Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 624
Gripur nr. 624. Plasttré á fæti (blómapotti). Þjappað af rauðum og hvítum plastblómum. Gulllitaðar kúlur eru innan í blómunum.
Minjasafn 513
Gripur nr. 513. Skeljaskraut. Hangandi "órói" sem hefur vafna körfu á toppnum og síðan hanga margar skeljar niður úr körfunni. Einnig er snæri sem búið er að vefja skeljum á.
Höfðaskóli095
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1951 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Karl Lúðvíksson, Ísleifur Þorbjörnsson, Sveinn S. Ingólfsson kennari, Fritz Magnús Bjarnason, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Sævar Hafsteinsson. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Rúnar Jósefsson, Ólafur Halldór Bernódusson, Bergur Jón Þórðarson, Sigurður Kristinsson og Reynir Sigurðsson. Fremsta röð frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Kristín Björnsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Björn Bragi Sigmundson.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Höfðaskóli - safn 248
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla vorið 1986. Frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Ólafur Bernódusson og Jón S. Pálsson skólastjóri.
Sigurður Bjarnason - safn 028
Sigfús Björnsson (d. 3.6.1949) sem var til heimilis á Bjargi.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Smiðirnir Einar Haukur Arason til vinstri og Axel Jóhann Hallgrímsson til hægri vinna við að skipta um þak á Vélaverkstæði Skagastrandar - eldri hluta.
Sigurður Bjarnason - safn 021
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 608
Gripur nr. 608. Ferðataska úr leðri gráleit með svörtu haldi úr plasti. Stórar læsingar sitt hvoru megin við haldið. Merkispjaldið ennþá fast við haldið.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 013
Óli Hjörvar Kristmundsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 211
Bára þorvaldsdóttir leiðbeinir Þóri Óskari Björnssyni við vinnu sína í Höfðaskóla í nóvember 1999.
Minjasafn774
Verslunarhús Kaupfélags Skagstrendinga, sem stendur við Einbúastíg á Skagaströnd, en hefur nú annað hlutverk en verslun. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1.desember 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 637
Þessi mynd sýnir útbæinn á Skagaströnd. Fremst á myndinni er olíutankur sem nú er horfinn. Yfir hann sér í langa brúna húsalengju. Þetta hús var samsett úr allmörgum einingum sem komu til Skagastrandar frá Kröfluvirkjun þar sem þau voru notuð sem vinnubúðir. Það sama gilti um húsin á Skagaströnd því í þeim bjuggu menn sem voru að vinna við breytingaframkvæmdir við síldarverksmiðjuna. Örlög hússins urðu þau að það kviknaði í þeim eina nóttina og brunnu þau að hluta en íbúarnir og gestir þeirra sluppu ómeiddir á síðustu stundu. Heillegu húseiningarnar voru svo seldar nokkrum aðilum sem fjarlægðu þær af staðnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 006
Ari Þórsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar í viðhaldsvinna í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 120

Erla María Lárusdóttir útskrifast úr 10. bekk Höfðaskóla 31. maí 1996. Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri afhendir henni einkunnir sínar og rós í tilefni dagsins. Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Rakel Petrea Finnsdóttir fylgjast með í baksýn.

Höfðaskóli - safn 122
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Aftar eru frá vinstri: Jón Atli Magnússon og Arnór Snorri Gíslason. Nær okkur frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Ómar Ísak Hjartarson.
Sigurður Bjarnason - safn 016
Þessi mynd hefur sennilega verið tekin um jólin 1967 eða áramótin 1967/68 líklega í eldhúsinu á Breiðabliki. Vinstra megin við borðið eru Fritz Magnús Bjarnason í hvítri skyrtu og Ísleifur Haraldsson. Við borðsendann er húsmóðirin Rósa Pálsdóttir (d. 1.5.2002). Hægra megin við borðið er Friðbjörg Oddsdóttir með börnum sínum Sigurjóni Ingólfssyni og Rósu Björg Ingólfsdóttur.
Minjasafn 630
Gripur nr. 630. Lítill, svartur talsími með handfangi.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 070
Þessi mynd var tekin í skíðaskálanum á Skagaströnd þegar starfsmenn Vélaverkstæðisins og rafmagnsverkstæðisins Neistans gerðu sér glaðan dag með mökum sínum og grilluðu saman við skálann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson Vélaverkstæðinu, Hjalti Reynisson Neistanum, Guðlaug Grétarsdóttir, Óli Axel Óskarsson Vélaverkstæðinu, Jón Ólafur Sigurjónsson Vélaverkstæðinu, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson Neistanum, Lilja Ingólfsdóttir og Ernst Berndsen Vélaverkstæðinu. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Skúladóttir, Gísli Snorrason Vélaverkstæðinu, Þórunn Óladóttir, Steinunn Berndsen Vélaverkstæðinu, Þórey Jónsdóttir, Björn Hallbjörnsson Neistanum og Ari Þórsson Vélaverkstæðinu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 046

Á þessari mynd er verið að "taka það" þ.e. draga trollið inn, að þessu sinni með góðum kolmunnaafla. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1. Maðurinn lengst til hægri er Óskar Þór Kristinsson en hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir. Pokinn á trollinu var leystur frá og Börkur NK tók pokann og dældi úr honum. Síðan var pokanum skilað og trollið gert klárt á ný. Í þessum túr bilaði bakborðs togvindan og
farið var í að skipta um togvindur. (Heimild: Guðmundur Henry Stefánsson)

Höfðaskóli - safn 203
Sigurbjörg Jónasdóttir við vinnu í Höfðaskóla. Myndin var tekin kringum 1990.
Höfðaskóli - safn 170
Ólafur Bernódusson kennari við Höfðaskóla niðursokkin við að færa einkunnir nemenda inn á einkunnaspjöld þeirra. Myndin var líklega tekin vorið 1990.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 028
Stund milli stríða í borðsalnum í Arnari Hu 1. Frá vinstri: Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014).
Árni Geir Ingvarsson - safn 498
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af heiðursmönnunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) frá Jaðri til vinstri og Skafta Fanndal Jónassyni (d. 2.9.2006) í Lundi við vinnu sína.
Höfðaskóli082
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1971 ásmt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Viggó Magnússon, Óskar Hjaltason, Baldur B. Eðvarðsson, Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hans Birgir Högnason og Ægir Jónsson. Miðröð frá vinstri: Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Anna Þóra Birgisdóttir, Magnús B. Jónsson kennari, Hafdís Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Elín Rafnsdóttir, Helga Heiða Helgadóttir og Dagbjört J. Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 632
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) situr með Árna Geir Ingvarsson, ömmustrákinn sinn, í fanginu. Myndin var tekin seint á sjöunda áratugnum.
Skagaströnd - safn 423
Þetta hús, Dagsbrún, stóð nokkurn vegin þar sem nú er stjórnsýsluhúsið við Túnbraut 1-3. Síðustu íbúar hússins voru Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og Ólína Hjartardóttir (d. 27.7.1983) með börnum sínum .
Sigurður Bjarnason - safn 005
Sigurður Skagfjörð Bjarnason á fermingardaginn sinn í gömlu Hólaneskirkju árið 1961.
Höfðaskóli058
Börn fædd 1992 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Þórður Indriði Björnsson, Ingibjörg Elín Jónasdóttir kennari, Laufey Inga Stefánsdóttir, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir og Þórir Óskar Björnsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Aron Bender, Kristján Ýmir Hjartarson og Alexander Ragnarsson.
Höfðaskóli086
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1970 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Davíð Reynisson, Jóhann Ásgeirsson, Elísabet Hallbjörnsdóttir og Jón Arnarson. Fremri röð frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Katrín B. Sigurjónsdóttir, Jón S. Pálsson skólastjóri, Herdís Jakobsdóttir og Rakel Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 567

Auðbjörg Hu 6 var gerð út frá Skagaströnd frá árinu 1977 þar til henni var komið fyrir á hliðargarði í dráttarbrautinni 1998. Þar stóð hún svo ósköp umkomulaus í ein 11 ár til ársins 2009 þegar hún var rifin og fjarlægð.

Árni Geir Ingvarsson - safn 626
Sveinn Ingi Grímsson. Myndin var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Minjasafn 644
Gripur nr. 644. Handskófla úr áli ca 40 cm á lengd. Úr Kaupfélagi Skagastrandar. Gefandi: Elsa Stefánsdóttir Efri- Lækjardal, Engihlíðarhreppi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn091
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Minjasafn708

Horfið hús, Sæborg eða Góubærinn, stóð við Oddagötu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1984 af Guðrún Þ. Guðmundsdóttur.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 027
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) lætur líða úr sér á bekknum um borð í Arnari Hu 1.
Minjasafn754
Aftan á þessari mynd stendur: "Árni Svanberg Jónsson f. 15/1 1919. í Kambakoti d. á Vífilsstaðahæli 14/4 1957."  Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli072
Börn fædd 1983 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Adolf Þór Lúðvíksson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Loftur Árni Björgvinsson, Magnús Líndal Þrastarson og Skúli Már Matthíasson. Miðröð frá vinstri: Sóley Ægisdóttir kennari, Guðlaugur Már Briem, Elva Mjöll Þórsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson og Sólveig Kristjánsdóttir kennari. Fremsta röð frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Örn Ernstson, María Markovic, Gunnar Helgason og Jón Gunnar Einarsson.
Höfðaskóli - safn 148
Þessi mynd sýnir nokkra nemendur Höfðaskóla í hópavinnu á leiklistarnámskeiði líklega 1997 eða 1998. Frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Hermann Freyr Guðjónsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Guðni Már Lýðsson.
Minjasafn 395
Gripur nr. 395. Nokkrar netanálar saman í poka.
Minjasafn 627
Gripur nr. 627. Kartöflustappari með grænu haldi.
Höfðaskóli - safn 262
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007) sem var kennari og starfsmaður Höfðaskóla í fimmtíu ár.
Sigurður Bjarnason - safn 011
Friðbjörg Oddsdóttir með börn sín, Rósu Björgu Ingólfsdóttur og Sigurjón Ingólfsson. Myndin var líklega tekin um jólin 1967.
Höfðaskóli036
Börn fædd 1975 í 8. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Svanur Árnason, Vilborg Jóhannsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari. Miðröð frá vinstri: Linda Rós Rúnarsdóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Særún Níelsdóttir, Jóhannes Óskarsson, Áslaug Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007), Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson, Börkur Árnason og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 079
Á þessari gömlu mynd eru starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen við vinnu utan við verkstæðið. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Viggó Brynjólfsson og Hjörtur Guðbjartsson.
Höfðaskóli - safn 309

Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. M.a. gisti hópurinn á tjaldsvæði í nokkrum húsum eins og sést á myndinni. Á þessari mynd eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri (í dyragættinni), Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Karen Peta Karlsdóttir og Þóra Lísebet Gestsdóttir.

Minjasafn 553
Gripur nr. 553. Tréskófla líklega notuð til að moka mjöli, sykri eða einhverju þvílíku við matargerð eða bakstur.
Minjasafn 606
Gripur nr. 606. Ferðataska, ljósgrátt og grátt "netmunstur". Með svörtu haldi og svörtum plasthlífum á hornum. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið, dálítið ryðgaðar.
Sigurður Bjarnason - safn 025
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 112
María Markovic til vinstri og Tinna Gunnarsdóttir til hægri vinna saman í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin um miðjan tíunda áratuginn.
Höfðaskóli029
Börn fædd 1981 í 2. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Hallgrímur Axelsson, Birkir Rafn Gíslason, Álfheiður Guðmundsdóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir og Tinna Ómarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Kristrún Linda Jónasdóttir, Hjálmur Gunnarsson, Bæring Jón Skarphéðinsson, Hinrik Þór Oliversson, Davíð Bragi Björgvinsson, Áslaug Ottósdóttir og Heiðrún Ósk Níelsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Margrét Harðardóttir kennari, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Trausti Magnússon, Sverrir Brynjar Berndsen, Inga Valdís Heimisdóttir og Birna Ágústsdóttir.
Minjasafn 660
Gripur nr. 660. Fimm hljómplötur eftir Hallbjörn J. Hjartarson.
Minjasafn 354
Gripur nr. 354. Tré-þvottaklemmur af gamla laginu. Sex stykki.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 007

Óli Axel Óskarsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.

Sigurður Bjarnason - safn 037
Friðbjörg Oddsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 026

Slakað á í borðsalnum á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Níels Grímsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 081
Valdimar Viggósson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 076
Þessir menn unnu saman á Vélaverkstæði Karls og Þórarins, sem var rekið í mörg ár í gömlum bragga sem stóð austan við Lækjarbakka við Strandgötu. Mennirnir eru frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Árni Max Haraldsson (d.6.12.1976), Gunnar Albertsson og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985).
Höfðaskóli079
Börn fædd 1981 í 8. bekk Höfðaskóla veturinn 1994-1995 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson og Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri. Fremri röð frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Birna Ágústsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, Ragna hrafnhildur Magnúsdóttir og Sverrir Brynjar Berndsen.
Minjasafn 665
Gripur nr. 665. Stór glerkrukka með glerloki. Sía fylgir með ofan í krukkunni.
1

120
121
122

167
Leita í myndasafninu
Leita