Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1214
Heyskapur á Höfðahólatúninu þar sem tjaldsvæðið er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Þar sem fólkið er fremur ógreinilegt er giskað á að það sé úr sömu fjölskyldu, sem heyjaði túnið í mörg ár. Frá vinstri: Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) að raka, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) að bera upp í sæti, Óskar Jóhannesson að raka, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) að raka og Páll Jóhannesson. Ef þú getur staðfest að þetta sé rétt ágiskun vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 8
Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Baldvin Hjaltason til hægri vinna við byggingu íþróttahússins vorið 1997.
Ólafur Bernódusson 939
Hólaneskirkja eldri rifin 24. febrúar 1992. Kirkjan var byggð 1925 og þjónaði því söfnuðinum í 67 ár.
Ólafur Bernódusson 951
Auðbjörg HU 6 að koma úr rækjuróðri 1983. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", segir svo um Auðbjörgu: "Báturinn var smíðaður úr eik á Akureyri 1960 og var 23 brl. með 240 ha. GM vél. Þetta var fyrsti frambyggði báturinn sem smíðaður var á Íslandi. Hann var endumældur 1970 og mældist þá 25 brl., aftur endurmældur 1977 og taldist þá 23 brl. Hann hét Hinrik HU 8 þegar Gunnar Sveinsson og Indriði Hjaltason keyptu bátinn í nóvember 1977 frá Hvammstanga og áttu þeir hann saman til ársins 1986. Það ár keypti Gunnar hlut Indriða og gerði bátinn út til ársins 1998 er honum var komið fyrir á hliðargarði slippsins á Skagaströnd. Þaðan átti Auðbjörgin ekki afturkvæmt til fiskiróðra og var brotin niður í september 2009."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1228
Myndin var tekin 16. mars 2012 þegar Ólafur Magnússon Hu 54 var sjósettur eftir yfirferð uppi á landi.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 65
Heiðar Elvan Friðriksso til vinstri og Magnús Margeirsson til hægri vinna við trollið á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Skagstrendingur hf gerði Arnar út frá Skagaströnd á árunum 1969 - 1972.
Barnaból - safn431
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 26. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Ólafur Bernódusson 1054
27. júní 1998 var nýbygging Kántrýbæjar vígð með pompi og prakt. Gamli Kántrýbær brann að stórum hluta 22. október 1997 en fljótlega eftir það var hafist handa við að byggja nýtt hús á grunni þess sem brann. Þannig liðu ekki nema 8 mánuðir frá brunanum að vígslunni sem myndin er frá. Hún sýnir fólk hlýða á Hallbjörn J. Hjartarson, eiganda Kánrýbæjar, þar sem hann fer yfir byggingarsögu hússins. Á myndinni er eiginkona Hallbjörns, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), í hvítri blússu til vinstri. Aðrir gestir eru m.a. tvær bræður Hallbjörns, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), með rautt bindi hægra megin við miðju og lengst til hægri er Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020).
Helgi Gunnarsson 11
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar fyrstu sperrunni var komið fyrir í íþróttahúsinu. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 9
Myndin var tekin vorið 1997 þegar verið var að leggja lokahönd á uppslátt í vesturenda íþróttahússins. Í þeim hluta sem er nær okkur á myndinni má sjá undirstöður fyrir límtrésbitana sem bera húsið uppi.
Ólafur Bernódusson 990
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni spjallar Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri við Lúðvík Jósefsson (d.18.11.1994) Alþingismann, ráðherra og þáverandi stjórnarformaður Landsbankans til vinstri. Í baksýn er Jón Jónsson (d.9.7.1991) hreppsnefndarmaður Höfðahrepps.
gunnar056
Maðurinn um borð í Stíganda HU 9 í línuróðri er óþekktur. Ekki er helddur vitað hvenær myndin var tekin. Myndin er því miður nokkuð skemmd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1702
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Litla bryggjan sem var þar sem nú er uppfylling og Miðgarður, sem er aðal löndunarbryggjan í dag. Bátarnir eru óþekktir en líklega er það Stígandi HU 9 sem liggur hægra megin við bryggjuna nær endanum. Trillan sem er þriðja frá hægri, vinstra megin við bryggjuna er Sigurður Jónsson HU 18. Bátarnir uppi í fjöru sem eru uppi í fjöru eru sennilega í botnhreinsun og málningu.
gunnar053
Myndin var tekin um borð í Stíganda HU 9 á línuveiðum. Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri stingur hausnum út um gluggann en maðurinn á dekkinu er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1663
Myndin var tekin 30. júní 2011 af krökkunum í Vinnuskólanum á leið heim í hádegismat. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Sylvía Hrólfsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, óþekkt, Egill Örn Ingibergsson, Aron Breki Hjartarson, Viktor Valdimarsson og Elías Gunnar Hafþórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1677
Platan steypt á nýjum viðlegukanti - Sægarði - í Skagastrandarhöfn síðsumars 1991. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 178
Einar Haukur Arason smiður vinnur við eldhúsinnréttingu á Ránarbraut 21.
gunnar023
Húni II Hu 2 af háfa úr nótinni á síldveiðum. Stefnir greinilega í fullfermi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1965.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 12
Myndin sýnir Engilráð ÍS 60 þegar verið var að sjósetja hana sem nýsmíði fyrir aðila á Ísafirði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1973. Í bátnum var 240 hestafla Dorman vél. Skipt var um vél 1979 og þá sett í hana 265 hestafla Cummings vél. 1981 var Engilráð seld til Drangsness og fékk nafnið Grímsey ST 2. þaðan var báturinn seldur (?1997?) og hlaut nafnið Röst SH 134. Röstin sökk svo 19. mars 2003 út af Svörtuloftum en áhöfn hennar, tveir menn, komust í björgunarbát og var bjargað af grænlensku loðnuskipi - Siku - sem var í grenndinni. (Heimild: Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar, sótt 8. febrúar 2021 á: https://skipamyndir.com/2019/09/04/grimsey-st-2/ Rörið, sem er á myndinni, lá frá mjölskemmunni yfir í verksmiðjuna en eftir því var mjölinu dælt frá verksmiðjunni og síðan sekkjað í skemmunni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 47
Myndin var tekin í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 kringum 1970. Nær okkur er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) (Jói norski) en fjær er Björn Haraldsson (d.21.9.1988) (Bangsi). Jói var í vélinni en Bangsi var stýrimaður og stundum skipstjóri um borð.
gunnar045
Húni HU 1 á siglingu, líklega inn til Siglufjarðar, með fullfermi af síld. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Helgi Gunnarsson 33
Hálfnað verk þá hafið er. Hér er búið að leggja parket á helming salarins í íþróttahúsinu. Ofan á steypta plötuna er smíðuð flókin grind sem parketið er síðan lagt á. Þetta á að tryggja að gólfið sé mátulega mjúkt og eftirgefanlegt til að koma í veg fyrir meiðsli þeirra sem stunda iþróttir í salnum. Myndin var tekin haustið eða veturinn 1997 - 1998.
Helgi Gunnarsson 15
Sigurður Björnsson við vinnu sína á trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1998.
Ólafur Bernódusson 1093
Sandburður inn í höfnina er vandamál á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 12. mars 2014 en þá hafi sandur sest á brautir dráttarbrautarinnar úti í sjó. Það varð til þess að sleðinn, sem bátarnir eru dregnir upp í, fór út af brautunum. Á myndinni eru starfsmenn Vélaverkstæðis Skagastrandar, Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri, að undirbúa að hífa sleðann og bátinn í honum upp á brautirnar aftur til að hægt sé að draga bátinn upp á sinn stað. Við þessa vinnu voru notaðar tvær stórar beltagröfur.
Ólafur Bernódusson 934
Helgi Gunnarsson til vinstri og Björn Sigurðsson til hægri þökuleggja framan við þjónustuíbúðirnar við Ægisgrund 2- 8. Myndin var tekin í febrúar 1992.
Ólafur Bernódusson 994
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu sýnir ullarteppi sem er eins og teppi sem Viola gaf Rauða krossinum. Teppin, sem um ræðir, eru í kössunum á bak við Guðmund. Myndin var tekin 1984.
Óskar Kristinsson safn 073
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Eins og sést er mokafli af frekar smáum fiski. Maðurinn við spilkoppinn bakborðsmegin er Ómar Jakobsson og maðurinn með sígarettuna í miðri kösinni er Indriði Hjaltason (2.4.2006). Hinir karlarnir eru óþekktir. Myndin var tekin löngu áður en kvótakerfið var sett á og því fiskuðu menn eins og þeir gátu án þess að hafa miklar áhyggjur af samsetningu aflans.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Helgi Gunnarsson 12
Starfsmenn Helga Gunnarssonar vanda vinnuna við undirlagið undir steypt gólf íþróttasalarins. Maðurinn með réttskeiðina er Viktor Pétursson en beint aftan við hann stendur Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011). Til hægri er Sigurður Björnsson og maðurinn í ljósu peysunni er Steinþór Karlsson. Lengst til vinstri er Baldvin Hjaltason.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Ólafur Bernódusson 1026
Sævar Rafn Hallgrímsson kemur að landi á bát sínum Hafgeiri HU 121 í september 1998 með fullfermi enda Hafgeir vel siginn á sjónum. Sævar var mikill fiskimaður og hlóð stundum Hafgeir svo mjög að mönnum leist ekki á blikuna.
Ólafur Bernódusson 1100
Á myndinni frá 12. mars 2014 er Jón Sveinsson netagerðamaður til hægri að vinna í voðinni með sjómönnunum af snurvoðarbátnum/dragnótabátnum Hafrúnu Hu 12. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri til vinstri og Hafþór Smári Gylfason stýrimaður í miðið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1471
Myndin var tekin 3. mars 2011 í ketilhúsinu við veksmiðjuna. Í þessu rými var stór gufuketill, sem kyntur var þegar síldaverksmiðjan var í gangi. Hann framleiddi gufu sem bæði var notuð til að snúa gufuhverfli til að búa til rafmagn fyrir verksmiðjuna og síðan var gufan leidd yfir í versmiðjuna þar sem hún var notuð til að gufusjóða síldina. Á myndinni er búið að fjarlægja ketilinn og húsnæðið komið í eigu Sigurjóns Guðbjartssonar, sem styður sig við skóflu á myndinni, Hjá honum er Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður, sem hjálpaði til að fjarlægja undirstöðurnar fyrir ketilinn svo hægt væri að steypa nýtt gólf í húsið.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 69
Ómar Jakobsson fær sér fyrsta kaffibollann og fyrstu sígarettuna nýkominn á vaktina um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1530
10. ágúst 2012 var Ólafur Bernódusson með götusölu utan við verslunin Samkaup í samvinnu við tvo af afastrákunum sínum. Þeir buðu upp á kæstan hákarl, nýbakað rúgbrauð, rabbarbarasafa og nýtínd krækiber. Salan gekk ágætlega þó að hún hafi aðallega verið haldin til gamans og til að krydda mannlífið þennan blauta ágústdag. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Ingvar Gýgjar Sigurðsson, Páll Halldórsson og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1212
Guðmundur J. Björnsson mokar snjó á gröfunni sinni frá Fellsbraut 15 í janúar 2006 svo íbúarnir komist út af heimili sínu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1664
Erna Ósk Björgvinsdóttir í sumarvinnu sinni sem bæjarpóstur 30. júní 2011.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1458
Myndin var tekin 11. september 2011 af Hallgrími Hjaltasyni bónda á Skeggjastöðum 2 á hesti sínum við smölun.
Ólafur Bernódusson 991
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni bera saman bækur sínar Alþingismennirnir, frá vinstri: Stefán Guðmundsson (d. 10.9.2011), Ragnar Arnalds, Páll Pétursson og Pálmi Jónsson (d. 9.10.2017).
Ólafur Bernódusson 958
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg vegna vígslu nýs verslunarhúss Kaupfélags A-Hún við Bogabraut á Skagaströnd. Líklega var þetta árið 1983. Myndinni eru iðnaðarmenn og fleiri sem að byggingunni komu. Mennirnir vinstra megin við borðið eru óþekktir en hægra megin eru, talið frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson múrari, Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) málari, Einar Hjartarson verslunarstjóri, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) smiður, Helgi Gunnarsson verktaki og smiður, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) smiður, Hrólfur Pétursson smiður, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti og Sigfús Jónsson sveitarstjóri.
Ólafur Bernódusson 987
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ragnar Arnalds Alþingismaður og ráðherra, Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps, Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) útibústjóri á Skagaströnd, Páll Pétursson Alþingismaður og ráðherra og baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996).
Ólafur Bernódusson 902
Myndin var tekin í febrúar 1999 af hluta af starfsfólki Rækjuvinnslunnar á tölvunámskeiði í tölvuveri Höfðaskóla. Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri vinnslunnar leiðbeinir konunum á myndinni. Konurnar eru talið frá okkur: Jóhanna Karlsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Gígja Heiðrún Óskarsdóttir og Cristina Silod Yecyec.
Helgi Gunnarsson 14
Gólfið undir íþróttasalnum var steypt í einingum eins og sést á myndinni. Á henni er steypuvinna í fullum gangi. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem stendur uppi á miðhæðinni rauðum samfestingi og er að hífa steypuna. Það er Baldvin Hjaltason.
Óskar Kristinsson safn 068
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri draga inn netið í trollinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma 1969 - 1971. Það gat verið mikið strit og sukksamt að draga inn netið ef eitthvað var af veðri með tilheyrandi veltingi.
Barnaból - safn429
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í kaffistoppi á óþekktum stað. Frá vinstri: óþekkt, Þórunn Bernódusdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Kragerö og Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir.
gunnar024
Húni II Hu 2 orðinn siginn á síldveiðum í blíðu veðri einhverntíma kringum 1965.
Óskar Kristinsson safn 086
Myndin var tekin um borð í Stapafelli SH 15 frá Ólafsvík þegar það var á netaveiðum. Gylfi Jóhannsson til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) til hægri hvíla sig á stíminu milli trossa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 42
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Myndin var tekin 28. apríl 1998 þegar búið var að reisa húsið og sperrurnar. Byggingartíminn var stuttur enda var bjálkunum raðað saman eins og Legó-kubbum. Í reisugillinu þótti við hæfi að hafa uppi bæði íslenska og finnska fánann þar eð efniviðurinn í húsið kom frá Finnlandi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1537
Ólafur Magnússon Hu 54 settur á flot 13. apríl 2011. Gísli Snorrason stendur í stafni en aftar eru Sævar Hallgrímsson í blárri úlpu og Stefán Jósefsson eigandi bátsins aftan við hann.
Ólafur Bernódusson 992
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum við vinnu sína hjá KH (Kaupfélagi Húnvetninga) í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd 1984. Ingvar var starfsmaður í byggingavörudeildinni, sem var í kjallaranum, en hjálpaði oft til í versluninni á miðhæðinni. Þeirri verslun var lokað 1989 en deildin í kjallaranum var opin í 10 ár lengur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1566
Helgi Gunnarsson til vinstri og óþekktur maður frá verktaka til hægri fylgjast með niðurbroti á þrónum við síldarverksmiðuna 4. maí 2011.
Ólafur Bernódusson 929
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson blessar Örvar HU 2 þegar hann kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Áður hét skipið Blængur NK 117 frá Neskaupstað. Maðurinn í leðurjakkanum er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
gunnar029
Fólkið á myndinni er að fagna nýju skipi í sinni eign. Um var að ræða annað hvort Húna Hu 1 eða Húna II Hu 2. Húni Hu 1 var smíðaður í Þýskalandi 1957 en Húni II á Akureyri 1963. Ekki er vitað um hvort skipið var að ræða. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ólöf Guðmundsdóttir (d.5.9.2002), óþekktur, Björn Pálsson (d.11.4.1996) eiginmaður Ólafar, bóndi, kaupfélagsstjóri , útgerðarmaður og Alþingismaður. Lengst til hægri er Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar010
Húni Hu 1 höfninni á Skagaströnd með fullfermi af síld. Mennirnir um borð eru líklega Gunnar Sveinsson (.d3.11.2020) í svartri peysu og Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkla var það kringum 1960.
Helgi Gunnarsson 18
Myndin var tekin í júlí 1997 þegar Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Árni Max Haraldsson eru að vinna við glugga á veturhlið íþróttahússins. Sigmar er sá með gleraugun.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1704
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við frystihúsið á Hólanesinu. Á henni er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) í hvítu og hjá honum lætur Jósef Sigurðsson fara vel um sig. Sá á horninu er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 5
Útveggir íþróttasalar íþróttahússins komnir vorið 1997. Steypu"fæturnir" til hægri eru til mótvægis við límtrésbitana sem koma þegar húsið er reist.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1641
Sigurður Ingimarsson starfsmaður fiskmarkaðarins til vinstri og Sævar R. Hallgrímsson sjómaður til hægri að landa þorsklifur í kalsaveðri 22. febrúar 2012.
Guðrún Þórbjarnardóttir042
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndina hefur Jón klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Texti myndarinnar segir hverjir mennirnir eru en Bjarni lést 8.11.1990 og Kristján 10.10.2007. Myndin var tekin 1963 eða 1964 en þá átti Hólanes hf Keili og gerði hann út.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 46
Gott hal á síðunni á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru óþekktir en sá fremri er að toga í stertinn svo hægt sé að hífa inn pokann með hluta aflans sem sést í belgnum við síðuna.
1
…
63
64
65
…
75
Leita í myndasafninu
Leita