Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 572
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla en líklega var það kringum 1995. Þórunn Bernódusdóttir er til vinstri og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) til hægri. Til gamans má geta þess að báðar þessar konur áttu sinn tíma sem leikskólastjórar á leikskólanum Barnaból.
Ingibergur Guðmundsson 362
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Torfhildur Stefánsdóttir og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1519
Þessi mynd af Örvari Hu 21 var tekin á kyrrlátu jólkvöldi í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvaða ár.
2001513
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er óþekkt stúlka lengst til vinstri en maðurinn er Kristófer Árnason sem er með konu sinni Jóninnu Pálsdóttur að versla.
Ýmislegt001
Þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 í apríl 1986 í höfninni á Skagaströnd. Eftir að hún sökk í höfninni 16. janúar 1995 var hún endurnýjuð, lengd og henni breytt töluvert. Hafrúnin er í eigu Víkur ehf og gerð út á snurvoð eftir því sem kvótastaðan leyfir. Báturinn er að koma til ára sinna því hún var upphaflega byggð 1956 en er haldið mjög vel við og skilar því sínu með glæsibrag.
Ingibergur Guðmundsson 585
Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022) fylgist með rækjuskiljunni. Þarna var skelinni náð af rækjunni eftir að hún kom úr suðunni. Keflin á myndinni snerust fram og til baka og nudduðu þannig skelinni af rækjunni. Rækjan hélt síðan áfram inn á færiband þar sem starfsmenn hreinsuðu síðust skelleifarnar af henni. Þaðan fór hún síðan í pökkun og endaði í frystiklefa Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1181
Á myndinni eru Stefán B. Sigurðsson þáverandi rektor Háskólans á Akureyri til vinstri og Adolf H. Berndsen stjórnarformaður BioPol til hægri. Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar þeir félagar höfu skrifað undir samstarfssamning BioPol og HA. Við sama tækifæri klipptu þeir svo á borða til að opna formlega rannsóknarstofu BioPol.
Óþekktur ljósmyndari438
Sveinn Þórarinsson ók verslunarvörum milli Blönduóss og Skagastrandar fyrir Kaupfélag Húnvetninga um árabil. Eins og sést á myndinni var ekki alltaf sól og blíða í þessum ferðum Sveins þó hann brosti breitt alla daga. Á myndinni er hann að afgreiða vörur í verslunina við Einbúastíg (gamla kaupfélagið). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001001
Nokkrir Skagstrendingar í hópi ferðamanna í útsýnisferð á Japan. Ástæða þess að Skagstrendingarnir voru þarna var að þeir voru að sækja Arnar HU 1 sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og smíðaður í Japan. Eins og sjá má var myndin tekin í ágúst 1973. Skagstrendingarnir eru hægra megin á myndinni. Í fremstu röð eru,frá hægri: Óskar Þór Kristinsson, Gylfi Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson. Í aftari röðinni eru, frá hægri; Árni Ólafur Sigurðsson, Gunnlaugur Árnason og Birgir Þórbjarnarson. Aftast stendur svo Reynir Sigurðsson upp úr hópnum.
2001059
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Þegar mjög mikið fiskaðist, eins og á myndinni, þurfti að blóðga fiskinn niður í móttökuna því það tók töluverðan tíma að vinna hann í frystinguna. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ragnar Högnason með bláa lambhúshettu, Jón Alexandersson, Gunnar Jónsson með bláa húfu, óþekktur, Sigurður Alexandersson, óþekktur, Hjörtur Guðbjartsson bograndi á hnjánum, Quentin Bates og Páll Valgeirsson.
Ingibergur Guðmundsson 525
Myndin var tekin þegar verið var að steypa upp húsið á Suðurvegi 13 á Skagaströnd í september 1996. Eins og sjá má var það gert upp á gamla mátann með hrærivél. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Viktor Pétursson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson Hannes Óskarsson, Hrólfur Pétursson og Ómar Jakobsson.
Ingibergur Guðmundsson 365
Jóhanna Jónsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1534
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í dráttarbrautinni. Á bátunum á henni voru m.a. stundaðar rækjuveiðar um langt árabil. Auðbjörgin endaði ævi sína í dráttarbrautinni þar sem hún var rifin eftir að hafa staðið þar í nokkur ár. Dagrúnin var smíðuð á Skagaströnd um 1971 og var einn af fyrstu frambyggðu bátum landsins. Þegar þetta er skrifað í desember 2023 bíður hún örlaga sinna í Skagastrandarhöfn eftir að hafa lokið hlutverki sínu sem happasæll fiskibátur.
2001093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á Strandgötunni. Þar hefur ekki mátt miklu muna að flutningabíllinn ylti niður í fjöru. Stór Payloader er að draga hann varlega upp á götuna aftur. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1209
Ingibergur Guðmundsson við vinnu í Höfðaskóla sem kennari eða skólastjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001062
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Líklega er verið að stíma milli veiðistaða og því getur áhöfnin haft það náðugt á meðan. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir háseti, Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir messi, Guðmundu Gunnlaugsson, Jóhannes Símonsen (fjær) og Bjarni Ottósson (nær) hásetar.
2001063
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á verkstæðinu þar. Ernst Berndsen yfirvélstjóri er til vinstri en hinn vélstjórinn er óþekktur.
Skagastrond 1989
Skagaströnd 1989. Í myndinni er m.a. farið í heimsóknir í fyrirtæki á staðnum. Mynd og hljóð eru í góðu lagi. Myndin er 31 mínúta og þulur á henni er Þorbjörn Sigurðsson en myndatöku annaðist Þrándur Thoroddsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1492
Björgunarskipið Húnabjörg að koma heim úr einhverjum leiðangri í sunnan brælu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1091
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar verið var að dæla upp vatni úr einni af borholunum sem boraðar voru í Hrafndalnum til að ná í hreint kalt vatn fyrir bæinn. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Hafdal?, Einar Karlsson og Sigurjón Ástmarsson.
Ólafur Bernódusson1205
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér eina af framleiðsluvörum Violu sem var saumastofa starfrækt á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Prjónapeysur og prjónavoðir voru aðal framleiðsluvörur fyrirtækisins. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
20230525_094336
Þessi mynd var tekin 25. maí 2023 af skemmtiferðaskipi sem lá dagpart á legunni fram af Skagaströnd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir154
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Sveinn S. Ingólfsson og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Arnar er í baksýn, ókláraður.
Ólafur Bernódusson1140
Skóverksmiðjan Skrefið var stofnuð á Skagaströnd í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár. Á þessari mynd, sem tekin var í október 1995, er Þór Arason verksjóri við vinnu sína þar. Verksmiðjan var svo seld úr bænum 1997 en þá hafði Þór starfað þar einn um tíma.
Ólafur Bernódusson1101
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri Coldwater, að afhenda Hafþóri Smára Gylfasyni, skipstjóra Örvars, gæðaskjöldinn. Maðurinn til vinstri er Einar Haukur Arason úr áhöfn Örvars en maðurinn til hægri er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn 223
Stefán Þór Árnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf setur rækjur í poka. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001097
Dagrún St 12 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Þá hét báturinn Guðmundur Þór Hu 17. Lýður Hallbertsson eignaðist bátinn, gaf honum nýtt nafn og gerði út frá Djúpavík í mörg ár. Lýður flutti svo til Skagastrandar og gerði Dagrúnina út þaðan. Þá fékk hún einkennisstafina HU 121. Eins og sjá má var Dagrúnin mjög fallegur bátur en þegar þetta er skrifað, í mars 2026, er hætt að gera hana út og bíður hún örlaga sinna í niðurnýðslu á höfninni á Skagaströnd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir160
Arnar Hu 1 var smíðaður í Bergen 1992 fyrir Skagstrending hf. Þegar hann kom til heimahafnar í fyrsta sinn 22. desember 1992 var hann stærsta fiskiskip Íslendinga. Myndin var tekin í Bergen í hófi sem haldið var til að fagna afhendingu skipsins til eigendanna. Á henni eru, hlaðnir gjöfum, frá vinstri: Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023) útgerðarstjóri Skagstrendings hf, Finnur Kristinsson yfirvélstjóri og eftirlitsmaður útgerðarinnar með smíðinni og Jóhannes Sveinsson sem einnig var eftirlitsmaður með smíðinni. Framan við þá situr Helga Jóhannesdóttir eiginkona Sveins Ingólfssonar framkvæmdastjóra félagsins en hún gaf skipinu nafn.
Ingibergur Guðmundsson 470
Kennarar í þungum þönkum á kennarastofu Höfðaskóla í vinnuviku í október/nóvember 1985. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Rúnar Loftsson, Guðrún Guðmundsdóttir,, Ólafur Bernódusson og Marinó ??.
2001081
Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður fylgist með dælingu af vatni upp úr leitarholu í Hrafndal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1503
Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin. Á henni eru tveir heiðursmenn sem settu svip sinn á Skagaströnd á sínum tíma: Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri með kústinn og Skafti Fanndal Jónasson (d.29.2006), oft kenndur við Dagsbrún, með fæiskófluna.
Ingibergur Guðmundsson 584
Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001079
Á myndinni er verið að koma fyrir styrktarstaur í miðju "millimastursins" í skíðatoglyftunni sem var í suðurhlíð Spákonufellsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1995. Gröfumaður var Guðmundur Björnsson og til að komsat þarna upp brekkuna, án þess að valda miklum skemmdum á henni, var grafan á tvöföldu bæði að aftan og framan. Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Ólafur Bernódusson.
Óskar Kristinsson safn131
Óskar Kristinsson vinnur við að koma fiskinum í kassa og ísa í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Fiskurinn streymdi niður í lestina frá aðgerðarkörlunum á millidekkinu. Þar tók lestarmaðurinn við og raðaði í kassa og ísaði eftir kúnstarinnar reglum. Kössunum var raðað í stæður eins og sjá má og oft þurfti lestarmaðurinn að hafa hraðar hendur til að fiskurinn safnaðist ekki fyrir. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær.
Ólafur Bernódusson1094
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar fram fóru framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar í Hrafndal. Á myndinni eru Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur til vinstri og Guðmundur J. Björnsson gröfumaður til hægri. Boraðar voru nokkrar holur í dalnum og síðan var vatnið, sem fékkst, leitt í stóran miðlunartank neðst í dalnum. Guðmundur plægði niður vatnsrörið með gröfunni sinni, sem er á myndinni á tvöföldu bæði að framan og aftan. Ekki veitti af því í mýrunum á leiðinni sökk grafan gjarnan á kaf.
Gréta 053
Myndin var tekin ofan af síldarþrónum yfir hafnarsvæðið. Tunnustæðurnar sýna að menn hafa verið bjartsýnir á gott síldarsumar en síld var söltuð á bryggjunni til vinstri. Færibandið á myndinni flutti síld frá löndunarkrana við enda þess upp í geysluþrærnar við síldarverksmiðjuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001073
Á myndinni er nokkur þúsund tonna Austur-Þýskur verksmiðjutogari. Sumarið 1969 var síðutorgarinn Arnar HU 1 að toga eins og venjulega þegar allt í einu hann fór að dragast afturábak með trollið úti. Kom í ljós að varpan hans hafði flækst í vörpu þessa risa torgara sem dróg Arnar litla aftuábak. Eftir nokkuð stímabrak tókst svo að losa vörpurnar sundur þrátt fyrir að stóra skipið áttaði sig ekki strax á hvað var í gangi enda var tungumálakunnátta- eða kunnáttyuleysi til trafala. Allt fór þó vel að lokum enda veður með besta móti eins og sést á myndinni.
2001104
Myndin var tekin 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er síðutogarinn Arnar HU 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Þetta var mikið aflaskip og á myndinni er búið að landa úr honum afla á bryggjuna (Útgarð) og þar er fólk úr landi á kafi í aðgerð svo Arnar geti aftur haldið til veiða. Þessi aðferð var síðan bönnuð. Þá var gripið til þess ráðs að Arnar lagðist í Kálfshamarsvík og þar var fólk ferjað um borð til að hjálpa til í aðgerðinni. Segja má að þetta skip hafi lagt grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1525
Á myndinni eru Hólanes-frystihúsið næst okkur en síldaverksmiðjan fjær. "Kassarnir" fjórir til vinstri við frystihúsið tengdust kælikerfi þess. Verksmiðjan er ekki í rekstri og yfir þrærnar sér í Arnar Hu 1 (Japans Arnar). Ekki er vitað hveær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990.
Ingibergur Guðmundsson 540
Myndin sýnir þorskhausakippur sem er verið að þurrka í hjalli á melunum austan við Spákonufellsrétt. Eftir þurrkun var hausunum pakkað í búnt eða balla og þeir sendir á markað í Nígeríu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir157
Fjórir af forystumönnum Skagstrendings hf spjalla saman í Bergen þar sem frystitogarinn Arnar HU 1 var smíðaður fyrir fyrirtækið 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023) útgerðarstjóri, Finnur Kristinsson yfirvélstjóri og eftirlitsmaður með smíðinni og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Óþekktur ljósmyndari485
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Guðjón Ebbi Guðjónsson afgreiðir Kamillu Hildi Gísladóttur, í dökkri kápu, og Sólrúnu Ólínu Sigurðardóttur í rauðri úlpu. Í baksýn rýnir Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) í blað áður en hún byrjar að versla.
Óþekktur ljósmyndari483
Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum á fatamarkaði þegar verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd seldi fatnað í Fellsborg. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990), óþekkt og Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir. Barnið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson005
Á myndinni, sem var tekin í júlí 1989, er verið að byrja á byggingu Smágarðs við Skúffugarðinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er líklega verði að bræða fiskúrgang til að framleiða úr þeim fiskimjöl. Gufustrókur stendur upp úr skorsteininum þannig að ilmurinn af framleiðslunni berst ekki eins mikið yfir bæinn. Bátarnir tveir eru óþekktir en aftan við þá sér í stefnið á ísfisks - Arnari Hu 1. Þá er ekki búið að brjóta niður þrærnar sem eru tengdar verksmiðjunni vinstar megin en þær eru nú horfnar.
Ólafur Bernódusson1224
Á myndinni er verið að setja nýsmíðaðan bát frá Mánavör hf á bílpall 1985 eða 1986. Ekki er vitað hvaða bátur þetta var né hvert hann fór. Á myndinni eru líka nokkrar trillur, sem gerðar voru út frá Skagaströnd en geymdar þarna í skjóli yfir veturinn. Það þótti hentugt því þær voru gjarnan teknar á landi í fjörunni og síðan dregnar upp á kambinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1482
Eiríkur Lýðson á Dagrúnu Hu 121 hellir grásleppuhrognum úr tunnu í vél sem skilur himnur og slíkt frá áður en þau eru sett á grisjur til að láta síga af þeim yfir nótt áður en þau eru svo söltuð niður í tunnur. Með honum á myndinni er hásetinn Stefán Sveinsson sem tínir úr þarablöð og annað sem ekki á heima með hrognunum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1532
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er stór floti síldarbáta að bíða löndunar. Líklega var myndin tekin á Siglufirði eða í Djúpuvík á Ströndum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú áttar þig á hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1089
Myndin var tekin í Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Boraðar voru nokkrar holur og upp úr þeim fékkst heilnæmt og gott kalt vatn sem enn (2022) er notað í bænum. Karlarnir upp við bílana á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) verkamaður, Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður og Einar Karlsson pípulagninamaður. Mennirnir við borholuna eru óþekktir.
2001112
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Magnús Pétursson slaka á milli funda í Bergen 1992. Þá voru þeir þar ásamt fleiri frá Skagstrendingi hf til að fylgjast með framkvæmdum við nýsmíðina á frystitogaranum Arnari HU 1 fyrir félagið. Gylfi var stjórnarmaður en Magnús umboðsmaður fyrir vélbúnað skipsins.
2001072
Þessi mynd, sem tekin var sumarið 1969 um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sýnir vel vinnuaðstöðuna á dekkinu. Trollpokinn með aflanum var hífður um borð og fiskurinn látinn gossa í stíur á dekkinu. Þar þurftu menn að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og slægja. Síðan var honum hent upp í pontuna sem sést á lestarlúgunni en hún var með sírennsli af sjó þannig að fiskurinn skolaðist vel þar. Hann var síðan látinn renna niður í lestina gegnum lúgugatið sem er fremst á lestarlúgunni. Þar niðri var hann svo ísaður í stíur. Maðurinn á myndinni er óþekkktur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir162
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ávarp í hófi sem haldið var 1992 í Bergen til að fagna afhendingu á frystitogaranum Arnari Hu 1 til eiganda síns, Skagstrendings hf. Arnar var smíðaður í Bergen en kom í fyrsta sinn til Skagstrandar 22. desember 1992. Við borðið sitja Ernst Berndsen yfirvélstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson skipstjóri til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 460
Myndin var tekin 1985 af þessum félögum sem unnu þá hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Karlarnir eru, frá vinstri: Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Jóhannes Sveinsson, Gísli Snorrason, Sigurjón Ingólfsson og Bergþór Gunnarsson.
Fisk Seafood - safn 276
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var utan við Stjórnsýsluhúsið 1. júní 1991, eru áhafnir Örvars Hu 21, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf ásamt hjónunum June og Dennis Lumbard sem voru eigendur Norbit Fish. Þegar myndin var tekin höfðu þau nýlokið við að afhenda öllum áhafnarmeðlinum viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin.
Ólafur Bernódusson1208
Um árabil rak Hallbjörn J. Hjartarson - Kúreki norðursins - (d. 2.9.2022) Kántrýútvarpið á efri hæðinni í Kántrýbæ. Þar spilaði hann kántrý- og gospeltónlist allan sólarhringinn. Á myndinni er Hallbjörn í útsendingu.
Óskar Kristinsson - safn 251
Ingimundur Gamli Hu 65 í höfninni á Skagaströnd. Skipið átti heimahöfn á Blönduósi og var gert út til rækjuveiða. Ingimundur sökk á Húnaflóa 8. október 2000 og með honum fórst skipstjórinn en hinum tveimur skipverjum var bjargað í nærstatt skip. Blíðu veður var og sléttur sjór þegar Ingimundur sökk á 5 - 10 mínútum eftir að skipverjar uppgötvuðu að ekki var allt með felldu.
Ólafur Bernódusson1098
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Á myndinni er hluti fólksins sem mætti á bryggjuna til að fagna heimkomu Arnars. Nokkrir á myndinni áttu eftir að vera í áhöfn hans um árabil þar á meðal Guðjón Guðjónsson sem enn (2022) er skipstjóri á Arnari. Guðjón er lengst til vinstri á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 553
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) til hægri landa afla úr bát sínum Helgu Björgu Hu 7 í Skagastrandarhöfn. Meðeigandi þeirra tveggja var Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013). Helgu Björgina gerðu þeir félagar út í áratugi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir169
Fólkið á myndinni var starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd. Þegar myndin var tekin voru þau í skoðunarferð í fiskvinnslu á Húsavík eða á Laugum þar sem fór fram þurkun á þorskhausum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fólkið er, frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, óþekkt, Cristina Silod Yecyec, óþekktur, Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Magnús Guðmannsson, Juanita Silod Boncales og Guðmundur Kristinsson.
Ólafur Bernódusson1243
Í lok maí 1994 kom mikið flóð í Giljá og bjó til stórt skarð í þjóveginn rétt sunnan við bæinn Stóru Giljá. Þar sem alveg var ófært yfir ána á venjulegum farartækjum selflutti jarðýtan á myndinni nokkuð að fólki yfir ána, t.d. fólk sem kom með Norðurleiðarrútunni að sunnan. Fólkið á myndinni er óþekkt.
1
…
71
72
73
74
75
Leita í myndasafninu
Leita