Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir - safn 092
Dagný Marín Sigmarsdóttir vandar sig við prjónaskap. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 986
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er hér með óþekktri konu líklega kringum 1940 á Djúpavík. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 892
Drekkhlaðinn síldarbátur á miðunum 1965 með nótabát við síðuna. Ekki er vitað hvaða bátur þetta er en hann hefur verið GK 430 eða EA 430. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 977
Þessi kona og drengurinn með henni eru óþekkt. Bak við þau er síldarverksmiðjan á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær. Ef þú þekkir konuna eða drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 766
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Endurbyggingin var í höndum Trésmiðju Helga Gunnarssonar á Skagaströnd. Á myndinni er verkið komið á lokametrana og vinna hafin við að þökuleggja lóðina kringum húsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 777
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 071
Mæðgurnar Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir nær og Laufey Berndsen fjær staddar í veislu í stofunni á Höfða í júní 2001. Tilefni veislunnar er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 648
Ólafur Bernódusson og Guðlaug Grétarsson í eldhúsinu í leikskólanum Barnabóli 21. desember 2006 þegar árlegu piparkökubakstur stóð yfir þar.
Ólafur Bernódusson699
Aðstandendur Spákonuhofsins á Skagaströnd settu upp leikrit um Þórdísi spákonu fyrir jólin 2008 í leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Þessi mynd er af tveimur leikurum í sýningunni í gervum sínum: Steindór Haraldsson er til vinstri og Fjölnir Ásbjörnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 8
Sægarður var byggður í Skagastrandarhöfn 1991-92. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Aðalsteinn Aðalsteinsson (d.8.6.2014) verkstjóri til hægri að koma fyrir vinnupalli til að nota við niðurrekstur á stálþilinu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 414
27. febrúar 1927 var kvenfélagið Eining á Skagaströnd stofnað. Félagið er því 90 ára um þessar mundir. Á þessum 90 árum hefur félagið staðið fyrir fjölmörgum framfaramálum í okkar samfélagi eins og lesa má um í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar:" Kvenfélagið Eining Skagaströnd 1927 - 2013". Á myndinni eru konur í félaginu að loknum aðalfundi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1970. Sitjandi frá vinstri: Helga Berndsen, Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974), Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Karla Helgadóttir (d.25.9.1986), Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978), Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002), Halldóra Pétursdóttir (d.23.12.1987), Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Standandi frá vinstri: Elísabet Bjarnason (d.10.1.2009), Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981), Birna Blöndal, Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017), María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn034
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Bryndís Guðjónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Hafþór Sigmundsson og Kristín Ólafsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 048
Víðavangshlaup voru árviss viðburður á vorin í mörg ár á vegum umf Fram oftast undir styrkri stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á þessari mynd er Lárus að útskýra leiðina sem krakkarnir eiga að hlaupa. Krakkarnir eru frá vinstri: Ardís Eva Vilhelmsdóttir, óþekktur, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Elva Dröfn Árnadóttir, þrjú óþekkt börn, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Birkir Rafn Gíslason og óþekkt stúlka. Fullorðna fólkið á myndinni eru frá vinstri: Kristín Þórðardóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Súsanna Magnúsdóttir og Elín Njálsdóttir.<br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 991
Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988). Ingvar starfaði sem smiður og bjó með fjölskyldu sinni á Bogabraut 16.
Árni Geir Ingvarsson - safn 926
Þetta fólk er á ferðalagi í Willis jeppanum sem er á myndinni. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum sennilega í grennd við Djúpavík. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekktur, Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) og Júlíus Ágústsson (d.1.6.1987) bróðir hans, báðir frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Við hlið Júlíusar er kona hans Lilja Árnadóttir frá Hólmavík en maðurinn lengst til hægri er óþekktur. Bræðurnir voru báðir landsþekktir aflaskipstjórar á sinni tíð. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 461
Hálfsystkin frá Þverá í Norðurárdal. Emelía Margrét Þorláksdóttir (1897 - ?) og Guðlaugur Sveinsson (1891-13.10.1977) úr Þorlákshúsi á Blönduósi. Þau voru hálfsystkin af móður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Þessir þrír voru vinnufélagar hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar í fjölda ára. Þeir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Hrólfur Pétursson og Baldvin Hjaltason. Myndin var tekin á Hólabraut 10 í innflutningspartýi hjá Hjalta Indriðasyni og Cristinu Silod Yecyec sem áttu húsið. Karlarnir á myndinni unnu við byggingu hússins.
Ólafur Bernódusson663
Þessi mynd var tekin 28. september 2009 þegar hafist var handa við að rífa Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Þar hafði Auðbjörg staðið í ellefu ár - frá 1998 - áður en hún loks var rifin. Lýður Hallbertsson til hægri og Árni Geir Ingvarsson til vinstri, standa á malarhaugnum og fylgjast með. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 2
Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988).
Árni Geir Ingvarsson - safn 822
Þessir ungu menn skipuðu hljómsveitina Jójó ásamt Fannari Viggóssyni. Strákarnir eru frá vinstri: Ingimar Oddsson, Viggó Magnússon, Kristján Blöndal og Jón Arnarson. Jójó gerði garðinn frægan um tíma á Íslandi eftir að hafa unnið í Músiktilraunum 1988, sérstaklega með laginu "Stæltir strákar á ströndinni"
Hallgrímur Kristmundsson safn069
Guðmundur Jóhannesson. Guðmundur var kafari á sínum yngri árum og fór þá víða um hafnir landsins og kafaði í sambandi við framkvæmdir á hverjum stað. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1950.
Jósef H Sigurðsson - safn 089
Þessi mynd var tekin 1970 í fimmtugsafmæli Sigurðar Magnússonar í Hólaneshúsinu. Á henni eru prúðbúnir gestir með Sigurði. Frá vinstri: Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) frá Kárastöðum, Ólafur Guðlaugsson (d.17.5.1996) frá Sævarlandi, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsi, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) úr Þorfinnshúsi og kona hans Hulda Pálsdóttir (d.2011).
Ólafur Bernódusson651
Guðrún Sigurðardóttir í snjónum fyrir utan Bogabraut 14 um miðjan desember 2006 en þá bjó hún þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 12
Tveir gamlir bátar í höfninni á Skagaströnd. Gauti Hu 59 til vinstri smíðaður 1963 og Arnarborg Hu 11 til hægri smíðuð 1958. Örlög þessara báta urðu ólík. Gauti var endurbyggður og fékk aftur sitt gamla nafn Húni II og þjónar nú sem glæsilegur skóla- og hvalskoðunarbátur á Akureyri, þar sem hann var byggður á sínum tíma. Arnborgin endaði aftur á móti á áramótabrennu á Skagaströnd 1993 eftir úreldingu. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Guðrún Sigurðardóttir - safn 011
Jón Sigurðsson (d.26.7.1967). Jón var sonur Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) og Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) í Þórsmörk en alinn upp í Broddanesi hjá systur Hallbjargar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Konan á myndinni er Áslaug Torfadóttir frá Drangsnesi. Hún kom til Skagastrandar sem vinnukona hjá Ole Aamundsen en fór síðan sem kokkur um borð í Aðalbjörgu HU 7. Myndin var líklega tekin í kringum 1960 í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 916
Fólkið í fremri röðinni er frá vinstri: Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) Kúvíkum, Sigríður Halla Pétursdóttir Djúpuvík, óþekkt barn hennar og Emma Magnúsdóttir (d. júní 2000) Djúpavík. Aftari röð frá vinstri: Skúli Alexandersson (d. 23.5.2015) alþingismaður frá Kjós, Jón Pétursson Reykjarfirði, Matthías Pétursson Reykjarfirði og Þorsteinn Jónsson Gjögri.<br><br>
Ólafur Bernódusson631
Lárus Ægir Guðmundsson kann vel við sig úti í náttúrunni enda göngugarpur með afbrigðum. Á þessari mynd, sem tekin í Hólsdal við Siglufjörð, er Lárus á ferð í miðri lúpínubreiðu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn086
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd er þær niðursokknar við að skoða myndvélarnar sínar inni á veitngastað, Ásthildur Guðmundsdóttir til vinstri og Þorbjörg Magnúsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1000
Til vinstri er Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) og líklega er bróðir hans Heiðar Elvan Friðriksson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin líklega hefur það verið um 1960 því Vigfús fæddist 1953.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 15
Göngutúr um grasagarðinn í Laugardalnum var uppáhalds iðja Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007) eftir að hann settist í helgan stein. Herbert er lengst til vinstri á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin. Á þessum göngutúrum sínum hitti hann oft gamla kunningja og spjallaði við þá yfir kaffibolla. Með Hebba á þessari mynd er óþekktur maður með húfu og svo gamall Skagstrendingur, Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) lengst til hægri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 976
Þetta óþekkta fólk hefur stillt sér upp til myndatöku við síldarverksmiðjuna á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 898
Óþekkt kona í Djúpuvík líklega einhverntíma á fimmta ártugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.32007). Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn116
Bræðurnir Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til vinstri og Guðmundur Kristinsson til hægri með verðlaun sín í höndunum fyrir utan golfskálann á Háagerðisvelli í september 1996.
Ólafur Bernódusson679
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd. leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns kom með í gönguna í blíðu veðri.<br>Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Jónmundur Ólafsson til hægri að hressa sig á kakósopa uppi á Borgarhausnum áður en haldið er niður aftur. Jónmundur var elstur af þeim sem fóru í gönguna en hann var þá 74 ára og hafði aldrei áður komið á Borgarhausinn. Annars var göngufólkið á öllum aldri eða frá 6 ára til 74 ára.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 32
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) slakar á í sófahorninu.
Elínborg Jónsdóttir - safn 4
Þessu prúðbúnu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 606
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af nafnlausri hljómsveit sem lék á tónleikunum. Frá vinstri: Elmar Grétarsson á trommur, Elías Gunnar Hafþórsson með gítar, Benedikt Blöndal kennari með gítar, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennari flettir fyrir Sigurlaugu Máney Sæmundsen sem spilar á saxófón og Guðrún Anna Halldórsdóttir á píanó.
Adolf H Berndsen - safn109
Slappað af við golfskálann á Háagerðisvelli meðan þeir sem lokið hafa leik bíða eftir þeim sem enn eru að spila. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Ari H. Einarsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Adolf H. Berndsen, Stefán Petersen, Jón Sigurðsson, óþekkt, Guðrún Björg Berndsen, óþekktur, Fríða Hafsteinsdóttir, tveir óþekktir, Fanney Zópóníasdóttir, Laufey Berndsen og Vilhelm Jónsson.
Ólafur Bernódusson659
Myndin var tekin 13. ágúst 2010 á Kántrýdögum. Hér er gestum og gangandi boðið upp á frían kaffisopa og spjall efst á Bogabrautinni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn071
Systkina-kaffiboð hjá Adolf og Hjördísi á Bankastræti 9. Frá vinstri: Karl Berndsen (d.12.2.1995), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Fríða Hafsteinsdóttir, Helga Berndsen og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018). Karl og Fríða voru hjón eins og Helga og Gunnlaugur. Karl, Adolf og Helga eru systkin frá Karlsskála.
Jósef H Sigurðsson - safn 006
Systkini kúra saman heima í Hólaneshúsinu. Frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015), Jósep Sigurðsson og Magnús Sigurðsson (d.16.9.2018). Myndin hefur líklega verið tekin 1967 - 68.
Jósef H Sigurðsson - safn 074
Þessi mynd var tekin 18. nóvember 1999 en ekki er vitað hvar. Hún var tekin í einhverri fjölskylduveislu. fólkið á myndinni er: Jósep Sigurðsson dökkklæddur til vinstri. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) í hvítri skyrtu með bindi. Sigríður Sigurðardóttir heldur barni á lofti. Jósep og Sigríður eru systkini, börn Sigurðar, en líklega eru börnin afabörn Sigurðar en maðurinn og konan tengdabörn hans.
Elínborg Jónsdóttir - safn 24
Þessi mynd var tekin við Másstaði í Vatnsdal. Í aftari röð eru mæðgurnar Halldóra Gestsdóttir (d. 17.9.1977) lengst til vinstri og Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) önnur frá vinstri. Hinar konurnar eru óþekktar en Elínborg átti þrjár hálfsystur samfeðra, einn hálfbróður og þess utan einn uppeldisbróður. Það er því freistandi að áætla að óþekktu konurnar séu þær systur og eiginkonur mannanna. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 009
Myndin er af skólastúlkum í Höfðaskóla ásamt kennara sínum fyrir utan "Gamla skólann" eða Bjarmanes eins húsið heitir. Myndin var tekin einhverntíma á sjötta áratugnum - fyrir 1958 þegar Höfðaskóli fluttist í nýtt húsnæði. Í fremri röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi, Dagný Þórðardóttir og Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála. Aftari röð frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Guðrún Kristinsdóttir Kálfshamri, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Magdalena Axelsdóttir (d.?) frá Læk og Bylgja Angantýsdóttir. Strákarnir lengst til hægri eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn088
Beðið eftir næsta skammti af þökum til að leggja á flötina á braut 4 á Háagerðisvelli í ágúst 1993. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Adolf H. Berndsen, óþekktur drengur og Sigurður Berndsen. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 015
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 846
Konan sem er með þessi börn af leikskólanum er óþekkt. Barnið sem skyggnir fyrir augu er Haukur Ragnarsson. Framan við hann í appelsínugulum buxum er Kristján Gunnar Rúnarsson en stelpan með rauða dúskinn í húfunni er Elísabet Eik Guðmundsdóttir. Aðrir eru óþekktir. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1980.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 066
Frændurnir Guðjón Hall Sigurbjörnsson til vinstri og Jón Ólafur Skigurjónsson til hægri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1983.
Árni Geir Ingvarsson - safn 896
Ekki er vitað hvað er verið að halda upp á í Djúpavík. Líklega eru þessar prúðbúnu konur, í skrúðgöngunni, síldarstúkur sem voru í vinnu við síldarsöltun á planinu í Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 769
Stefán Jósefsson í sínu eðlilega umhverfi um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að gera klárt fyrir grásleppuveiðarnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 903
Síldarsöltun á plani og síldarbræðsla í verksmiðjunni í fullum gangi á Djúpuvík. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Ólafur Bernódusson696
Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni syngja saman þau Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn045
Þessi spariklæddu frændsystkini eru, í fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen með Hendrik Berndsen í fanginu, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Myndin var líklega tekin 1967.
Jósef H Sigurðsson - safn 097
Þessi mynd var tekin á skírnardegi Sigríðar Sigurðardóttur árið 1963. Á myndinni er hún í fangi móður sinnar Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Faðir Sigríðar, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002), situr með bróður hennar Magnús Sigurðsson en annar bróðir hennar, Jósep Sigurðsson situr á milli foreldra sinna.
Jósef H Sigurðsson - safn 068
Kenny Hallbjörnsdóttir .
Árni Geir Ingvarsson - safn 911
Séð heim að byggðinni í Djúpavík í Reykjarfirði syðri. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) sem ólst upp í Kúvíkum og á Gjögri. Kúvíkur var lengi eini verslunarstaðurinn í Strandasýslu eða allt til ársins 1846 þegar Borðeyri fékk löggildingu sem verslunarstaður. Í dönskum skjölum voru Kúvíkur kallaðar lýsishöfn, sú eina á landinu sem þannig var flokkuð. Kemur þetta til vegna þess að mikilvægasta verslunarvara Árneshreppsbúa var hákarlalýsi. Eftir að einokunarverslun var lögð af höfðu kaupmenn fasta búsetu á staðnum. Verslunarstaðurinn var þá oftast nefndur eftir firðinum og kallaður Reykjarfjörður. Í dag er byggðin löngu horfin en reist hefur verið sumarhús á svæðinu og vegslóði lagður að því. <br>(Heimild: http://www.landogsaga.is/section.php?id=8&id_art=653)
Hallgrímur Kristmundsson safn044
Myndin var líklega tekin í Listigarðinum á Akureyri kringum 1950. Á henni eru félagar í skemmtiferð í sparifötunum, frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson, Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 á síldveiðum líklega sumarið 1961. Maðurinn á myndinni er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
1
…
160
161
162
…
167
Leita í myndasafninu
Leita