Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Jósef H Sigurðsson - safn 015
Jósep Sigurðsson í matsalnum á einhverju óþekktu skipi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson628
Sóley Sif Jónsdóttir í fangi móður sinnar Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur tónlistakennara á tónleikum Tónlistaskóla A-Hún í kirkjunni 3.desember 2009.
Hallgrímur Kristmundsson safn070
Hafnarsvæðið á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1944 - 1947. Stóra síldarskemman var enn í byggingu þegar myndin var tekin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 050
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) sem lengst af bjó á Litla-Bergi.
Ólafur Bernódusson627
Myndin var tekin á Hágerðisvelli þegar þar stóð yfir golfmót 23. júní 2007. Golfurum sem reyna sig á Háagerðisvelli bera honum vel söguna því hann þykir erfiður en skemmtilegur með brautum sem bjóða upp á mismunandi áskoranir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 426
Sigríður Árnadóttir (d. 6.1.1958) frá Þverá í Hallárdal með dóttur sína Guðrúnu Tulinius (1898-9.7.1980) í fanginu. Guðrún var kona Kristjáns Arinbjarnar (d. 5.3.1947) læknis á Blönduósi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 82
Björn Lárusson Blöndal (d.1906) prestur á Hofi í Skagahreppi og á Hvammi í Laxárdal í Skefilsstaðahreppi 1900-1906 og hreppsnefndaroddviti þar 1902 -1906.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn083
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Í slíkum ferðum þarf oft að taka þátt í ýmsum skrítnum uppátækjum. Á þessari mynd sýna konurnar færi sem þær þurftu að búa til á staðnum. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Helga Bergsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Dagný Úlfarsdóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Signý Richter, Hildur Ingólfsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 812
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Þórhildur Jakobsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Þórey Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ingimar Oddsson og Rut Jónasdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og sést það í baksýn en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema bílstjórinn sem er að hífa er Sigurjón Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 876
Hrefna Björnsdóttir er konan sem stendur hærra á myndinni en hin konan er óþekkt. Þegar myndin var tekin af þeim voru þær úti í Árbakkasteini, sem er ekki fjölfarinn staður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 473
Ingvar Stefán Pálsson (d. 18.10.1968) bóndi á Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Hjördís Sigurðardóttir - safn080
Hjónin Guðmundur Árnason (d.14.10.2009) og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) á ferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 364
Sigurborg Hallbjarnardóttir (d. 3.12.1983) ljósmóðir frá Ásholti á Skagaströnd. Sigurborg var kona Andrésar Guðjónssonar (d. 5.10.1968) kaupmanns og oddvita hreppnefndar í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd). Þau Andrés eignuðust fimm börn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 7
Líklega eru þeir á silungsveiðum á Kambi, Ragnar Smári Ingvarsson og óþekktur ræðari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 277
Regína Sigríður Indriðadóttir (1858 - 11.12.1913) frá Ytri Ey í Vindhælishreppi ( nú Skagabyggð).<br> Í minningargrein um Regínu í blaðinu Reykjavík frá 13. desember 1913, sem eftirlifandi eiginmaður hennar skrifaði, kemur meðal annars fram að hún flutti til Kanada 1889 þar sem hún dvaldi á nokkrum stöðum til ársins 1897 er hún flutti aftur heim á Ytri-Ey og var þar ráðskona föður síns til ársins 1900. Þá giftist hún, unnusta sínum til nokkurra ára, Guðjóni Sólberg Friðrikssyni. Þau bjuggu á nokkrum stöðum á Íslandi áður en þau fluttu aftur til Winnipeg í Kanada 1911 en þar Regína lést úr krabbameini 11. desember 1913. Regína var systir Indriða Jóns Indriðasonar sem er á mynd nr. 10016.
Árni Geir Ingvarsson - safn 739
Ás á Skagaströnd. Maðurinn sem er að slá fyrir utan húsið er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) sem átti heima í Ási.
Ólafur Bernódusson647
Stóra upplestarkeppnin er haldin á landinu á hverju ári. Þar keppa nemendur í 7. bekkjum skólanna sín á milli hver er besti upplesarinn. Keppt er innbyrðis á hverju skólasvæði fyrir sig og siguvegari fundinn. Skólarnir í Húnavatnssýslum halda sameiginlega keppni sem kennd er við Grím Gíslason (d. 31.3.2007) frá Saurbæ í Vatnsdal. Þar mæta þrír bestu lesararnir frá hverjum af skólunum fjórum á svæðinu eftir að hafa sigrað í sínum skóla. 23. mars 2006 var keppnin haldin á Skagaströnd. Á þessari mynd er Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, ein af þremur keppendum Höfðaskóla, að lesa upp fyrir fullan sal af gestum í félagsheimilinu Fellsborg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 411
Á þessari fjölskyldumynd eru hjónin í Hólskoti í Vatnsdal, Júlíus Jónsson (d.22.9.1959) frá Borðeyri og Helga Björnsdóttir (d. 12.7.1972) frá Holti með börn sín. Milli þeirra hjóna situr Ingibjörg Júlíusdóttir (d.23.2.2012) en standandi eru, frá vinstri: Finnbogi Björn Júlíusson (d.18.6.2004), Guðrún Júlíusdóttir (d. 24.9.1981) og Magnús Júlíusson (d.24.8.1944).
Héraðsskjalasafn A-Hún 283
Ólafur Davíðsson (1862- 6.9.1903) cand.phil frá Hofi í Hörgárbyggð. Ólafur var þjóðsagnasafnari og var m.a. ritstóri bókanna: Íslenskar þjóðsögur sem gefin var út af Ísafoldarprentsmiðju í Reykjavík 1895 og Íslenskir vikivakar og vikivakakvæði sem Hið Íslenska bókmenntafélag gaf út 1894. Ólafur menntaði sig í náttúrufræði við Kaupmannahafnarháskóla en lauk ekki prófi. Heimkominn til Íslands 1897 gerðist hann kennari í Möðruvallaskóla en hann drukknaði í Hörgá 6. september 1903 ógiftur og barnlaus.
Jósef H Sigurðsson - safn 020
Þessar prúðbúnu mæðgur eru Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) sem heldur við dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur heima í Hólaneshúsinu. Myndin var sennilega tekin 1964 eða 65.
Adolf H Berndsen - safn091
Þessi mynd var tekin yfir Skagaströnd árið 1964. Gaman getur verið að rýna í hana og bera saman við það sem sést frá sama sjónarhorni í dag.
Jósef H Sigurðsson - safn 014
Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015) úr Hólaneshúsi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 055
Jósep Sigurðsson í vinnuhorninu sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 23
Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) skipstjóri og útgerðarmaður.
Héraðsskjalasafn A-Hún 441
Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) Röðulfelli á Skagaströnd. Elínborg starfaði sem kennari og síðar bókavörður við Höfðaskóla í hálfa öld. <br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 440
Björg Jóhannsdóttir (1863-19.5.1950) með Þorvildu Einarsdóttur (1891-28.7.1965) í fanginu. Þær voru á Þverá í Hallárdal.
Árni Geir Ingvarsson - safn 784
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim, frá vinstri: Þóreyju Jónsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur og Kristínu Jónsdóttur í hlutverkum sínum sem söltunarstúlkur.
Ólafur Bernódusson705
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þeir Steindór Haraldsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 052
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með fullfermi af síld sem bíður löndunar. Kassinn á söltunarplaninu er fullur af síld en síldarstúlkurnar eru ekki komnar enda enn verið að undirbúa söltunina. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 053
Hefð er fyrir piparkökubakstri í Barnabóli í desember á hverju ári. Á þessari mynd eru mæðginin Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson að skera út og skreyta piparkökur. Myndin var líklega tekin kringum 1985.
Hallgrímur Kristmundsson safn011
Árni Kristófersson (d.11.10.1982) frá Kringlu sem lengst af var búandi í Árnesi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 453
Hópmynd af Skagstrendingum er merkingin á þessari mynd hjá Héraðsskjalasafninu. Fólkið á myndinni er því miður óþekkt en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 395
Þetta eru systkinin Þröstur Þorbjörnsson og Sonny L. Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (=Hólabraut 9).
Ólafur Bernódusson629
Jón Ólafur Sigurjónsson stendur hér við vettlingaþurrkara sem framleiddir eru á vinnustað hans, Vélaverkstæði Skagastrandar. Myndin var tekin 2007.
Hallgrímur Kristmundsson safn004
Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin af þessu glaða fólki á bílpallinum en ekki er ólíklegt að það hafi verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Einnig væri vel þegið að fá upplýsingar um bílinn á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 893
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Héraðsskjalasafn A-Hún 365
Jón Bjarnason (d. 14.9.1948) sjómaður frá Holti á Skagaströnd.
Hallgrímur Kristmundsson safn051
Hallgrímur Valdimar Húnfjörð Kristmundsson (d.9.10.1998). Myndin var líklega tekin í Listigarðinum á Akureyri einhverntíma í kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 993
Rúnar Þór Ingvarsson í höndunum á móður sinni Karitas Laufey Ólafsdóttur (d.15.10.2019). Myndin var líklega tekin 1951
Héraðsskjalasafn A-Hún 416
Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982) frá Örlygsstöðum sem lengst af bjó á Iðavöllum á Skagaströnd með manni sínum, Haraldi Sigurjónssyni (d.13.5.1986), og þremur sonum þeirra.
Hallgrímur Kristmundsson safn032
Báturinn á myndinni er óþekktur. Verið er að taka nótina því nótabáturinn liggur við hlið bátsins en inn í hann var nótin dregin, á handafli, og síðan var háfað úr nótinni um borð í bátinn sjálfan. Ef þú veist hvaða bátur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson625
Mæðginin Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Þau mæðgin héldu lengi saman heimili og síðustu árin þeirra á Skagaströnd bjuggu þau á Akri eða Hólabraut 13. Þórunn missti mann sinn 1945 en saman áttu þau fjögur börn. Herbert var ógiftur og barnlaus.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 13
Þrír hressir karlar með mikla lífsreynslu á bakinu hver fyrir sig. Líklega var myndin tekin á sjávarbakkanum innan við Hrafnána og miðað við mennina þá eru þeir líklega að huga að silugsnetum í fjörunni. Mennirnir eru bræðurnir Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) til hægri. Í miðjunni er vinur þeirra, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 007
Hér hefur hópur fólks frá Skagaströnd tyllt sér niður á ókunnum veitingastað til að fá sér hressingu. Vinstra megin við borðið eru: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) upp við gluggann, Ómar Jakobsson maður hennar í miðið og Steinunn Steinþórsdóttir næst okkur. Hægra megin við borðið eru Guðrún Soffía Pétursdóttir út við gluggann Guðjón Guðjónsson maður hennar er svo í miðið en Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), maður Steinunnar, er næstur okkur.
Ólafur Bernódusson 616
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Laufey Lind Ingibergsdóttur að spila á þverflautu. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari spilar undir á píanóið.
Ólafur Bernódusson662
Konur á Skagaströnd voru duglegar að taka þátt í átakinu "Á réttri leið - bætt heilsa, betri líðan" sem hófst þegar þessi mynd var tekin 16. febrúar 2011. Átakið hófst með að allar konurnar mættu á hafnarvigtina þar sem hópurinn var vigtaður sem heild. Niðurstaðan var að konurnar á myndinni voru fimm tonn og 360 kíló við upphaf átaksins, sem fól í sér ýmis konar líkamsrækt en jafnframt andlega uppbyggingu. Ekki liggur fyrir hve mörg kíló hurfu við átakið en þau skiptu hundruðum kílóa hjá hópnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn045
Myndin var tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 872
Þetta býli? er óþekkt. Það ætti þó að vera auðþekkt þeim sem þar hafa komið því það hefur tvö bíslög eða forstofur inn á aðra hæð sem er óvenjulegt. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók þessa mynd en ekki er vitað hvenær. Ef þú veist hvaða hús þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn035
Guðmundur Jóhannesson í skemmtiferð í Listigarðinum á Akureyri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið fyrir 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 5
Gylfi Sigurðsson mokar frá útidyrunum á húsi sínu á Bogabraut 12. Eins og sjá má er Bogabrautin á kafi í snjó. Líklega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 -96.
Hjördís Sigurðardóttir - safn085
Þessi hópur var verðlaunaður eftir golfmót á Hágerðisvelli 7. ágúst 1991. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Adolf H. Berndsen (fjær), Sigurður Berndsen (nær), Sigurbjörn Kristjánsson með óþekkt barn, Rolf Árnason (d. 3.6.2014), Guðmundur Kristinsson, Dagný Simarsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Fríða Hafsteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 946
Síldarlöndun á Djúpavík úr Fróðakletti GK 250. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Jósef H Sigurðsson - safn 004
Þessi mynd var tekin í matsalnum á ókunnu skipi af þeim skipsfélögum Jósep Sigurðssyni vinstra megin og Erni Berg Guðmundssyni (Assa) til hægri.
Ólafur Bernódusson690
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru nokkrir krakkar að fara að syngja saman á sviðinu í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Silfá Sjöfn Árnadóttir, Bjarndís Annþórsdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. .
Árni Geir Ingvarsson - safn 937
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en Jóhanna átti heima í Árneshreppi eins og Herbert og seinna á Skagaströnd í áratugi - lengst af í Litla Bergi (Fellsbraut 2). Sambýlismaður Jóhönnu var Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) en þau voru barnlaus.
Árni Geir Ingvarsson - safn 938
Sjóararnir og konan á myndinni eru öll óþekkt. Ekki er heldur vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 831
Myndin var tekin á árshátíð eða innanfélags skemmtifundi Leikklúbbs Skagastrandar. Þar gerði fólk sér margt til skemmtunar og á þessari mynd er einn hópurinn að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Sigrún Jónsdóttir, Kristján Blöndal er við hljóðfærið á bak við Sigrúnu, Ragnar Jónsson, Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Jósef H Sigurðsson - safn 087
Hjónin Jósep Jónsson og Sigríður Jónsdóttir frá Skógum í Vopnafirði með Jón ? fósturson sinn. Þetta góða fólk tók mörg börn í fóstur þar á meðal Dórótheu Hallgrímsdóttur (d. 17.10.2004) sem gift var Sigurði Magnússyni (d.2.8.2002) í Hólaneshúsinu. Börn Dórótheu og Sigurðar kölluðu Jósep og Sigríði afa og ömmu og Jósep Sigurðsson var skírðurí höfuðið á þessum afa sínum. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 883
Gamla íbúðarhúsið í Reykjarfirði. Byggt 1916-1917 af Þórarni Söbeck, sem var bóndi þar frá 1917-1921. Húsið var timburhús og stóð fram yfir aldamótin 2000. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
1
…
156
157
158
…
167
Leita í myndasafninu
Leita