Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 333
Þessi mynd er merkt með: "Ólafur Björnsson Syðra-Hóli, Ögmundur Magnússon Sauðárkróki". Ögmundur (d. 9.8.1968) var söðlasmiður á Sauðárkróki. Ólafur (d.10.10.1972) var frá Syðra-Hóli bróðir Magnúsar Björnssonar (d. 20.7.1963) bónda og fræðimanns þar. Myndin var tekin 1912 á Sauðárkróki en þá var Ólafur Björnsson 25 ára.
María Magnúsdóttir - safn 332
Við þessa mynd er skrifað: "Jóhanna Hjálmarsdóttir frá Fjalli til vinstri". Jóhanna óslst upp á Fjalli á Skaga hjá Jóhönnu og Ögmundi sbr. "Búsæld og barningur" bls 46-47. (ýmsir höfundar). Hún flutti til Ísafjarðar og giftist Eiríki Brynjólfi Finnssyni en lést af barnsförum 29.4.1905.
Höfðaskóli - safn 333
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd sýna nemendur dans en það var eitt af atriðunum sem voru í boði þennan dag. Frá vinstri: óþekkt, Andrea Kristjánsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir (fjær), óþekktur Reynisson, óþekktur Reynisson, Hanna Rúna Gestsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 336
Þessir nemendur Höfðaskóla unnu í samkeppni um áróðursefni fyrir reykleysi á vegum Tóbaksvarnarnefndar. Verðlaunin voru ferðalag til Danmerkur, sem þessir krakkar fóru í um vorið. Myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Aftari röð frá vinstri: Kristinn Andri Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Björn Viðar Jóhannsson, Rósa Björg Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 672
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum er sungið af krafti. Frá vinstri: Hafþór Gylfason, Kristín Kristmundsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 158
<p>Þrír frumkvöðlar að stofnun Skagstrendings hf 1968 séðir með augum listamannsins Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010). Fram í stafni situr Karl Berndsen (d.12.2.1995), Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) sér um viðhald á mastrinu og Sveinn Ingólfsson stýrir fleyinu með öðrum fæti.</p>
María Magnúsdóttir - safn 086
Á myndinni eru hreppsnefndarmenn Vindhælishrepps á hlaðinu á Syðra Hóli. Frá vinstri: Þórarinn Þorleifsson (d.24.4.1973) Skúfi , Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) Syðri Ey, Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) Syðra Hóli, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra Hóli og Ingvar Pálsson (d.18.10.1968) Balaskarði. Myndina tók María Magnúsdóttir en ekki er vitað hvenær.
María Magnúsdóttir - safn 178
Þessi mynd var tekin af fjölskyldu í Vesturheimi. Aftan á henni stendur: "Eldri sonur minn. Hermann Clifford. Kona hans og börn".
María Magnúsdóttir - safn 065
Óþekktur maður á hestbaki í túninu við Syðri Hól, sem er í baksýn. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 655
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Einar Haukur Arason, Dagný Sigmarsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson með rauðan gítar, Þórey Jónsdóttir, Fannar Viggósson spilar á bassa, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaugur Hjaltason spilar á gítar, Kristjana Jóhannsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Elías Árnason við hljómborðið. Ártalið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson594
Þessir óþekktu unglingar úr vinnuskólanum nýttu kaffitímann sinn í góðu veðri uppi á Einbúanum. Vonandi hafa þau ekki raskað neinu á Einbúanum því ef það er gert er yfirvofandi reiði huldufólksins sem þar býr. Myndin var tekin í júní 1997.
Héraðsskjalasafn A-Hún 118
Brautarholt á Skagaströnd. Húsið stóð nokkurn vegin þar sem Fellsbraut 9 er í dag eða við hól sem þar er og kallast Kíkishóll vegna útýnis af honum út á sjó áður en byggðin fór að skyggja á. Fólkið á myndinni er líklega Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985 ) og kona hans Þuríður Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) en þau bjuggu í Brautarholti.
Ólafur Bernódusson612
Hallbjörn Hjartarson, sem gaf sér listamannsnafnið "Kúreki Norðursins", að skemmta fólki á kántrýhátíð í ágúst 2001.
María Magnúsdóttir - safn 149
Aftan á þessa mynd er skráð: "Hópurin minn, ekki allur samt. Some of John Hillman´s family. Granddaughter Ruth. Dóttur Marilyn. Dóttur June, hired man, Clifford´s wife - Deemie, John´s kona Dora, granddaughter Lois, dottir Johanna. Kona Viola + son Elmer. Evarta Alberta Canada 1945?".
María Magnúsdóttir - safn 246
Þessi mynd var sennilega tekin suður undir vegg á Syðra-Hóli en ekki er vitað hvenær. Aftast stendur Ragnheiður Björnsdóttir frá Syðra-Hóli, ljósklædda stúlkan er Ásdís Magnúsdóttir Syðra-Hóli en minnsta stúlkan er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 310
Ólafur Bernódusson kennari stjórnar fjöldasöng nemenda úr unglingadeild Höfðaskóla líklega á Úlfljótsvatni sem var gististaður á skólaferðalagi um suðurland. Þekkja má meðal nemendanna Dagný Sigmarsdóttur í rauðri peysu á miðri mynd og Rannveig Jónsdóttir er við hlið hennar með töluna 8 á peysunni sinni. Yfir olnbogann á Ólafi má sjá hálft andlit Magnúsar B. Jónssonar kennara en aðrir á myndinni eru óþekktir. Lengst til hægri á myndinni má sjá spilað undir á gítar. Líklega er það Guðmundur Jónsson sem spilar.
Fisk Seafood - safn 123
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur annars eru á myndinni, talið frá vinstri: Jón Helgason, Gunnar Sveinsson, Heiðdís Sigurðardóttir, Marías Bjarni Viggósson, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson og Sigrún Lárusdóttir. Við borðið í horninu til hægri eru Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Árdís Indriðadóttir, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) og Guðrún Angantýsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 262
Engar upplýsingar eru um þetta fólk. Myndin virðist hafa verið tekin erlendis samkvæmt stimplinum neðst til hægri. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 033
Þessi mynd af Gunnari Jóni Jónssyni í Asparlundi var sennilega tekin af honum á fermingardaginn hans 1970.
Fisk Seafood - safn 107
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Unga fólkið við borðið næst okkar er, frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Ragnar Ingvarsson, Kristín Jónsdóttir, Karl Berndsen og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 231
Þessir menn sóttu Örvar Hu 14 til Noregs í desember 1970 fyrir Skagstrending hf. Frá vinstri: Högni Jensson kokkur, Eiður Hilmarsson vélstjóri, Jóhann Baldvinsson vélstjóri, Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Árni Geir Ingvarsson - safn 658
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Fannar Viggósson, Einar Haukur Arason, Dagný Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Kristjana Jóhannsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Fisk Seafood - safn 119
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Gunnar Sveinsson, Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Jón Helgason, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011)(nær), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) (fjær), Bára Þorvaldsdóttir (næst), Guðrún Angantýsdóttir (í miðið) og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) (fjærst).
María Magnúsdóttir - safn 269
Þessi fallegu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 341
Sigurlaug og Þórdís Jónasdætur.
María Magnúsdóttir - safn 069
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson á reiðhjóli. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1955.
María Magnúsdóttir - safn 247
Þessi mynd eftir Kaldal er af Helga Haraldssyni Litla Bergi Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 238
Óskar Þór Kristinsson var einn tryggasti sjómaður Skagstrendings hf um áratuga skeið. Hér er hann um borð í vinnugallanum að bíða eftir að trollið komi úr kafinu. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Ólafur Bernódusson 560
Myndin var tekin af börnum á leikjanámskeiði ungmennafélagsins Fram einhverntíma kringum 1982. Börnin eru frá vinstri: Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir?, Jóney Gylfadóttir, Svanur Árnason, Jóna Sigurðardóttir (aftar), óþekkt stúlka (framar), Þröstur Árnason, Óli Hjörvar Kristmundsson (aftast), óþekktur (í miðið), Ragna Fanney Gunnarsdóttir (fremst), Hallgrímur Oddsson (aftast), Kristján Gunnar Guðmundsson (í miðið), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fremst), óþekkt, Baldur Magnússon? (aftast), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (fremst), Óskar Ingi Þórsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Árný Helgadóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Hugrún Sigurðardóttir, Baldur Eðvarðsson, Theódór Karlsson, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Atli Þórsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Gunnar Halldór Hallbjörnsson. Ef þú þekkir einhver af óþekktu börnunm á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 244
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 150
Aftan á þessari mynd stendur: " Marilyn ýngsta dóttir mín. Jón Hermansson´s Hillman dóttur. 1950? Alberta".
Fisk Seafood - safn 098
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Í forgrunni myndarinnar eru hjónin Bjarney Valdimarsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson. Í baksýn frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, óþekkt, Jóninna Pálsdóttir, Kristófer Árnason (d.10.5.2000) og Björn Ingi Óskarsson.
Fisk Seafood - safn 104
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Vinstra megin við borðið nær okkur eru: Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Kristmundur Ingibjörnsson og óþekkt fólk. Hægra megin við borðið: Jón Jónsson (d.9.7.1991), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Lilja Bernódusdóttir og óþekkt fólk. Við hitt borðið má þekkja Gunnar Sveinsson og Bjarney Valdimarsdóttur. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson598
Stefán Jósefsson og Sigurjón Guðbjartsson skipstjórar og útgerðarmenn taka þátt í fundi með æðstu mönnum Hafrannsóknarstofnunar á Skagaströnd 16. október 2001. Báðir vita þeir mikið um fiskinn í sjónum og eru ekki alltaf sammála túlkun Hafró á rannsóknum á lífríki sjávarins.
Fisk Seafood - safn 230
Um borð í togurum er unnið á vöktum. Þegar þessi mynd var tekin var unnið á 6 tíma vöktum og voru vaktaskipti á matmálstímum. Á myndinni eru að borða, frá vinstri: Jón Helgason, Jón Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Aftan við þá stendur Gunnar J. Jónsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
María Magnúsdóttir - safn 255
Samkvæmt því sem stendur á þessari mynd eru þetta systkinin frá Holti á Ásum, Björn Magnússon Syðra-Hóli og Margrét Magnúsdóttir.
Fisk Seafood - safn 143
Steinunn Grímsdóttir og Kristinn Guðmundsson unnu saman á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf. Hér eru þau í mat á hótel Dagsbrún, sem var á næstu hæð fyrir neðan skrifstofur fyrirtækjanna tveggja í stjórnsýsluhúsinu. Steinunn var lengi skrifstofustjóri hjá Skagstrendingi hf en Kristinn gegndi sama hlutveki hjá Hólanesi hf.
Fisk Seafood - safn 217
Bjarki Gunnarsson vélamaður við vinnu að endurbótum í Rækjuvinnslunni á árinu 2003 eða 2004.
Óþekktur ljósmyndari 395
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar komið á staðinn og verið að leggja út slöngur í bílinn sem glittir í niður í fjörunni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari 383
Myndin var tekin af kappróðri á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þá var róið frá bryggjunni milli Ásgarðs og Miðgarðs og endað fram af enda Skúffugarðs. Róðurinn er kominn á endasprettinn því belgurinn sem sést fyrir framan bátana afmarkar endamarkið. Yfir bátana má sjá þurkhjalla sem stóðu á Hólanesinu við hlið fiskvinnslunnar þar.
Hérðasskjalasafn A-Hún 2
(Lilja) Þuríður Jakobsdóttir (1880 - 19.7.1965) Brautarholti á Skagaströnd. Þuríður var kona Ólafs Guðmundssonar (d.6.10.1985) í Brautarholti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 643
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri. Á þessari mynd er hópur fólks að æfa heimatilbúin skemmtiatriði fyrir blótið. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Hjörtur Guðbjartsson, Elías Árnason, Kristjana Jóhannsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Fannar Viggósson og Magnús B. Jónsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 166
Myndin var tekin 23. desember 1999 þegar áhöfnin á Arnari Hu 1 skálaði í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Á þessari mynd eru Sævar Berg Ólafsson í hvítri peysu og Víðir? hellir í glasið hjá honum. Aftan við Sævar sér í Hafþór Gylfason en aftan við Víði er Gunnar Þ. Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 651
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd eru Jóhanna Sigurjónsdóttir til vinstri og Kristín Birna Guðmundsdóttir til hægri að leggja á borð kvöldið fyrir blótið. Í baksýn sést séra Magnús Magnússon, sem var veislustjóri á blótinu, fylgjast með æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 264
Á þessari mynd stendur: " Svavar Ögmundsson og Sigurbjörg Sauðárkróki".
Fisk Seafood - safn 208
Unnið að endurbótum árið 2003 í Rækjuvinnslunni sem Skagstrendingur hf átti þá. Vinnslusalnum var umbylt með nýjum vélum og tækjum sem áttu að auka afköst og vera hagkvæmari en eldri tæki. Þegar framkvæmdum var lokið í febrúar 2004 var ákveðið, af nýjum eigendum fyrirtækisins, Fisk Seafood ehf, að loka Rækjuvinnslunni og taka hin nýju tæki niður aftur og nýta þau í vinnslum fyrirtækisins í Grundarfirði og á Hólmavík. Á myndinni vinna starfsmenn Rækjuvinnslunnar að því að koma hluta nýju tækjanna fyrir. Frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Vilhjálmur Skaftason (fjær), Gunnar Stefánsson (nær), óþekktur og Jón Oddur Hjálmtýsson.
María Magnúsdóttir - safn 102
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) með ömmu- eða langömmubarn við skírn barnsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 206
Örlygsstaðir II í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 149
Stjórn og framkvæmdastjóri Skagstrendings hf árið 2000. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þórður Magnússon, Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri, Adolf H. Berndsen stjórnarformaður, Egill Tryggvason og Einar Benediktsson.
María Magnúsdóttir - safn 161
Á þessa mynd er ritað: "Sigurður "stóri" Jóhannsson".
Fisk Seafood - safn 122
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á myndinni eru hjónin Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir.
Höfðaskóli - safn 381
Nemendur Höfðaskóla syngja saman lagið: "Ó, Borgin mín", eftir Hallbjörn Hjartarson við texta Kristjáns Hjartarsonar(d. 2.8.2003) Myndin var tekin einhverntíma kringum 1989 líklega í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Aftarlega í miðjum hópnum er Páll Leó Jónsson skólastjóri en hann var skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991. Síðan verður hver og einn að þekkja andlitin á myndinni.
Höfðaskóli - safn 272
Góður dagur í Höfðaskóla hjá þessum þremur ungu stúlkum í nóvember 1999. Fyrir framan er Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir til vinstri og Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 142
Hjónin Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir og Björn Einarsson sem bjuggu í Hillebrantshúsi á Blönduósi.
María Magnúsdóttir - safn 337
Á þessari mynd stendur skrifað: "Björn Gunnlaugsson maður Margrétar og synir". Líklega er hér átt við Margréti Magnúsdóttur frá Holti.
Fisk Seafood - safn 044
3. júní 1987 útskrifaðist hópur starfsfólks Hólaness hf sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Á myndinni afhendir Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) skírteinið sitt í samsæti sem haldið var af þessu tilefni.
Óþekktur ljósmyndari 397
1986 varð stórbruni í plastverksmiðjunni Mark hf. Þá brann allt sem brunnið gat í verksmiðjunni þar á meðal tveir bátar tíu og 15 tonna sem voru langt komnir í framleiðslu. Auk þess brann þriðji báturinn mikið en hann stóð úti upp við vegg hússins. Þess má geta að Mark endurbyggði verksmiðjuna og hélt framleiðslu áfram þar til þremur árum síðar 1989 því þá brann aftur í verksmiðjunni. Á myndinni er slökkvilið Skagastrandar að ná tökum á eldinum, sem var gríðarlegur. Ekki þótti óhætt að fara inn í húsið af því að þar voru gaskútar að springa og svo var húsið stálgrindahús og vegna hitans hefði það getað lagst saman hvenær sem var. Lengst til hægri er Sigurjón Ingólfsson, Gísli Snorrason er að ganga að húsinu en Vilhelm Jónsson er að ganga frá því. Aðrir eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðustól á sjómannadegi. Honum til aðstoðar er kynnir dagsins Jón Ingi Ingvarsson. Eins og sjá má hefur Pétur verið heiðraður með heiðurspeningi sjómannadagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 332
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er tískusýning í gangi en hún var eitt af atriðunum sem sýnd voru þennan dag. Frá vinstri: Sóley Elsa Blöndal, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Silfá Árnadóttir, Amy Ósk Ómarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson og Elva Ösp Gunnarsdóttir.
Fisk Seafood - safn 154
<p>Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá var slegið upp veislu í Fellsborg. Myndin sýnir hluta gesta í veislunni hlýða á ávarp óþekkts ræðumanns. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Aðalbjörg Helga Sigfúsdóttir, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðbjörg Ólafsdóttir, óþekktur maður með sólgleraugu, Lárus Ægir Guðmundsson, Páll Pétursson alþingismaður, Kári Kristjánsson (d.11.12.1990), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Hjalti Skaftason. Aðrir á myndinni eru óþekktir. </p>
1
…
133
134
135
…
167
Leita í myndasafninu
Leita