Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
María Magnúsdóttir - safn 031
Þessi systkini eru börn hjónanna í Asparlundi (Bogabraut 24), Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Maríu Magnúsdóttur (d. 2.2.2016). Systkinin eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Fjóla Jónsdóttir með Ragnar H. Jónsson í fanginu og Gunnar Jón Jónsson. Myndin var líklega tekin 1964 eða 1965.
María Magnúsdóttir - safn 154
Aftan á þessari mynd stendur: "Páll Arnljótsson Sauðárkrók sonur Sigurbjargar Pálsdóttur frá Bústöðum og Arnljóts Kristjánsson Hafgrímsstöðum".
María Magnúsdóttir - safn 329
Aftan á þessari mynd stendur :"Friðrik ?". Myndin var tekin af Daníel Davíðssyni á Sauðárkróki en annað er ekki vitað um manninn á henni. Ef þú veist hver Friðrik er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 155
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá tók fjölmenni á móti skipinu á hafnarbakkanum. Flestir Skagstrendingar áttu hluti í Skagstrendingi hf og því um leið hlut í hinu nýja skipi. Því má leiða rök að því að meirihluti fólksins á myndinni hafi átt í Örvari sem þarna var boðinn velkominn í heimahöfn. Skipið reyndist hið mesta happaskip sem skilaði gríðarlegum verðmætum að landi í formi sjófrystra afurða, sem þá var nýung á Íslandi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 28
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 100
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd af mágkonunum Guðrúnu Sigurðardóttur til vinstri og Guðrúnu Guðbjörnsdóttur til hægri var tekin í Grillinu á hótel Sögu en hópurinn gisti á hótelinu og borðaði hátíðakvöldverð á Grillinu í boði Hólaness hf.
María Magnúsdóttir - safn 173
Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017) og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási.
María Magnúsdóttir - safn 011
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins. Sveitin reri fyrir hönd frystihúss Hólaness hf en einn ræðarann vantar á myndina. Frá vinstri: Lárus, Haraldur Árnason, Gunnar Stefánsson, Guðmundur Kristinsson, Jens Jónsson, Magnús Guðmannsson og Gylfi Sigurðsson stýrimaður.
Fisk Seafood - safn 043
3. júní 1987 útskrifaðist hópur starfsfólks Hólaness hf sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Á myndinni afhendir Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Bergljótu Óskarsdóttur (d.22.2.2004) skírteinið sitt í samsæti sem haldið var af þessu tilefni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 675
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru í hlutverkum sínum frá vinstri: Hafþór Gylfason og Halldór Gunnar Ólafsson. Ártalið er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 163
Þessi mynd var tekin af Adolf H. Berndsen, stjórnarformanni Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
María Magnúsdóttir - safn 271
Þessi kona er óþekkt. Myndin var tekin í Carberry í Manitoba og hefur verið send heim til ættingja á Íslandi. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 367
Jón Jónsson, sem tók þessa mynd, átti nokkrar kindur í fjárhúsi við heimili sitt. Eins og aðrir sauðfjáreigendur var hann stoltur af kindunum sínum og þótti vænt um þær. Myndin sýnir nokkrar þeirra á lóð sem nú er löngu byggð. Ef grannt er skoðað sést að ekki er búið að byggja neitt sunnan við Hólabrautina sem er til hægri á myndinni. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
María Magnúsdóttir - safn 034
Þessi mynd var tekin á blíðum sumardegi við trjálund í túninu á Syðra Hóli. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 156
Aftan á myndinni stendur: "Hólmfríður Stefánsdóttir frá Sauðárkróki. Húsfreyja á Kálfaströnd við Mývatn".
Árni Geir Ingvarsson - safn 656
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, er Björn Ingi Óskarsson sem sá um tæknimál á blótinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 167
Ingibjörg Ólafsdóttir (d. 6.3.1991) Króksseli og seinna Björgum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 235
Jón Árnason (d. 1888) þjóðsagnasafnari og bókavörður frá Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 066
Á árunum 1987 - 1989 var unnið töluvert magn af saltfiski í salthúsi Hólaness hf á Hólanesinu. Á þessari mynd eru tveir af starfsmönnunum í saltfiskvinnslunni, Davíð Reynisson til vinstri og Gunnar Albertsson til hægri.
Páll J. Pálsson safn 2
Ferming í Hofskirkju árið 1951. Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Eiður Hilmarsson Hofi, Sigurbjörn Björnsson Hlíð, María Kristjánsdóttir Steinnýjarstöðum, Björg Þóra Pálsdóttir Bakka, séra Pétur Höskuldsstöðum, tvær óþekktar fermingarstúlkur, Alda Friðgeirsdóttir Sviðningi og Kristinn Hólm Skeggjastöðum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 043
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af þeim Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur og Magnúsi Guðmannssyni á góðri stund.
María Magnúsdóttir - safn 274
Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 327
Gunnþór Óskar Sæþórsson í eldhúsinu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1993.
María Magnúsdóttir - safn 328
Ketilríður Friðgeirsdóttir (d. 27.7.1948) frá Hvammi í Ytra Laxárdal í Skagafirði.
María Magnúsdóttir - safn 175
Aftan á myndina er ritað: "Ragnheiður Margrét Ögmundsdóttir Stígshúsum, Sandgerði,
Páll J. Pálsson safn 21
Fermingarsystkini frá Hofskirkju vorið 1955. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Sigurður Kristjánsson Björgum, Ágúst Friðgeirsson Sviðningi, Ásta Kristjánsdóttir Steinnýjarstöðum og Óli Albertsson Keldulandi.
María Magnúsdóttir - safn 176
Aftan á myndinni stendur: "1. Manni frændi (Hermann Hillmann) 2. Winnie Davidson, kona Haraldar 3. Amma 4. Lena frænka 5. Pjetur frændi ".
María Magnúsdóttir - safn 072
Konan til hægri á þessari mynd er Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6.1977) en vinkona hennar vinstra megin er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson607
Rækjuskipið Mánatindur SU 359 kom til hafnar á Skagaströnd í ágúst 2001 fyrir eigin vélarafli eftir að kviknað hafði í bátnum á miðunum í vondu veðri. Í Morgunblaðinu er viðtal við Ragnar Ingibergsson stýrimann þar sem hann segir m.a.:" Það var óskaplega mikill reykur, það fylltist allt af reyk. Við vorum uppi á dekki þegar brunaboðinn fór í gang og þá var allt orðið fullt af reyk. Við reyndum að slökkva eldinn með slökkvitækjum og kláruðum fimm tæki í þetta. Þegar það dugði ekki fórum við með sjóslöngurnar niður um loftstokkana og fylltum íbúðirnar af sjó. Þá drapst eldurinn en við höfum verið um tvo klukkutíma að slökkva eldinn". Það merkilega við þessa sögu er að skipverjarnir á Mánatindi höfðu nokkrum dögum áður bjargað manni af alelda trillu, Hrönn AK, sem sökk undan skipverjanum þar um borð. Mennirnir á myndinni eru áhafnarmeðlimir á Mánatindi en nöfn þeirra eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson590
Myndin var tekin á kvöldvöku Leikklúbbs Skagastrandar einhverntíma kringum 1980. Á sviðinu eru frá vinstri: Birna Blöndal, Ólöf Ardís Arelíusdóttir, Kristín Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, óþekkt, Dagný Sigmarsdóttir, Helga Ottósdóttir?, Inga Matthíasdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 1.9.1996), óþekkt, Guðný Sigurðardóttir, Ingibergur Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Þórey Jónsdóttir,Vigdís Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmóniku.
Óþekktur ljósmyndari 382
Þessi mynd var líklega tekin 1945 eða 1946 á sjómannadegi. Þá fóru hátíðahöldin fram á blettinum framan við Hólaneshúsið þar sem ræðumaður dagsins stendur á svölunum og heldur ræðu. Til hægri má sjá uppslátt að byggingu hússins Hjallholts en húsið með kvistinum er Grund. Ef rýnt er í myndina af Hólaneshúsinu má sjá dauft á norðurhliðinni; VERZLUN C....
Héraðsskjalasafn A-Hún 225
Margrét Jónsdóttir (d. ?) frá Stóra-Bergi með þrjú börn sín. Ef þú veist nöfn barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 22
Hjónin Guðjón Einarsson (d. 4.5.1915) og Lilja Pétursdóttir (d. 7.8.1921) bændur á Efri Harrastöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Þau voru fósturforeldrar Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) sem seinna var húsmóðir á Bakka í sömu sveit.
Héraðsskjalasafn A-Hún 35
Karlsminni sem stóð á túninu upp af víkinni milli Lækjarbakka og Strandgötu 10. Á þessum stað hóf F.H. Berndsen (d. ?) beykir verslunarrekstur 1875 mitt á milli verslanna á Hólanesi og á Skagaströnd (við Einbúann). Var hún rekin þarna fram að 1887 en þá brunnu þáverandi hús til grunna í miklu mannskaðaveðri. Eftir það var verslunin færð inn á Hólanes og starfrækt þar af Carli Berndsen (d. 1939), syni F.H. Berndsen, fram að fyrra stríði. Karlsminni var þá orðin þurrabúð eða venjulegt heimili þar sem ekki var skepnuhald. (heimild: Byggðin undir Borginni).
María Magnúsdóttir - safn 314
Systur frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Guðrún Ragnheiður Magnúsdóttir (dó 13 ára af slysförum, ár óþekkt) og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016).
María Magnúsdóttir - safn 060
Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) frá Syðra Hóli og Steinunn Jakobsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar.
María Magnúsdóttir - safn 103
Systkinin Fjóla Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson frá Asparlundi (Bogabraut 24) á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 6
Gunnar Hermann Grímsson (1907 - 11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.
María Magnúsdóttir - safn 189
Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 020
Helga Ottósdóttir í heimsókn hjá Kristófer Árnasyni (d.10.5.2000) verkstjóra í Rækjuvinnslunni hf.
María Magnúsdóttir - safn 035
Til hægri á myndinni er Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli en maðurinn vinstra megin er Árni M. Jónsson (d. 18.11.2009) kenndur við Skriðu á Sauðárkróki - Árni í Skriðu. Myndin var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 207
Örlygsstaðir í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
María Magnúsdóttir - safn 030
Konurnar sitja við pillunarfæribandi í Rækjuvinnslunni hf. Vinstra megin við bandið eru frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Díana Kristjánsdóttir. Hægra megin eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir?, Jóna Guðjónsdóttir, Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Myndin var líklega tekin kringum 1975.
María Magnúsdóttir - safn 129
Aftan á þessari mynd stendur:"Jóhannes 14 ára, Eiríkur 5 ára, Magga 11 ára, Jana 10 ára, Vatni ?". Ef þú veist einhver deili á þessum börnum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 245
Aftan á þessa mynd er skrifað: "Stína 14 ára. Kær kveðja". Ef þú veist hver Stína er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 391
Hans Holger Jörgensen íþróttakennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin 8. desember 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 657
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru undirleikararnir, frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, fannar Viggósson, Guðlaugur Hjaltason og Elías Árnason. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 044
Systkinin Magnús B. Jónsson, Gunnar Jón Jónsson og Fjóla Jónsdóttir heima í Asparlundi (Bogabraut 24). Myndin var líklega tekin 1958 eða 1959.
María Magnúsdóttir - safn 192
Texti aftan á þessari mynd segir: "Hjónin Þorlákur og Ingiríður". Ef þú veist eitthvað um þessi góðu hjón t.d. hvar þau bjuggu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson578
Kántrýdansarar sýna dans á kántrýhátíð. Á sviðinu syngur Hallbjörn Hjartarson við undirleik hljómsveitar. Dansararnir eru frá vinstri: Óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016), óþekkt, María Alexandersdóttir, Vigdís Viggósdóttir, óþekktur, Ragnheiður Magnúsdóttir, Linda Ævarsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Fisk Seafood - safn 095
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Hér er hópurinn að borða veislumat á Grillinu í hótel Sögu. Vinstra megin við borðið sitja, talið frá okkur: Sigurjón Guðbjartsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og óþekkt fólk. Hægra megin við borðið sitja, talið frá okkur: Benóný Gunnarsson, Hjalti Skaftason, Friðbjörg Oddsdóttir, Adolf J. Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir og óþekkt fólk.
Fisk Seafood - safn 138
Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma meðan Guðmundur vann í Rækjuvinnslunni hf.
Fisk Seafood - safn 063
<p>11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er dansleikur í fullum gangi og fólk að skemmta sér. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson (nær), Kristín Mogesen, Sigvaldi Þorsteinsson, Eðvarð Hallgrímsson, Ólafur Ingibjörnsson, Steinunn Friðriksdóttir og Gunnar Albertsson.</p>
Fisk Seafood - safn 180
Hrefna Þorsteinsdóttir til vinstri og Gígja Heiðrún Óskarsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 699
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, fylgist Ólafur Bernódusson með æfingum á sviðinu. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 057
Baldur Magnússon. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Páll J. Pálsson safn 13
María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) á Bakka í Skagahreppi með son sinn Pál Jónatan Pálsson fimm ára gamlan 1946. Myndin var tekin við Landsendarétt sem var yst austan af Höfðanum norðan við Réttarholt.
Ólafur Bernódusson 569
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Margrét Ólafsdóttir að sýna peysu sem framleidd var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Páll J. Pálsson safn 27
Myndin var tekin á hlaðinu á Efri Harrastöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) árið 1913. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri talið: Guðjón Einarsson bóndi á Efri Harrastöðum, tveir óþekktir enskir menn, Einar Guðjónsson og Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968). Vikapilturinn sem stendur framan við hesta Einars er Sigvaldi Benediktsson. Ensku mennirnir komu til að leita að gulli í Harrastaðahelli en það reyndist allt vera glópagull (járnkís FeS2) sem þar fannst.
María Magnúsdóttir - safn 119
Lárus Björnsson (d.1985) frá Syðra Hóli. Lárus var smiður og iðnrekandi á Akureyri ókvæntur og barnlaus. Hann var sósíalisti alla æfi og arfleiddi Alþýðubandalagið að húsi sínu að Eiðsvallagötu 18 árið 1970 og er það síðan kallað Lárusarhús.
1
…
135
136
137
…
167
Leita í myndasafninu
Leita