Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
2001102
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Árni Petersen, ?Finnur Kristinsson?(nær), ?Sigurjón Haraldsson? og óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 341
Plastverksmiðjan Mark hf framleiddi svona báta í nokkur ár í húsnæði við Oddagötuna, sem seinna hýsti starfsemi Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar. Því miður urðu tveir stórbrunar hjá fyrirtækinu á þremur árum, sá seinni 14. apríl 1998. Fyrirtækið lagði upp laupana skömmu eftir síðari brunann.
Fisk Seafood - safn 265
Séra Oddur Einarsson blessar Örvar Hu 21 og áhöfn hans þegar skipið kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 7. apríl 1982. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn541
Myndin var tekin 1947 þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf stilltu sér upp í tröppunum upp á olíu/lýsistankinn sem þeir höfðu þá lokið við að smíða. Tankurinn stóð syðst undir Höfðanum ásamt öðrum af sama tagi. Starfsmennirnir héldu til í tjöldum við Höfðann meðan á smíðunum stóð. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1529
Mynd úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Ásbjörg HU 5 bíður löndunar með síldarfarm við bryggju, líklega á Siglufirði. Báturinn var í eigu Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar hf á árunum 1947 - 1960.
2001094
Íþróttahúsið í byggingu. Myndin var tekin 1997 en húsið var vígt 15. mars 1998.
Halldór Gunnar Ólafsson 006
Örvar Hu 21 leggur af stað í túr því strákarnir á myndinni eru nýbúnir að sleppa. þeir eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðjón Árnason, Hólmgeir Kristmundsson, óþekktur, Björn Sigurðsson og Þröstur Árnason. Myndin var tekin 1992 eða 1993.
Ingibergur Guðmundsson 364
Heiða Ósk Stefánsdóttir kennari í Höfðaskóla á kennarastofunni í maí 1988.
Ólafur Bernódusson1095
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Þaðan var honum siglt til Vigo á Spáni þar sem gerðar voru miklar breytingar á skipinu. Arnar hefur alla tíð reynst hið mesta happaskip og er enn gert út en nú undir merkjum Fisk Seafood á Sauðárkróki.
Ingibergur Guðmundsson 422
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson.
Ólafur Bernódusson1086
Myndin var tekin sumarið 1996 í stund milli stríða í Rækjuvinnslunni hf, sem var notuð til að dytta að húsinu. Stúlkurnar á myndinni voru vanari að standa við pillunarbandið og/eða pökkunarbandið inni en að vera í naglhreinsun úti. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir (baksvipur), Svava Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Árný Elfa Helgadóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og þrjár óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 282
Sigríður Gestsdóttir við vinnu sína sem skrifstofustúlka hjá Skagstrendingi hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 546
Norski togarinn Jan Mayen á leið í höfn á Skagaströnd líklega með rækjufarm. Á myndinni sést gamli hafnargarðurinn eða Útgarður, áður en keyrt var á hann grjóti og honum breytt í sjóvarnargarð fyrir höfnina. Einnig er gamli vitinn á enda garðsins enn standandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001067
Guðfinnur Bjarni Ottósson klár í slaginn um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001019
Myndin var tekin 1968 af Guðjóni Árnasyni HU 12 á færaveiðum. Bátinn áttu bræðurnir Sigurjón og Árni Guðbjartssynir. Fyrirtæki þeirra hét Vík sf.
Ingibergur Guðmundsson 342
Mikill rækjuiðnaður var á Skagaströnd í áratugi eða allt fram að því að veiðar á rækju dóu nánast út á Íslandsmiðum. Á þessari mynd er verið að landa úthafsrækju í plastkössum úr óþekktum rækjubát á Skagaströnd. Rauðu og bláu númerin á kössunum sögðu til um hvaða dag veiðiferðarinnar rækjan í honum var veidd. Strákarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1240
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal þegar þyrla frá ameríska flughernum var að koma með endurvarpa sem var komið þar fyrir. Björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra sáu um að koma honum fyrir á sínum stað sem þeir höfðu undirbúið viku áður. Karlarnir voru síðan fluttir í þyrlunni niður af fjallinu eftir að vinnu við endurvarpann lauk.
Ingibergur Guðmundsson 372
Rækjutogarin Nökkvi HU 15 í höfn á Skagaströnd. Nökkvi var gerður út frá Blönduósi. Myndin var líklega tekin kringum 1990 en hann kom fyrst til Blönduóss í febrúar 1987.
Ingibergur Guðmundsson 562
Lengi var hefð fyrir því í Höfðaskóla að starfsfólkið hittist að kvöldi síðasta vinnudags fyrir jól og borðaði saman hangikjöt í skólanum. Myndin er frá einu slíku kvöldi líklega kringum 1995. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hafþór Freyr Sigmundsson, Súsanna Þórhallsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir, Ólafur Bernódusson, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Skagaströnd - safn536
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir byggingu brúar sem byggð var yfir Laxá í Refasveit 1924 - 1927, ca 100 metrum neðan við þá sem nú er notuð (2022). Nú er verið að byggja enn nýja brú á nýjum Skagastrandarvegi töluvert neðar en þessi brú stendur. Eins og sjá má var þessi brú byggð með handafli því vélar voru ekki mikið komnar til sögunnar þegar það var gert. Staðsetning hennar var valin með það í huga að hafið yfir ána væri sem styst.
Ingibergur Guðmundsson 416
Guðmundur J. Björnsson gerir klárt til að leggja gráleppunet vorið 1987 á skektunni sinni. Jónas Jónasson (d. 24.5.2021) fylgist með.
Ingibergur Guðmundsson 414
Myndin var tekin 1987 þegar Jane Sillar er að kenna Önnu Dröfn Guðjónsdóttur að spila á píanó í Höfðaskóla.
Skagaströnd - safn540
Þessi mynd frá 1947 sýnir olíutank eða lýsistank í smíðum undir Höfðanum. Húsið á myndinni var byggt 1904 en kvisturinn kom síðar og einnig inngangurinn sem sést á myndinni. Húsið, sem var byggt fyrir verslunarstjóra Höfðaverslunar seinna Kaupfélags Skagstrendinga, gekk undir nafninu Verslunarstjórahúsið og seinna Kaupfélagshúsið. Húsið var rifið einhverntíma kringum 1980. Tjöldin á myndinni hýstu starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem unnu að byggingu tanksins og sáu líka um allan vélbúnað í síldarverksmiðjunni. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
2001003
Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum þegar veriðð var að landa fullfermi úr frystitogaranum Örvari HU 21 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
2001091
Þessi mynd var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni sér heim að Brandaskarði þar sem allt er á kafi í snjó nema súrheysturninn og stafninn á fjósinu. Guðmundur Björnsson, sem tók myndina, var fenginn á gröfunni sinni til að moka ofan af þökum húsanna og frá þeim svo ekki færi illa.
Ólafur Bernódusson1074
Lómur HF 177 í Skagastrandarhöfn að landa rækju í september 1997. Það slys varð við löndunina að einn skipverjinn féll niður um lúguna á efsta dekki og niður á millidekkið. Hjálmur sem hann bar á höfðinu bjargaði lífi hans því hann slóst utan í lúgukarminn á millidekkinu og hefði örugglega höfuðkúpubrotnað. Hjálmurinn tók höggið en brotnaði um leið.
Ingibergur Guðmundsson 527
Ólafur Magnússon Hu 54 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Þessi Ólafur var 125 brl. en Jökull hf. keypti bátinn frá Hornafirði og gerði hann út til ársins 2005 en seldi svo haustið 2006. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
2001511
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er verslunarstjórinn Jón Jónsson og litla stúlkan er Guðmunda Ólafsdóttir. Konan með gleraugun er María Magnúsdóttir kona Jóns. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Halldór Gunnar Ólafsson 009
Hafþór Smári Gylfason stýrimaður í brúardyrunum á Örvari Hu 21. Myndin var tekin 1992 eða 93.
Skagaströnd - safn538
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Á myndinni er komið að því að leggja strenginn varlega niður í skurðinn. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 556
Mennirnir á myndinni eru að steypa gangbraut yfir Fellsbraut við gatnamótin við Oddagötu. Maðurinn til vinstri er Helgi Gunnarsson en á móti honum er Hrólfur Pétursson. Maðurinn í bláa gallanum er Hjalti Magnússon.
Ingibergur Guðmundsson 524
Myndin sýnir vinnubrögð við steypuvinnu áður en farið var að versla við steypustöðvar. Gömul hrærivél var notuð til að hræra steypuna. Mölinni var mokað í vélina með dráttarvél í skúffuna utan á vélinni. Síðan var einum poka af sementi skellt ofan á mölina, vatni ausið inn í hana áður en skúffan var hífð upp og þá sturtaðist mölin og sementið inn í hana. Þegar steypan var orðin vel samlöguð var sturtað úr henni hinum megin í sílóið á myndinni sem kranabíll hífði svo á réttan stað þar sem hleypt var úr sílóinu. Myndin var tekin í september 1996 þegar verið var að steypa einhvern hluta hússins að Suðurvegi 13 á Skagaströnd. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson, Helgi Gunnarsson, Viktor Pétursson og Pétur Eggertsson.
Halldór Gunnar Ólafsson 011
Myndin ver tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum, 1992 eða 93. Grínið er að Þröstur Árnason hefur verið lagður á kassabindivélina og rígbundinn þannig að hann getur ekki hreyft sig. Gestur Arnarson til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri passa upp á að Þröstur detti ekki á nefið.
Ólafur Bernódusson1097
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Þaðan var honum siglt til Vigo á Spáni þar sem gerðar voru miklar breytingar á skipinu. Arnar hefur alla tíð reynst hið mesta happaskip og er enn gert út en nú undir merkjum Fisk Seafood á Sauðárkróki. Á myndinni blessar séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) skipið við heimkomuna.
Ólafur Bernódusson1090
Myndin var tekin í júlí 1996 í Hrafndal. Þá stóðu þar yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Á myndinni er verið að gera plan þar sem síðar voru boraðar holur til að ná í kalt vatn. Fjallið í baksýn fyrir miðri mynd er Tungufell með Kambadal til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 344
Myndin var tekin sumarið 1989 þegar Smágarður við Skúffugarðinn var í byggingu.
Ingibergur Guðmundsson 574
Myndin var tekin 1987 eða 1998 þar sem menn eru að vinna við smíði íþróttahússins. Mennirnir á henni eru, frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki við bygginguna, Baldvin Hjaltason og Sigurður Björnsson sem unnu hjá Helga.
Ingibergur Guðmundsson 480
Vatnið í skíðakálanum þykir mjög gott. það er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Á myndinni, sem tekin var snemma vorið 1985, eru menn að grafa skurð að lindinni og koma fyrir safngeymi og plaströri frá honum að skálanum. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson.
Fisk Seafood - safn 281
Guðrún Pálsdóttir var lengi launafulltrúi hjá Hólanesi hf og seinna Skagstrendingi hf. Á myndinni er hún á kaffistofu félaganna á efstu hæðinni í Stjórnsýsluhúsinu. Ekki er vtað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 369
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, slær túnið sitt með hestasláttuvél með tveimur hestum beittum fyrir. Myndin var líklega tekin kringum 1965.
Ingibergur Guðmundsson 576
Myndin var tekin af konum að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, hægra megin við bandið, frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir, Þórdís Skúladóttir og Ingibjörg Dúna Skúladóttir (d.30.7.2023). Konurnar vinstra megin við bandið eru óþekktar.
Halldór Gunnar Ólafsson 013
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri stendur á Þresti Árnasyni uppi í brú. Ekki er vitað hvort Jonni er að sýna Þresti hver ræður um borð eða bara að leyfa honum að finna að hann er alls ekki svo þungur.
Fiskvinnsla í Hólanesi hf
Hreyfimynd sem sýnir fiskvinnslu í Hólanesi hf.
Ingibergur Guðmundsson 545
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) til vinstri og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
20230117_153506
Myndin var tekin 17. janúar 2023. Á henni er Sandra Ómarsdóttir sem er ötull og vinsæll bókavörður í Bókasafni Skagstrandar. Á myndinni er hún við vinnu í safninu sem er staðsett á jarðhæðinni í Fellsborg.
2001021
Myndin var tekin 1968 um borð í Auðbjörgu HU 6, sem þá var á færaveiðum. Á henni heldur Kristófer Árnason á vænum þorski sem hann er nýbúinn að innbyrða.
Gréta 098
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1945. Á henni eru vinnupallar um skorsteininn, sem þó virðist fullbyggður, því hann er greinilega kominn í notkun. Mjölskemman er í byggingu. Þar er grindin komin og byrjað að klæða suður endann. Ekki er búið að byggja Salthúsið, sem í dag stendur ca. þar sem fólkið er á myndinni. Aftur á móti er bryggjan sýnileg, sem byggð var 1922, í skjóli af Hólsnefinu. Af henni sést ekki tangur né tetur í dag.
Höfðaskóli - safn645
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á efri hæðinni í Höfðaskóla en líklega var það einhverntíma snemma á níunda áratugnum. Á henni eru kennararnir Jóhanna Jónsdóttir til hægri og óþekkt til vinstri. Í baksýn er annar óþekktur kennari að hengja upp myndir. Ef þú veist hvað óþekktu kennararnir heita vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 484
Myndin var tekin í september 1984. Á henni eru börn að taka upp í skólagörðunum sem þá voru starfræktir við Ránarbraut þar sem nú eru raðhúsin númer 19 - 23. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 56
Auglýsingaspjald frá Bifreiðastöð Skagastrandar, sem Hjalti Skaftason (d.27.6.2022) sendi frá sér, til að minna á þjónustu sína í vöruflutningum. Hann átti og rak flutningafyrirtækið á Skagaströnd á árunum 1970 - 1982 er hann flutti til Reykjavíkur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir152
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið í röðinni hægra megin er, frá hægri: Helga Jóhannesdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, óþekkt, Adolf H, Berndsen og Magnús B. Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
20250614_154712
Myndin var tekin 14. júní 2025. Á henni eru tveir læknar ásamt foreldrum sínum að fagna útskrift úr Háskóla Íslands. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Ívan Árni Róbertsson læknir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir læknir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ívan Árni og Guðrún Anna luku grunnskólanámi frá Höfðaskóla í sama bekk og voru alla tíð miklir vinir. Það heyrir til tíðinda að tveir bekkjarfélagar úr Höfðaskóla útskrifist sem læknar á sama tíma.
2001095
Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður og Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri (fjær) niður í fjögurra metar djúpum frárennslisskurði ofan við kirkjugarðinn.
Ólafur Bernódusson1213
Carl Erik Lehman Jakobsen kennir sund í litlu sundlauginni á Skagaströnd kringum 1995. Calle snýr baki í myndavélina en nemendur hans eru, frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason, Kristján Pétur Guðjónsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, ?Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, ?Eydís Ósk Einarsdóttir? og Íris Ósk Jóhannesdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 591
Starfsfólk Höfðaskóla fær sér kaffisopa í frímínútum á flippíþróttadegi. Á myndinni eru, frá vinstri: Þröstur Líndal Gylfason, Jóhanna Jónsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og aftan við hana sér í Helgu Ólínu Aradóttur og Guðbjörg Ólafsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkleg var það kringum 1985.
Skagaströnd - safn555
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir fyrstu brúna sem byggð var yfir Laxá í Refasveit, ekki langt frá þeirri sem nú er í byggingu (2022), og enn má sjá ummerki eftir. Í vikublaðinu "Víðir" 27 tölublaði 18. júní 1928 er eftirfarandi frétt: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blöduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum: Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V.G.Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkini Sigurlaugar: laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafði á bílnum, einkum, bensíngjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina að bílstjórinn réð ekki við bílinn og rann hann á trégirðinguna og út fyrir". Sérfræðingur vegagerðarinnar segir að í fréttinni sé um þessa brú að ræða því aldrei var trébrú yfir Blöndu og blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina hefur verið ókunnugur á svæðinu, enda var blaðið gefið út í Vestmannaeyjum.
Ólafur Bernódusson1139
Þessi mynd var tekin í október 1995. Á henni er Jóhanna Harðardóttir starfsmaður skóverksmiðjunnar Skrefið. Verksmiðjan var stofnuð í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár á Skagaströnd. Allt að níu manns störfuðu í verksmiðjunni þegar best var. Skórnir á myndinni voru seldir sem Primus heilsuskór og voru mjög vinsælir. Svona skór eru enn framleiddir, á Akureyri í dag, enda mjög þægilegir og sterkir.
2001004
Myndin var tekin þegar Arnar HU 1, fyrsti skuttogari Skagsrendings hf, kom til heimahafnar í fyrsta sinn 15. október 1973 frá Japan. Mannfjöldi tók á móti skipinu og mikli gleði ríkti. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og þiggja veitingar. Arnar reyndist mikið happaskip sem skilaði miklu í þjóðarbúið. Vinstra megin við bryggjuna liggur annað skip útgerðarinnar síðutogarinn Örvar Hu 14 . Frambyggði báturinn sem sér í er Guðmundur Þór Hu 17 sem var smíðaður í skipasmíðastöðinni á Skagaströnd 1972. Hann varð síðar Dagrún ST 12.
Ólafur Bernódusson1100
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri hjá Coldwater, að tala við áhöfn Örvars og fleiri. Við hlið Páls situr Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf sem átti og gerði Örvar út. Lengra til hægri, í dökkum jakka, situr Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri. Aðrir á myndinni eru karlarnir í áhöfn Örvars sem stóðu sig svona vel.
Guðrún Guðbjörnsdóttir159
Myndin var líklega tekin í Bergen 1992. Þá var þar í smíðum frystitogarinn Arnar Hu 1 fyrir Skagstrending hf. Hópur fólks frá Skagaströnd, sem tengdist útgerðinni á einn eða annan hátt, fór til Bergen þegar skipið var afhent. Arnar kom svo í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 22. desember 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Þórey Jónsdóttir, María Alexandersdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og óþekkt kona.
1
…
71
72
73
74
75
Leita í myndasafninu
Leita