Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 928
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 þegar Skagstrendingur hf hafði keypt Blæng NK 177 af Síldarvinnslunni á Neskaupstað og breytt honum í Örvar HU 2. Á myndinni er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri en Finnbogi Jónsson forstjóri Síldarvinnslunnar og stjórnarformaður Skagstrendings hf til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir050
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er fjársafn skagstrendinga rekið síðasta spölinn heim að Spákonfellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1483
25. mars 2011. Ólafur Bernódusson spjallar við bræðurna Guðna Má Lýðsson til vinstri og Eirík Lýðsson til hægri um borð í Dagrúnu Hu 121.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1218
Á myndinni eru þeir félagarnir Stefán Jósefsson og Sævar Hallgrímsson við stýrið að koma frá því að vitja um silunganet 1. júlí 2011 á Hafsteini.
Ólafur Bernódusson 866
Þessa mynd tók Páll Pálsson ljósmyndari af starfsfólki Höfðaskóla veturinn 2006 - 2007. Nöfn fólksins eru á myndinni.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Ólafur Bernódusson 886
Myndin var tekin í júlí 1999 af Grétari Smára Hallbjörnssyni við síldarafurðir sem hann vann og pakkaði í dósir undir vörumerkinu: Kántrýsíld. Grétar var með nokkrar gerðir af marineringu og tvær eða þrjár stærðir af dósum. Grétar hætti framleiðslunni eftir að hafa komist að því að ekki var fjárhagslegur grundvöllur fyrir henni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1270
Sigurbjörn Björgvinsson fyllir í skurð við íþróttahúsið með kranabílnum sínum 13. júlí 2011.
Ólafur Bernódusson 918
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar tekinn var í notkun fjarfundabúnaður í Höfðaskóla. Mennirnir á myndinni eru allt iðnaðarmenn, sem sóttu nám til meistara í sínum greinum gegnum fjarfundabúnaðinn. Slíkur búnaður þótti mikil bylting og framfaraskref á þessum tíma. Mennirnir eru frá vinstri: Víðir Ólafsson rafvirki, Einar Haukur Arason húsasmiður, Hjalti Viðar Reynisson rafvirki og Björn Hallbjörnsson rafvirki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1166
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar. Á henni sýnir óþekktur maður hópi fólks handbrögðin við fláningu og kjötnýtingu á sel. Í áhorfendahópnum má þekkja Karitas Laufey Ólafsdóttur (d.15.10.2019) í ljósum jakka til vinstri og Guðjón Ingimarsson skeggjaðan í skrautlegri peysu leiðandi son sinn Harald Guðjónsson. Aftan við Guðjón vinstra megin er annar sonur hans, Ingimar Guðjónsson. Líklega var myndin tekin 2004 eða 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1276
Myndin var tekin 13. september 2012 í kjallara Fellsborgar þar sem fram fer félagsstarf eldri borgara á Skagaströnd. Á myndinni eru umsjónarmenn félagsstarfsins þær Guðrún Soffía Pétursdóttir vinstra megin og Ásthildur Gunnlaugsdóttir til hægri að undirbúa kaffitímann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1651
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann að kynna sér starfsemi fiskmarkaðarins. Sigurður Ingimarsson starfsmaður markaðarins er til vinstri, Ian Witting er í miðjunni og til hægri er óþekktur fylgdarmaður hans.
Ólafur Bernódusson 863
Áhöfn Arnars HU 1 og gestir skála, rétt fyrir jólin 1999, fyrir að vera fyrsta áhöfnin sem skilar meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári.
Helgi Gunnarsson 32
Baldvin Hjaltason til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri smíða áhorfendapallana í íþróttahúsinu 26. nóvember 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1294
Myndin var tekin 24. september 2012 af fólki á námskeiði í grjóthleðslu. Frá vinstri: Geir Arnarson, óþekktur leiðbeinandi námskeiðsins, Barney Ragnhildur Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Ingvar Gýgjar Sigurðarson.
Helgi Gunnarsson 20
Myndin er af vöskum starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem unnu við að byggja íþróttahúsið. Myndin var tekin sumarið 1997 þegar lokið var að reisa sperrurnar/burðarvirkið. Karlarnir eru, frá vinstri: Einar Gunnarsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Baldvin Hjaltason, Hrólfur Pétursson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Guðmundur Rúnar Kristjánsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), Gunnar Helgason (nær), Helgi Gunnarsson verktaki (fjær), Sigurjón Karlsson, Árni Max Haraldsson, Hjörtur Guðmundsson, Gunnar Dór Karlsson, Björn Sigurðsson og Þorsteinn ?.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1706
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1970. Á henni er Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný) (d. 22.4.2016) að hjálpa til við smíði á húsinu sínu að Bogabraut 15. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 64
Myndin var tekin í messanum/borðsalnum á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru þeir Finnur Kristinsson bátsmaður til vinstri og Björn Haraldsson (d.21.9.1988) stýrimaður/skipstjóri til hægri að fá sér kaffi og í pípu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 786
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni er Einar Ari Einarsson fyrir utan heimili sitt tilbúinn í leiguakstur með frumlegan "rickshaw" en þeir eru algengir á Indlandi og víðar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1298
Finnur Kristinsson til vinstri og Steindór Haraldsson til hægri að koma upp flóknu framleiðslukerfi í húsnæði Rækjuvinnslunnar 11. maí 2012. Ekki voru þó tækin notuð við vinnslu á rækjum heldur var um einhvers konar eimingartæki að ræða, sem Steindór notaði við framleiðslu sína.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn112
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) tollvörður á Skagaströnd með embættishúfuna í febrúar 1964.
Helgi Gunnarsson 16
Menn frá Helga Gunnarssyni ganga frá sperrum /burðarvirki íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir eru, frá vinstri: Steinþór Karlsson, Viktor Pétursson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Gunnar Helgason.
Helgi Gunnarsson 38
Starfsmenn Helga Gunnarssonar steypa utan um sérhannað fótstykki sem var notað sem undirstaða fyrir endurvarpa sem komið var fyrir á toppi fjallsins Jörundar (Jörundarfells 1018m hátt) í Vatnsdal. Þangað var fótstykkið flutt með stórri herþyrlu sem var á Norðurlandi vegna einhverra heræfinga. Myndin var líklega tekin sumarið 1997. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011). Maðurinn sem sést yfir höfuð Eðvarðs er óþekktur bílstjóri steypubílsins.
Ólafur Bernódusson 988
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekkt, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Alþingismaður og ráðherra, Stefán Guðmundsson (d.10.9.2011) Alþingismaður, Jón S. Pálsson, Jón Ingi Ingvarsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995), óþekktur og Bjarney Valdimarsdóttir .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1220
Myndin var tekin 4. júlí 2011 þegar Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri, félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar, plöntuðu fallegum og sterklegum birkiplöntum í hornið á skólalóðinni vestan við íþróttahúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 856
Sesselja Guðmundsdóttir í vinnu sinni sem leikskólakennari í Barnabóli 17. ágúst 2009.
Guðrún Þórbjarnardóttir045
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Hún er samt birt hér vegna þess hve skemmtileg hún er. Myndin er líklega tekin kringum 1965 af mönnum frá Skagaströnd sem voru í vinnu hjá síldaröltunarstöð Gunnars Halldórssonar á Raufarhöfn. Mennirnir eru frá vinstri: Sigurður Pálmason, ?Árni Sigurðsson ?, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Kristinn Guðmundsson (d.1.12.1986), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), ?Pétur Jóhannsson?, Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Hartmann Jóhannesson (d.22.12.1976) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1511
Myndin var tekin 16. nóvember 2011 í þokusudda þegar unnið var við niðurrif á olíutanki Olís við Höfðann. Mennirnir eru óþekktur vinnuvélastjórnandi til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) umboðsmaður Olís á Skagaströnd til hægri.
Ólafur Bernódusson 930
Örvar HU 2, áður Blængur NK 117, kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Myndin var tekin í borðsalnum af hluta fólks sem þáði boðið. Guðrún Soffía Pétursdóttir er lengst til vinstri. Maðurinn í hvítu stuttermaskyrtunni er Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Sólrún Ólína Sigurðardóttir er í blárri úlpu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir er í gulri úlpu og Hjörtur Guðmundsson situr við borðið með son sinn í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1132
Magnús Ólafsson (d.23.7.20) bæjarverkstjóri spjallar við Gísla Snorrason hjá Vélaverkstæði Skagastrandar, sem situr undir stýri. Myndin var tekin 7. október 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1177
Mennirnir á myndinni eru 16. september 2010 að skoða uppskeruna á kornakrinum sem þeir voru með í tilraunaræktun sumarið 2010. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Adolf H. Berndsen, Bjarni Jónasson, Sigurður Sigurðarson og Hallbjörn Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 828
Rúnar Jósefsson notar þurrkinn í heyskap 7. júlí 2008.
Ólafur Bernódusson 923
Myndin var líklega tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem skapa íþróttahúsið. Uppsteypu er lokið. Fyrsta skóflustunga að húsinu var tekin í september 1996 en húsið var svo vígt fullbúið 15. mars 1998. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en það var Helgi Gunnarsson sem reisti húsið með sínum mannskap.
Ólafur Bernódusson 993
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd sem tekin var 1984 eru konurnar að sauma vinsælar peysur úr ullarvoð. Konan lengst til hægri er María Konráðsdóttir (d.9.8.2003) en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 976
Stefán Jósefsson á landleið á bát sínum Hafsteini frá því að draga upp grásleppunet 5. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1449
Myndin var tekin 31. ágúst 2012 í íþróttahúsinu þar sem stóð yfir kynning á fyrirhuguðum hitaveituframkvæmdum í sveitarfélaginu. Á kynninguna mættu ýmsir hagsmunaaðilar sem kynntu sína vöru og þjónustu. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK, Páll Friðriksson ritstjóri Feykis, Ingibergur Guðmundsson og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1461
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Fólk á fullu að draga fé sitt í dilka. Fólkið er, frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson og Elva Þórisdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1167
24. nóvember 2005 hafði fiskmarkaður Örva ehf tekið á 4000 tonnum af fiski það árið. Á myndinni eru Lárus Ægir Guðmundsson eigandi Örva til vinstri en til hægri er bróðir hans Ingibergur Guðmundsson sem var rekstrarstjóri Örva á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1072
Sævar Rafn Hallgrímsson um borð í Ólafi Magnússyni HU 54 2. mars 2010 að gera klárt fyrir netavertíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1109
Jóhann Örn Stefánsson í pásu í vinnuskólanum sumarið 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1569
5. maí 2011 voru stórvirkar vinnuvélar á fullu við að brjóta niður og fjarlæga þrærnar við síldarverksmiðuna. Við það jókst vinnupláss hafnarinnar mikið.
Ólafur Bernódusson 894
Í apríl 1999 var húsnæði Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd vígt með pompi og pragt. Myndin sýnir sjúkrabíla utan við húsið. Fyrsti bíll deildarinnar er til hægri en sá til vinstri er líklega bíll númer tvö.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1508
2. apríl 2011 fóru þessi tvenn hjón á myndinni í skoðunarferð um Kröfluvirkjun eða gufustöðina í Bjarnarflagi. Hér hafa þau stillt sér upp við eina gufutúrbínuna (gufuhverfilinn) til myndatöku. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir og Árni Geir Ingvarsson maður hennar, Björn Hallbjörnsson með konu sinni Lilju Ingólfsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1176
Á þessari mynd eru frá vinstri iðnaðarmennirnir Árni Halldór Eðvarðsson smiður, rafvirkjarnir og feðgarnir Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson og Halldór Gunnar Ólafsson hjá BioPol lengst til hægri. Þeir eru að fylgjast með, 24. september 2010, þegar gamli vigratskúrinn við höfnina var fjarlægður svo hægt væri að koma hinum nýja fyrir á sama stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 789
Myndin er af gamla bragganum sem stóð austan við Lækjarbakka. Bragginn, sem var líklega byggður kringum 1945 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu, gegndi ýmsum hlutverkum. Þar var rekið vélaverkstæði og síðar var það slökkvistöð, þó slökkvibíllinn rétt kæmist inn í hann, og þarna voru smíðaðir plastbátar . Bragginn var svo rifinn einhverntíma kringum aldamótin eftir að hafa staðið auður og ónotaður í nokkuð mörg ár. Enn (2019) má þó finna plötuna sem hann var byggður á.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1074
Myndin var tekin 26. mars 2010 á bryggjunni. Á henni eru Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Jakob Casper til hægri, báðir starfsmenn BioPol, að taka sýni úr selum til rannsóknar hjá BioPol. Fyrirtækið sá um rannsóknir og talningar á sel á þessum árum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
larus085
Framkvæmdir við Hólaneskirkju skoðaðar 10. október 1989. Frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, baksvipur Gunnars Einarssonar innanhússarkitekts, Örnólfur Hall arkitekt, Helgi Gunnarsson verktaki við byggingu kirkjunnar og Páll Þorfinnsson (d..1.9.1993) rafverktaki við bygginguna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1652
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann, í blárri skyrtu, staddur á skrifstofu fiskmarkaðarins að kynna sér starfsemi hans. Aðrir á myndinni eru Jón Ólafur Sigurjónsson, út við gluggann, Ólafía Lárusdóttir við hlið Ians, Reynir Lýðsson framkvæmdastjóri markaðarins og Péturína Laufey Jakobsdóttir kona hans.
IMG_5953
Kátir karlar í vinnunni í fiskvinnslu Fisk Seafood í húsnæði Rækjuvinnslunnar 15. október 2007. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson, Jón Heiðar Jónsson og Baldvin Hjaltason.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 80
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir tveir við spilið eru að hífa eða slaka vírunum. Þeir eru óþekktir en ágiskun er að Ómar Jakobsson sé til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson til hægri. Maðurinn milli þeirra er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 43
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Myndin var tekin 28. apríl 1998 þegar lokið var við að reisa nýja húsið. Á henni eru karlarnir sem komu mest að byggingu hússins, frá vinstri: Rúnar Kristjánsson, Einar Gunnarsson, Hrólfur Pétursson, óþekktur, Hallbjörn J. Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, óþekktur, Baldvin Hjaltason og Sigurður Björnsson.
Helgi Gunnarsson 37
Starfsmenn Helga Gunnarssonar binda járn í sérhannað fótstykki sem var notað sem undirstaða fyrir endurvarpa sem komið var fyrir á toppi fjallsins Jörundar (Jörundarfells 1018m hátt) í Vatnsdal. Mennirnir eru, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Sigurður Björnsson. Gunnar Helgason (d.19.10.2007) stendur lengst hægri og fylgist með. Líklega var myndin tekin sumarið 1997.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 31
Greinilega þarf að moka snjó úr þessum bát áður en hann fer á veiðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en líklega er báturinn Auðbjörg HU 6.
Ólafur Bernódusson 1070
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 í dæluhúsi hitaveitunnar á Skagaströnd þegar veitan var formlega vígð. Á henni er sveitastjórnafólk, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Jensína Lýðsdóttir, Péturína Jakobsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson öll úr hreppsnefnd á Skagaströnd. Lengst til hægri er Valgarður Hilmarsson bæjarstjórnarmaður á Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1169
Þessi mynd var tekin í gamla vigtarskúrnum 5. september 2005. Þórey Jónsdóttir hafnarvörður situr við skrifborðið en Þröstur Líndal Gylfason "starfsmaður á plani" spjallar við hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1110
Krakkarnir á myndinni voru í vinnuskólanum sumar 2010. Þarna eru þau að gera sér glaðan dag með grilli og samveru. Standandi eru Guðmundur Árnason vinstra megin og Elías Gunnar Hafþórsson hægra megin. Stelpurnar við borðið eru frá vinstri: Kristín gerður Óladóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og óþekkt.
Ólafur Bernódusson 1098
14. maí 2014 kom Sigurjón Guðbjartsson með nýjan yfirbyggðan bát til Skagastrandar í fyrsta sinn. Báturinn hét Kristinn HU 712 en var skírður Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur ehf, sem er í eigu Sigurjóns. Eins og ávallt þegar nýr bátur kemur til hafnar hópast sjómenn að til að skoða gripinn og spá og spekúlera. Á myndinni er sonur Sigurjóns, Jóhann Guðbjartur, til vinstri á spjalli við gamlan sjó- og útgerðarmann, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) til hægri. Jóhann var skipstjóri á bátnum meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Helgi Gunnarsson 7
Vesturendi Íþróttahússins steypuklár snemmsumars 1997.
Ólafur Bernódusson 954
Kópur HU 25. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", segir um þennan bát:"Báturinn var smíðaður úr plasti í Hafnarfirði 1982 og var 3,3 brl. með 38 ha. Leyland vél. Eigendur voru feðgarnir , Skafti Fanndal og Þorvaldur Skaftason. Skafti seldi Þorvaldi sinn eignarhlut 1985 og það sama ár keypti Kristján Karlsson bátinn og fékk hann þá nafnið Snorri HU 2. Kristján seldi hann árið 1991 til Reykjavíkur."
1
…
62
63
64
…
75
Leita í myndasafninu
Leita