Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atvinnumál
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn555
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir fyrstu brúna sem byggð var yfir Laxá í Refasveit, ekki langt frá þeirri sem nú er í byggingu (2022), og enn má sjá ummerki eftir. Í vikublaðinu "Víðir" 27 tölublaði 18. júní 1928 er eftirfarandi frétt: "Stórkostlegt bílslys" "Föstudaginn 10. þ.m. var mjög ægilegt bílslys við Blöduóssbrúna. Bíllinn fór út af trébrú, sem er norðan við Blönduóssbrúna, og féll niður 8 - 10 metra hæð í gil og brotnaði mikið. Fimm manns voru í bílnum: Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og kona hans Sigurlaug Helgadóttir. Meiddust þau bæði mjög mikið og er konunni varla hugað líf. Skemmdist hún svo innvortis, að gera varð á henni holskurð strax. Gerði hann P.V.G.Kolka héraðslæknir með aðstoð Torfa Bjarnasonar héraðslæknis á Hvammstanga. Auk hjónanna voru í bílnum tvö systkini Sigurlaugar: laufey Helgadóttir með barn sitt tveggja ára gamalt, og bílstjórinn Óskar Helgason. Orsök slyssins er talin ólag, sem verið hafði á bílnum, einkum, bensíngjöfinni. Hafi skyndilega komið svo mikið bensín inn á vélina að bílstjórinn réð ekki við bílinn og rann hann á trégirðinguna og út fyrir". Sérfræðingur vegagerðarinnar segir að í fréttinni sé um þessa brú að ræða því aldrei var trébrú yfir Blöndu og blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina hefur verið ókunnugur á svæðinu, enda var blaðið gefið út í Vestmannaeyjum.
Ólafur Bernódusson1139
Þessi mynd var tekin í október 1995. Á henni er Jóhanna Harðardóttir starfsmaður skóverksmiðjunnar Skrefið. Verksmiðjan var stofnuð í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár á Skagaströnd. Allt að níu manns störfuðu í verksmiðjunni þegar best var. Skórnir á myndinni voru seldir sem Primus heilsuskór og voru mjög vinsælir. Svona skór eru enn framleiddir, á Akureyri í dag, enda mjög þægilegir og sterkir.
Halldór Gunnar Ólafsson 007
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 1992 eða 93. Karlarnir á henni eru að beinhreinsa flök fyrir erlendan markað. Þeir eru, frá vinstri: Níels Grímsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
Ólafur Bernódusson1138
Þessi mynd er af helstu framleiðsluvöru skóverksmiðjunnar Skrefið. Verksmiðjan var stofnuð í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár. Myndin var tekin í október 1995 en þá störfuðu fimm starfsmenn hjá verksmiðjunni. Skórnir á myndinni voru seldir sem Primus heilsuskór og voru mjög vinsælir. Svona skór eru enn framleiddir, á Akureyri í dag, enda mjög þægilegir og sterkir.
2001085
Helgi Gunnarssoní appelsínugulum galla og Magnús Hjaltason í bláum galla að vinna við að brjóta klöpp þegar verið var að grafa fyrir íþróttahúsinu 1996 eða 1997. Myndina tók Guðmundur Björnsson úr gröfunni sinni.
Höfðaskóli - safn641
Arnarborg Hu 11 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var úrelt 1992 og endaði á áramótabrennu 1993.
Guðrún Guðbjörnsdóttir151
Þrír af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og Sveinn S. Ingólfsson.
2001054
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvert erindi Tara HF 222 átti við Arnar Hu 1. Líklega hefur hún verið að sækja mann um borð - eða koma með mann. Eins og sjá má er ekki einfalt að leggja litlum bát að stórum togara í ólgusjó án þess að skemma eitthvað. Ernst Bernden heldur í óþekktan mann í flotgalla sem er að koma - eða fara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1526
Gömul mynd af frystihúsi Hólaness hf næst okkur og síldarverksmiðjunni, hvítmálaðri, fjær. Rörið sem lá frá verksmiðjunni yfir fjöruna í stóru skemmuna var notað til að koma mjölinu yfir í skemmuna þar sem það var sekkjað. "Hatturinn" sem grillir í við vinstri enda rörsins var nokkurs konar ryksuga sem sogaði mjölið milli húsanna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir156
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ávarp við skírn Arnars HU 1. Arnar var smíðaður í Bergen fyrir fyrirtækið 1992 og kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd 22. desember 1992. Þá var hann stærsta fiskiskip Íslendinga. Skipið var svo selt úr landi 1995 eftir að rekstrarforsendur þess voru brostnar vegni mikils kvótaniðurskurðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1531
Síðutogarinn Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 28. desember 1970 frá Noregi þar sem hann var smíðaður 1968. Hann var svo seldur til Patreksfjarðar 1974.
Fisk Seafood - safn 270
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, afhendir Sveini S. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, nýsmíðina Örvar HU 21 þegar hann kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd. Gunnar er til hægri á myndinni en aðrir á henni eru óþekktir.
2001077
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Myndin var tekin eftir að hún komst á flot í fyrsta sinn 1971. Um þennan bát er ritað í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson: " Ásdís HU 10 1183. Báturinn var smíðaður úr eik á Skagaströnd árið 1971. Hann var 21 brl. með 185 ha. Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson, Skagaströnd og Guðbjörn Hallgrímsson, Hafnarfirði. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Fjórir menn voru á bátnum og björguðust allir um borð í Jón Vídalín ÁR 1 frá Þorlákshöfn. Þetta var fyrsti báturinn sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd".
2001005
Báturinn á myndinni er Húni Hu 1 í höfn á óþekktum stað með yfirbreidda síld á dekkinu. Maðurinn á bryggjunni er Jón Hannesson og sá um borð er Jónatan Pálsson. Báðir voru þeir í áhöfn Húna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1524
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Hún sýnir torgarann Jón Baldvinsson RE 208 strandaðan við Hrafnkelsstaðaberg ekki langt frá Grindavík. Þar strandaði hann 31. mars 1955. Skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum en heimildum ber ekki saman um hvort þeir voru 42 eða 52. Skipið ónýttist á strandstaðnum en nokkru tókst að bjarga úr því af verðmætum s.s. timbri og málmum.
2001057
Grétar Smári Hallbjörnsson háseti um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001110
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af stjórnarmönnum í Skagstrendingi hf ásamt nokkrum starfsmönnum félagsins og fleiri. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1, sem er í bakgrunninum. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús Pétursson, Magnús Sigurðsson, Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Sveinn Ingólfsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir155
Á myndinni býr Helga Jóhannesdóttir sig undir að gefa nýsmíðuðum togara Skagstrendings hf nafnið Arnar Hu 1, þar sem hann var smíðaður í Bergen 1992. Arnar var á þessum tíma stærsta fiskiskip Íslendinga. Hann kom svo til heimahafnar í fyrsta sinn 22. desember 1992. Eftir mikinn kvótaniðurskurð var hann svo seldur úr landi 1995.
2001071
Ómar Jakobsson dregur af koppnum á spilinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 sumarið 1969. Arnar var fyrsta skip Skagstrendings hf.
20241001_101109
Myndin var tekin haustið 2024 þegar unnið var að því að rífa gömlu löndunarbryggjuna eða Ásgarð eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni.
Ólafur Bernódusson1194
Myndin var tekin seint í desember 2007. Á henni bendir Árni Ólafur Sigurðsson, skipstjóri á Arnari HU 1, á hluta af lunningu sem kom upp í trollinu út af Þistilfirði. Klussið á myndinni er óvenjulegt svo þegar myndin birtist í Morgunblaðinu kannaðist Halldór B. Nellett, yfirmaður hjá Landhelgisgæslunni, strax við hvaðan lunningarbúturinn var kominn. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Halldór m.a.: "Ég var uppvaskari og messagutti hjá Guðmundi Kjærnested skipherra um borð í varðskipinu Ægi,“ sagði Halldór. „Ég var nýbyrjaður til sjós og mátulega sjóveikur. Við vorum að reyna klippingu á Þistilfjarðargrunninu eða þar nálægt þegar breski togarinn Aldershot keyrði á stjórnborðssíðuna hjá okkur og hreinsaði alla lunninguna af.“ Þetta, sem Halldór lýsir, gerðist að morgni 18. október 1972 í miðju þorskastríði vegna útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Lunningin hafði því legið í 35 ár í sjónum þegar Arnar dró það af hafsbotninum. (heimild: Morgunblaðið 4.janúar 2008)
2001512
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er María Magnúsdóttir við búðakassann.
Fisk Seafood - safn 283
Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigríður Gestsdóttir til hægri á kaffistofu Skagstrendings hf í Stjórnsýsluhúsinu. Þær sáu um að hafa reiðu á pappírum félagsins ásamt fleirum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001076
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er verið að Sjósetja hana árið 1971. Mennirnir á myndinni eru Björn Sigurðsson til vinstri og Ólafur Guðmundsson skipasmiður til hægri. Krakkahópur fylgist með þessum merkis atburði í sögu Skagastrandar.
2001061
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á myndinni er smá pása hjá körlunum sem nota tækifærið og fá sér smók. Á henni eru, frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Jón Indriðason og Gunnar Jónsson.
2001022
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Auðbjörg var þá á færum og á myndinni eru þrír hásetar að gantast eitthvað. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og Kristófer Árnason.
2001089
Myndin var líklega tekin í maí 1995. Veturinn var óvenju snjóþungur og meðal annars fylltist sundlaugin, sem þá var bara opin á sumrin, af snjó og rúmlega það. Mokað var upp úr lauginni með gröfu og vörubíl með krabba. Síðan var vatn látið renna í hana í ca. hálfan mánuð með opið niðurfall til að ná síðasta snjónum úr henni áður en hægt var að láta renna í hana á hefbundinn hátt.
Ólafur Bernódusson1216
Funi Hu 89 í eigu Gunnars Jónssonar sökk í höfninnni veturinn 1994. Á myndinni hífir Sigurjón Ástmarsson hann úr kafi með kranabíl sínum.
2001091
Þessi mynd var líklega tekin veturinn 1995 sem var óvenju snjóþungur og illviðrasamur. Á henni sér heim að Brandaskarði þar sem allt er á kafi í snjó nema súrheysturninn og stafninn á fjósinu. Guðmundur Björnsson, sem tók myndina, var fenginn á gröfunni sinni til að moka ofan af þökum húsanna og frá þeim svo ekki færi illa.
2001053
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin um borð í Arnari HU 1. Á henni hressa sig á smá nammi, frá vinstri: Ernst Berndsen, Gunnar Jónsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bjarni Ottósson og Sigurjón Ingólfsson.
20241125_165625
Hálfnað verk þá hafið er. Myndin var tekin 25. nóvember 2024. þegar unnið var að uppbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar eða Ásgarðs eins og hann heitir í dag. Bryggjan var komin til ára sinna, byggð einhverntíma rétt fyrir 1950. Hún hefur nú verið hækkuð og endurbyggð frá grunni með stálþili og steyptri þekju.
2001002
Þessi mynd var tekin af Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra við skipshlið á Örvar HU 21 einhverntíma á níunda áratugnum. Tilefni myndarinnar var að Árni var að koma í land eftir mettúr með fulla lest af frosnum afurðum.
Ingibergur Guðmundsson 366
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, brýnir ljá á hverfisteini sumarið 1965. Kristinn Guðmundsson (d.1.2.1986) fylgist með til vinstri og Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) dáist að handbrögðum Kristjáns á steininum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir158
Myndin var tekin 1992 í setustofunni á Arnari Hu 1 sem þá var nýsmíðaður fyrir Skagstrending hf. Konurnar eru, frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Helga Jóhannesdóttir, óþekkt og Sigrún Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson1239
Myndin var tekin inni í stórri tveggja hreyfla þyrlu. Mennirnir á henni eru björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra. Ástæðan var að ca viku áður en myndin var tekin höfðu mennirnir gengið á fjallið Jörundarfell í Vatnsdal og sléttað þar undirstöðu fyrir endurvarpa. Á myndinni er þyrlan að flytja menina upp á fjallið þar sem þeir voru svo tilbúnir að taka á móti endurvarpanum, sem þyrlan kom með í næstu ferð. Mennirnir komu honum svo endanlega fyrir áður en þyrlan flutti þá svo aftur niður á Blönduós. Þyrlan var á vegum ameríska flughersins á landinu í sambandi við sameiginlega heræfingu NATO herja á landinu og fengin í þetta verkefni eftir að æfingunum lauk. .
2001051
Risahol af karfa tekið um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í trollinu eru tugir tonna af karfa. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
2001066
Jón Hilmar Indriðason með gleraugu og Brynjar Pétursson að horfa á sjónvarpið um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001070
Myndin var tekin 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Á henni eru menn að slægja fisk áður en hann er ísaður í lestinni. Árni Petersen er lengst til vinstri, Ómar Jakobsson er sá með húfuna en hinir tveir eru óþekktir.
2001060
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru menn að greiða úr böndunum í flottrollinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Gunnar Jónsson, óþekktur, Bjarni Ottósson og Ingvar Þór Jónsson.
2001514
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni sést að hér var um dæmigerða kaupfélagsverslun þar sem hægt var að fá vefnaðarvörur, garn og stígvél auk matvöru og leikfanga. Konan á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1536
Sjósetning á Björgu Ólafs Hu 40 nýsmíðaðri 1985. Björg Ólafs var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf úr plasti og var einn af "Skagstrendingunum" en það voru bátrnir kallaðir sem stöðin framleiddi í sama móti og Björgu Ólafs. Eigendur Bjargar Ólafs voru feðgin frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir, sem er við stefnið á bátnum, og Jakob Guðmundsson sem er í dráttarvélinni. Maðurinn í ljósu buxunum er óþekktur.
2001111
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af mönnum á vegum Skagstrendings hf. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson, Magnús Pétursson, Guðjón Guðjónsson og Adolf H. Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 571
Glatt á hjalla á kennarstofu Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Elva Þórisdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir150
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023), Sveinn S. Ingólfsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), óþekktur, Magnús B. Jónsson, Guðjón Guðjónsson, þrjú óþekkt, Jóhannes Sveinsson og Adolf H. Berndsen.
2001109
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af stjórnarmönnum í Skagstrendingi hf ásamt nokkrum starfsmönnum félagsinsog fleiri. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, óþekktur, Kristinn Jóhannsson stjórnarmaður, Guðjón Guðjónsson skipstjóri, Magnús Pétursson umboðsmaður vélarinnar í skipinu, Úlfhildur Haraldsdóttir, tvö óþekkt, Jóhannes Sveinsson vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður (nær) og Adolf H. Berndsen stjórnarmaður.
2001064
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri vinstra megin og Guðmundur Gunnlaugsson að gaumgæfa eitthvað.
Halldór Gunnar Ólafsson 010
Myndin var tekin í brúnni á Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri situr í stólnum en Þröstur Árnason er að grínast eitthvað í símanum á bak við hann.
20250926_101153
Myndin var tekin í september 2025 þegar verið var að steypa hluta af þekju á ný endurgerðum Ásgarði í Skagastrandarhöfn.
2001510
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er verslunarstjórinn Jón Jónsson að spjalla við Guðmundu Sigurbrandsdóttur og dóttur hennar Guðmundu Ólafsdóttur. Konan sem snýr baki í okkur og teygir sig inn í hilluna er María Magnúsdóttir kona Jóns. Aðrir eru óþekktir.
2001055
Ingvar Þór Jónsson fylgist með Ernst Berndsen vélstjóra við vinnu á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001065
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir messi í búrinu í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1241
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal. Þyrla frá ameríska flughernum er að lenda eftir að hafa flutt þangað endurvarpa sem björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra komu fyrir og gengu frá. Þyrlan lenti og beið eftir mönnunum sem voru síðan fluttir niður á Blönduós aftur. Maðurinn í hægra horninu er Helgi Gunnarsson björgunarsveitamaður frá Skagaströnd.
2001083
Á myndinni er verið að vinna við vatnsveituna í Hrafndal. Rolf Árnason stendur við tunnurnar en baksvipinn á Karl Guðmundsson. Líklega var myndin tekin á tíunda áratugnum.
Ýmislegt009
Sumarið 1986 voru kofasmíðar barna á vegum umf Fram staðsettar sunnan við Höfðaskóla þar sem nú í dag er bílastæði skólans. Eins og sjá má á myndinni var mikill áhugi hjá krökkunum fyrir að smíða sér þak yfir höfuðið. Húsið til hægri er Drangey sem hefur verið rifið og sama gildir um hlöðuna í baksýn til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 560
Þrjár kennslukonur Höfðaskóla slaka á milli kennslustunda á kennarastofunni. Frá vinstri: Margrét Harðardóttir,Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Sigríður Einarsdóttir. Myndin var líklega tekin snemma á tíunda áratugnum.
Óskar Kristinsson - safn210
Sigrún Jónsdóttir skrifstofukona hjá Skagstrendingi hf á vinnustað sínum í stjórnsýsluhúsinu. Myndin var tekin 29. september 1992.
1
…
71
72
73
74
75
Leita í myndasafninu
Leita