Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn205
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hafþór Smári Gylfason, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Ingólfur Sveinsson, óþekktur, Steinunn Grímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Hægra megin við borðið talið inneftir því: Steindór R. Haraldsson, Jón Sveinsson, óþekktur, Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1031
Myndin var tekin í september 1998 af Einari Karlssyni undir stýri á lyftara þegar hann vann við löndun á vegum fiskmarkaðarins Örva hf.
Óþekktur ljósmyndari470
Myndin var tekin á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni er Guðlaugur Hjaltason til hægri en maðurinn til vinstri er óþekktur Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn206
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru næst okkur, talið frá vinstri: Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021) og Einar Kristberg Einarsson. Við næsta borð nær okkur eru, frá hægri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Gunnar Jónsson. Hægra megin við það borð eru, frá hægri: Gylfi Guðjónsson, Adolf H. Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ernst Berndsen, Sigurjón Ingólfsson, Guðjón Árnason og Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Yfir höfuð Gylfa sér í Jón Sveinsson og inn eftir því borði hægra megin: Gunnar Stefánsson, Óskar Þórðarson, óþekktur og Ingibjörn Sigurjónsson. Á móti þeim við borðið eru Stefán Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, óþekktur og Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1097
Sigurjón Guðjartsson bindur nýjan bát í sinni eigu í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 14. maí 2014. Báturinn hlaut fljótlega nafnið Alda Hu 112.
Óþekktur ljósmyndari456
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var í kveðjuhófi sem haldið var Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) til heiðurs þegar hún lét af störfum hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd eftir áratuga störf. Hófið var haldið á Hótel Dagsbrún. Fólkið vinstra megin við borðið er, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Eðvarð Hallgrímsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991), Hallbjörn Hjartarson og Halldór Hermannsson. Hægra megin við borðið, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Vigdís Viggósdóttir, óþekkt, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Óskar Kristinsson safn 075
Óskar Þór Kristinsson við afturgálgann á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 034
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd þegar nýsmíðin Ásdís Hu 10 var sjósett í fyrsta sinn árið 1971. Myndin var tekin á því augnabliki þegar taug, sem fest var í mastrið á myndinni, slitnaði. Ef grannt er skoðað má sjá gusugang þar sem endinn smellur á sjónum. Ásdís sökk 3. desember 1971 við Þorlákshöfn en mannbjörg varð. Mastrið á myndinni var annað af tveimur sem héldu uppi röri frá verksmiðjunni yfir í mjölskemmuna. Eftir því var mjölinu dælt til sekkjunnar í skemmunni.
Óskar Kristinsson - safn153
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Mokafli hefur verið í síðasta hali því það er fiskur út um allt dekk. Karlarnir í aðgerðinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn181
Kári Sigurbjörn Lárusson við vinnu um borð, líklega í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn173
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það. Líklega var hún tekin þegar einn af togurum Skagstrendings hf var að koma í land eða að leggja af stað í nýjan túr. Mennirnir eru frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Óskar Kristinsson og óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1033
Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri óskar Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra á Arnari Hu 1 til hamingju með mettúr í september 1998. Með Guðjóni er sonur hans Kristján Pétur.
Óskar Kristinsson safn092
Rækju-frystitogarinn Helga Björg Hu 7 kemur til hafnar á Skagaströnd í drungalegu haustveðri. Helga Björg var í eigu Skagtrendings hf 1995 - 2000. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1094
Gylfi Sigurðsson bíður eftir nýjum bát í flota Skagstrendinga 14. maí 2014. Þá var að koma til hafnar nýr notaður bátur í eigu Vík ehf. Báturinn hét Kristinn SH 712 en hlaut nafnið Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur. Gylfi var á þessum tíma landmaður í beitningu hjá Vík ehf.
Helgi Gunnarsson 17
Sigurjón Karlsson kastar mæðinni við byggingu íþróttahússins sumarið 1997.
Óskar Kristinsson safn 010
Magnús B. Jónsson þræðir í nál uppi á bátadekki í síðutogaranum Arnari Hu 1, líklega vorið 1969.
Óskar Kristinsson - safn156
Kátir karlar á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. þeir eru nýbúnir að skera hákarl því beiturnar liggja á dekkinu við hlið þeirra. Mennirnir eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur vélstjóri, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Guðmundur E. Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver tók hana. Ef þú þekkir óþekkta vélstjórann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 229
Jólakort frá Skagstrendingi hf jólin 1982. Kortið prýðir mynd af nýsmíðuðum frystitogaranum Örvari Hu 21.
Óskar Kristinsson - safn 220
Myndin var tekin af iðnaðarmönnum við járnsmíðar í Rækjuvinnslunni hf. Hún var í fremstu röð rækjuvinnslna, afar tæknivædd og afkastamikil. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Vilhelm Þórarinsson, Ari Þórsson (fjær) og Guðjón Árnason (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn186
Sveinn S. Ingólfsson var forystumaður við stofnun Skagstrendings hf 1968 og lengi framkvæmdastjóri félagsins. Hann átti stærstan hlut í að byggja upp það stórveldi sem fyrirtækið var orðið þegar það var selt 2003. Þá hafð Sveinn hætt störfum hjá félaginu nokkrum árum fyrr.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 118
Rúnar Jósefsson við radarinn um borð í Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn123
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í rútu á leið í menningarferð til Reykjavíkur. Fólkið í vinstri sætaröðinni er, talið aftur eftir bílnum: Sævar R. Hallgrímsson, Sólveig Þorvaldsdóttir og Kristján Alexandersson, Bóel Hallgrímsdóttir og Björgvin Karlsson, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) og Herborg Þorláksdóttir, Gunnar Jón Jónsson. Í aftasta sætinu frá vinstri: Inga Matthíasdóttir, Friðrik Gígja og Ingibjörg Skúladóttir. Í hægri sætaröðinni eru, talið aftur eftir bílnum: Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðmundur Jónsson, Gylfi Guðjónsson, Sigrún Jónsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær hún var tekin. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 029
Ómar Jakobsson dregur af spilkopp um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Líklega er hann að hífa pokann innfyrir. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson.
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
Óskar Kristinsson - safn200
Sveinn S. Ingólfsson lætur fara vel um sig í brúnni á einhverjum togara sem hann og aðrir ráðamenn hjá Skagstrendingi hf voru að skoða 19. mars 1991 á Nýfundnalandi.
Óskar Kristinsson safn 147
Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd né hvar en miðað við turninn í baksýn hefur það verið í einhverri erlendri höfn. Skipið er líka óþekkt. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Finnur Kristinsson, óþekkt kona (?Bjarnhildur Sigurðardóttir? (d.22.4.2016)), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson - safn 236
Á myndinni setur Óskar Kristinsson stroffu á belginn á trollinu ofan við pokann svo hægt sé að híífa hann upp þannig að fiskurinn í honum renni út og niður í fiskmóttökuna. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1469
Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013) málar grindverkið við heimili sitt að Ránarbraut 22. Ekki er vitað hveær myndin var tekin
Óskar Kristinsson safn 065
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Óskar Þór Kristinsson og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1654
Ágúst Jónsson til vinstri og Þröstur Líndal Gylfason steypa í gólfið í kjallara Fellsborgar 8. mars 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
gunnar021
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að kippa á milli netatrossa. Þess vegna tók því ekki að fara úr stakknum heldur tylltu menn sér bara á steinahrúgu á dekkinu. Fremstur er Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) og aftastur er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 3
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6. Á henni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri að klæða sig í gúmmívettlingana en maðurinn á brúrvængnum er óþekktur. Þessi Auðbjörg var einn margra báta sem báru þetta nafn og skráningarnúmer. Um þennan bát segir eftirfarandi í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar; "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" :" Auðbjörg HU 6 1305 Báturinn var smíðaður úr eik í Stykkishólmi 1973 og var 47 brl. með 320 ha. Kelvin vél. Hann kom til heimahafnar fánum prýddur þann 14. apríl 1973 eftir að hafa verið á netaveiðum frá Stykkishólmi. Það var Auðbjörg h/f sem lét smíða hann og gerði út þar til í september 1977 er hann var seldur til Hauganess í Eyjafirði og fékk þá nafnið Auðbjö0rg EA 22. Eigendur Auðbjargar h/f voru Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson."
Óskar Kristinsson - safn154
Vorið 1969, sem var hafísvor, aflaði síðutogarinn Arnar Hu 1 svo vel að einu sinni kom hann í höfn og landaði óaðgerðum fiski á hafnargarðinn (Útgarð) og hélt svo aftur til veiða. Hópur fólks í landi var ræstur út til að gera að fiskinum sem síðan var unninn í frystihúsinu. Á myndinni, sem Magnús B. Jónsson tók, má sjá íshröngl í höfninni og steypt ker við bryggjuna í baksýn. Kerið var eitt af mörgum sem smíðað var í slippnum framan við Bjarmanes. Síldarfæribandið frá löndunarkrananum upp í verksmiðu sést líka á löndunarbryggjunni (Ásgarði). Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óskar Kristinsson safn 050
Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður/skipstjóri við tækin í brúnni á Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 013
Mennirnir á stjórnborðs brúarvæng síðutogarans Arnars Hu 1 eru frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sigurjón Haraldsson (Jónki), Jón Helgason (d.1.12.2019) og Guðjón Jónsson (Gutti). Myndin var tekin hafísvorið 1969.
gunnar040
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd. Síldinni var mokað í tunnur eins og sjást á myndinni og svo hífðar upp og sturtað úr þeim í handvagn eins og stendur á hafnarbakkanum. Í vagninum var síldinni síðan ekið að söltunarbásunum þar sem henni sturtað í og söltunarstúlkurnar tóku til við að hausskera og slógdraga síldarnar áður en þær voru svo saltaðar og lagðar niður í tunnur. Þegar tunnan var full var hún fjarlægð, konan fékk lítinn málmpening í stígvélið sitt og komið var með nýja tunnu. Að söltun lokinni framvísuðu konurnar peningunum og eftir fjölda peninga fór svo kaupið eftir þá söltunartörn.
Óskar Kristinsson safn094
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri þakkar séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) blessun og fyrirbænir í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 eftir að hún kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Jóhann Símonsen, Gylfi Guðjónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin 1995 eða 1996.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 66
Ómar Jakobsson tekur í spil um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíman á árunum kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn 067
Þessi mynd var líklega tekin í borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma 1968 - 1970. Maðurinn til vinstri er Viggó Maríasson (d.30.7.1973) en sá með pípuna er Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) frá Réttarholti.
Óskar Kristinsson - safn155
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Á henni er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) að sigta grásleppuhrogn sem síðan voru söltuð í tunnur. Andvirði hrognanna rann óskipt í starfsmannasjóð áhafnarinnar um borð.
Óskar Kristinsson safn 006
Síðutogarinn Arnar Hu 1 fikrar sig gegnum hafís á miðunum vorið 1969. Karlarnir frammá hvalbaknum eru að leita að færri leið gegnum ísinn.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 5
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 þegar hún var gerð út á færaveiðar. Líklega var myndin tekin kringum 1975. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari448
Halldór Hermannsson verlunarstjóri verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn162
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000), Einar Ásgeirsson, Gunnar Jón Jónsson, Einar Kristberg Einarsson (nær), Kristján Alexandersson (fjær), Jón Alexandersson, Sigurjón Ingólfsson og Sveinn Gíslason.
Helgi Gunnarsson 3
Hrólfur Pétursson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri vinna við sökkla undir íþróttahúsið haustið 1996. Mennirnir tveir, lengra frá, eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari432
Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) stendur hjá Steinunni Friðriksdóttur starfsmanni Kaupfélags Húnvetninga inni á skrifstofunni í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 144
Ómar Jakobsson tók þessa mynd á matartíma um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) Jón Gunnar Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Standandi er Gunnar Jón Jónsson.
Óskar Kristinsson - safn195
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, annar frá hægri, og Magnús Schram fisksölumaður, lengst til hægri, hitta viðaskiptavini í Japan 27. ágúst 1991. Japanarnir heita Jun Hariya og Masatashi Hirooha samkvæmt áleturn aftan á myndinni.
Óskar Kristinsson safn101
Ragnar Högnason trekkir utanborðsmótorinn í gang á gúmmítuðrunni áður en hún er sjósett. Maðurinn með honum í bátnum er óþekktur en Einar ??son heldur bátum kyrrum. Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 021
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús B. Jónsson, óþekktur, Guðjón Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson.
gunnar054
Myndin var tekin í línuróðri á Stíganda HU 9 á Húnaflóa. Maðurinn á henni er óþekktur og ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1530
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er Aðalbjörg Hu 7 á síldveiðum og farin að síga töluvert. Þessi bátur átti sér merkilega sögu eins og sjá má á eftirfarandi texta úr bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson: " Aðalbjörg HU 7 Báturinn var 37 brl. tvímöstruð skúta með hjálparvél og smíðaður úr eik í Yarmouth í Englandi 1883. Hann var fyrst skráður hér á landi á Siglufirði 1904. Báturinn var endurbyggður 1924 og 1927 var sett í hann 12 ha Solo vél. Árið 1937 fékk hann 80 ha. Alpha vél og 1944 var báturinn lengdur og endurmældur og taldist þá 41 brl. Um leið fékk hann 170 ha Buda vél. Báturinn var keyptur til Skagastrandar í árslok 1952 frá Stykkishólmi og hafði þá heitið Olivette frá fyrstu tíð. Árið 1958 var sett í hann 240 ha. GM vél og var þá endurbyggður þriðja sinn. Eigandi var Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf og var gert út frá Skagaströnd fram í október 1961 er Aðalbjörgin var seld til Kópavogs. Fékk hún þá nafnið Gullbjörg KÓ 60. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1964 eftir 81 ár á sjó".
Óþekktur ljósmyndari421
Myndin er af keppnissveit Kaupfélagsins í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Stýrimaður er Sævar Hallgrímsson en ræðarar eru talið fram eftir bátnum: Kolbrún Viggósdóttir, óþekkt, Helga Hermannsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið rétt fyrir 1990.
Óskar Kristinsson safn 117
Fiski pakkað í öskjur um borð í Örvari Hu 21. Hver askja var svo sett í frystitækin til frystingar áður en þeim var síðan pakkað þremur saman í stærri pappakssa og niður í lest þar sem frostið var um 30° C. Karlarnir á myndinni eru: næst okkur er óþekktur, Grétar Smári Hallbjörnsson er í miðjunni og Jóhann Ásgerisson fjærst. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 20. ágúst 1996.
Óskar Kristinsson - safn185
Ekki er vitað um tilefni fundarins á myndinni og ekki vitað hvenær hún var tekin en hann var haldinn á Hótel Dagsbrún. Ljósmyndarinn er líka óþekktur. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigríður Gestsdóttir, Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Kristinn Guðmundsson.
Óskar Kristinsson safn 018
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að skoða teikningar af nýjum frystitogara sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús B. Jónsson stjórnarmenn, Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri og Kristinn Jóhannsson (d.9.2002) stjórnarmaður.
Óskar Kristinsson safn 014
Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) við vírastýrið á spilinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn125
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í menningarferð í Reykjavík uppi á hóteli að snakka saman yfir snakki og fordrykk. Fólkið er frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, óþekkt, Bóel Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Finnur Kristinsson og Hlíf Sigurðardóttir. Vilhelm Þórarinsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Óskar Kristinsson - safn 244
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ræðu á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Óskar Kristinsson safn 140
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri á togurum Skagtrendings hf. Á myndinni er hann líklega í stólnum um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Ómar Jakobsson.
1
…
68
69
70
…
75
Leita í myndasafninu
Leita