Þar var til sölu ýmislegt jólaföndur og heitt súkkulaði með vöfflum og rjóma. Jólahúsið var skemmtilegt og fjölsótt þá daga sem það var opið. Á myndinni er fólk að njóta veitinganna og jólaandans á aðventunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 809
Ingibergur Guðmundsson við vinnu sína hjá Fiskmarkaðnum á Skagaströnd í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 817
Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) við vinnu sína sem smiður 27. mars 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1008
Gísli Snorrason til vinstri og Sigurjón Ingólfsson starfsmenn Vélaverkstæðis Skagastrandar við vinnu í mjölskemmunni 13. febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1208
Karlar úr Lions 19. desember 2010 að gera klára kæsta skötu fyrir Þorláksmessuveisluna í Fellsborg. Frá vinstri: Slavko Velemir, Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur J. Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1261
Systurnar frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri, í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1426
4. febrúar 2011 leggur Arnar Hu 1 upp í sjóferð sem stóð u.þ.b. mánuð. Húnabjörgin var notuð sem dráttarbátur við að snúa Arnari inn í höfninni og þarna er hún á leið til hafnar aftur öfugt við Arnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 874
Feðgarnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurgeir Árnason til hægri með Jóhann Guðbjart Sigurjónsson á milli sín um borð í Hafrúnu HU 12 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1616
Gísli Snorrason í lyftaranum sínum 26. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1371
Löndun á þorski 12. október 2012. Sævar Hallgrímsson hífir en hjá honum standa þrír áhugamenn um aflabrögð. Frá vinstri: Eiríkur Lýðsson, Ólafur Bernódusson og Guðni Már Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1209
Björn Hallbjörn til vinstri og Slavko Velemir til hægri pakka kæstri skötu fyrir Lionklúbb Skagastrandar 19. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1224
Hafrún Hu 12 máluð í dráttarbrautinni 5. júlí 2011. Hafþór Gylfason er efstur á myndinni með pensil, Karl Olsen er í bláa karinu með húfu og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson teygir sig með rúlluna neðan við Hafþór.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1103
Svenný Hallbjörnsdóttir og Hörður Ragnarsson spjalla saman við formlega opnun á athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harsonar 29. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1215
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin ofan úr síldar-löndunarkrananum sem stóð fremst á Ásgarði eða löndunarbryggjunni ein og hún var oft kölluð, og yfir hluta hafnarinnar og útbæjarins. Bátarnir eru óþekktir en þeir voru keyrðir upp í fjöru á hverju ári til að hægt væri að mála botninn á þeim þar í strandi. Bryggjan sem bátarnir liggja við var alltaf kölluð "Litla bryggja". Frá sama sjónarhorni í dag sést að útbærinn hefur breytst töluvert síðan myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 98
Ólafur Sveinn Ásgeirsson í spilhúsinu á Örvari HU 21 að fylgast með hífingum. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1012
Lárus Ægir Guðmundsson og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) skemmta sér í Kjalarlandsrétt 8. september 2007. Jónmundur er sá með hattinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 735
Vilhelm Harðarson hreinsar snjó af stéttinni heima hjá sér með snjóblásara 3. febrúar 2015.
larus037
Leifur Breiðfjörð glerlistamaður stendur hér við altaristöfluna í Hólaneskirkju 1. ágúst 1991 en hún er hans sköpunarverk og mikil kirkjuprýði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1254
8. september 2012 bíða Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) eftir að gangnamenn komi með safnið af fjalli til réttar í Kjalarlandsrétt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1190
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari Hu 1 í stórbakstri á marengs-botnum um borð, 26. desember 2010. Líklega er hann að baka tertur fyrir jóla-barnaball á vegum Lionklúbbs Skagastrandar.
Arnar HU 1 - safn 81
Gunnar Þröstur Ásgeirsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1460
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Bræðurnir Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Hilmar Eðvarðsson til hægri fylgjast með réttarstörfum. Konan á myndinni er Sigrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1052
Þetta fólk starfaði allt við höfnina. Mennirnir hjá fiskmarkaðnum og konan er hafnarvörður. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Ingimarsson, Reynir Lýðsson og Þórey Jónsdóttir. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa þau komið auga á eitthvað skemmtilegt í dráttarbrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 722
Fjóla Jónsdóttir við vinnu sína í Saumastofunni Íris 21. janúar 2015. Fjóla er annar af eigendum saumastofunnar.
Ólafur Bernódusson 861
Óskar Þór Kristinsson að koma í land á Arnari HU 1 rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Bátarnir eru Arnarborg Hu 11, Húni Hu 62 og fyrir innan hann liggur Helga Björg Hu 7. Allir voru þessir bátar gerðir út frá Skagaströnd</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1042
Frístunda-fiskimaðurinn Ólafur Bernódusson flakar fisk í útgerðarskúrnum sínum 9. ágúst 2007. Þar eru flökin ýmist fryst roðlaus og beinlaus eða breytt í harðfisk í þurkskáp.
IMG_5231
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Begga slapp furðu vel þó hún brotnaði dálítið. Eftir að aflinn og annað hafði verið tekið úr henni og hún þétt til bráðabirgða var hún dregin á flot og farið með hana til hafnar á Skagaströnd. Á myndinni er björgunarskipið Húnabjörg að draga Beggu á flot af strandstað á næsta flóði. Þórdísin bíður átekta til hægri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 810
Jökulrós Grímsdóttir í garðvinnu heima hjá sér á Bogabrautinni í júní 2007.
Ólafur Bernódusson 931
Örvar Hu 2 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Á myndinni eru Elva Þórisdóttir og dóttir hennar Ásdís Adda Ólafsdóttir að gæða sér á tertu. Konan í gulu peysunni og maðurinn lengst til hægri eru óþekkt. Ef þú þekkir annað þeirra eða bæði vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1227
6. júlí 2011 voru feðgarnir Sigurjón Guðbjartsson, með húfu, og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson um borð í bát sínum Hafrúnu Hu 12 nýkominni úr slipp. Á bryggjunni eru fóstursynir Jóhanns, Ernst Guðni Hólmgeirsson til vinstri og Mikael Garðar Hólmgeirsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 792
Myndin var tekin á Þorláksmessu 2010 á jólamarkaði í Djásn og Dúllerí. Það var handverksmarkaður sem rekinn var í kjallaranum á gamla kaufélaginu nokkur sumur ásamt því að vera með jólamarkað dagana fyrir jólin. Á myndinni eru frá vinstri: Slavko Velemir, Svetlana Markovic, Ingvar Þór Jónsson og Birna Sveinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1510
Myndin var tekin 16. nóvember 2011 þegar verið var að rífa olíutank við Höfðann. Áður var búið að lækka tankinn um helming frá því sem hann var upphaflega. Þá stóð annar eins við hlið hans en á myndinni má sjá hvar hann stóð. Sá tankur var rifinn mörgum árum fyrr. Báðir voru þeir reistir á sínum tíma kringum 1945 - 7 til notkunar fyrir síldarverkmiðjuna sem þá var byggð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1113
Guðmundur Árnason til vinstri og Guðlaugur Ómar Guðmundsson til hægri á gleði- og grilldegi vinnuskólans sumarið 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1473
Hallbjörn Björnsson rafvirki við sérfræðivinnu í óþekktum bát í Skagastrandarhöfn 4. mars 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1068
Myndin var tekin 10. apríl 2010 um borð í Arnari HU 1 í Skagastrandarhöfn. Á henni eru mennirnir tveir, sem skipast á sem skipstjórar á Arnari, að spá og spekúlera í einhverjum endurbótum um borð. Mennirnir eru Guðjón Guðjónsson vinstra megin og Guðmundur Henry Stefánsson hægra megin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1499
Myndin var tekin 25. október 2011 af þremur félögum í Lionklúbbi Skagastrandar þar sem þeir eru að gera að skötu í húsnæði fiskmarkaðarins. Skatan var síðan kæst og hún seld fyrir Þorláksmessu til ágóða fyrir klúbbinn. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason og Sævar Hallgrímsson.
Barnaból - safn433
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) í ferðinni.
1
…
61
62
63
…
75
Leita í myndasafninu
Leita