Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atvinnumál

Flokkur
Annað
Atburðir
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hafnarframkvæmdir
4.496 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason020

Þessi mynd er sú fyrsta í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2544, 2545, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Á þessari mynd eru frá vinstri: baksvipurinn á Þorkeli Magnússyni, Friðjón Guðmundsson með húfupottlok sem hann bjó til úr samanbrotnum bréfpoka, Ole Aamundsen með gleraugu og Lárus Jónsson læknir með hatt. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason134
Bernódus Ólafsson kíkir eftir eyrnamarki í Hofsrétt 1965.
Guðmundur Guðnason040

Myndin er af fólki sem lengi var í forystu á margvíslegan hátt á Skagaströnd. Fólkið er greinilega á fundi líklega stjórn sparisjóðsins eða fundur í Verkalýðsfélaginu. Myndin, sem er líklega tekin 1963 eða 1964, var tekin í afgreiðslu Sparisjóðs Skagastrandar í Miðnesi. Frá vinstri á myndinni eru: Björgvin Jónsson í Höfðabrekku (Bankastræti 10), Pálmi Sigurðsson í Pálmalundi (Hólabraut 27), Kristófer Árnason Sunnuhvoli (Sunnuvegur 1), Guðbjartur Guðjónsson Vík (Strandgata 4), Ingvar Jónsson hreppstjóri Skagavegi 2 (Norður - skála), Ólafur Guðlaugsson Sævarlandi, Kristján Hjartarson Grund, Haraldur Sigurjónsson Iðavöllum, Jóhanna Sigurjónsdóttir Héðinshöfða (Skagavegur 5 ?), Björgvin Brynjólfsson Miðnesi, Jóhanna Gunnlaugsdóttir Hólabraut 5.

Björn Bergmann 012
Björgvin Jónsson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís, fyrsta nýsmíði stöðvarinnar.
Guðmundur Guðnason127
Þetta unga fólk er í fjallgöngu. Lengst til hægri er Fjóla Jónsdóttir en hin eru óþekkt en eru þó sennilega frændsystkini Fjólu - Snædal börn. Ef þú þekkir þeu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Björn Bergmann 005
Ásdís og Guðmundur Þór í smíðum í skipasmíðastöðinni 1970 - 1971. Þetta voru tveir fyrstu bátar stöðvarinnar. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur, Pálmi Sigurðsson, Sveinn Ingi Grímssoin, Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson og Eðvarð Ingvason.
Guðmundur Guðnason112
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni er fólk að koma sér inn í rútu í Ögri. Maðurinn sem krýpur er Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og hjá honum stendur konan hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) (með slæðu). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason995
Séð heim að Spákonufellsrétt meðan beðið er eftir fjársafninu af fjalli. Fremst á myndinni er efnistökukrús sem seinna var fyllt upp .
Guðmundur Guðnason012
Guðrún Guðmannsdóttir frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason101
Myndin var tekin í nýbyggðri höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Líklega er báturinn Ludendorf Hu 46 nær á myndinni en hinn gæti verið Hindenburg Hu 45 seinna Jón Bjarnason.
Guðmundur Guðnason135
Flekkótt kind með tvö flekkótt lömb. Ekki er ólíklegt að Guðmundur ljósmyndari hafi átt þessa kind og þótt hún falleg enda var hann áhugamaður um sauðfé. Myndin var tekin á túninu við Ægissíðu þar sem Guðmundur átti heima.
Hverjir skyldu þetta vera 031
Frændurnir Guðmundur Sveinsson, vinstra megin, og Birgir Árnason til hægri í smíðavinnu. Myndin er sennilega tekin á sjötta áratugnum.
Guðmundur Guðnason140
Í Hofsrétt sumarið 1965. Gígja Axelsdóttir frá Litla -felli og Jón Sigurðsson bóndi á Árbakka, tengdasonur Eggerts Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sigfúsdóttur konu hans í Sólheimum.
Óþekktur ljósmyndari132
Kaffi og "meððí" í Áhaldahúsinu. Frá vinstri eru Guðmundur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri fær sér kaffi og Ragnar Ingvarsson fær sér mjólk í kaffið. Allir voru þeir starfsmenn Höfðahrepps á þessum tíma. Myndin var tekin 10. september 1998.
Ólafur Bernódusson018
Myndin er tekin 1992 og er af Lárusi Ægi Guðmundssyni þá framkvæmdastjóri Hólaness hf að afhenda Jóhönnu Jónasdóttur blómvönd í tilefni af á 75 ára afmæli hennar og 40 ára starfsafmæli hjá frystihúsinu
Björn Bergmann 010
Fyrstu bátarnir, Ásdís og vGuðmundur Þór, í smíðum í stöðinni 1970 - 1971. Mennirnir eru frá vinstri: Ólafur Jóhannsson, Hinrik Jóhannesson, Pálmi Sigurðsson, Jón Kr. Jónsson, Sveinbjörn Blöndal, og Eðvarð Ingvason.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn018
Vísir Hu 10 fastur í hafís framan við höfnina á Skagaströnd. Myndin er tekin hafísárið 1965. Karlarnir eru komnir út á ísinn og eru að spá í framhaldið. Vísir gerði út á þorskanet þetta vor og aflaði oft vel - ef fært var á sjó vegna hafíssins. Varlega varð að fara innan um ísinn og reyna að nýta þær lænur sem hægt var til að komast leiðar sinnar. Um borð voru bræðurnir Jón Stefánsson (d.3.8.1991) og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigurður Árnason (d.26.3.2013) sem var skipstjóri. Myndina tók Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), sem þá var fréttaritari Morgunblaðsins, og birtist myndin, ásamt fleirum, í Morgunblaðinu nokkrum dögum seinna.
Guðmundur Guðnason051
Þessi flutningabíll H 275 var í eigu Valdimars Núma Guðmundssonar (d.14.3.1972) sem sá um flutninga á vörum og fólki milli Skagastrandar og Reykjavíkur í allmörg ár.
Guðmundur Guðnason024

Þessi mynd er sú síðasta í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2545 og 2546. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Lárus á síðustu metrunum með að komast yfir milligerðið. Eitthvað hefur það gengið brösuglega a.m.k. hefur hann misst hattinn og Ole er glottaralegur við að aðstoða Lárus.

Guðmundur Guðnason161

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá Hestamannamóti á Vallabökkum í Skagafirði". Fleira er ekki vitað um myndina.

Óþekktur ljósmyndari134
Hér hjálpast starfsmenn Höfðahrepps að við að reisa samkomutjald á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Rósa Björg Högnadóttir, Mugnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba), og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Myndin sennilega tekin 1998.
Guðmundur Guðnason138
Guðbergur Stefánsson frá Kambakoti, seinna í Rjúpnafelli á Skagatrönd, við réttarstörf í Hofrétt 1965.
Guðmundur Guðnason048
Tvær fermingarstúlkur á tröppunum á Holtastaðakirkju. Stúlkan hægra megin er Rannveig Runólfsdóttir frá Hvammi í Langadal og Ólöf Jónsdóttir frá Ártúnum til vinstri.
Guðmundur Guðnason194
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Á myndinni er verið að brjóta málin til mergjar. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson036
Hjörtur Guðbjartsson svamlar hér í sjónum í flotbúningi. Þetta var liður í öryggisnámskeiði sjómanna sem haldið var á Skagaströnd veturinn 1985.
Guðm. Jóh. að kafa 1961 018
Guðmundur Jóhannesson við köfunarstörf 1961. Á bátnum Ægi eru hjálparmenn hans þeir Kristófer Árnason slöngumaður og Þórbjörn Jónsson í talstöðinni. Guðmundur vann lengi sem kafari, aðallega við hafnargerð, víða um land. Ef grannt er skoðað sést í stórt hjól lengst til vinstri á myndinni. Þessu hjóli var snúið stanslaust meðan Guðmundur var í kafi og með því dælt lofti niður til hans eftir loftslöngunni sem Kristófer var ábyrgur fyrir að ekki flæktist eða á hana kæmi gat. Mikið ábyrgðarstarf var líka að vera á talstöðinni og þurfti að ríkja mikið traust milli kafarans og talstöðvarmannsins. Bátinn Ægi áttu þeir saman um tíma þeir Guðmundur og Þórbjörn.
Óþekktur ljósmyndari123
Magnús Ólafsson og Adolf H. Berndsen (til hægri) vinna við að reisa samkomutjald fyrir Kántrýhátíð 2002.
Guðmundur Guðnason160

Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Mennirnir sem standa við réttarveggin eru Markús Sigurjónsson bóndi á Reykjarhóli til vinstri og Kristinn Helgason áður bóndi á Íbishóli til hægri.

Björn Bergmann 011

Báturinn á myndinni er Guðmundur Þór en hann var eini frambyggði trébáturinn sem smíðaður var í stöðinni. Guðmundur Þór var nýsmíðaverkefni stöðvarinnar númer tvö 1970 -1971. Mennirnir eru frá vinstri: Ólafur Jóhannsson, Hinrik Jóhannesson, Jón Kr. Jónsson, Pálmi Sigurðsson og Eðvarð Ingvason.

Guðmundur Guðnason144
Á myndinni er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu með óþekktri vinkonu sinni (?Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003)?). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú veist hver konan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason022

Þessi mynd er sú þriðja í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2543, 2544, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Á þessari mynd réttir Ole Lárusi hjálparhönd og klifrið hefst yfir milligerðið. Drengurinn sem fylgist sposkur með er óþekktur.

Guðmundur Guðnason099
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson fyrir altarinu í Höskuldsstaðakirkju. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason930
Adolf J. Berndsen við vörubílinn sinn. Réttarholt í baksýn.
Guðmundur Guðnason136
Sumarréttir í Hofsrétt 1965. Fénu var smalað til réttar um mitt sumar til að rýja það. Á myndinni bera saman bækur sínar Lúðvík Kristjánsson frá Steinholti (með sígarettu), Lárus Árnason í Ási og Björn Sigurðsson á Jaðri sem snýr baki í myndavélina.
Björn Bergmann 013
Smíði á Ásdísi og Guðmundi Þór 1970 -1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason, Seinbjörn Blöndal, Jón Kr. Jónsson, Guðbjartur Guðjónsson og Pálmi Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason001
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason145
Sumarréttir í Hofsrétt 1965 -rúningur. Stúlkan á myndinni er Kristín Sigurðardóttir, maðurinn með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson, sem er að rýja kind en Jónína Valdimarsdóttir heldur í kindina. Öll áttu þau heima á Kárastöðum á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason090
Sjónvarpsöldin gengin í garð. Í sjónvarpinu er séra Ólafur Skúlason. Takið eftir að sjónvörpin eru tvö.
Guðmundur Guðnason124
Tvö börn skírð í Hofskirkju 13. júlí 1969. Konurnar með börnin eru systurnar María Línbjörg Hjaltadóttir(Bogga) á Neðri Harrastöðum með Hjalta Viðar Reynisson í fanginu og Árný Hjaltadóttir (Dúdú) á Steinnýjarstöðum með Guðríði Ingunni Kristjánsdóttur. María er til vinstri á myndinni. Aftast má þekkja Dómhildi Jónsdóttur prestsfrú til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson er lengst til hægri. Milli þeirra stendur Hilmar Árnason bóndi á Hofi. Litla dökkhærða daman á fremsta bekk er Anna Kristjánsdóttir eldri systir Guðríðar Ingunnar sem verið var að skíra.
Guðmundur Guðnason047
Þessi mynd var tekin þegar verið var að bora eftir heitu vatni á melnum neðan við Ásholt. Borað var niður á 30 metra dýpi en því miður fannst ekki heitt vatn á staðnum.
Óþekktur ljósmyndari121

Veitingastaðurinn Kántrýbær byrjaði rekstur í þessu húsi. Útvarp kántrýbær var á efri hæðinni. Aðfaranótt 27 október 1997 brann þetta hús til kaldra kola. Hallbjörn Hjartarson, sem átti húsið og starfsemina þar, gafst ekki upp. Hann safnaði peningum hjá þjóðinni og reisti það hús sem stendur í dag á sama stað og þetta var. Nýja húsið með veitingasölu og útvarpi Kántrýbæ var opnað rúmu ári eftir brunann 27. júní 1998.

Óþekktur ljósmyndari135

Maríanna Þorgrímsdóttir snurfusar aðkeyrsluna að tjaldsvæðinu fyrir Kántrýhátíð (sennilega 1998).

Guðmundur Guðnason087
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær myndin var teklin.
Óþekktur ljósmyndari140
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
Guðmundur Guðnason114
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Gert klárt fyrir brottför frá Ögri í Ísafjarðardjúpi. Á miðri mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) kona hans er hægra megin við manninn sem snýr baki í myndavélina. Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) er til vinstri með sólgleraugu og slæðu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason133
Réttarstörf í Spákonufellsrétt. Maðurinn með skeggið er Jónatan Jónsson. Maðurinn lengst til hægri er líklega Björn Helgason frá Læk. Aðrir eru óþekktir og ártalið er ekki vitað.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn010
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) situr við stýrið á Lanz Alldog dráttarvél sem hann átti. Í farþegasætinu situr Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) í Höfðakoti. Á pallinum stendur Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007), systir Bernódusar. Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990) fylgist íbyggin með. Lanz Alldog dráttarvélar þóttu mjög undarlegar á sinni tíð með stóran sturtupall framan við ökumanninn og gátu gengið bæði fyrir bensíni og díselolíu. Myndin var tekin einhverntíma seint á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason151
Aftan á þessari mynd stendur: "Ferð á Hnjúkshnjúk". Torfi Sigurðsson frá Mánaskál er sitjandi lengst til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kári Kristjánsson 046
Kári Kristjánsson (f. 5.12.1914 - d. 11.12.1990) frá Kárastöðum í réttunum. Fyrir aftan hann sést í Hartmann Jóhannesson.
Guðmundur Guðnason023
Af einhverjum ókunnum ástæðum hafa þessir menn límt á sig gerviskegg. Lengst til hægri er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en hinir tveir eru óþekktir. Ef þú veist hverjir þeir eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari125
Kántrýhátíðin 2002 var sú síðasta sem haldin var á Skagaströnd. Þá mætti gríðalegur mannfjöldi á staðinn. Rigning var alla hátíðisdagana og segja má að hátíðin hafi rignt burt. Myndin sýnir ástandið á tjaldsvæði sunnan við Íþróttavöllinn.
Óþekktur ljósmyndari126
Lokahátíð verkstjóra vinnuskólans á Skagaströnd. Frá vinstri: Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðmundur Guðmundsson, Lilja Kristinsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Rósa Björg Högnadóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir. Myndin er tekin 14. ágúst 1998 í Kántrýbæ.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn012

Myndin er tekin í Skagastrandarhöfn einhverntíma á sjöunda áratugnum. Blíðfari hét báturinn sem mennirnir eru um borð í. Þann bát átti Bernódus Ólafsson en þegar hér er komið er eigandinn líklega Birgir Árnason. Báturinn nær okkur er Loftur í eigu Bernódusar Ólafssonar. Innan við hann liggur Ægir sem var í eigu Þórbjörns Jónssonar og Guðmundar Jóhannessonar. Kópur HU 28 í eigu Skafta Fanndals liggur við skúffugarð, oft kallaður Biblían því byrðingurinn í honum þótti ekki efnismikill og vegna þess að Jón Kr. Jónsson og Gunnar Davíðsson fluttu hann til Skagastrandar en þeir voru báðir aðventistar á þeim tíma. Hálfi báturinn lengt til hægri er Svanur Hu 4 sem var í eigu bræðranna Baldurs og Júlíusar Árnasona.

Guðmundur Guðnason146
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) Árnesi á spjalli við óþekktan mann í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari137
Lokahóf yfirmanna vinnuskólans á hótel Dagsbrún 11. október 1996. Rósa Björg Högnadóttir verkstjóri.
Ólafur Bernódusson033
Hér er verið að vinna við að ná upp bátnum Rúna Hu 101 sem Ólafur Ingibjörnsson gerði út frá Skagaströnd. Í illviðri hlóðst ísing á bátinn í Skagatrandarhöfn og hann sökk. Á myndinni er búið að koma böndum á Rúnu og stór kranabíll er byrjaður að lyfta henni úr kafi. Myndin er tekin á níunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason172
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Maðurinn með hattinn er Páll Jónsson skólastjóri, Rúnar Ingvarsson er í ljósu peysunni og maðurinn með sixpensarann er Eggert Skarphéðinsson úr Sólheimum.
Guðmundur Guðnason054
Hjónin í Höfðabrekku Þorgerður Guðmundsdóttir og Björgvin Jónsson á góðri stund á heimili sínu.
Guðmundur Guðnason139
Er þetta Konráð Guðmundsson úr Garðhúsum (Konnabænum) ? Ef þú getur staðfest það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason109
Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : "Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði".
1

7
8
9

75
Leita í myndasafninu
Leita