Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1191
Sólveig Róarsdóttir - Didda - klæðskeri í kunnuglegum stellingum við vinnu sína á saumastofunni Íris 19. apríl 2007.
Óskar Kristinsson - safn209
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd er spjallað í fundarhléi. Fólkið er, talið frá vinstri: Áki Áskelsson, óþekkt, Ingibjörn Sigurjónsson, Dagbjört Jóhannsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Steinunn Grímsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 363
Skráningavinna á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1988. Ólafur Bernódusson kennari til vinstri og Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til hægri.
Höfðaskóli - safn531
Kennararnir Ólafur Bernódusson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri við vinnu á kennarastofu Höfðaskóla. Ef marka má dagatalið á veggnum var myndin tekin 1986.
Óskar Kristinsson - safn197
Magnús B. Jónsson um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Magnús kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Til hægri er Finnur Kristinsson með rautt bindi og Adolf H. Berndsen í grænum mittisjakka. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
gunnar035
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: tveir óþekktir, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), ?Sigmar Jóhannesson? (d.20.4.2000) (nær), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær) og líklega Gunnar Sveinsson (d. 3.11.2020) lengst til hægri.
2001056
Gunnar Þór Gunnarsson á sínum stað sem kokkur í eldhúsinu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001050
Áhöfnin á Örvari Hu 21 hélt upp á 300 milljóna aflaverðmæti á kvótaárinu í september 1988, sem þá þótti gríðarlega mikið. Frá vinstri: Árni Sigurðsson, Sigurjón Ingólfsson, Páll Valgeirsson, Gylfi Guðjónsson, Kristján Alexandersson, Gunnar Jónsson, Finnur Kristinsson, Jóhannes Simonsen, Sigurbjörn Björgvinsson, Hjörtur Guðbjartsson (í efstu röð), Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Björgvin Karlsson, Sævar Hallgrímsson, Axel Hallgrímsson (í efstu röð), Sigurður M. Alexandersson, Ingibjörn Sigurjónsson, Quentin Bates, Þórarinn Grétarsson (í efstu röð), Óli Sigurjón Pétursson, Rögnvaldur Ottósson, og Hafsteinn Pálsson. Myndin var tekin í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1487
Árni Guðbjartssson (d.20.2.2018) til vinstri og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson til hægri um borð í Hafrúnu Hu 12. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn168
Myndin var tekin 4. október 1992, líklega í Noregi, af nokkrum forráðamanna Skagstrendings hf í skoðunarferð. Þá var þar í smíðum frystitogari fyrir félagið - Arnar Hu 1 - sem kom til Skagastrandar 22. desember 1992. Hann var síðan seldur frá félaginu 1995 eftir harkalegan niðurskurð á kvóta félagsins. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús B. Jónsson, þrjú óþekkt, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Jóhannes Sveinsson (nær), óþekktur (fjær), Gylfi Sigurðsson (nær) og Adolf H. Berndsen (fjær).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1468
Bræðurnir Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til hægri ráku saman útgerðina Vík ehf í áratugi. Á þessari mynd eru þeir um borð í Öldu HU 112 sem þeir létu smíða fyrir sig í Hafnarfirði 2003. Alda var einn af fjölmörgum bátum sem þeir bræður áttu og gerðu út gegnum tíðina.
Fisk Seafood - safn 267
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í veislu í Fellsborg til að fagna því að frystitogarinn Örvar HU 21 hafði komið í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd þann dag. Mennirnir á myndinni eru Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) alþingismaður og ráðherra frá Akri til vinstri og Karl Þórólfur Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformaður Skagstrendings hf sem var eigandi togarans.
Gréta 038
Mennirnir á stillansinum eru, frá vinstri: Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017), Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Gunnlaugur Sigmarsson. Ekki er ljóst hvaða hús þeir eru að vinna við en líklega var það Bogabraut 3 eða 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1963.
Óskar Kristinsson - safn208
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru hægra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Einar Gunnarsson, Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson, óþekktur og Börkur Árnason. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Jón Heiðar Jónsson, Einar Karlsson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson ? og Ari Þórsson. Við næsta borð eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Jón Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, Gunnar Stefánsson og Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1512
Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 af þeim Ragnari Ingvarssyni (fjær) og Hirti Guðmundssyni (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn199
Myndin var tekin á Nýfundnalandi 19. mars 1991. Á henni eru Hallbjörn Björnsson stjórnarmaður í stjórn Skagstrendings hf til vinstri og Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri til hægri í viðskiptaferð á vegum fyrirtækisins.
Ólafur Bernódusson 1027
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Hörður Ragnarsson stendur og horfir til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir. Vörubíllinn, H 34, tilheyrði Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) og líklega er hann að stjórna krananum á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1501
Dagrún St 12 kemur úr róðri í fallegu vorveðri. Í baksýn er báturinn Hafteinn í skemmtisiglingu. Um borð í Dagrúnu er Eiríkur Lýðsson fremst en hinn maðurinn er óþekktur. Fólkið um borð í Hafsteini er óþekkt. Dagrún ber nú einkennisstafina HU 121 en er gerð út af sömu aðilum og fyrr.
Ólafur Bernódusson1093
Einar Karlsson pípari og Sigurjón Ástmarsson vörubílstjóri dæla köldu vatni upp úr einni af borholunum sem boraðar voru á Hrafndalnum í júlí 1996. Þaðan er svo vatnið leitt í stóran miðlunartank sem sér íbúum bæjarins fyrir hreinu og góðu vatni.
2001075
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er verið að undirbúa sjósetningu hennar 1971.
Óskar Kristinsson - safn 234
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er fólk kringum fundarborðið á efstu hæðinni í stjórnsýsluhúsinu á einhverjum viðskiptafundi á vegum Skagstrendings hf. Talið frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, óþekkt, Denis Lumbard, óþekktur, Magnús Schram, Hallbjörn Björnsson, Sveinn S. Ingólfsson og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1506
Kristján Helgi Gunnarsson smiður og verktaki á vinnustað. Ekki er vitað hvar né hvenær og maðurinn í bakgrunninum er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari477
Starfsfólk verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd gerir sér glaðan dag með því að fara út að borða á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, vinstra megin við borðið: Sæmundur Gunnarsson nær og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fjær. Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Margrét Þorsteinsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) fjær og Steinunn Friðriksdóttir nær.
Ólafur Bernódusson 1026
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem horfir í átt að ljósmyndaranum, það er Hörður Ragnarsson vörubifreiðastjóri.
Ólafur Bernódusson1072
Myndin var tekin af dýpkunarskipi (Gretti?) við vinnu í Skagastrandarhöfn í september 1997. Næst okkur er dráttarbátur sem dró sandprammann vestur fyrir Höfðann þar sem losað var úr honum. Pramminn er á milli dráttarbátsins og dýpkunarskipsins á myndinni.
Ólafur Bernódusson1210
Þessar tvær konur voru kennarar einn vetur í Höfðaskóla á níunda áratugnum. ?Ásdís ?? til vinstri og Sigríður Laufey Einarsdóttir til hægri. Ef þú þekkir rétt nafn Ásdísar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 274
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar Hu 21 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd nýr frá Akureyri. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður í félaginu, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) stjórnarmaður, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) stjórnarmaður, Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri og Stefán Reykjalín stjórnarformaður Slippstöðvarinnar.
2001078
Bæjarstarfsmennirnir Sveinn Kristjánsson til vinstri og Karl Guðmundsson til hægri við vinnu niður í skurði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 280
Erla Jónsdóttir var um tíma skrifstofustjóri og fjármálastjóri Skagstrendings hf. Á myndinni er hún á skrifstofu sinni en ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 587
Hjörtur Guðbjartsson snyrtir limgerðið við heimili sitt að Bogabraut 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001058
Á myndinni eru strákarnir á Örvari HU 21 að taka tuga tonna hal af þorski.Eins og sjá má er ekki langt í næsta skip þar sem fylgst er vel með hvernig gengur um borð í Örvari. Karlarnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001052
Risa- karfahol um borð í Arnari HU 1. Á myndinni er verið að reyna að koma karfanum niður í móttökuna. Þar var hann svo tekinn og handteraður og frystur. Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri er kominn á skyrtunni niður á dekk til að fylgjast með. Hinir mennirnir eru líklega Óskar Þór Kristinsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001082
Á þessari mynd er verið að vinna við vatnsveituna í Hrafndal. Á henni eru, frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson bílstjóri, Rolf Árnason Buggingafræðingur, Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður og Karl Guðmundsson bæjarstarfsmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum.
2001080
Myndin var tekin þegar verið var að leita að vatni fram á Kambadal. Til að komast um á gröfunni þurfti Guðmundur Björnsson gröfumaður að tvöfalda bæði að framan og aftan. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn099
Hafdís Þorvaldsdóttir háseti í klefanum sínum um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari424
Þessar fjórar starfsstúlkur í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut sýna jólagjafir sem voru meðal þeirra sem til voru í búðinni. Konurnar eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Helga Hermannsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 340
Magnús B. Jónsson fer yfir nemendaverkefni í Höfðaskóla en þar kenndi Magnús í nokkur ár á áttunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn091
Helga Björg Hu 7 kemur til hafnar á Skagaströnd í úfnum sjó. Helga Björg var í eigu Skagstrendings hf á árunum 1995 - 2000 og var gerð út til rækjuveiða. Hún var einkum gerð út á Flæmingjagrunni og þá undir nafninu Tahkuna. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010. eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 1492
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í réttinni við Vindhæli. Á henni eru, frá vinstri: Einar Guðmannsson?, Guðmundur Bergmann Magnússon (d.3.1.2010) og Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1505
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen vinna við byggingu Stjórnsýsluhússins. Það var tekið í notkun 1986 svo myndin var líklega tekiin 1985 eða 86.
gunnar030
Myndin var tekin í stýrishúsinu á annað hvort Húna Hu 1 (1957) eða Húna II Hu 2 (1963). Sýnir hún stjórntæki og fiskleitartæki af nýjustu gerð þess tíma.
Gréta 050
Myndin sýnir hvernig hey var flutt heim í hlöðu á hestakerru í gamla daga eftir að hætt var að binda heyið í bagga sem voru svo reiddir heim á hestum. Maðurinn sem gengur með hestinum er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Skagaströnd - safn537
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Keflið er uppi á brekkunni neðan við Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið). Einbúinn og hluti verksmiðjubygginganna eru til hægri. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson1054
Myndin var tekin sumarið 1997. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri ganga frá festinu á límtrésbita sem er hluti af útvegg og þaki hússins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1508
Eiríkur Lýðsson hífir upp grásleppuhrogn í tunnum úr Dagrúnu St 12. Á kerrunni tekur bróðir hans, Guðni Már Lýðsson, á móti tunnunum. Síðan fluttu þeir bræður tunnurnar í verkunaraðstöðu sína þar sem hrognin voru sigtuð og söltuð til útflutnings.
Óskar Kristinsson - safn165
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Steinunn Grímsdóttir skrifstofustjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður (fjær), Axel Jóhann Hallgrímsson (nær), Guðmundur Gunnlaugsson og Adolf H. Berndsen stjórnarmaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Þessar tvær konur voru verkstjórar í vinnuskólanum nokkur sumur. Rósa Björg Högnadóttir vinstra megin og Guðrún Soffía pétursdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001084
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum. Verið var að leggja jarðstreng frá skíðaskálanum niður í vatnstankinn til að hægt sé að sjá og stjórna vatnsmagninu í honum. Guðmundur J. Björnsson var búinn að tvöfalda á öllum hjólum á JCB gröfunni en þrátt fyrir það sökk hún svona á kaf í mýrinni niður af skíðaskálanum.
Ólafur Bernódusson1053
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem mynda útveggi og þak íþróttahússins. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) krýpur, Baldvin Hjaltason í rauðum samfestingi fylgist með og Sigurður Björnsson borgar yfir kúbeini til að stýra sperrunni rétt á festingarnar. Til hægri athugar Helgi Gunnarsson eitthvað við síðustu sperru.
Ólafur Bernódusson1230
Á myndinni er verið að steypa sökkulfætur undir raðhúsin á Ránarbraut 17 - 23 á Skagaströnd. Það, sem er verið að steypa á myndinni, voru 40 sm breiðir sökklar en síðan voru hinir eiginlegu sökklar steypir ofan á þessa "fætur". Eðvarð Hallgrímsson, skeggjaður í hvíta bolnum, byggði húsin að mestu upp á eigin reikning en seldi þau síðan á ýmsum byggingarstigum. Maðurinn í peysunni með ljósa kragann er Einar Þór Ásgeirsson og sá sem er lengst til hægri er líklega Þorsteinn Styrmir Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin sumarið 1987.
Guðrún Guðbjörnsdóttir153
Mynd frá borðhaldi, líklega í Bergen haustið 1992. Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf voru þá staddir þar í tilefni skírnar Arnars Hu 1 sem þá var verið að smíða þar. Arnar Hu 1 kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið vinstra megin við borðið er, frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023), óþekkt, Jóhannes Sveinsson og þrír óþekktir. Hægra megin við borðið eru, frá hægri: Finnur Kristinsson, Rakel Petrea Finssdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og þrír óþekktir. Barnið fremst á myndinni er líklega Arnrún Bára Finnsdóttir.
Fisk Seafood - safn 271
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg til að fagna komu frystitogarans Örvars HU 21 í fyrsta sinn til Skagastrandar. Mennirnir á myndinni, með myndir af Örvari, eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóri, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri Höfðahrepps (nú Sveitarfélagsins Skagstrandar), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.6.7.2017) skipstjóri og Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri. Skagstrendingur hf lét smíða Örvar sem frystitogara hjá Slippstöðinni á Akureyri en togarinn var frumkvöðull sem frystitogari á Íslandi.
2001103
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 417
Vík hf rak saltfiskverkun í húsi sínu við Fjörubraut árið 1987 og þá var þessi mynd tekin. Á henni er sonur annars eigandans, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson þá sjö- átta ára, að gella þorskhausa fyrir utan húsið.
Óskar Kristinsson - safn 239
Trollið tekið. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Þeir eru að passa að höfuðlínan sé klár þ.e. lendi ekki undir keðjunni sem er fest í bobbingana. Bobbingar eru stórar járnkúlur við neðri kantinn á opinu á trollinu. Þeir skrönglast svo eftir botninum þegar veitt er með því. Kúlulínan - höfuðlínan - er aftur á móti efst í opinu á trollinu og heldur því opnu í sjónum með floti sínu. Það er því mikilvæg að bobbingalínan og höfuðlínan flækist ekki saman því þá er trollið lokað í sjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 345
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn. Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla úr lestinni. Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili. Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993. Maðurinn í gulu jullunni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður en aðrir í myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 569
Myndin var líklega tekin vorið 1997 eða 1998 yfir íþróttahúsið eins og það leit út þá. Steypuvinnu er lokið og byrjað er að reisa límtrés bitana sem mynda húsið sjálft. Húsið var svo vígt, fullbúið, haustið 1998.
2001025
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það á sjöunda áratugnum. Á henni er Gylfi Sigurðsson á dekkinu með lúðu í hendinni. Í brúarglugganum brosir Þórhallur Árnason skipstjóri. Báturinn var líklega Aðalbjörg HU 7
Óskar Kristinsson safn 063
Maðurinn uppi í mastri síðutogarans Arnars Hu 1 er óþekktur. Myndin var líklega tekin 1969 á hafísvori og maðurinn var þarna til að leiðbeina skipstjóranum um vakir í ísnum á leið á eða af miðunum.
Skagaströnd - safn539
Myndin var tekin 1946-47 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu. Á myndinni eru óþekktir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf, sem sáu um allan vélbúnað í verksmiðjunni. Hér eru þeir að bregða á leik í brekkunni hjá Einbúanum, sem er kletturinn til hægri. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
1
…
71
72
73
74
75
Leita í myndasafninu
Leita