Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn 211
Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, flytur ræðu á einhverjum fundi á Hótel Dagsbrún. Með honum á myndinni er Denis Lumbard fiskkaupmaður frá Bretlandi til hægri og óþekktur maður til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 368
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, í heyskap á nýju Deutz dráttarvélinni sinni. Konan með hrífuna er Fjóla Gísladóttir (d.5.11.1991) kona hans. Ekki er vitað af hverju Fjóla er svona prúðbúin í heyskapnum né hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið seint á sjöunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn098
Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir háseti um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 249
Rækjubátar í Skagastrandarhöfn. 647 er Helga Björg Hu 7, Auðbjörg er Hu 6, Hafrún er Hu 12 og rauði báturinn lengst til hægri er Ingimundur Gamli Hu 65. Aðrir bátar á myndinni eru óþekktir. Allir stunduðu þeir rækjuveiðar í Húnaflóanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Vilhelm Þórarinsson nær sér í einhverja bílaparta í bílakirkjugarðinn sem var í gömlu malarkrúsinni ofan við réttina á Skagaströnd. Þar fóru margar gersemirnar fyrir lítið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1092
Myndin var tekin á Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Á henni eru menn að dæla vatni upp úr einni af borholunum sem þar voru boraðar áður en gengið er frá henni til frambúðar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Einar Karlsson, Gunnar Hafdal ? og Sigurjón Ástmarsson.
Óskar Kristinsson - safn191
Myndin var tekin eftir viðskiptafund 25. febrúar 1992 á Nýja Sjálandi. Lengst til hægri er Ingólfur Sveinsson og næstur honum er Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn174
Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og skipstjóri út á brúarvæng á einum af togurum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Óþekktur ljósmyndari425
Hallbjörg Jónsdóttir í reykpásu inni á kaffistofunni í versluninni við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Óskar Kristinsson safn 146
Myndina tók Ómar Jakobsson um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Hárprúðu mennirnir til vinstri og hægri eru óþekktir en á milli þeirra er Sigurður Sigurðsson (Mansi).
Ingibergur Guðmundsson 367
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, við heyskap á túninu við bæinn með tvo hesta beitta fyrir. Kristján er búinn að raka heyinu saman í garða og er að láta hestana draga fjöl, sem hann stendur á, til að safna heyinu saman í sátu. Myndin var líklega tekin sumarið 1965.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 119
Báturinn næst bryggjunni, sem bíður eftir nýju stýrishúsi (rórhúsi), er Helga Björg HU 7. Næst henni liggur Auðbjörg HU 6 og yst er Dagrún Hu 121. Framan við þessa þrjá er Húni Hu 62 sem gerður var út frá Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en allir voru þessir bátar gerðir út á rækjuveiðar á sínum tíma.
Höfðaskóli - safn608
Kristján Helgi Gunnarsson verktaki við vinnu á höfninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari433
Steinunn Friðriksdóttir til vinstri og Ingibjörg Pálsdóttir (d.24.2.2004) (Budda) til hægri vinna við vörutalningu í Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1052
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar bygging íþróttahússins var í fullum gangi. verið er að reisa hluta af límtrés bitunum sem mynda útveggi og þak hússins. Mennirnir á myndinni eru líklega, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson standandi og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) sitjandi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1509
Myndin var líklega tekin 1993 þegar Helga Björg Hu 7 flutti Arnarborgina Hu 11 í slippinn þar sem hennar beið niðurrif. Arnarborgin endaði svo á áramótabrennu um áramótin 1993. Það er Arnarborgin sem er til vinstri á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1527
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Hún sýnir torgarann Jón Baldvinsson RE 208 strandaðan við Hrafnkelsstaðaberg ekki langt frá Grindavík. Þar strandaði hann 31. mars 1955. Skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum en heimildum ber ekki saman um hvort þeir voru 42 eða 52. Skipið ónýttist á strandstaðnum en nokkru tókst að bjarga úr því af verðmætum s.s. timbri og málmum.
Óskar Kristinsson safn109
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf fundar í kaffistofunni 10. september 1992. Fundarefnið var að ísfisktogarinn Arnar Hu 1 var að hætta að landa afla sínum hjá frystihúsinu. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Ingibjörg Skúladóttir, Erna Högnadóttir, Anna Ásgeirsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016) og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020).
Óskar Kristinsson safn124
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í rútu á leið í menningarferð til Reykjavíkur. Vinstra megin eru Þorbjörg Magnúsdóttir að syngja og aftan við hana er Hjörtur Guðbjartsson að spila á gítar. Hægra megin er Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) fremst, Björgvin Karlsson og Bóel Hallgrímsdóttir aftan við hann og aftar eru hjónin Gunnar Jón Jónsson og María Alexandersdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Vilhelm Þórarinsson.
Óþekktur ljósmyndari454
Hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) voru bæði verslunarstjórar í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd einhverntíma á starfsævinni. Myndin var tekin í hófi í Hótel Dagsbrún þegar María lét af störfum við verslunina enJón var hættur nokkrum árum fyrr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari444
Þessi mynd var líklega tekin á áttunda áratugnum. Hún sýnir Helgu Guðmundsdóttur, starfsstúlku verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu), við afgreiðslu í verkfærahorninu. Viðskiptavinirnir eru Finnur Kristinsson til vinstri og Guðmundur Ólafsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 1025
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óskar Kristinsson - safn180
Örvar Hu 14 var annað skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist. Hann var keyptur frá Noregi 1970 og kom í heimahöfn í fyrsta sinn 28. desember það ár. Örvar var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem ísaði allan afla í fiskikassa um borð. Hann var síðan seldur til Patreksfjarðar í maí 1974. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Óskar Kristinsson safn 020
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að skoða teikningar af nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Á myndinni er Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri Skagstrendings hf á þessum tíma.
Óskar Kristinsson - safn182
Jóel Kristjánsson, þá rekstarstjóri Rækjuvinnslunnar hf, við stjórnborðið í verkstjórakompunni. Jóel varð síðar framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1493
Slakað á á bekk framan við Vélaverkstæði Skagastrandar í sólskininu. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sigurjón Ingólfsson faðir hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 038
Mennirnir tveir eru að vinna í skurði nálægt sundlauginni. Eins og sjá má er mikið af köplum og lögnum sem þvera skurðinn og því þurfa þeir félagar að vera ofan í skurðinum til að moka frá svo grafan geti tekið við að moka þegar lagnirnar eru fundnar. Maðurinn til vinstri er Sveinn Kristjánsson en hægra megin er Karl Guðmundsson (d.11.12.2011). Myndina tók Guðmundur J. Björnsson gröfumaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1068
Segja má að þessi mynd sýni upphaf tölvualdar í Höfðaskóla. Hún var tekin í janúar 1997 og á myndinni eru fulltrúar fyrirtækja sem gáfu tölvur í nýstofnað tölvuver skólans. Fram að því höfðu verið til tvær, þrjár "kennaratölvur" í skólanum. Á myndinni eru, frá vinstri: Sæmundur Gunnarsson frá versluninni Borg, Sverrir Brynjar Berndsen úr skólafélaginu Rán, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) starfsmannafélagi Arnars, Guðjón Hall Sigurbjörnsson frá skólafélaginu Rán, Jökulrós Grímsdóttir frá ??, Vilhelm Björn Harðarson frá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar, Gylfi Guðjónsson frá Skagstrendingi hf, Gunnlaugur Sigmarsson frá Landsbankanum, Helgi Gunnarsson frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar, Vilhelm Þór Þórarinsson frá Marstál, Sigurbjörn Kári Lárusson frá Trésmiðju Kára Lár., Adolf H. Berndsen frá Marska og Lárus Ægir Guðmundsson frá Hólanesi hf.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 031
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Sjómennirnir sem eru að slægja eru, frá vinstri: Árni Petersen ("Spritti"), óþekktur, Ómar Jakobsson og Magnús B. Jónsson.
Óskar Kristinsson safn137
Stefán Ægir Lárusson við vinnu um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndina tók Hjörtur Guðbjartsson en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1522
Á þessari mynd, sem líklega var tekin 1982 af Skagaströnd, er verið að byggja raðhúsin tvö við Mánabraut, samtals sjö íbúðir. Gamla kirkjan stendur enn og hin nýja er ekki risin. Gamli Jaðar og Efri Lækur standa enn og sama gildir um "Aðalbjargarskúrinn" og Héðinshöfða. Ásbyrgi stendur sunnan við Breiðablik og Sæborg við Oddagötu. Fleiri hús, sem nú eru horfin, eru á myndinni t.d. Drangey, Sæból, Óseyri og Rjúpnafell.
Ólafur Bernódusson 1022
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar endurbygging Kántrýbæjar var að hefjast. Á henni eru Rúnar Kristjánsson til vinstri og Helgi Gunnarsson til hægri að flokka bjálkana sem húsið var byggt út. Í baksýn eru brunarústir gamla hússins sem ekki höfðu verið fjarlægðar þegar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 082
Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) í brúardyrunum á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Óskar Kristinsson safn 026
Arnar Hu1 að koma úr túr til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson, Óskar Þór Kristinsson og Guðjón Guðjónsson. Mennirnir í brúargluggunum eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari431
Unnið að vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Dökklæddi maðurinn er Björn Magnússon sem var stjórnarmaður í Kaupfélaginu en ritarinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann/hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 231
Óvenju stórt hal komið inn á dekkið á Örvari Hu 21. Annað sem er óvenjuleg á myndinni er hve stutt er yfir í Hoffellið SU 80. Ekki er vitað hvers vegna svo er og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Jósef Valur Þorláksson kyssir langömmu sína, Ragnheiði Birnu Hafsteinsdóttur (Bibbu) (d.26.8.2008), fyrir utan Spákonufellsrétt. Mamma Jósefs, Rakel Tryggvadóttir, fylgist með. Myndin var líklega tekin 2006 eða 2007.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 24
Ómar Jakobsson tekur inn slóðann á einni rúllunni um borð í Auðbjörgu HU 6 á færaveiðum líklega kringum 1975.
Óskar Kristinsson safn 085
Myndin var tekin um borð í Stapafellinu SH 15 frá Ólafsvík á netaveiðum. Finnur Gærdbo dregur af spilinu en Árni Ólafur Sigurðsson greiðir úr við netaborðið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari466
Margét Þorsteinsdóttir til vinstri og Steinunn Friðriksdóttir til hægri voru samstarfskonur í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þeim stöllum.
Fisk Seafood - safn 275
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er stjórn Skagstrendings hf og framkvæmdastjóri. Í aftri röð eru, frá vinstri: Þórður Magnússon, Egill Tryggvason, Gunnar Felixsson og Magnús B. Jónsson. Í fremri röð er Adolf H. Berndsen til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri félagsins til hægri.
Óþekktur ljósmyndari446
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélagið), búinn að moka frá dyrum verslunarinnar. Niðri var verslað með grófvöru, verkfæri timbur og annað slíkt en á miðhæðinni var matvara og margt fleira. Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 43
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega kringum 1970. Maðurinn í miðið er Ómar Jakobsson og sá til hægri er Magnús Margeirsson en maðurinn til vinstri er óþekktur.
Gréta 013
Á myndinni eru menn líklega að vinna við nýbyggingu á Bogabraut 5. Mennirnir eru talið niður stigann: Sigmar Hróbjartsson (d. 5.11.2014), sonur hans Gunnlaugur Sigmarsson, Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017). Myndin var tekin einhverntíma á fyrri hluta sjöunda áratugarins.
Óskar Kristinsson safn126
Mynd tekin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Á henni er gott karfahal á dekkinu en karlarnir eru að skera upp hákarl til að hleypa lifrinni og öðrum innyflum aftur í sjóinn. Fiskurinn sjálfur er síðan geymdur út í síðunni stjórnborðsmegin þ.e. vinstra megin á myndinni, þar sem einn er kominn í geymslu. Áður var þessu öfugt farið þegar lifrin var ákaflega verðmæt en oftar en ekki var fiskunum sjálfum hent í sjóinn aftur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og karlarnir á henni eru óþekktir. Ljósmyndarinn var Vilhelm Þórarinsson.
Óþekktur ljósmyndari439
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum var starfsmaður Kaupfélags Húnvetninga í versluninni við Einbúastíg á Skagaströnd um árabil. Á myndinni hefur hann tyllt sér niður inni á kaffistofunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 371
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagatrandarhöfn 1988. Uppgröfturinn var notaður til uppfyllingar fremst á Skúffugarðinum.
Óskar Kristinsson - safn 237
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni fylgist Hjörtur Guðbjartsson með Óskari Kristinssyni sem er að leysa frá pokanum á trollinu. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þorvaldur Skaftason við vinnu að byggja Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Húsið var tekið í notkun 1986 og hýsti þá skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni. Á miðhæðinni var Hótel Dagsbrún og á jarðhæðinni skrifstofa sveitarfélagsins og útibú Búnaðarbanka Íslands.
Óskar Kristinsson safn111
Myndin var tekin 3. september 1992 þegar verið var að steypa grunnplötu fjölbýlishússins við Túnbraut 11 á vegum Skagstrendings hf. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Baldur Haraldsson og tveir óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 238
Hjörtur Guðbjartsson bíður eftir að trollpokinn sé hífður inn á dekk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Heilsugæslan vígð 22.9
Vígsla heilsugæslunnar 22. september 2006. Hljóði er ábótavant í myndinni sem er 34 mínútur að lengd. Myndina tók Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) læknir.
Óskar Kristinsson safn108
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf á fundi í kaffistofunni 10. september 1992. Á fundinum var fólkinu tilkynnt að til stæði að ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 mundi hætta að leggja upp afla í frystihúsið. Þetta voru alvarleg tíðindi fyrir starfsfólkið því uppistaðan í þeim afla sem unnin var í frystihúsinu kom frá Arnari. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Anna Ásgeirsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Ólafur Bernódusson1073
Myndin var tekin í september 1997 af Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn. Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi: "Ólafur Magnússon HU 54 1236 Báturinn var smíðaður úr stáli í Garðabæ árið 1972 og var 105 brl. með 565 ha. Caterpillar vél. Hann var lengdur 1973 og mældist þá 125 lbrl. Árið 1983 var sett í bátinn 750 ha. Caterpillar vél. Byggt var yfir hann árið 1986 og mældist þá 125 brl. Hann hét Þórir II SF 77 þegar Jökull h/f keypti hann frá Hornafirði 1996 og var gerður út til ársins 2005 en seldur haustið 2006. Í desember 2004 var hann tekinn í slipp í dráttarbrautinni á Skagaströnd til botnhreinsunar. Var hann þá stærsti bátur sem hafði verið tekinn þar upp og var um 200 tonn að þyngd. Eigendur Jökuls h/f voru hjónin Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson".
Óþekktur ljósmyndari420
Guðbjörg Viggósdóttir við kjötborðið í þáverandi verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1976 eða 1977. Eins og sjá má var kjörorðið yfir kjötborðinu: "Kjötborðið í dag kemur skapinu í lag".
Ólafur Bernódusson1215
Á myndinni er Guðjón Guðjónsson - Jonni - skipstjóri með tvo af sonum sínum við skipshlið, líklega á Arnari Hu 1. Guðjón Ebbi Guðjónsson er til vinstri og Kristján Pétur Guðjónsson hallar sér upp að pabba sínum. Myndin var líklega tekin 1993 eða 1994 en tilefni myndatökunnar er nú gleymt.
Ingibergur Guðmundsson 343
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á höfninni en líklega var það kringum 1990. Á henni er Þorlákur Sigurður Sveinsson undir stýri á lyftaranum en Jónas Jónasson (d.24.5.2021) er að segja honum til.
Óþekktur ljósmyndari469
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Steinunn var starfsstúlka þar í áraraðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1103
Karitas Pálsdóttir opnaði verslun og heilsurækt í húsi sínu á Fellsbraut 2 í maí 1996. Fyrirtæki sitt nefndi hún Hollt og gott en þar bauð hún upp á nudd, ljósabekk og sauna ásamt því að vera með ýmis konar heilsuvörur til sölu og ráðleggingar um notkun þeirra. Á myndinni er Karitas að afgreiða óþekktan viðskiptavin í verslun sinni.
1
…
70
71
72
…
75
Leita í myndasafninu
Leita