Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 317
Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafnsins er þetta Jónas í Bárunni en myndina afhenti Jón Steindórsson frá Höfðahólum á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 848
Þórarinn Brynjar Ingvarsson að moka frá dyrunum heima hjá sér á Bogabraut 16. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Þórarinn fæddist 1968 þannig að myndin gæti hafa verið tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 935
Þessar tvær konur eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina, líklega á fimmta áratugnum, í Kjós, sem er stutt fyrir innan Djúpavík. Ekki er vitað hvar hún var tekin. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 800
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Þorvaldur Skaftason, Óli Hjörvar Kristmundsson, Ingimar Oddsson, William Sillar og Sigrún Jónsdóttir.
Hallgrímur Kristmundsson safn007
Miðað við hvernig allt er útatað í hreistri þá er Elsa á síldveiðum. Maðurinn á myndinni er óþekktur en neðst til vinstri sér í háfinn sem síldin var háfuð með um borð úr nótinni. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 026
Á þessari mynd eru fimm af átta börnum Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Eitt barnið dó í frumbernsku en á myndinni eru: aftast er Jósep Hjálmar fæddur 1961, í næstu röð eru Sigríður fædd 1963 og Magnús Elías fæddur 1963 (d.16.9.2018). Fremst eru svo Hjörtur Þórarinn fæddur 1965 (d. 9.5.2015) og Rósa Dröfn fædd 1967. Líklega hefur myndin verið tekin um jólin 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 950
Myndin er tekin yfir Djúpavík þegar allt var í fullum gangi við síldarbræðslu í verksmiðjunni og margir bátar í höfn. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Jón Jónsson 440
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Guðbjörnsdóttir og foreldrar Lárusar, Guðmundur Jóhannesson og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010)
Hallgrímur Kristmundsson safn021
Skemmtileg mynd af Skagastrandarhöfn tekin einhverntíma á árunum 1935 - 1944. Bryggjan í forgrunninum, þar sem fiskaðgerð er í gangi, var byggð 1922 -1923 með sameiginlegu átaki sjómanna á Skagaströnd. Hafnarhúsið, sem er á myndinni, var reist 1935 á þessum stað en flutt á núverandi stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir byggingu síldarverksmiðjunnar. Í dag sést því miður hvorki tangur né tetur af gömlu bryggjunni í forgrunninum.
Elínborg Jónsdóttir - safn 21
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, sem stendur aftan við steininn á miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og vinstra megin við hana er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn057
Anna Kristmundsdóttir.
Jón Jónsson 365
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma kringum 1985. Skemmtiatriðunum er lokið og fólk að tygja sig heim. Á myndinni er María Alexandersdóttir með dóttur sína Elvu Ösp Gunnarsdóttur í fanginu og hjá þeim er hin dóttir hennar, María Jóna Gunnarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 914
Frídagur í Djúpavík. Drengurinn á myndinni er óþekktur en maðurinn í baksýn er Skúli Alexandersson (d.23.5.2015) alþingismaður frá Kjós. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Héraðsskjalasafn A-Hún 442
Gunnar Grímsson (d.11.9.2003) kaupfélagsstjóri á Skagaströnd 1937 - 1955. Hreppsnefndarmaður í Höfðahreppi um tíma og sat í sýslunefnd A-Hún 1939 - 1955.
Héraðsskjalasafn A-Hún 467
Björn Guðmundsson (d.24.8.1938) hreppsstjóri frá Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 22
Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) frá Brandaskarði í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 917
Mennirnir eru frá hægri: Guðbrandur Þorláksson frá Veiðileysu, Vilhelm Páll Lýðsson frá Víganesi - seinna bóndi í Reykjarfirði og óþekktur maður. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn lengst til vinstri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn074
Fermingar- og frændsystkini á fermingardaginn sinn vorið 1975. Frá vinstri: Hafþór Smári Gylfason, Þórey Jónsdóttir og Guðrún Björg Berndsen.
Héraðsskjalasafn A-Hún 334
Þessi mynd var tekin á hlaðinu á Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafnsins er fólkið á myndinni frá vinstri: Jónína, Árni, Svanlaug, Þórey og Björn en börnin eru ekki nefnd. Árni var Jónsson (d.6.10.1918) og Svanlaug kona hans var Björnsdóttir (d. 6.1.1916). þau voru foreldrar Björns (d.24.8.1932) og Þórey, sem var Jónsdóttir (d. 22.3.1914), var fyrri kona Björns. Björn og Þórey bjuggu fyrst á Þverá en seinna á Ytri-Ey þar sem Björn var hreppsstjóri og kennari um tíma.
Hallgrímur Kristmundsson safn033
Þessi bátur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 398
Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) fyrrum verksmiðjustjóri í Síldaverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn006
Þessi mynd var tekin á einhverju móti skáta frá Skagaströnd og Blönduósi kringum 1960. Eins og sjá má á fjölda skáta á myndinni var skátastarfið afar vinsælt meðal ungmenna á stöðunum tveimur. Standandi á myndinni eru, frá vinstri: Jón Ísberg (d. 24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, þrír óþekktir, Árni Ólafur Sigurðsson í köflóttri skyrtu, fimm óþekktir, Jóhann Björn Þórarinsson, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016), Pétur Jóhannsson, Birgir Júlíusson, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt, Brynja Axelsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, óþekkt og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd. Krjúpandi frá vinstri: Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004), Örn Berg Guðmundsson, þrír óþekktir, Helgi Bjarnason (d.1.3.2007), Sigurjón Ástmarsson, fjórir óþekktir, ?Sigurður Hjálmarsson?, óþekktur, Steindór Haraldsson (nær), óþekktur (fjær), sjö óþekktir skátar, Margrét Valdimarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, óþekkt, Fjóla Jónsdóttir og Jóhanna Hallgrímsdóttir. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu skátunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd annað hvort með myndinni eða á netfangið:
[email protected]
.
Hallgrímur Kristmundsson safn031
Óþekktur síldarbátur á fullu stími. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 028
Myndin var tekin á skátamóti í Vaglaskógi einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum. Stúlkan á myndinni gæti verið Guðrún Þórbjarnardóttir úr Sigurfara á Skagaströnd. Það er þó ekki víst því myndin er óskýr.
Árni Geir Ingvarsson - safn 756
Á myndinni eru þrír áhugamenn um mótorkross-akstur að útbúa braut fyrir sig í krúsinni á melunum fyrir ofan Spákonufellsrétt. Eftir að hún var tilbúinn var hún vel nýtt af hópi áhugamanna á Skagaströnd í nokkur ár. Eftir alvarlagt slys á svæðinu dró úr notkuninni og undir það síðasta (2016) hefur brautin verið lítið notuð. Áhugamennirnir á myndinni eru frá vinstri: frændurnir Björn Sigurðsson, Björn Hallbjörnsson og Ragnar Einarsson sem stendur hjá þeim.
Héraðsskjalasafn A-Hún 388
Þessi mynd var líklega tekin við kirkjuvígslu eða þegar séra Sigurður Stefánsson var vígður sem vígslubiskup 1959 á Hólum í Hjaltadal. Prestarnir á myndinni eru frá vinstri: herra Ásmundur Guðmundsson fráfarandi biskup, séra Sigurður Stefánsson prófastur og vígslubiskup á Möðruvöllum í Hörgárdal, herra Sigurbjörn Einarsson biskup og séra Bjarni Jónsson vígslubiskup.
Hjördís Sigurðardóttir - safn047
Systurnar Guðrún Björg Berndsen vinstra megin og Steinunn Berndsen til hægri. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1968.
Árni Geir Ingvarsson - safn 970
Óþekktur sjómaður um borð í bát sínum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 343
Guðrún Stefánsdóttir (d. 6.1.1992) með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d. í maí 1995). Guðrún var ráðskona og bústýra hjá Sigurði Árnasyni bónda á Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) í nokkur ár og er Sigríður dóttir hans. Guðrún giftist aldrei og náði tæplega 102 ára aldri.
Jón Jónsson 391
Myndin er af þeim Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Sigurði Bjarnasyni til hægri í vinnunni við hreinsikeflin í Rækjuvinnslunni hf. Eftir að rækjan hafði verið soðin fór hún eftir þessum keflum sem slitu af henni skelina áður en hún fór áfram á færibandið þar sem lokahreinsun fór fram áður en hún fór í frystingu og pökkun.
Ólafur Bernódusson667
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu við góðar undirtektir.
Jón Jónsson 406
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Á myndinni er Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri að hengja verðlaunapeninga um hálsinn á, frá vinstri: Heiðrúnu Níelsdóttur, Elvu Dröfn Árnadóttur og Guðjóni Hall Sigurbjörnssyni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 295
Medónía Indriðadóttir (1861 - ?) frá Ytri-Ey og Sigurður Erlendsson
Héraðsskjalasafn A-Hún 308
Sigurður Jónsson (d.16.5.1987) smiður frá Balaskarði sonur Guðnýjar Pálsdóttur (d.13.6.1942) frá Ytra-Hóli og Jóns Sigurðssonar (d.1945).
Jón Jónsson 385
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Það hefur/hafði sínar ljósu hliðar m.a. að þá kom nægur snjór í skíðabrekkuna í Spákonufelli þegar þar var skíðalyfta og oft mikið fjör. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er ungur skíðamaður Brynjar Pétursson? á fleygiferð í brekkunni.
Jón Jónsson 386
Mánavör hf byggði marga stóra og smáa plastbáta. Til þess þarf að hafa mót til að steypa skrokkinn. Á myndinni er eitt af þessum mótum sem Mánavör notaði til að steypa 13 tonna báta.
Héraðsskjalasafn A-Hún 179
Ós í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Eins og sjá má eru húsin að falla þegar myndin var tekin enda hefur Ós verið í eyði mjög lengi. Til hægri sér heim að bænum Tjörn en í forgrunni er Laxá í Nesjum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 356
Steinunn Jónsdóttir (d. 6.4.1982) frá Stórholti (Bankastræti 3) á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 476
Steinunn G. Þorsteinsdóttir (d. júlí 1919) frá Úthlíð í Biskupstungum var kona séra Jóns Ó. Magnússonar (d.1929) á Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Árni Geir Ingvarsson - safn 828
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg þegar fólk skemmti sér við útúrsnúning á texta verksins. Elín Njálsdóttir til vinstri og Herborg Þorláksdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 802
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Þorvaldur Skaftason, Magnús B. Jónsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, Þórey Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 039
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Hulda Birna Frímannsdóttir, Rut Jónasdóttir, Erla Sigurbjörnsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Guðbjörg Þorleifsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson og Hrönn Valgarðsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 856
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd þegar fólk var að koma sér fyrir inni í virkinu. Ræðustóllinn bíður eftir ræðumönnum sem voru allmargir við þetta tækifæri. M.a. fór prófessor Sigurður Nordal yfir sögu Borgarvirkis.
Jósef H Sigurðsson - safn 031
Magnús Sigurðsson (d.16.9.2018) úr Hólaneshúsi með barn. Barnið er ókunnugt en gæti verið eitt af fjórum börnum hans.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 096
Kristín Kristmundsdóttir við vinnu á barnum í Kántrýbæ 26. júní 1995.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 009
Vinkonurnar Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Steinunn Steinþórsdóttir sem situr í fangi vinkonu sinnar.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 001
Hér hefur fólkið stillt sér upp til myndatöku framan við óþekkt fjárhús árið 1961. Þá var algengt að skepnuhús væru byggð úr asbesti á trégrind, eins og sést bak við fólkið, enda vissu menn þá ekki um hve heilsuspillandi efni asbest er. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Edda Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Valdimars Núma Guðmundssonar), Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) frá Brúarlandi, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) í Straumnesi dóttir hennar og Margrét Guðbrandsdóttir (d.30.3.2004), móðir Eddu á myndinni.
Hallgrímur Kristmundsson safn060
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Birgir Árnason (d.2.2.2005), Jóninna Pálsdóttir, Guðmunda Árnadóttir og Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996). Birgir og Guðmunda voru systkin, Jóninna var mágkona þeirra og Þóbjörn var eiginmaður Guðmundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 956
Þessi bær er óþekktur (?Seyðisfjörður?). Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú veist hvaða bær þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 431
Bára Svavarsdóttir frá Sauðárkróki og Páll Pétursson (1889-1963) frá Réttarholti á Skagaströnd. Bára er móðir Guðbjargar Ólafsdóttur á Hólabraut á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 452
Vilhelmína Andrésdóttir (1894- 24.8.1977) Ásgarði Skagaströnd og Sigríður Kristmundsdóttir (1870- 15.6.1941) Sigurðarhúsi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 274
Jón Sveinn Pálsson kennari og skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd. Jón tók við af föður sínum, Páli Jónssyni (d.19.7.1979), sem skólatjóri 1966 og gegndi því starfi til 1986.
Ólafur Bernódusson623
Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir aðstoð og áhuga á liðnu ári. Eins og alltaf þá umfaðmar Borgin okkur, sem búum á Skagaströnd, óhagganleg en síbreytileg. Borgin hefur séð bæði góða tíma og slæma í litla bæjarfélaginu okkar en vonandi mun hún sjá gott ár 2017 hjá okkur öllum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 767
Bergsstaðir stóðu utan í berginu sem er norðan við Ránarbrautina, neðan við Vetrarbrautina. Húsið byggði Hafsteinn Sigubjarnarson en í ævisögu sinni segir hann frá því að hann þurfti að flytja úr húsinu því það var fyrir skipulaginu. Skipulagið gerði ráð fyrir að Skeifan mundi koma niður einmitt þar sem Bergsstaðir stóð. Skeifan, sem er efsti hluti Hólabrautarinnar, hefur aldrei orðið að veruleika þó svo að Hólabrautin sveigi vissulega í skeifu þeim fáu húsum sem þar eru. Inni í miðri skeifunni gerði svo skipulagið ráð fyrir kirkju, sem eins og allir vita, reis á allt öðrum stað í þorpinu. Bergsstaðir eru horfnir en þó eru skepnuhús að hluta til þar sem húsið stóð.
Héraðsskjalasafn A-Hún 341
Þessi maður er óþekktur en myndin kom til Héraðsskjalasafnsins frá Soffíu Lárusdóttur á Skagaströnd en til hennar úr Vindhælisbúinu. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 475
Jón S. Pálsson skólastjóri Höfðaskóla flytur ræðu í einhverju hófi í félagsheimilinu á Blönduósi en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Maðurinn með gleraugun er Grímur Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ en konurnar tvær á myndinni eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd annað hvort gegnum þessa mynd eða á netfangið:
[email protected]
.
Árni Geir Ingvarsson - safn 940
Þrír sjómenn slaka á um borð. Mennirnir eru óþekktir en Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 060
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þegar fjórar konur úr hópnum sungu fyrir hina á pöbbnum. konurnar eru, talið frá vinstri: Fjóla Ævarsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Kristín Sigurðardóttir.
1
…
153
154
155
…
167
Leita í myndasafninu
Leita