Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson safn121
Myndin var tekin 2. september 1991 en ekki er vitað hvar né hver tók hana. Á myndinni er Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf lengst til hægri. Með honum á myndinni er Magnús Scram fisksölumaður lengst til vinstri en með þeim eru líklega fiskkaupendur frá Taívan. Þar var markaður fyrir frystan fisk, einkum grálúðu.
Ólafur Bernódusson 1021
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar endurbygging Kántrýbæjar var að hefjast. Helgi Gunnarsson og hans menn byrjuðu á að flokka bjálkana sem húsið er byggt úr. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: óþekktur Ástu Þórhölluson, Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Sigrún Lárusdóttir, óþekktur, baksvipur Rúnars Kristjánssonar og Helgi Gunnarsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn573
Þessi mynd var tekin af kennurum Höfðaskóla einhverntíma kringum 1970. Frá vinstri: tveir óþekktir, Jón S. Pálsson skólastjóri,, Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Eiríkur Kristinsson (d.4.10.1994)
Óskar Kristinsson safn 148
Finnur Kristinsson, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd.
Óskar Kristinsson safn 048
Matthías Guðmundsson með hvolp um borð í togara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1112
10. janúar 2019 var formleg opnun á bókhalds- og rekstrarráðgjafafyrirtækinu Lausnamið. Á myndinni er eigandi fyrirtækisins Erla Jónsdóttir til vinstri og starfsmaður hennar Sigríður Gestsdóttir til hægri. Jóhann Ásgeirsson eiginmaður Erlu situr til vinstri og hlustar á konu sína bjóða gesti velkomna.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 127
Rúna SF 101 sokkinn í höfninni um mánaðamótin jan/feb 1985 eftir norð austan illviðri. Bátinn keyptu Ólafur Ingibjörnsson og Högni Jensson saman 1984 en Ólafur eignaðist hann einn ári seinna. Hann skírði bátinn Hafbjörg HU 100 og gerði hann út til 1986 er hann seldi Hafbjörgu til Bolungavíkur. (heimild:" Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Á myndinni er verið að koma bátnum á flot aftur en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn127
Ólafur Ásgeirsson í matsalnum á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Vilhelm Þórarinsson.
Ólafur Bernódusson 1023
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar endurbygging Kántrýbæjar var að hefjast. Á henni er vinnuflokkur Hega Gunnarssonar sem vann að byggingu hússins. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson, tveir óþekktir, Rúnar Kristjánsson, og Baldvin Hjaltason.
gunnar036
Línufiskur í stíum á dekkinu á Húna Hu 1. Fiskinum var svo landð með því að pikka hvern fisk upp með sting, eins og sést liggja ofan á kösinni næst okkur. Gjarnan var hann tíndur í mál sem síðan var híft upp og sturtað úr á bílpall. Þannig var fiskurinn svo fluttur í vinnsluhús og sturtað þar á gólfið.
Guðrún Þórbjarnardóttir051
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er verið að reka fé í almenninginn í Spákonufellsrétt einhverntíma á árunum 1960-65. Fólkið í röðinni er frá vinstri: Hafsteinn Sigubjarnarson (d.18.5.1974) með hatt, Konráð Guðmundsson, Jóhann Pétursson (d.13.1999), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), óþekkt barn í grænni úlpu, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) (fjær), óþekktur strákur (nær), Þórunn Bernódusdóttir (fjær), óþekkt kona (nær), fimm óþekkt, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með hvíta húfu (nær), óþekkt (fjær), Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968), óþekkt kona, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973), Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari429
Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d.21.12.1993) við vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn554
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir fyrstu brúna sem byggð var yfir Laxá í Refasveit, ekki langt frá þeirri sem nú er í byggingu (2022), og enn má sjá ummerki eftir. Í vikublaðinu "Víðir" 27 tölublaði 18. júní 1928 er eftirfarandi frétt: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blöduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum: Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V.G.Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkini Sigurlaugar: laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafði á bílnum, einkum, bensíngjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina að bílstjórinn réð ekki við bílinn og rann hann á trégirðinguna og út fyrir". Sérfræðingur vegagerðarinnar segir að í fréttinni sé um þessa brú að ræða því aldrei var trébrú yfir Blöndu og blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina hefur verið ókunnugur á svæðinu, enda var blaðið gefið út í Vestmannaeyjum. Hið rétta er að þetta var við Blöndu. Þar var byggður tré "rampur" upp að sjálfri brúnni að norðanverðu. Þar varð umrætt slys.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 50
Líklega er það Magnús Margeirsson sem stendur við þvottakarið um borð í síðutogranum Arnari Hu 1. Maðurinn sem veifar fram við forgálgann er líklega Ómar Jakobsson. Það var Skagstrendingur hf sem gerði Arnar út á árunum 1969 - 1972 og var það upphafið af útgerðarveldi Skagstrendings hf.
Óþekktur ljósmyndari462
Sæmundur Gunnarsson þáverandi verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið, líklega um borð í Ólafi Magússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari463
Sólveig Sveinsdóttir starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 069
Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) vélstjóri við stjórnvölinn um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 79
Stefán Jósefsson gerir að fiski um borð í Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 44
Myndin var tekin á Trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar vorið 1990 þegar starfsmenn voru að einangra sumarhús sem þeir smíðuðu inni á verkstæðinu. Húsið var síðan dregið út, fullbúið, sett á dráttarvagn og dregið á sinn stað í Borgarfirði þar sem því var komið fyrir. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari480
Myndin var tekin á markaði Kaupfélags Húnvetninga í félagsheimilinu Fellsborg. Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, óþekkt, Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Helga Hermannsdóttir, Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007) og Árný Hjaltadóttir kona hans.
Óþekktur ljósmyndari435
Þórhalla Guðbjartsdóttir vinnur að vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar039
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með nótabátinn á síðunni. Húni er greinilega að bíða eftir löndun því hann er töluvert siginn.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 035
Jóhann Björn Þórarinsson - Baddi - að gera við bíl á hlaðinu heima hjá sér að Bankastræti 9. Guðmundur J. Björnsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Óþekktur ljósmyndari437
Sigmar Jónsson (d.18.9.1986) starfsmaður Kaupfélags Húnvetninga rýnir í reikninga á skrifstofu verslunarinnar við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn170
Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir um Ísbergið: "Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð".
Ragnar S. Ingvarsson - safn 57
Jóhann Baldvinsson (Jói norski) (d.9.4.1990) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Jói átti ævintýralegt líf m.a. við selveiðar á norskum selföngurum í áratugi lengst norður í íshafinu. Þar lenti hann í því einu sinni að báturinn sem þeir voru á festist í ís og brotnaði í spón. Karlarin björguðust upp á ísinn með eitthvað af hafurtaski sínu þar sem þeir voru seinna hirtir upp af öðrum selfangara. Um ævintýri Jóa norska má lesa í bókinni: "Jói Norski" eftir Erling Davíðsson, sem út kom árið 1972.
gunnar011
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Húna HU 1 á netaveiðum vorið 1965. Karlarnir á henni eru óþekktir en eru í aðgerð,
Óskar Kristinsson - safn206
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru næst okkur, talið frá vinstri: Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021) og Einar Kristberg Einarsson. Við næsta borð nær okkur eru, frá hægri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Gunnar Jónsson. Hægra megin við það borð eru, frá hægri: Gylfi Guðjónsson, Adolf H. Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ernst Berndsen, Sigurjón Ingólfsson, Guðjón Árnason og Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Yfir höfuð Gylfa sér í Jón Sveinsson og inn eftir því borði hægra megin: Gunnar Stefánsson, Óskar Þórðarson, óþekktur og Ingibjörn Sigurjónsson. Á móti þeim við borðið eru Stefán Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, óþekktur og Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari459
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) smakkar Hong Kong pottrétt hjá konu sinni Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) þar sem hún var að kynna réttinn í verslun Kaupfélgs Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari475
Tvær starfsstúlkur verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut að borða á Hótel Dagsbrún. Margrét Þorsteinsdóttir til vinstri og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar048
Síld landað til söltunar á Skagaströnd úr Húna HU 1, líklega kringum 1960. Myndin sýnir vel hvernig staðið var að slíkri löndum á þessum tíma. Síldinni var mokað með háfum í tunnur sem voru síðan hífðar með bómu skipsins upp á bryggjuna. Þar var sturtað úr tunnunum á handvagn sem síðan var ekið, með handafli, að síldarkössunum þar sem söltunarstúlkurnar biðu tilbúnar með saltið og hnífana sína.
Óþekktur ljósmyndari428
Myndin var tekin í byggingavördeild Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í "Kjallaranum" í Kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var sjálfsagt tekin á vörutalningadegi. Á þeim eru Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum, sem var afgreiðslumaður í deildinn, og Ingibjörg Pálsdóttir (d.24.2.2004) frá Blönduósi, sem gjarnan var við vörutalningar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari455
Myndin var tekin í kveðjuhófi þegar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) lét af störfum hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd eftir áratuga störf þar. Halldór Hermannsson verslunarstjóri, til vinstri, færði Maríu blóm og gjöf í tilefni dagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á Hótel Dagsbrún.
Óskar Kristinsson - safn158
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sævar Hjaltason?, Ernst Berndsen, Guðjón Guðjónsson, Vilhjálmur Jónsson, Hafþór Gylfason, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson og Birgir Þórbjarnarson sem er standandi.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 81
Reynir Sigurðsson kíkir út um kýraugað stjórnborðsmegin á borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma á árunum kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari465
Steinunn Friðriksdóttir starfsstúlka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar017
Myndin var tekin um borð í Húna HU 1 þegar hann var á netaveiðum líklega 1960 - 65. Karlarnir á henni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari440
Myndin var tekin af starfsstúlkum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu) inni á kaffistofunni. Konurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Steinunn Friðriksdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn106
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar ísfisktogarinn Arnar Hu 1 kemur inn til löndunar í Reykjavíkurhöfn. Mennirnir á hvalbaknum eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Guðmundur Finnbogason og Sævar Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1486
Mynd frá opnun gámastöðvar Gámafélagsins og Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf 29. júlí 2010. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, Vilhelm B. Harðarson eigandi og framkvæmdastjóri félagsins og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Á myndinni eru þeir að klippa borða og opna þannig gámastöðina formlega.
Óskar Kristinsson safn 119
Ekki er vitað hvað var í gangi þegar myndin var tekin. Gúmmíbátarnir tveir eru á leið frá einhverju skipi, líklega Arnari Hu 1, yfir í Örvar Hu 21. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 24. ágúst 1996.
Óskar Kristinsson safn 012
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) við framgálgann á síðutogaranum Arnari Hu 1 tilbúinn að taka hlerann innfyrir eða taka af honum keðjuna til að "láta fara". Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 53
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir í aðgerðinni eru óþekktir. Fiskinum var sturtað á dekkið úr pokanum og þurfti því að beygja sig eftir hverjum fiski til að gera að honum milli handanna. Honum var svo kastað í þvottakarið sem er næst okkur fyrir miðri mynd. Þaðan fór fiskurinn í lestina, eftir að hafa skolast vel í karinu. Í lestinni var fiskurinn síðan ísaður í stíum.
Helgi Gunnarsson 26
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Rúnar Kristjánsson, Baldvin Hjaltason, Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Helgi Gunnarsson sem situr á stólnum.
Óskar Kristinsson safn 145
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndina á Ómar Jakobsson sem veifar þorski til ljósmyndarans. Til vinstri er Árni Petersen en maðurinn á milli Ómars og Árna er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Skagstrendingur hf gerði þetta skip út á árunum 1969 - 1972.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 045
Myndin var tekin þegar verið var að leita að heitu vatni með því að bora tilraunaholu í landi Hafurstaða eða Ytri Eyjar. Því miður skilaði leitin engum árangri frekar en holur sem boraðar voru hingað og þangað í grennd við Skagatrönd. Guðmundur J. Björnsson gröfumaður tók myndina. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari484
Guðrún Elsa Helgadóttir kíkir í blað í kaffipásunni sinni inni á kaffistofunni í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 83
Pokinn tekinn innfyrir á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn167
Myndin var tekin þegar áhöfn Örvars Hu 21 fékk viðurkenningu frá fiskútflytjanda fyrir gæðaframleiðslu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990. Áhafnarmeðlimirnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson (nær), óþekktur (fjær), Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 215
Yfirmennirnir á Arnari Hu 1 standa kátir á belgnum á trollinu eftir risa karfahal. Þeir eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson 1. sýrimaður til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar049
Áhöfn Húna HU 1 stillir sér upp fyrir myndatöku eftir vel heppaðan síldartúr. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur (? Gísli Ófeigsson?), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Birgir Þórbjarnarson, Jónas Skaftason (d.17.11.2017), Hákon Magnússon (d. 2.8.2020) skipstjóri, Eðvarð Jóhannesson, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019), Snorri Gíslason (d.29.5.1994) og Högni Jensson.
Ólafur Bernódusson 1031
Myndin var tekin í september 1998 af Einari Karlssyni undir stýri á lyftara þegar hann vann við löndun á vegum fiskmarkaðarins Örva hf.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 032
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson vorið 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Á henni er Rússneskur verksmiðjutogari líklega um 4000 tonn og framan við hann er Björgólfur Ea, sem var líklega um 250 tonna síðutogari. Ástæða myndatökunnar var að annar hleri Arnars, sem var 187 tonn að stærð, flæktist saman við hlera stóra togarans. Sá stóri dró Arnar afturábak um stund áður en skipstjórnarmenn þar um borð áttuðu sig á ástandinu. Þá var híft og hlerarnir leystir sundur og síðan gátu bæði skipin haldið áfram veiðum sínum. Mikil heppni var að veðrið var eins gott og sést á myndinni.
Óskar Kristinsson safn139
Ingólfur Sveinsson og Ingibjörg Skúladóttir njóta sólarinnar uppi á brúarþaki á Arnari Hu 1 í heimagerðum hengirúmum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Ólafur Bernódusson1096
Arnar Hu 1 kom til heimahafnar frá Vigo á Spáni í fyrsta sinn í lok mars 1996. Tekið var á móti honum með pompi og pragt. Meðal annars blasti þessi borði við skipinu á síldarþrónum þegar það kom í höfn.
Óskar Kristinsson safn096
Á myndinni er verið að sjósetja gúmmítuðruna líklega um borð í Örvari Hu 21. Hjörtur Guðbjartsson er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn198
Myndin var tekin á Taiwan 4. september 1991 þegar Sveinn S. Ingólfsson var þar í viðskiptaferð sem framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Sveinn er til hægri á myndinni en Magnús Schram sölumaður hjá Fiskileiðum til vinstri. Milli þeirra er óþekktur Taiwani.
Óskar Kristinsson safn 141
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson, líklega í eldhúsinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri, óþekktur vélstjóri og Gunnar Reynisson, kokkur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 3
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6. Á henni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri að klæða sig í gúmmívettlingana en maðurinn á brúrvængnum er óþekktur. Þessi Auðbjörg var einn margra báta sem báru þetta nafn og skráningarnúmer. Um þennan bát segir eftirfarandi í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar; "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" :" Auðbjörg HU 6 1305 Báturinn var smíðaður úr eik í Stykkishólmi 1973 og var 47 brl. með 320 ha. Kelvin vél. Hann kom til heimahafnar fánum prýddur þann 14. apríl 1973 eftir að hafa verið á netaveiðum frá Stykkishólmi. Það var Auðbjörg h/f sem lét smíða hann og gerði út þar til í september 1977 er hann var seldur til Hauganess í Eyjafirði og fékk þá nafnið Auðbjö0rg EA 22. Eigendur Auðbjargar h/f voru Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson."
1
…
67
68
69
…
75
Leita í myndasafninu
Leita