Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Gunnar Jónsson011
Skaufi. Hleypt niður á millidekk á Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Gunnar Jónsson009
Gott hal tekið um borð í Arnar Hu 1, ( Japans-Arnar)
Guðmundur Guðnason705

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Búi Birgisson frá Straumnesi, og Brynja Axelsdóttir frá Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðrún Guðbjörnsdóttir034
Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Bíbí á Bergi (til hægri) og Sjana frá Júgóslavíu salta fisk ásamt Davíð Reynissyni.
Guðmundur Guðnasonr679
Hjalti Árnason frá Skeggjastöðum við réttastörf í Hofsrétt.
Guðmundur Guðnasonr684
Guðbergur Stefánsson við réttarstörf í Hofsrétt?
Sigmar Hróbjartsson - safn017
Myndin tekin af Höfðanum yfir frystihús Kaupfélags Skagstrendinga og framkvæmdirnar við verksmiðjuna. Myndin líklega tekin 1946
Guðmundur Guðnasonr681
Henrý Kristjánsson til vinstri og Bernódus Ólafsson til hægri við réttarstörf í Hofsrétt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir024
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
Guðrún Guðbjörnsdóttir030
Saltfiskurinn metinn í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Guðmundur Árnason matsmaður, Högni Jensson, Stefán Þór Árnason, Ottó Ákason, Sigfús Sævar Sigurðsson.
Gunnar Jónsson015
Ómar Jakobsson frá Grund við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari).
Ólafur Bernódusson011 - Copy - Copy
Lárus Ægir Guðmundsson rekur byggingasögu Bjarmaness eftir endurbyggingu þess 19. júní 2004.
Stefán Jósefsson - safn005
Vísir Hu 10 drekkhlaðinn við litlu bryggjuna. Vísir var 16 brúttótonn en eftir þessa veiðferð var landað úr honum 23 tonnum af þorski eða 7 tonnum meira en hann átti að geta borið.
Stefán Jósefsson - safn008

Á myndinni er glaðbeitt áhöfnin á Skallarifi Hu 15. Talið frá vinstri eru á myndinni: Standandi: Óþekktur strákur, Grímur (Toggi) Pálsson frá Bakka, Jósef Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Hróbjartsson. Maðurinn sem situr til vinstri er Lýður Hallbertsson en Jón Stefánsson frá Kambakoti er til hægri. Myndin var tekin þegar Skallarifið fór inn á Blönduós til að sækja nýfelld þorskanet sem voru að koma frá Reykjavík. Skallarifið var bara gert út frá Skagaströnd í eitt ár en báturinn var í eigu Höfðakletts h/f þar sem Lárus Valdimarsson var stjórnarformaður og framkvæmdastjóri.

Stefán Jósefsson - safn012
Myndin er tekin um borð í dýpkunarskipinu Gretti á Eyjafirði. Maðurinn til vinstri er Jósef Stefánsson en hinn er óþekktur. Jósef var skipverji á Vísi Hu 10 sem fenginn var til að draga flutningsprammann fyrir Gretti meðan á dýpkun stóð við Hrísey.
Guðrún Guðbjörnsdóttir044
Jón Örn Stefánsson og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson ánægðir með aflann. Aftan við þá er Gylfi Sigurðsson. Myndin er tekin um borð í Hafrúnu Hu 12.
Guðmundur Guðnason864
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason951
Fjársafn rekið í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason884
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir ferminguna 1965. Fremstur fer séra Pétur Þ. Ingjaldsson, þá Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Bergur Þórðarson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason950
Þetta skilti var yfir dyrunum á réttarskúrnum sem var við Spákonufellsrétt. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal og fyrirmyndin að manninum sem er að draga var Ólafur Guðmundsson í Brautarholti.
Björn Bergmann 006
Unnið við smíði á Ásdísi, fyrsta bát stöðvarinnar 1970 - 1971. Mennirnir eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason, óþekktur, Sveinbjörn Blöndal, Jón Kr. Jónsson, Hinrik Jóhannesson,óþekktur og Pálmi Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason888
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fermir fyrir fullri kirkju í Hólaneskirkju (gömmlu). Maðurinn sem stendur á myndinni er Ingvar Jónsson.
Björn Bergmann 015
Húsnæði skipasmíðastöðvarinnar var í gömlu mjölskemmu síldarverksmiðjunnar. Stöðin nýtti austari helming hússins þ.e. þann hluta sem fjær er á myndinni. Stórar dyr voru settar á hliðina sem að okkur snýr á myndinni og bátarnir teknir þar út þegar þeir voru sjósettir.
Guðmundur Guðnason932
Fjársafn við Stafnsrétt.
Guðmundur Guðnason128
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í Ægissíðu, uppáklæddur með sparihattinn gleður sig með bættum kaffisopa. Myndin sennilega tekin 1969.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn017

Stund milli stríða í lúkarnum á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Sigurður Árnason (d.26.3.2013) skipstjóri, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) og Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996) hásetar. Myndin var tekin á hafísárinu 1965.

Ævar Axelsson - safn024
Myndin er sennilega tekin um 1940. Á myndinni eru bræðurnir Adolf Jakob Berndsen og Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) að leika sér á árabát á víkinni fram af Læk. Hafnarframkvæmdir í gangi í baksýn.
Björn Bergmann 014
Guðbjartur Guðjónsson vinnur við að kalfatta bát í stöðinni 1970 - 1971.
Björn Bergmann 007
Ásdís og Guðmundur Þór, fyrstu bátar stöðvarinnar, í smíðum 1970 -1971. Mennirnir við smíðarnar eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001).
Björn Bergmann 004
Unnið að smíði báts á fyrsta ári stöðvarinnar 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís en hún var fyrsti báturinn sem sjósettur var frá stöðinni. Mennirnir á mydinni eru frá vinstri: Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson, Sveinn Ingi Grímsson og Ólafur Guðmundsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir027
Kátar stúlkur í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Inga Kristjánsdóttir frá Steinnýjarstöðum, Aðalheiður Emma Harðardóttir (Dússý) og Danica Zupancic.
Guðmundur Guðnason693
Stafnsrétt í Svartárdal. Fjársafnið bíður þess að verða réttað.
Ólafur Bernódusson013

Frá endurvígslu Bjarmaness 19. júní 2004. Elías Björn Árnason spilar á hljómborð en einnig má þekkja Adolf H. Berndsen, Helgu Berndsen, Ingiberg Guðmundsson, Magnús B. Jónsson og Björn Hallbjörnsson

Guðrún Guðbjörnsdóttir035

Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt kona og tveir menn, Þórhalla Þóhallsdóttir og Danica Zupancic.

Guðrún Guðbjörnsdóttir028
Á myndinni er verið að meta saltfisk. fremst til vinstri er Guðmundur Árnason matsmaður frá Akranesi. Á móti honum við borðið er Stefán Þór Árnason matsmaður frá Skagaströnd. Aftan við Guðmund sér í Högna Jensson og Ottó Ákason stendur á móti honum .
Guðmundur Guðnason853
Áslaug Jónsdóttir Hólanesi og Margrét Anna Þórðardóttir Brimnesi. Báðar fæddar 1943. Myndin líklega tekin sumarið 1958.
Guðmundur Guðnasonr683
Óþekkt fólk við ráttarstörf í Hofsrétt
Guðrún Guðbjörnsdóttir036
Högni Jensson sem lengi bjó í Miðnesi á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason850
Vinaminni (Hólabraut 16) fyrir miðri mynd. Til hægri sér í Brautarholt. Þegar þessi mynd var tekin, sennilega í kringum 1960, lá akvegurinn, eins og sést, rétt sunnan við Vinaminni og svo var hægri beygja vestan við Brautarholt. Snjórinn sem liggur fyrir framan Vinaminni hylur malarkrús sem þar var en hún var vinsæll leikvangur og sullstaður barnanna í innbænum á sínum tíma. Í dag standa Hólabraut 12 og Hólabraut 14 á þessum slóðum.
Stefán Jósefsson - safn007
Bjarni Helgason um borð í bát sínum Stíganda Hu 9. Myndin líklega tekin 1949 eða 1950.
Guðrún Guðbjörnsdóttir060
Á þessari mynd, sem Guðrún Guðbjörnsdóttir tók, er Sigfús Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd að gera fólki grein fyrir skipulagi áburðar- og frædreifingar í Spákonufelli af verönd skíðaskálans áður en verkið er hafið. Eins og sjá má mætti fjöldi fólks til að taka þátt í þessu ræktunarátaki þar sem grasfræi og áburði var dreift á melinn norðan og ofan við skíðaskálann. Fullorðna fólkið sem þekkja má á myndinni, sem var tekin snemma á níunda áratugnum, er talið frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Sigfús Jónsson (snýr baki í myndavélina), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) (í rauðum stakk), Gylfi Sigurðsson, Jón Ingi Ingvarsson (með húfu), Ólafur Bernódusson og síðan grillir í Svein Ingólfsson og Lárus Ægi Guðmundsson. Sigfús stjórnaði dreifingunni eins og herforingi. Skipaði fólki í raðir og skammaðist ef einhver fór svo fram úr öðrum við dreifinguna. Því miður varð árangur dreifingarinnar fremur lítill en seinna var plantað Alaska lúpínu í melinn og hefur hún rækilega fest rætur og gjörbreytt ásýnd Spákonufellsins með sínum bláu blómum á sumrin.
Guðmundur Guðnasonr682
Réttarstörf í Hofrétt. Bernódus Ólafsson er lengst til vinstri á myndinni og Henrý Kristjánsson er maðurinn með húfuna. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Guðmundur Guðnason708
Réttastörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn fremst á myndinni er Jósef Stefánsson. Lengst til vinstri er Jóhann Jakobsson frá Blálandi og svo Haraldur Sigurjónsson frá Iðavöllum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir050
Hús Eiðs Hilmarssonar að Sunnuvegi mokað upp úr snjó 1995 eða 1996. Húsið var við að sligast og til að hægt væri að moka af þakinu þurfti líka að moka frá því.
Guðmundur Guðnason869
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason868
Jóhann Ingibjörnsson á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason882
Bóndinn á Ferguson dráttarvélinni er líklega Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
Guðrún Guðbjörnsdóttir063
Röð fólks í hlíðum Spákonufells við dreifingu á grasfræi. Frá vinstri eru: Óþekkt stúlka, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Elín Njálsdóttir, Ægir Jónsson, Laufey Ingimundardóttir, Elínborg Jónsdóttir, aðrir eru óþekktir.
Björn Bergmann 003

Ásdís, fyrsti báturinn sem smíðaður var í stöðinni, í byggingu 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.

Stefán Jósefsson - safn002

Vísir Hu 10 var tekinn á leigu við að draga prammann frá dýpkunarskipinu Gretti þegar unnið var að dýpkun Skagastrandarhafnar 1963. Á myndinni er Vísir með dekk á síðunni vegna hnoðsins með prammann og hluti af dýpkunarskipinu.

Guðmundur Guðnason674
Bryggjan í Hagnesvík skoðuð á ferðalagi til Siglufjarðar 15. júní 1968. Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún er í ljósum frakka. Til hægri við hann er óþekktur heimamaður en Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi snýr baki í myndavélina.
Björn Bergmann 016
Kári Lárusson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971.
Guðmundur Guðnason969
Húnn Snædal vinnur einbeittur að list sinni. Húnn er sonur Rósbergs Snædal sem var bróðir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar.
Björn Bergmann 017
Hinrik Jóhannesson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971.
Guðmundur Guðnason952
Fjársafn rekið til réttar í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason014
Börn Lárusar Valdimarssonar og Ingibjargar Daníelsdóttur sem lengi bjuggu í Grund. Systkinin eru, frá vinstri: Þórdís Lárusdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Magnús Lárusson og Grímur Valdimar Lárusson.
Björn Bergmann 008
Guðmundur Jóhannesson til vinstri og Birgir Árnason (d. 2.2.2005) til hægri vinna í járnadeild stöðvarinnar 1970 - 1971. Í stöðinni voru smíðaðir allmargir bátar úr eik og seinna úr trefjaplasti. Fjöldi manna hafði atvinnu af skipasmíðunum og nokkrir ungir menn lærðu skipsmíðaiðnina í stöðinni. Annar af fyrstu bátunum tveimur sem smíðaðir voru í stöðinni er á Skagaströnd og gerður þar út. Þetta er Dagrún St 12 í eigu Lýðs Hallbertssonar.
Björn Bergmann 002
Ólafur Guðmundsson skipasmiður til vinstri og Kári Lárusson lærlingur í faginu vinna hér að smíði fyrsta báts stöðvarinnar - Ásdísi - 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.
Björn Bergmann 009
Lúðvík Kristjánsson smíðar á stöðinni 1970 - 1971
Guðmundur Guðnason064

Systkinin Sigfríður Konráðsdóttir og Sigurjón Konráðsson með óskírða Konráðsdóttur (d. 16.12.1969).

1

6
7
8

75
Leita í myndasafninu
Leita