Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari436
Eðvarð Hallgrímsson, í rauðri peysu, stjórnarmaður í Kaupfélagi Húnvetninga, vinnur við vörutalningu með Ingvari Jónssyni (d.18.1.2003) starfsmanni Kaupfélagsins í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1514
Stefán Jósefsson á kunnuglegum slóðum í brúarglugganum á Ólafi Magnússyni HU 54 sem hann átti og gerði út í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 10
Sigurjón Ástmarsson á fremri bílnum og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) á þeim aftari flytja límtrésbitana í íþróttahúsið heim til Skagastrandar.
Óskar Kristinsson safn 070
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Karlarnir grípa í netaviðgerðir á stíminu. Þeir eru frá vinstri: ?Guðjón Jónsson?, Magnús B. Jónsson, baksvipur ?Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008)? og Ómar Jakobsson.
Óskar Kristinsson safn 143
Árni Ólafur Sigurðsson kíkir í blöðin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ómar Jakobsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Óskar Kristinsson - safn152
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma vorið 1969. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ómar Jakobsson, óþekktur, Gylfi Jóhannsson (fjær) og Björn Sigmundson (nær). Myndina tók Magnús B. Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 015
Mennirnir á myndinni eru að vinna við netabætingar um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969. Maðurinn til vinstri er Magnús B. Jónsson en til hægri er Árni Petersen.
Óskar Kristinsson safn104
Hafþór Gylfason til hægri tekur við viðurkenningu fyrir hönd áhafnarinnar á Örvari Hu 21 fyrir framleiðslu á gæðavöru um borð. Maðurinn til vinstri er Páll Pétursson sölumaður á fiskafurðum í Bandaríkjunum fyrir SH en hann kom til að afhenda viðurkenninguna. Athöfnin fór fram á hótel Dagsbrún. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin einhverntíma kringum 1990.
Óskar Kristinsson safn 003
Myndin var tekin 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 siglandi innan um hafísinn á miðunum. Karlarnir eru frá vinstri: Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Ómar Jakobsson og Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008).
Óskar Kristinsson - safn194
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf er lengst til hægri á þessari mynd sem var tekin í Kaohsiung í Taiwan 5. september 1991. Maðurinn lengst til vinstri er Magnús Schram fisksölumaður en á milli þeirra er óþekktur fulltrúi Galore International Corp..
Óþekktur ljósmyndari422
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) verslunarstjóri gerir upp kassann í kaupfélagsversluninni við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari441
Steinunn Friðriksdóttir, starfsstúlka Kaupfélags Húnvetninga í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu), stillir sér upp með nokkrum viðskiptavinum verslunarinnar. Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Steinunn, Eðvarð Hallgrímsson og Jón Ingi Ingvarsson.
gunnar043
Löndun í gangi úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er líklega Gylfi Sigurðsson en Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) er til vinstri á myndinni að hífa. Maðurinn á bryggjunni er óþekktur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 071
Benóný Gunnarsson í brúnni á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óþekktur ljósmyndari442
Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir við vinnu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Líklega var myndin tekin á áttunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari474
Jóhanna Sigurjónsdóttir starfsstúlka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut inni á kaffistofunni þar. Myndin var tekin einhverntíma síðsumars 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1495
Þessar tvær konur voru verkstjórar yfir unglingunum í vinnuskóla Skagastrandar ásamt því að vinna í verkunum fyrir og eftir að skólanum lauk. Á myndinni eru þær að vinna við steinalögnina á bílastæðinu við kirkjuna. Konurnar eru Guðrún Soffía Pétursdóttir til vinstri og Rósa Björg Högnadóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn100
Ingibjörg Skúladóttir kokkur í eldhúsinu á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn187
Myndin var tekin á fisksölufundi 15. október 1992. Ekki er vitað hvar fundurinn fór fram né hver tók myndina. Fundurinn hefur líklega snúist um að selja/kaupa afurðir frá Skagstrendingi hf. Á henni eru, frá vinstri: Magnús Schram sölumaður, Ingólfur Sveinsson frá Skagstrendingi hf og fiskkaupandinn Denis Lumbard frá Bretlandi.
Óskar Kristinsson - safn196
Adolf H. Berndsen vaskar upp í eldhúsinu um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Adolf kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
Ólafur Bernódusson1099
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood: Skjöldin fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni af áhöfninni eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson, Björn Gunnarsson, Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, Björn Sigurðsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Smári Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 036
Síldar-löndunarkraninn stóð á endanum á Ásgarði í Skagastrandarhöfn. Nú er orðið alllangt síðan kraninn var tekinn niður enda hefur síld ekki verið landað á Skagaströnd síðan upp úr 1960 (1963?). Báturinn sem liggur undir krananum er líklega Bliki Hu 120. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Guðmundur J. Björnsson, sem var háseti á Blika um tíma.
Óskar Kristinsson - safn192
Sveinn S. Ingólfsson heilsar lítilli stúlku á Nýja Sjálandi að sið heimamanna með því að nudda saman nefjum. Myndin var tekin 25. febrúar 1992 þegar Sveinn var í landinu í viðakiptaerindum fyrir Skagstrending hf, þar sem hann var framkvæmdastjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1522
Á þessari mynd, sem líklega var tekin 1982 af Skagaströnd, er verið að byggja raðhúsin tvö við Mánabraut, samtals sjö íbúðir. Gamla kirkjan stendur enn og hin nýja er ekki risin. Gamli Jaðar og Efri Lækur standa enn og sama gildir um "Aðalbjargarskúrinn" og Héðinshöfða. Ásbyrgi stendur sunnan við Breiðablik og Sæborg við Oddagötu. Fleiri hús, sem nú eru horfin, eru á myndinni t.d. Drangey, Sæból, Óseyri og Rjúpnafell.
Óskar Kristinsson - safn 249
Rækjubátar í Skagastrandarhöfn. 647 er Helga Björg Hu 7, Auðbjörg er Hu 6, Hafrún er Hu 12 og rauði báturinn lengst til hægri er Ingimundur Gamli Hu 65. Aðrir bátar á myndinni eru óþekktir. Allir stunduðu þeir rækjuveiðar í Húnaflóanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 219
Jóel Kristjánsson rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar býr sig undir að klippa á borða um nýtt stjórnborð vinnslunnar inni í verkstjóraherberginu. Jóel varð seinna síðasti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1508
Nýsmíði úr trefjaplasti í skipasmíðastöðinni Mánavör hf. Þar voru smíðaðir töluverður fjöldi plastbáta af nokkrum stærðum og gerðum. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega er þetta Gná SU 28 sem var smíðuð 1988.
Ólafur Bernódusson1102
Karitas Pálsdóttir opnaði verslun og heilsurækt í húsi sínu á Fellsbraut 2 í maí 1996. Fyrirtæki sitt nefndi hún Hollt og gott en þar bauð hún upp á nudd, ljósabekk og sauna ásamt því að vera með ýmis konar heilsuvörur til sölu og ráðleggingar um notkun þeirra. Á myndinni er Karitas í huggulegri setustofu þar sem viðskiptavinir gátu sest niður og slakað á.
Óskar Kristinsson safn 026
Arnar Hu1 að koma úr túr til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson, Óskar Þór Kristinsson og Guðjón Guðjónsson. Mennirnir í brúargluggunum eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1515
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru nokkrir sjómenn að prófa flot-björgunarbúninga í höfninni á Skagaströnd. Mennirnir eru, frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Ragnar Högnason, Þorvaldur Skaftason og óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 011
Magnús B. Jónsson vinnur við að "láta það fara" um borð í Arnari Hu 1 árið 1969.
Helgi Gunnarsson 31
Hallbjörn Björnsson rafvirki sá um rafmagnið í íþróttahúsinu. Myndin af honum þar var tekin 26. nóvember 1997.
Óþekktur ljósmyndari457
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) kynnir Findus pizzur í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. þar var Guðmunda starfsmaður um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1028
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
gunnar014
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) veifar smákarfa um borð í Húna HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Jónas 3
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1980. Á henni eru afgreiðslustúlkur í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 039
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd að aflokinni æfingu skipverja á Arnari Hu 1 - Japans Arnari - í notkun flotbúninga. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður skolar af búningunum. Mennirnir í búningunum eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson?, Hafþór Gylfason, Vilhelm Jónsson og óþekktur sem er að tala við Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóra. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari479
Starfsfólk Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í kaffipásu frá markaðssölu verslunarinnar í félagheimilinu Fellsborg. Fólkið er, frá vinstri: hjónin Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Hallbjörn Hjartarson, Helga Hermannsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á áttunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn105
Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar Arnar Hu 1 og áhöfn hans nýkominn til heimahafnar á Skagaströnd í lok mars 1996.
Óskar Kristinsson - safn161
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, sitjandi frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson, Guðmundur E. Guðmundsson og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Standandi frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur og Stefán Sveinsson. Ekki er vitað hver tók myndina en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn202
Myndin var tekin á fundi í Noregi 28. maí 1991. Á honum eru þrír Norskir fulltrúar og Sævar Hallgrímsson, með hönd undir kinn, og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), með gleraugu. Þeir voru fulltrúar Skagstrendings hf á fundinum. Fundarefnið var líklega að ganga frá ýmsum lausum endum í sambandi við nýsmíði fyrir Skagstrending hf.
gunnar055
Myndin er af áhöfn Stíganda HU 9. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), óþekktur, (Ásmundur)Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri og útgerðarmaður, óþekktur og ?Trausti Bertelsson?. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 060
Myndin var tekin borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Eins og sjá má er ágætis afli því það er fiskur um allt. Maðurinn við vírastýrið er líklega Magnús B. Jónsson en við hlið hans með skegg er Árni Petersen. Maðurinn í stakknum bakborðsmegin er Viggó Maríasson (d.30.7.1973) en Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) heldur utan um hann.
Óþekktur ljósmyndari472
Sæmundur Gunnarsson verslunarstjóri færir Jóhönnu Sigurjónsdóttur jólapakka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 277
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Denis Lumbard, eigandi Norbrit Fish Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra á Örvari Hu 21, mynd sem þakklætisvott fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir viðskiptin. Maðurinn til vinstri er Magnús Schram sem var starfsmaður Fiskileiða en það var sölufyrirtæki Skagstrendiings hf. Í dyrunum stendur Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 55
Góður afli er í trollinu hjá síðutogaranum Arnari Hu 1 þegar myndin var tekin einhverntíma kringum 1970. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1531
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er Hrönn Hu 15 á blíðri siglingu.
Halldór Gunnar Ólafsson 012
Þröstur Árnason á kassabindivélinni um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Hann tekur þátt í gríni félaga sinna og leyfir þeim að binda sig með kassaböndum. Vinstra megin er Brynjar Pétursson en Gestur Arnarsson er til hægri.
Óskar Kristinsson safn097
Hafdís Þorvaldsdóttir og Ingvi Sveinn Eðvarðsson vinna við fiskpökkun um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 116
Þyrla hífir veikan sjómann í sjúkrakörfu upp af hvalbaknum á Örvari Hu 21, 16. ágúst 1996. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
Ingibergur Guðmundsson 413
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1987. Fólkið á henni er, frá vinstri: kennararnir Ólafur Bernódusson, Heiða Ósk Stefánsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir. Lengst til hægri er Páll Leó Jónsson skólastjóri.
Óskar Kristinsson safn122
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 þegar vélstjórinn, Björgvin Karlsson, er að rafsjóða í hlera. Ekki er vitað hvenær en myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Maðurinn í rauðu peysunni er skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtyggsson (d.16.7.2017). Brosmildi maðurinn með vettlingana í höndunum er Ásgeir Blöndal og Baksvipur Einars Guðmundssonar í brúnum jakka. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn137
Stefán Ægir Lárusson við vinnu um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndina tók Hjörtur Guðbjartsson en ekki er vitað hvenær.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Óskar Kristinsson - safn204
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Hjörtur Guðmundsson, Slavko Velemir, Óli Albertsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bergþór Gunnarsson og Björn Viðar Hannesson. Hægra megin við borðið, talið frá hægri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Kristján Alexandersson ?, Sigurður Alexandersson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörn Björgvinsson, óþekktur og Jens Jónsson. Við næst borð eru Gunnar Benónýsson til hægri með grátt hár og gleraugu. Við hlið hans eru Gunnar Jónsson en aðrir vinstra megin við borðið eru óþekktir. Yfir höfuð Gunnars Benónýssonar sér í Ernst Berndsen og við hlið hans eru Sigurjón Ingólfsson og Guðjón Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari426
Helga Hermannsdóttir drekkur Malt á kaffistofu þáverandi kaupfélagsverlunarinnar við Bogabraut. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Óskar Kristinsson safn112
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf skoðar einhvers konar fiskvinnslu- eða pökkunarvél, líklega í Grimsby í september 1992.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Vilhelm Þórarinsson nær sér í einhverja bílaparta í bílakirkjugarðinn sem var í gömlu malarkrúsinni ofan við réttina á Skagaströnd. Þar fóru margar gersemirnar fyrir lítið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 211
Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, flytur ræðu á einhverjum fundi á Hótel Dagsbrún. Með honum á myndinni er Denis Lumbard fiskkaupmaður frá Bretlandi til hægri og óþekktur maður til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
69
70
71
…
75
Leita í myndasafninu
Leita