Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn166
Myndin var tekin 22. janúar 1992 þegar mennirnir á myndinni voru á Sauðárkróki að skoða sérbyggða vél sem skar kinnar og gellur úr þorskhausum. Mennirnir eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurður Alexandersson, Rúnar Jósefsson og Rögnvaldur Ottósson.
gunnar012
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 einhverntíma kringum 1960 í höfninni á Skagaströnd. Karlarnir eru að snúast kringum línubala bakborðsmegin á Húna. Karlarnir eru óþekktir en ágiskun er að maðurinn í bússunum sé Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) en sá með hvítu húfuna sé Stefán Hólm (d.22.7.2018). Sá bogni er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn193
Myndin var tekin á Nýja Sjálandi 29. febrúar 1992. Þá voru feðgarnir Ingólfur Sveinsson og Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, í viðskiptaferð í landinu. Þeir feðgar eru fyrir miðju á myndinni en mennirnir beggja megin við þá eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn164
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Arnar Arnarson, Jón Gunnarsson, Sigurður Alexandersson, Ragnar Högnason (nær), Einar Ásgeirsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson, Þórarinn Grétarsson (nær), Gunnar Jón Jónsson (fjær) og Kristján Alexandersson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 82
Unnið í trolli á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Ljóshærði maðurinn í bláu peysunni er Finnur Kristinsson, sá með alpahúfuna er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) og í köflóttu skyrtunni er Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998). Líklega er það Ómar Jakobsson sem er í stakk með ljósa húfu. Hinir tveir mennirnir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn138
Skipverjar um borð í Arnari Hu 1 slaka á í setustofunni einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Hjörtur Guðbjartsson tók myndina. Á henni eru frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Gígja Óskarsdóttir og Ragnar Högnason. Aðrir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 230
Frystitogarar Skagstrendings hf í heimahöfn á Skagaströnd. Örvar Hu 21 er utan á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 023
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1991 af Hallbirni Björnssyni sem þar var til að kynna sér smíði nýs frystitogara, Arnars Hu 1, sem þar var í byggingu fyrir Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1565
Á myndinni er verið að byrja á að rífa niður þrærnar við síldarverksmiðjuna 4. maí 2011 með stórvirkum vinnuvélum.
gunnar034
Blöðruselur hífður frá borði Húna Hu 1 eftir línuróður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og drengirnir á henni eru óþekktir.
gunnar020
Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri á Húna Hu 1 hjálpar til við löndun á risastórum sel sem hefur komið í veiðarfæri Húna. Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en ekki er vitað hvenær það var en líklega var það einhverntíma 1960 - 65.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 72
Þrír hásetar á frívakt aftur á bátadekki á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru, frá vinstri: óþekktur, Reynir Sigurðsson og Þorvaldur Skaftason. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 250
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til hægri landa netafiski úr Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1099
Þessi mynd frá 18.febrúar 2014 sýnir framkvæmdir við lengingu á viðlegukanti Miðgarðs. Þar kom svo þriðji löndunarkraninn eins og þekkt er. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 30
Myndin var tekin 19. ágúst 1997 þegar verið var að klæða íþróttahúsið. Sigurður Björnsson stendur á jörðinni, sá í stiganum er óþekktur en uppi á þakinu eru, frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Steinþór Karlsson og Gunnar Helgason.
Óþekktur ljósmyndari460
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut kynnir Sigurjóni Guðbjartssyni SAH bjúgu á kynningu á þeirri afurð í búðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 150
Óskar Kristinsson til vinstri og Ómar Jakobsson í matsalnum, líklega á síðutogaranum Arnari Hu 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972. Myndin er í eigu Ómars Jakobssonar.
Óskar Kristinsson safn 057
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 á köldum degi. Myndin var líklega tekin 1969.
Óskar Kristinsson safn 062
Ómar Jakobsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson á ís-útkíkki á hvalbaknum á síðutogaranum Arnari Hu 1 ísavorið 1969. Hlutverk þeirra var að segja skipstjóranum til þegar skipið var að þræða vakir gegnum hafísinn sem þá var á miðunum, Eins og sjá má er ísinn ansi þéttur framundan.
Óskar Kristinsson safn 084
Arnar Hu 1 kemur fánum skrýddur til heimahafnar. Líklega var myndin tekin þegar hann kom í fyrsta sinn til Skagstrandar nýsmíðaður frá Japan 15. október 1973.
Ólafur Bernódusson 1028
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru körin á dekkinu full og auðvitað eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka. Á myndinni er Sævar byrjaður að landa og búinn að hífa hluta aflans upp á bryggju. Honum til aðstoðar um borð er dóttir hans Alma Eik Sævarsdóttir.
gunnar006
Húni Hu 1 landar nánast fullfermi af síld á Skagaströnd. Maðurinn í bússunum er líklega Gylfi Sigurðsson en sá með húfuna gæti verið Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Drengurinn á myndinni er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 114
Myndin var tekin 16. ágúst 1996 um borð í Örvari Hu 21. Maðurinn lengst til vinstri er líklega læknir en honum var slakað niður úr þyrlu til að gera sjúkling kláran fyrir upphífingu af Örvari. Ef grannt er skoðað má sjá línu sem liggur upp í þyrluna. Hinir mennirnir tveir voru skipverjar um borð. Mennirnir eru allir óþekktir. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
hem017
Óskar Kristinsson - safn 222
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21. Óskar Kristinsson er með gilsinn í hendinni til að setja í stroffu um belginn svo hægt sé að hífa og sturta fiskinum niður í móttökuna. Sævar Hallgrímsson er í búrinu til vinstri og stjórnar hífingum. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 989
Nýsmíðin Stakkur RE skírður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1983. Maðurinn við tunnuna er óþekktur en konan sem brýtur flöskuna er líklega Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1660
Þór Arason (d.11.8.2018) steypir gólfplötu í verðandi forstofu við Spákonuhofið 24. júní 2011.
Óskar Kristinsson - safn 221
Ingólfur Bjarnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf við stjórnborð vinnslunnar. ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn103
Myndin var tekin í Noregi í október 1992. Á henni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Magnús P.? vélasölumaður, Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri og Gylfi Sigurðsson stjórnarformaður félagsins. Ástæða Noregsfararinnar að þessu sinni var að vinna að smíði nýs togara þar fyrir Skagstrending hf.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 23
Rúnar Jósefsson hreinsar ánetjaðan kola úr pokanum eftir að hann var nýbúinn að losa hann í stíu um borð í Auðbjörgu HU 6. Hinn maðurinn er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 1975.
gunnar037
Húni Hu 1 í Skagastrandarhöfn með síldarfarm. Til vinstri, nær okkur á myndinni, sér í endan á söltunarbásunum með síld en söltun er ekki hafin. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Óskar Kristinsson - safn163
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Adolf H. Berndsen, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Jóhannes Sómonsen (nær), Jens Jónsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson (nær) og Rúnar Jósefsson (fjær).
Óskar Kristinsson - safn179
Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Mokafli hefur fengist í trollið þannig að fiskurinn er blóðgaður áður en honum er hleypt niður í vinnsluna á millidekkinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, þrír óþekktir, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Sigurður Alexandersson, tveir óþekktir og Páll Valgeirsson.
Óþekktur ljósmyndari471
Guðlaugur Hjaltason spilar á gítar á litlu jólum starfsfólks í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar047
Síld landað úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn einhverntíma kringum 1960. Á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í svartri peysu en Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Aðrir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari473
Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), starfsstúlka í verslun Kaupfélag Húnvetninga við Bogabraut, í hófi á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Óskar Kristinsson safn 001
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Arnar var fyrsta skip Skagstrendings hf, sem var stofnað 1968. Myndin var tekin eftir áramótin 1969, sem var eins og sést á myndinni var það hafísvetur. Jónas var kokkur um borð í Arnari þegar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn149
Þeir eru kátir karlarnir á þessari mynd, sem tekin var fyrir Ómar Jakobsson, um borð í síðutogaranum Arnar Hu 1, sem Skagstrendingur hf átti og gerði út á árunum 1969 - 1972. Mennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) með lúðulok í hendinni.
Óþekktur ljósmyndari447
Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd vinnur við útimarkað á planinu framan við verslun Kaupfélagsins á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er verið að byggja íþróttahúsið á Blönduósi þannig að líklega hefur það verið á níunda áratugnum.
Óskar Kristinsson - safn201
Menn á vegum Skagstrendings hf skoða togara á Nýfundnalandi 19. mars 1991. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Hallbjörn Björnsson, óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson og Magnús Sigurðsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 22
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 en ekki er vitað hvenær (líklega kringum 1975). Auðbjörgin virðist hafa verið á togveiðum þegar myndin var tekin. Rúnar Jósefsson hnýtir fyrir pokann en hinn maðurinn er óþekktur. Aflinn er góður eins og sést greinilega á dekkinu.
Óskar Kristinsson - safn 247
Myndin var tekin í Rækjuvinnslunni hf þegar verið var að prófa einhverjar nýjar vélar. Mennirnir á henni eru, frá vinstri: Jóel Kristjánsson rekstrarstjóri vinnslunnar, Sigurður Bjarnason, Björn Ingi Óskarsson báðir starfsmenn vinnslunnar. Björn Viðar Hannesson, Ari Þórsson og Vilhelm Þórarinsson. Þrír þeir síðastnefndu voru starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 214
Skagstrendingur hf keypti Stakkanesið frá Bíldudal í maí 1987 og gerði það út á rækjuveiðar. Það var síðan selt til Eyrarbakka í febrúar 1989. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Óskar Kristinsson safn 024
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, Arnari Hu 1, sem þar var byggður fyrir félagið. Maðurinn á myndinni er Árni Ólafur Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari486
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á öskudegi. Á henni eru, frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin í verlsun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut.
Óskar Kristinsson safn113
Þessi mynd var líklega tekin á hótelherbergi í Grimsby í september 1992. Þá voru þar í vinnuferð Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, til vinstri og Sævar Rafn Hallgrímsson, bátsmaður, til hægri.
Óskar Kristinsson safn 019
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson og Guðjón Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1659
Eyjólfur Ólafsson GK 38 strandaði við norðanverðan Höfðann 2. júlí 2012 því maðurinn um borð hafði sofnað við stýrið. Á myndinni er báturinn á strandstað en skerið sem sér í aftan við bátinn er kallað Kópurinn eða Kobbinn.
gunnar026
Bátar við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn. Fremri báturinn er Hrönn Hu 15 sem kom til Skagastrandar 1962 en endaði lífdaga sína í Sandgerði 1967. Aftari báturinn er óþekktur.
Óskar115
Á myndinni frá 16. ágúst 1996 er læknir að koma sjúklingi fyrir í sjúkrabörum fyrir hífingu um borð í þyrlu af hvalbaknum á Örvari Hu 21. Einn af skipverjunum heldur í línuna frá þyrlunni til að hún flækist ekki. Myndina tók Ólafur Ásgeirssoon.
Óskar Kristinsson safn 061
Myndin var tekinn um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Á henni sést hvers konar vandræði gátu fylgt því að toga innan um hafísinn sem þá var á miðunum. Forvírinn hefur húkkast um jaka og erfitt reynist að losa hann án þess að slíta. Maðurinn sem grillir í miðskips er Björn Haraldsson (Bangsi) (d.21.9.1988) en maðurinn við spilið er óþekktur.
Helgi Gunnarsson 25
Rúnar Kristjánsson til vinstri og Sigurjón Karlsson til hægri njóta veitinga í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óskar Kristinsson safn 007
Síðutogarinn Arnar Hu 1 þræðir færa leið í hafísnum vorið 1969. Maðurinn með svörtu húfuna er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en sitjandi við spilið er liklega Óskar Þór Kristinsson.
Óskar Kristinsson safn 077
Sigurjón Haraldsson (Jónki) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óþekktur ljósmyndari467
Steinunn Friðriksdóttir á litlu jólunum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut þar sem hún var starfsmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 009
Síðutogarinn Arnar Hu 1 leggur af stað í veiðiferð hafísvorið 1969. Eins og sést á myndinni verður að þræða lænur milli jakanna til að komast á miðin.
Helgi Gunnarsson 1
Haustið 1996 var tekin fyrsta skóflustunga að Íþróttahúsinu. Það gerðu yngstu nemendur Höfðaskóla með gylltri skólfu skreyttri með borðum í fánalitunum. Við verkið nutu þau aðstoðar Adolfs H. Berndsen oddvita til vinstri og Magnúsar B. Jónssonar sveitarstjóra til hægri. Neðst í vinstra horninu er Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri í rauðri treyju.
Óskar Kristinsson safn 058
Trollið tekið um borð í síðutogarann Arnar Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir eru Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) fremst, Björn Haraldsson -Bangsi- (d.21.9.1988) í miðið en maðurinn næst okkur á myndinni er Jón Helgason (d.1.12.2019).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1580
Ágúst Þór Bragason skrúðgarðafæðingur klippir runnana við Fellsbraut 15 8. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1617
Sumarhús, byggt af Helga Gunnarssyni og hans mönnum, á leiðinni upp Fellsbraut áleiðis að Tjörn Skaga þar sem stendur í dag. Myndin var tekin 26. maí 2011.
1
…
66
67
68
…
75
Leita í myndasafninu
Leita