Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 56
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður í stólnum í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1535
Menn á vegum RARIK vinna við að skipta um þverslár í staurastæðu í hlíðum Spákonufells 12. apríl 2011. Þverslárnar hafa greinilega brunnið sundur einhverra hluta vegna enda gríðarleg orka á ferðin. Mennirnin á myndinni voru starfsmenn Rarik: Kristján (Diddi) í bláum samfestingi, Leifur að bogra við bílinn og Guðmundur uppi í staurnum.
Óþekktur ljósmyndari589
Starfsstúlkur í frystihúsi á Skagaströnd 1943 eða 1944. Samkvæmt texta myndarinnar eru þetta, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir (d.11.8.1971), Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991), Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953), Sigríður Helgadóttir (d.?), Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970), Stella Lárusdóttir (d.?) situr framan við Helgu, Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996), Helga Sigurðardóttir (d.?), Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Ingunn Júlíusdóttir (d.22.4.1998), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar018
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 á netaveiðum líklega einhverntíma 1960 - 65. Maðurinn lengst til vinstri, með prjónahúfuna, er líklega Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 9
Stefán Jósefsson dregur fisk á færi um borð í Auðbjörgu Hu 6. Líklega var myndin tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1703
Myndin var líklega tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 einhverntíma á árunum 1973 - 1977 þegar hún átti heimahöfn á Skagaströnd. Á henni sést að það hefur fiskast ágætlega enda eru karlarnir hressir. Þeir eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson - safn 225
Sigurður Skagfjörð Bjarnason í vinnu sinni í Rækjuvinnslunni hf. Sigurður var einn traustasti og reynslumesti starfsmaður vinnslunnar og vann þar í áratugi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 049
Guðmundur Ólafsson vaskar upp um borð. Líklega var myndin tekin um borð í Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1474
Þorlákur Sveinsson með rauða húfu og Guðni Már Lýðsson með bláa, um borð í Bergi sterka Hu 17, 4. mars 2011. Báturinn að verða klár fyrir grásleppuvertíðina.
Óskar Kristinsson safn 142
Högni Jensson matsveinn hrærir í pottunum, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Ómar Jakobsson.
Ólafur Bernódusson 1059
Myndin er af þurrkun á kola sem er fremur sjaldgæf verkun á þeirri tegund fiska. Þessi mynd var tekin 4. júní 2013 fyrir utan Bláland en þar bjó þá sjómaður, Björgvin ?, sem lært hafði þessa verkunaraðferð í Hornafirði og þótti afurðin mjög góð.
Óþekktur ljósmyndari427
Ingvar Jónsson (d.18.1. 2003) frá Sólheimum var vinsæll verslunarþjónn hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd. Þessi mynd var líklega tekin af honum við afgreiðslustörf í byggingavörudeildinni í "Kjallaranum" í Kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 21
Það er skemmtilegur siður að flagga á húsum þegar búið er að reisa allar sperrurnar. Þá er reisugilli gjarnan með einhverjum veitingum til handa þeim sem verkið unnu. Á myndinni er búið að reisa allar sperrurnar í iþróttahúsinu og því reisugilli í gangi.
Helgi Gunnarsson 27
Reisugilli í íþróttahúsinu sumarið 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014), helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Gunnar Dór Karlsson og Árni Max Haraldsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 10
Myndin ver tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 á færaveiðum, líklega kringum 1975. maðurinn með hattinn er Stefán Jósefsson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er út við lunninguna en maðurinn til vinstri er óþekktur (?Árni Björn Ingvarsson?).
Óskar Kristinsson safn 025
Aðfaranótt sunnudagsins 10. apríl 1988 fékk togarinn Þorsteinn EA 610 trollið í skrúfuna í átta vindstigum og éljagangi út af Húnaflóa. Þorsteinn var þá innan um hafís og fór fljótt að slást utan í stóra ísspöng. Við það skemmdist hann töluvert og gat kom á stjórnborðshornið að aftan og fór að leka allmikið. Til öryggis kallaði skipstjóri Þorsteins á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók fjóra skipverja um borð og flutti til Ísafjarðar. Arnar Hu 1, sem var að toga í grendinni, fór strax á vettvang. Eftir töluvert bras við að komast að Þorsteini gegnum ísinn komu Arnarsmenn landfestartrossu yfir í Þorstein og drógu hann varlega út úr ísnum á henni. Eftir að komið var á auðan sjó var togvír komið milli skipanna og með honum ferjaði Arnar Þorstein til hafnar á Akureyri einum og hálfum sólarhring seinna. Arnar laskaðist nokkuð í þessu brasi í ísnum en gat þó haldið aftur til veiða eftir að hafa komið Þorsteini í örugga höfn. Á myndinni er verið að hífa einn skipverja Þorsteins um borð í þyrluna. (Heimild: https://timarit.is/page/1678662?iabr=on#page/n63/mode/1up sótt 14.10.2021)
Ragnar S. Ingvarsson - safn 51
Á myndinni er stund milli stríða hjá þeim Ómari Jakobssyni til vinstri og Finni Kristinssyni til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Myndin var tekin í messanum/borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972.
Óskar Kristinsson - safn151
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson þegar verið var að landa á Skagströnd úr síðutogarnum Arnari Hu 1 vorið 1969. Arnar var fyrsta skip nýstofnaðs Skagstrendings hf og kom til Skagastrandar um jólin 1968. Fiskurinn var settur í stíur í lestinni þannig að það var töluvert verk að landa úr Arnari. Í þessari löndun er líka fiskur í stíum á dekkinu en yfir hann hefur verið breitt segl eins og sjá má. Fiskurinn var hífður í land í þar til gerðum málum eins og því sem sést hægra megin á myndinni. Málin klofnuðu í miðju þegar þau voru opnuð þannig að það tók bara augnablik að losa þau á vörubílspall. Maðurinn á lúgunni, með hvíta prjónahúfu er líklega Birgir Árnason (d.2.2.2005) og berhöfðaði maðurinn í lestinni er Páll Jóhannesson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagrún HU 121 image 4
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er skipstjórinn Eiríkur Lýðsson í horninu sínu við úrgreiðsluborðið og spilið.
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1574
Þessi mynd frá 6. maí 2011 sýnir hvernig umhorfs var inni í þró verksmiðjunnar eftir að búið var að brjóta niður vesturvegg hennar. Milli súlanna á myndinni var færiband í botninum sem flutti síldina inn í verksmiðjuna sjálfa til vinnslu. Þess vegna var botninn í þrónum hafður hallandi inn að miðju eins og sjá má ef myndin er skoðuð vel.
Óskar Kristinsson safn120
Rækjufrystiskipið Helga Björg Hu 7 í brælu á miðunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jósef Stefánsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn 118
Gúmmítuðran sjósett með fjóra karla um borð. Ekki er vitað hvers vegna þetta var gert í þetta sinn en stundum þurfti að koma mönnum eða umbúðum á milli skipa og þá var tuðran notuð. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en Ólafur Ásgeirsson tók hana 24. ágúst 1996, líklega um borð í Arnari Hu 1.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 52
Skaufi er það kallað þegar aflinn er það lítill í trollið að hann fyllir ekki pokann í enda trollsins. Á myndinni býr Finnur Kristinsson sig undir að leysa frá pokanum á dekkið á síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma kringum 1970. Maðurinn með sjóhattinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1665
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Sigurlaug Máney Sæmundsen til hægri í vinnuskólanum 30. júní 2011.
Dagrún HU 121 image 3
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári Eiríksson við úrgreiðsluborðið en pabbi hans, Eikur Lýðsson, klöngrast yfir borðið.
Óskar Kristinsson safn 002
Magnús B. Jónsson vinnur í neti um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin 1969.
Óþekktur ljósmyndari458
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni kynnir Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) Hong Kong pottrétt fyrir Bóel Hallgrímsdóttur sem er til vinstri á myndinni.
gunnar028
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi var tekin. Báturinn næst okkur er Húni HU 1 síðan kemur Húni II Hu 2 og innst er óþekktur bátur ÍS 740.
gunnar002
Þessi mynd var tekin sumarið 1968 á sjávarútvegssýningunni "Íslendingar og hafið". Mennirnir sem standa upp við seglbátinn eru frá vinstri: Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Reynir Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson og Árni Ólafur Sigurðsson. Allir störfuðu þeir á næstu árum hjá Skagstrendingi hf, sem þá var nýstofnaður. Sveinn sem framkvæmdastjóri, Björgvin sem stjórnarmaður , Jón og Reynir sem vélstjórar og Árni sem stýrimaður og skipstjóri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1662
Eyjólfur Ólafsson GK 38 dreginn af strandstað við nerðanverðan Höfðann 2. júlí 2012. Báturinn náðist á flot á næsta flóði eftir strandið, nánast óskemmdur.
Óskar Kristinsson safn 027
Myndin var tekin í brúnni á skuttogaranum Arnari Hu 1 (Japans- Arnari). Mennirnir eru Magnús Sigurðsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Helgi Gunnarsson 36
Árni Max Haraldsson til vinstri og Gunnar Dór Karlsson til hægri vinna í vörubrettum á athafnasvæði Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Líklega var myndin tekin sumarið 1998.
Helgi Gunnarsson 19
Á myndinni er verið að reisa burðarvirki íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en þeir voru starfsmenn Helga Gunnarssonar verktaka. Vörubíllinn sem hífir sperrurnar var í eigu Gunnars Helgasonar (d.19.10.2007).
Óþekktur ljósmyndari423
Myndin var tekin af nokkrum starfsstúlkum í kaffistofunni í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á þeim tíma voru reykingar greinilega ekkert tiltökumál. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Edda Pálsdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1029
Sævar Hallgrímsson landar á Skagströnd fullfermi úr bát sínum Hafgeiri Hu 121 í september 1998. Með honum um borð er dóttir hans, Alma Eik Sævarsdóttir.
Óskar Kristinsson safn095
Róbert Gunnarsson við frystitækin um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 016
Myndin var tekin um borð í síðutorgaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Maðurinn til vinstri er Árni Petersen en sá til hægri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006). Líklega er verið að slaka trollinu og þess vegna er Árni við spilið.
Bjarni Jónsson 25
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd á jólakort, líklega 1990. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Óþekktur ljósmyndari468
Litlu jól starfsfólks verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) er lengst til hægri en hin konan er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari451
Hallbjörn Hjartarson starfsmaður í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Annar starfsmaður, Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), sést í baksýn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 54
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Verið er að hífa pokann inn en meiri fiskur bíður í belgnum eftir að að fara í pokann í næsta hífi. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Framundan má sjá í hafísröndina þannig að skipið hefur verið að toga innan um ísinn, sem oft gafst vel svo fremi það væri mögulegt.
Helgi Gunnarsson 40
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, eru menn að vinna við efri hæð hússins. Mennirnir eru,frá vinstri: Baldvin Hjaltason, óþekktur, Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri sér í Sigurð Björnsson.
Janette Kerr 2
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Eiríkur Lýðsson skipstjóri stoppar spilið og býr sig undir að greiða þorsk úr netinu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 138
Á myndinni er verið að skipta um lunningu og hvalbak á Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær né hvar hún var tekin.
Ólafur Bernódusson 952
Myndin var tekin 1983 á vélaverkstæði Hólaness hf sem staðsett var á jarðhæðinni þar sem nú er gistiheimilið Salthús. Á henni eru starfsmennirnir á verkstæðinu að gæða sér á kóki og Prins póló. Mennirnir eru frá vinstri: Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Guðmundur Jón Björnsson og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019).
gunnar016
Á myndinni er verið að landa síld úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Líklega var myndin tekin kringum 1960. Mennirnir eru frá vinstri: með hvítu húfuna er óþekktur, hálfur bak við tunnuna er Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) er með húfu, óþekktur í köflóttri skyrtu og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020).
Óskar Kristinsson safn107
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar Ísfisktogarinn Arnar Hu 1 er að leggja að í Reykjavíkurhöfn til löndunar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Guðmundur E. Guðmundsson, Stefán Sveinsson og óþekktur.
Óskar Kristinsson safn134
Guðmundur Gunnlaugsson pakkar frosnum fiski í pappakassa um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1993 -1995 en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Óskar Kristinsson - safn190
Myndin var tekin við flugskýlið á Blönduósflugvelli 10. maí 1992. Ekki er vitað hver tók myndina en tilefni hennar var flugferð, sem þetta fólk fór í, til Hornafjarðar. Þar skoðaði hópurinn íbúðablokk áður en farið var í að byggja eina slíka á Skagaströnd á Túnbraut 11. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Hallbjörn Björnsson, Kristinn Jóhannsson, Rolf Árnason, Helgi Gunnarsson, Kristín Kristmundsdóttir og Vilhelm Harðarson.
Óskar Kristinsson safn128
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær. Hún sýnir nokkra karla í matsalnum um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Sitjandi eru Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) vinstra megin og Hólmgeir Kristmundsson til hægri. Standandi eru óþekktur til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri.
Óskar Kristinsson safn 056
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Myndin var tekin einhverntíma 1969 - 1971. Maðurinn við spilið er líklega Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en maðurinn í bússunum er Jón Helgason (d.1.12.2019). Aðrir eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 6
Á myndinni eru starfsmenn Helga Gunnarssonar að vinna við að steypa neðri plötuna í vesturenda íþróttahússins vorið 1997. Sigurður Björnsson er maðurinn í bláa samfestingnum sem stendur hægra megin en Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) er til vinstri einnig í bláum samfestingi. Mennirnir í appelsínugula samfestingnum (?Hjalti Reynisson?) og sá sem er lengst til hægri er líklega Jóhannes Indriðason.
Óþekktur ljósmyndari445
Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir afgreiðir málningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum.
gunnar013
Myndin sýnir Húna Hu 1 og Húna II Hu 2 í höfninni á Skagaströnd. Húni II var smíðaður á Akureyri 1963 en Húni var seldur frá Skagaströnd 1965 þannig að myndin var líklega tekin 1964. Bátarnir aftan við Húnana eru Auðbjörg HU 6 nær okkur og líklega Aðalbjörg HU 7 fjær okkur.
Óskar Kristinsson - safn 228
Magnús Margeirsson líklega um borð í Arnari Hu 1. Sennilega hefur hann átt afmæli miðað við kökuna sem hann er með í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 066
Jónas Skaftason (d.17.11.2017), kokkur um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, stoltur með tvær rjómatertur sem hann hefur bakað og skreytt. Myndin var líklega tekin 1969.
Óskar Kristinsson - safn203
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Bergþór Gunnarsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Óli Albertsson, Slavko Velemir, Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Einar Ásgeirsson. Hægra megin við borðið, frá vinstri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Þórarinn Grétarsson, tveir óþekktir og Jens Jónsson.
Óskar Kristinsson safn 110
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf fundar í kaffistofunni 10. september 1992 um þær fréttir að ísfisktogarinn Arnar Hu 1 sé að hætta að landa afla sínum hjá frystihúsinu. Sá afli hafði verið uppistaðan í þeim afla sem unninn var í frystihúsinu. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), Gígja Óskarsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1027
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru fjögur full kör á dekkinu og laus fiskur framan við þau. Að sjálfsögðu eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka.
1
…
65
66
67
…
75
Leita í myndasafninu
Leita