Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn170
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum í verkinu þau Þórdís Skúladóttir og Einar Haukur Arason.
Minjasafn 162
Gripur nr. 162. Eldspýtnahulstur í bláu plasthulstri með mynd af Surtsey á lokinu. Hulstrið tekur fjóra eldspýtustokka. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Höfðaskóli017
Börn fædd 1982 í 4. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn144
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin af Lárusi Ægi Guðmundssyni í hlutverki sínu í sýningunni.
Minjasafn 417
gripur nr. 417. Ausa úr járni eða áli. Ca. 40 cm á lengd með krók á enda skaftsins.
Minjasafn 596
Gripur nr. 596. Áldunkur notaður til að geyma í kökur og smábrauð. 16 cm djúpur og 64 cm að ummáli. Er með ofanífelldu loki.
Minjasafn 355 og 356
Gripur nr. 355. ísskauti af gömlu gerðinni. Trésóli með járnblaði og leðurreimum. Gefandi: Elísabet Árnadóttur Réttarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 231
Gripur nr. 231. Sykurkar með tveim stuttum, útstandandi eyrum og loki. Karið er hvítt með gulu og brúnu munstri efst á barmi. Hæð 11 cm en ummál 33 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 623
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn til vinstri, í brúna jakkanum, er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Hægra megin við hann, í bláum jakka með sixpensara og hendur í vösum, er Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) frá Árnesi. Maðurinn á miðri mynd, í brúnum jakka og lútir höfði, er líklega Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Konan í köflóttu skyrtunni fremst á myndinni er Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) frá Valhöll. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 058
Myndin var tekin um borð í einum af togurum Skagstrendings hf af mönnum frá Vélaverkstæðinu við vinnu sína. Fremst á myndinni er Friðvin Ingi Ernstson hjálparkokkur, næst er Guðjón Árnason og aftast er Ari Þórsson.
Höfðaskóli040
Börn fædd 1993 í 5. bekk Höfðaskóla veturinn 2003-2004. Aftasta röð frá vinstri: Elísabet Anna Einarsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, Alex Már Gunnarsson og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir. Miðröð frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir kennari, Sara Rut Fannarsdóttir og Halla Björk Víðisdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Andrea Björk Kristjánsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Minjasafn 458
Gripur nr. 458. Hangandi ljósakróna/skermur úr efni/líni, bleik og rauð með bleikum blómum. Festingin er rauð.
Höfðaskóli092
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1965 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Rögnvaldur Ottósson, Óli Axel Óskarsson, Guðrbjartur Sævarsson, Valdimar Viggósson, Hjörtur Sigurðsson, Jens Jónsson og Sigurður Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Magnús B. Jónsson kennari, Björk Sveinsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Margrét Ólafsdóttir.
Minjasafn 310
Gripur nr. 310. Eldhúsáhöld. Eftirlíking af gömlum eldhúsáhöldum. Þau eru öll til að hengja upp og fylgir upphengi. Þetta eru gaffall, skeið, fiskispaði og lítil ausa. Þetta er allt úr járni og svart á lit. Merkt: <strong>Taiwan</strong> að aftan. Keypt í Kolaportinu í Reykjavík 30 nóvember 1994 af gefanda. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í nóvember 1994.
Höfðaskóli015
Þessir nemendur Höfðaskóla fæddust 1953. Í fremstu röð eru frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson í Skeifunni, Halla Júlíusdóttir Höfðabergi, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Edda Þórarinsdóttir Höfðaborg og Karl Guðmundsson í Skeifunni. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson Akurgerði, Gísli Bergsson Hólanesi, Jón Geir Jónatansson Höfðabrekku, Jón Jósefsson Reykholti, Finnur Kristinsson Héðinshöfða og Guðmundur Kristinsson Bræðraborg. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Böðvar Jónsson Sænska húsinu, Ólína Bjarnadóttir Bjarnarhöfn, Gylfi Jóhannsson Lækjarbakka og Sveinn Másson Réttarholti. Myndina tók Þórður Jónsson.
Minjasafn 363
Gripur nr. 363. Kakóbaukur úr áli með loki. Hliðarnar eru 2 x rauðar og 2 x bláar. Myndskreytt "Droste´s cacao".
Minjasafn 633 JPG
Gripur nr. 633. Ullarteppi, hvítt með brúnu, gráu og svörtu munstri.
Minjasafn 590
Gripur nr. 590. Skyrdallur? - eins og gripur nr. 357 (mynd 7651). Líkist lítilli hálftunnu úr tré. Er með tveimur járngjörðum utan um sig en þær eru orðnar lausar. Líklega skyrdallur.
Minjasafn 554
Gripur nr. 554. Gamall hitamælir á tréplatta.
Höfðaskóli014
Þessi mynd var líklega tekin þegar Höfðaskóli varð 60 ára árið 1999. Til vinstri er Jón S. Pálsson, skólastjóri 1966 til 1986, í miðjunni er Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), sem starfaði við Höfðaskóla í yfir 50 ár, og til hægri er Ingibergur Guðmundsson skólastjóri 1991 til 2005.
Minjasafn769
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Hér er verið að keppa í reiptogi. Maðurinn næst okkur á kaðlinum er Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) á Flankastöðum næsti er óþekktur, en síðan kemur Guðmundur Jóhannesson frá Garði, þá óþekktur en sá fimmti frá okkur er Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) Viðvík og Höfðatúni. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Höfðaskóli074
Börn fædd 1984 í 5. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Hermann Freyr Guðjónsson, Guðni Már Lýðsson og Jóhanna Jónsdóttir kennari. Fremri röð frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Leó Kristberg Einarsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Minjasafn 232
Gripur nr. 232. Öskubakki, hvítur með gylltri rönd á barmi og er skútumynd á botninum og áletrunin: Built in 1851. Þvermál 15,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1995.
Höfðaskóli010
Páll Leó Jónsson, skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991, og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, á kennarastofunni á spjalli. Myndin var tekin vorið 1989 þegar "vinnuvika" stóð yfir í skólanum.
Minjasafn 386
Gripur nr. 386. Mótaður steinplatti. Hringlaga og kúptur.
Óþekktur ljósmyndari373
Þetta fólk hefur áð á ferðalagi sínu til að borða nestið sitt. Líklega var myndin tekin í Borgarvirki en ekki er vitað hvenær. Konan í grænleita jakkanum, ofarlega fyrir miðju á myndinni, er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Konan sem situr til hægri í blárri kápu er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Sigurður Bjarnason - safn 034
Gísli Magnússon, maður Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi, með óþekktum börnum á jólum.
Minjasafn 275
Gripur nr. 275. Stórt fiskfat með blárri rönd á barminum og annarri aðeins neðar. Fatið hefur verið spengt á þremur stöðum og er í sundur. Áreiðanlega mjög gamalt. 41 cm á lengd og 34 cm breitt. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 520
Gripur nr. 520. Hvítt ílangt fat úr tré, skreytt með rauðum blómum í miðjunni á botninum.
Minjasafn 519
Gripur nr. 519. Skrautskál úr bláleitu gleri með skornu munstri. Stendur á fæti í sama stíl.
Árni Geir Ingvarsson - safn 491
Helga Björg Hu 7 kemur heim úr grásleppuróðri. Fremst í stafninum stendur Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) vélstjóri en aftar er Gylfi Sigurðsson stýrimaður. Í brúnni er svo Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) (Daddi) skipstjóri. Þeir félagar þrír áttu Helgu Björgu saman og gerðu hana út í mörg ár.
Höfðaskóli - safn 139
Börn fædd 1987 í skólastofunni á venjulegum skóladegi í Höfðaskóla. Frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir (fjær), Rósa Björk Einarsdóttir (nær), ?Ásdís Adda Ólafsdóttir?, Björn Viðar Jóhannsson (fjær),Kristinn Andri Hjálmtýsson (nær), Hanna Rúna Gestsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson.
Minjasafn 628 no2
gripur nr. 628. Remington ritvél, stór og þung. Er svört og dálítið ryðguð.
Minjasafn731
Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aftan á myndinni stendur: <em>"Hjónin Skafti Fanndal Jónasson og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir. Skafti fæddur á Fjalli Skaga. Jóna ólst upp í Ásbúðum Skaga".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, í júlí 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 051
Þessir þreytulegu menn fá Vélaverkstæðinu eru við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Mennirnir eru frá vinstri talið: Gísli Snorrason, Ernst Berndsen vélstjóri, Ari Þórsson og Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006).
Minjasafn 543
Gripur nr. 543. Fiskispaði úr áli.
Minjasafn 571
Gripur nr. 571. Útvarp. Grænt og hvítt með haldi, sem er fest í hliðum útvarpsins.
Minjasafn 70
Gripur nr. 70. Smellurammi með fimm gömlum kvittunum/reikningum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 513
Þorvaldur Skaftason, lengst til vinstri, aðstoðar Axel Jóhann Hallgrímsson (snýr baki í okkur) og Sigurbjörn Björgvinsson, við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Sigurður Bjarnason - safn 045
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur en síðan koma systkini frá Bjargi á Skagaströnd: Jóhann Skagfjörð Bjarnason (d. 14.9.2015), Anna Bjarnadóttir og ?Ingólfur Skagfjörð Bjarnason? (d. 17.1.1967). Ef þú þekkir óþekkta manninni og/eða getur staðfest að maðurinn lengst til hægri sé Ingólfur, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 75
Gripur nr. 75. Smellurammi með þremur myndum. Af gömlu kirkjunni að Spákonufelli. Hafís á Skagaströnd og af fólki við verslunarhús á Skagaströnd.
Minjasafn 647
Gripur nr. 647. Lukt, "Original Petromax rapid" gerð úr járni. Olíulukt 31 cm á hæð. Vantar glerið.
Minjasafn 516
Gripur nr. 516. Pínulítill bakki með óþekktu notagildi. Bakkinn er hvítur með gyllingu á kanti og litlum, upphleyptum, bleikum blómum fyrir miðju.
Minjasafn 472
Gripur nr. 472. Hvít postulínsklukka til að hengja á vegg. Tölustafirnir og vísarnir eru brúnir.
Minjasafn723
<p>Hjónin Hannes Jónsson frá Spákonufelli og Sigurborg Sigurðardóttir kona hans. Aftan á þessari mynd stendur: <em>Hannes Jónsson frá Spákonufelli f. að Eiðsstöðum í Blöndudal 13/7 1882 d. í Hafnarfirði 17/6 , 1960 kona hans. Sigurborg Sigurðardóttir f. 13/11 1892. d. í Kópavogi. ?. </em>Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Minjasafn 268
<p>Gripur nr. 268. Skurðbretti úr leir með bláu einlitu munstri. Gat er á endanum til að hengja brettið upp á. Lengd 20 cm og breidd 11 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efra-Læk, Skagaströnd.</p>
Minjasafn 584
Gripur nr. 584. Mjólkurbrúsi 28 cm á hæð og 57 cm að ummáli. Er með loki og haldi.
Óþekktur ljósmyndari375
Sigurður Jónsson í Fjallsmynni með kisa sinn á öxlinni. Sigurður er einn af fáum sem hefur köttinn sinn í bandi og fer reglulega í gönguferðir með hann um nágrennið. Kisi fær aldrei að fara einn út á lífið.
Minjasafn 620
Gripur nr. 620. Jólaljósasería mjög gömul. Litlir skermar á öllum perunum og þeir eru gulir, rauðir, grænir, bleikir, bláir og hvítir. Á skermunum eru mismunandi myndir. Gefandi: Rósa Björg Högnadóttir Miðnesi, Skagaströnd í maí 1995.
Minjasafn 629
Gripur nr. 629. Ljósriti "Dry Photo Copier 051" drappaður á litinn. Gefandi: Ragnhildur ?? 16. maí 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 539
<p>Skíðadeildin á Skagaströnd hafði mjög gott samband við jólasveinana. Á hverju ári tóku félagar deildarinnar að sér að taka við pökkum og kortum fyrir þá fjallabræður en þeir komu síðan til byggða og báru út í húsin í bænum rétt fyir jól. Á þessari mynd hafa þeir bræður fengið Eðvarð Hallgrímsson til að hjálpa sér með því að keyra þá um bæinn á jeppa sínum. Jólasveinarnir þurftu sannarlega ekki að kvarta undan áhugaleysi yngstu kynslóðarinnar því yfirleitt fylgdi hópur barna þeim bræðrum um bæinn. </p>
Minjasafn 594
Gripur nr. 594. "Keystone" hakkavél/matarkvörn úr stáli. Hægt að skrúfa fasta á borðbrún. Biti var settur í trekt efst á vélinni síðan var sveifinni snúið og þá kom bitinn hakkaður út um framenda vélarinnar.
Minjasafn791
<p>Báturinn frammi við bryggjuendann er Vísir Hu 10 í eigu Jósefs Stefánssonar (d. 9.12.2001), Jóns Stefánssonar (d. 3.8.1991) og Sigurðar Árnasonar (d. 26.3.2013). Fyrir aftan Vísi er líklega Svanur Hu 4 sem var í eigu bræðranna Baldurs Árnasonar (d. 14.11.2009) og Júlíusar Árnasonar (d. 24.3.1985) en seinna í eigu feðganna Þórhalls Árnasonar (d. 4.2.2008) og Árna Ólafs Þórhallssonar. Utan á honum er líklega Jóhanna Eldvík Hu í eigu Viggós Maríussonar (d.30.7.1973). Í baksýn er síldarverksmiðjan og athafnasvæði hennar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi:Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.</p>
Höfðaskóli061
Börn fædd 1985 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri, Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, Eva Rún Rúnarsdóttir, Birkir Rúnar Jóhannsson og Jenný Lind Sigurjónsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir), Eva Dögg Bergþórsdóttir, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson og Lýður Ragnar Arason.
Minjasafn 653
Gripur nr. 653. Rafmagnslampi sem búið er að skreyta með skeljum og kuðungum.
Minjasafn 502
Gripur nr. 502. Græn askja sem á stendur: "Sprauta. Bólusetning. Garnaveiki.". Í öskjunni er svo sprauta sem er skrúfuð saman og liggur í bómull.
Minjasafn779
Horfið hús. Garður, sem stóð við núverandi Skagaveg. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 558
Gripur nr. 558. Tréhefill, gamall.
Minjasafn 425
Gripur nr. 425. Málverk af Bjarmanesi (Gamla skólanum) eftir Óskar Inga Óskarsson. Verkið sýnir húsið, séð frá suð-austri, eins og það leit út fyrir endurbyggingu á því þar sem m.a. tröppurnar og bísalagið á austurhliðinni voru fjarlægt.
Minjasafn 436
Gripur nr. 436. Lítill einfaldur járn-kertastjaki útataður í vaxi.
1
…
114
115
116
…
167
Leita í myndasafninu
Leita