Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari443
Myndin var tekin einhverntíma á áttunda áratugnum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Á henni er Sigrún Lárusdóttir starfsstúlka verslunarinnar að aðstoða Birgi Árnason (d.2.2.2005) í verkfærahorninu.
Óskar Kristinsson safn 073
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Eins og sést er mokafli af frekar smáum fiski. Maðurinn við spilkoppinn bakborðsmegin er Ómar Jakobsson og maðurinn með sígarettuna í miðri kösinni er Indriði Hjaltason (2.4.2006). Hinir karlarnir eru óþekktir. Myndin var tekin löngu áður en kvótakerfið var sett á og því fiskuðu menn eins og þeir gátu án þess að hafa miklar áhyggjur af samsetningu aflans.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Guðrún Þórbjarnardóttir042
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndina hefur Jón klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Texti myndarinnar segir hverjir mennirnir eru en Bjarni lést 8.11.1990 og Kristján 10.10.2007. Myndin var tekin 1963 eða 1964 en þá átti Hólanes hf Keili og gerði hann út.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 46
Gott hal á síðunni á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru óþekktir en sá fremri er að toga í stertinn svo hægt sé að hífa inn pokann með hluta aflans sem sést í belgnum við síðuna.
Ólafur Bernódusson 960
Einar Hjartarson verslunarstjóri í verslun Kaupfélags A-Hún á Skagaströnd í nýrri verslun félagsins við Bogabraut. Myndin var líklega tekin 1983.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1568
Myndin var tekin 5. maí 2011 af þeim Bjarna Jónassyni til vinstri og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri að sansa bauju vegna einhvers rannsóknarverkefnis á vegum BioPol.
Helgi Gunnarsson 41
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, er verið að raða bjálkunum saman í veggjum efri hæðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1697
Myndin var tekin 30. apríl 2010 þegar Arnar HU 1 var að leggja af stað í veiðiferð. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Þröstur Árnason og Jóhannes Indriðason.
Óskar Kristinsson safn 005
Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969.
Óskar Kristinsson - safn169
Ekki er vitað um tilefni fundarins á myndinni en líklega eitthvað tengist það fiskviðskiptum á einhvern hátt. myndin var tekin einhverntíma á árunum 1984 - 1986 í fundarherbergi á efstu hæð í stjórnsýsluhúsinu. Vinstra megin við borðið sitja tveir óþekktir menn en Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri sýnir öðrum þeirra einhverja pappíra. Hægra megin við borðið sitja, talið inn eftir borðinu: Lárus Ægir Guðmundsson, óþekktur, Adolf H. Berndsen og Magnús B. Jónsson. Standandi við enda borðsins er Ingólfur Sveinsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 78
Fiskur út um allt dekk á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Eins og sjá má var vinnuaðstaðan ekki upp á marga fiska því það þurfti að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum og koma honum í þvottakarið. Þaðan rann hann niður í lest þar sem hann var ísaður í stíum. Karlarnir, sem eru í keng í aðgerðinni, eru óþekktir
Óskar Kristinsson - safn 248
Á myndinni má sjá byrjunarframkvæmdir vegna gróðursetningar á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar austan við tjaldstæðið við Hólabergin. Í dag er vinsælt að fara í göngutúr eftir Jónsstíg gegnum "skóginn", sem þarna er kominn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1696
Á árum áður verkuðu margir grásleppuveiðimenn hrognin sín sjálfir og seldu þau sem fullunna vöru. Á myndinni, frá 10. apríl 2010, eru Eiríkur Lýðsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að sigta hrognin eftir veiðiferð áður en látið er síga af þeim eina nótt og síðan söltuð í tunnu. Grásleppuna veiddu þeir félagar á Dagrúnu HU 121.
gunnar015
Myndin var líklega tekin kringum 1960. Á henn verið að landa síld til söltunar úr Húna Hu 1 í höfninni á Skagaströnd. Maðurinn næst okkur á myndinni með húfu og gleraugu er Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1507
Sigurður Skagfjörð Bjarnason að undirbúa málningu á þaki húss síns að Breiðabliki 1. apríl 2011.
Óskar Kristinsson - safn157
Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 117
Stefán Jósefsson í kojunni um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1032
Arnar Hu 1 kemur til hafnar úr mettúr í september 1998. Karlarnir framá eru óþekktir.
Dagrún HU 121 image 6
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni eru þeir feðgarnir Eiríkur Lýðsson og Friðmar Kári Eiríksson að blóðga fiskinn sem var í síðustu trossu sem þeir drógu.
Barnaból - safn432
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur nær okkur og Kristínu Kristmundsdóttur fjær, í ferðinni.
Óskar Kristinsson - safn 224
Stefán Þór Árnason til vinstri og Björn Viðar Hannesson til hægri að fínstilla ný færibönd og skammtara í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1658
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður hjá Vík ehf vinnur við veiðarfæri sín á planinu hjá netagerðinni Toppnet 14. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1687
Myndin var tekin vorið 1961 um borð í óþekktum bát á netaveiðum. Karlarnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1657
Ólafur Bernódusson mundar pensilinn við lógó Spákonuhofsins á stafni þess 23. júní 2011.
Óskar Kristinsson - safn175
Guðmundur Guðjónsson Ba 205 var gerður út á rækjuveiðar frá Skagaströnd 1991 en átti heimahöfn á Brjánslæk. Á myndinni er verið að afgreiða togarann á Skagaströnd. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Gunnar Stefánsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Finnur Kristinsson, Atli Þórsson, Gylfi Guðjónsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur og Halldór Gunnar Ólafsson. Barnið á myndinni er óþekkt. Ljósmyndarinn er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 36
Árni Max Haraldsson til vinstri og Gunnar Dór Karlsson til hægri vinna í vörubrettum á athafnasvæði Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Líklega var myndin tekin sumarið 1998.
Óþekktur ljósmyndari482
Myndin var tekin í Fellsborg af þeim Eddu Pálsdóttur (d.8.4.2016) og Halldóri Hermannssyni á fatamarkaði verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum.
gunnar018
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 á netaveiðum líklega einhverntíma 1960 - 65. Maðurinn lengst til vinstri, með prjónahúfuna, er líklega Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 60
Þessi mynd var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður til vinstri og Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) vélstjóri til hægri að borða í messanum/borðsalnum.
Helgi Gunnarsson 2
Myndin var tekin haustið 1996 þegar verið var að grafa fyrir grunni íþróttahússins. Eigandi og ökumaður vörubílsins var Hörður Ragnarsson en gröfumaður var Guðmundur J. Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1704
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við frystihúsið á Hólanesinu. Á henni er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) í hvítu og hjá honum lætur Jósef Sigurðsson fara vel um sig. Sá á horninu er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 5
Útveggir íþróttasalar íþróttahússins komnir vorið 1997. Steypu"fæturnir" til hægri eru til mótvægis við límtrésbitana sem koma þegar húsið er reist.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1641
Sigurður Ingimarsson starfsmaður fiskmarkaðarins til vinstri og Sævar R. Hallgrímsson sjómaður til hægri að landa þorsklifur í kalsaveðri 22. febrúar 2012.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari453
Halldór Hermannsson afhendir Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) blóm eftir að hann tók við sem verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. María hafði gegnt því embætti nokkru áður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hótel Dagsbrún sem rekið var á miðhæðinni í Stjórnsýsluhúsinu.
Helgi Gunnarsson 12
Starfsmenn Helga Gunnarssonar vanda vinnuna við undirlagið undir steypt gólf íþróttasalarins. Maðurinn með réttskeiðina er Viktor Pétursson en beint aftan við hann stendur Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011). Til hægri er Sigurður Björnsson og maðurinn í ljósu peysunni er Steinþór Karlsson. Lengst til vinstri er Baldvin Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1572
Haraldur Árnason starfsmaður Fiskmarkaðs Skagastrandar hvolfir ýsu í kör í löndun 6. maí 2011. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri fylgist með.
gunnar031
Myndin var líklega tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að landa síld til söltunar í Skagastrandarhöfn. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Maðurinn lengst til vinstri, á kafi í síldinni, er Birgir Þórbjarnarson en aðrir eru óþekktir. Löndun síldarinnar fór þannig fram að mennirnir mokuðu henni í tunnur með háfunum sem sjást á myndinni. Tunnan var með grind sem var á þolinmóð um miðjuna en læsingu efst. þannig að auðvelt var að sturta úr henni á bílpall eða handvagn á bryggjunni eftir að hún hafði verið hífð upp með bómu bátsins. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari461
Sveinn Þórarinsson ók lengi vörum frá Blönduósi til verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagströnd. Á þessari mynd er hann að afferma bílinn við verslunina við Bogabraut. Samstarfsfélagarnir Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) taka á móti vörunum og þykir greinilega gaman í vinnunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 4
Unnið við að steypa upp neðri hæð íþróttahússins vorið 1997. Steypan kom frá Steypustöð Blönuóss en Sigurjón Ásarsson hífði steypuna með Benz vörubíl sínum. Starfsmenn Helga Gunnarssonar taka á móti.
Helgi Gunnarsson 29
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins af starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem sá um að byggja húsið. Mennirnir eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Rúnar Kristjánsson, Björn Sigurðsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Hrólfur Pétursson, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurjón Karlsson, Einar Gunnarsson, Gunnar Dór Karlsson, Árni Max Haraldsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), óþekktur, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Gunnar Helgason, Magnús Hjaltason og Hjörtur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1723
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1965. Á henni sjást, til hægri, tvö ker sem verið er að hækka. Kerin sjálf voru steypt í slippnum neðan við Bjarmanes og síðan fleytt að Skúffugarði og byggt ofan á þau þar. Á myndinni má sjá horfna húsið, Efri-Læk, yfir vinstra hornið á Hafnarhúsinu, sem er stóra skemman fyrir miðri mynd.
Óskar Kristinsson safn 004
Næst okkur er Óskar Þór Kristinsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) er stjórnborðsmegin frammi undir hvalbaknum með svarta húfu. Maðurinn við spilið er líklega Árni Petersen og maðurinn sem bograr við stíuna er líklega Jón Helgason (d.1.12.2019). Myndin var líklega tekin 1969 á fyrsta starfsári Skagstrendings hf.
gunnar027
Húni II HU 2 að fylla sig af síld á miðunum í blíðskapar veðri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum kringum 1965.
Óþekktur ljósmyndari449
Vigdís Viggósdóttir, starfsmaður í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut, afgreiðir ? Jökulrós Grímsdóttur ? Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1030
Ragnheiður Magnúsdóttir aðstoðar mann sinn,Sævar Hallgrímsson, við að landa metafla, sem hann fékk á bát sínum Hafgeiri Hu 121, í september 1998.
Óskar Kristinsson safn 059
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Á henni er annað hvort verið að hífa bobbingjalengjuna innfyrir eða hífa hana í sjóinn þegar verið er að láta trollið fara. Þetta þurfti að gera á réttu róli þegar lengjan sveiflaðist í rétta átt inn- eða útfyrir borðstokkinn og slaka svo á réttum tíma. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ólafur Bernódusson 1063
Myndin var tekin 5. júní 2013 af Páli Halldórssyni 14 ára þar sem hann er í slægingarvinnu hjá fiskmarkaðnum á Skagaströnd. Nokkur ár var langstærsti hluti þess afla sem fór í gegnum markaðinn slægður þar vegna reglna um fiskflutninga.
Óskar Kristinsson - safn 212
Óskar Þór Kristinsson pakkar fiski um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur en frystitækin sjást til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 8
Mennirnir á myndinni eru að þrífa stíufjalir um borð í Auðbjörgu Hu 6. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er til hægri, Stefán Jósefsson er í appelsínugula gallanum en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1975.
Óskar Kristinsson - safn171
Frystitogarar Skagstrendings hf, Örvar Hu 21 og Arnar Hu 1 í höfn á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var gert einhverntíma á árunum 1993 - 1995. Ekki er heldur vitað hver tók myndina.
Ólafur Bernódusson 995
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd, sem tekin var 1984, eru þrjár starfskonur Violu að sýna ullarteppi sem þar voru framleidd. Konurnar eru frá vinstri: Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018), María Konráðsdóttir (d.9.8.2003) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015).
Óþekktur ljósmyndari464
Margrét Þorsteinsdóttir starfsstúlka verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari423
Myndin var tekin af nokkrum starfsstúlkum í kaffistofunni í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á þeim tíma voru reykingar greinilega ekkert tiltökumál. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Edda Pálsdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 45
Arnar Hu 1 brýst gegnum ísspöng á miðunum norð-vestur af landinu. Trollið er ekki í sjó enda erfitt og hættulegt að toga innan um hafís. Myndin var tekin kringum 1970.
Óskar Kristinsson - safn183
Högni Jensson var matsveinn á nokkrum af skipum Skagstrendings hf gegnum árin. Á myndinni er hann í eldhúsinu á einhverju þeirra en ekki er vitað hvenær og ljósmyndarinn er líka óþekktur.
Óskar Kristinsson safn102
Reynir Lýðsson um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1655
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri um borð í bát sínum, Bergi Sterka HU 17 að gera klárt fyrir grásleppuvertíð 13. mars 2012.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 044
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson af vörubíl sem var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. Bíllinn hafði oltið og við það snerist upp á hann eins og sést því afturhjólin vinstra megin snerta ekki jörðina. Þeir félagar Sigurjón og Guðmundur löguðu bílinn með því að setja fasta stoffu í pallhornið hægra megin í hæstu stöðu og toga svo í með gröfu. Við þær aðfarir rétti bíllinn sig af og var notaður lengi á eftir eins og ekkert hefði skeð. Þetta var hægt því grindin á bílum eins og þessum er öll hnoðuð saman en ekki rafsoðin. Skipta þurfti um hús á bílnum því það skemmdist illa í veltunni.
1
…
64
65
66
…
75
Leita í myndasafninu
Leita