Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Hallgrímur Kristmundsson safn065
Birgir Árnason (d.2.2.2005) frá Árnesi en bjó lengst af í Straumnesi á Skagaströnd. Birgir var m.a. verkstjóri við síldarsöltun og lengi hafnarvörður á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 21
Á myndinni er Heiðar Elvan Friðriksson og móðurbróðir hans Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Líklega var myndin tekin á fermingardegi Heiðars vorið 1968.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 033
Kór Blönduóskirkju á æfingu. Fremri röð frá vinstri: Svanhildur Þorleifsdóttir (d.13.4.1988), Anna Tryggvadóttir (d.31.8.2007), Davía Guðmundsson (d.17.1.1999), Guðrún Ingimarsdóttir (d.?), Anna Árnadóttir (d.?), Þorgerður Sæmundssen og við orgelið er Sólveig Sövik (d.29.7.2010). Aftari röð frá vinstri: óþekktur, Kristófer Kristjánsson (d. 27.2.2017), Einar Guðlaugsson (d.1.4.2008), Jón Kristinsson (d.?) og Einar Þorláksson. Stjórnandinn er óþekktur.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn085
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Á þessari mynd eru þær í rútunni svilkonurnar, Guðrún Soffía Pétursdóttir til vinstri og Þorbjörg Magnúsdóttir til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 021
Þessar systur eru dætur Jóns Ólafs Ívarssonar (d.2912.2013) og Guðrúnar Sigurðardóttur. Systurnar eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin 1966.
Árni Geir Ingvarsson - safn 805
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Jón Arnarson, Guðmunda Ólafsdóttir, Viggó Magnússon og Óli Hjörvar Kristmundsson.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 045
Hér gæjast þær Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ardís Ólöf Arelíusdóttir til hægri út um dyrnar á hjólhýsi þeirrar síðar nefndu sumarið 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 30
Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988) við veisluborð heima á Bogabraut 16.
Jósef H Sigurðsson - safn 033
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Máni Hu 5 sem var áður Halkion Ve 27.
Myndin var líklega tekin þegar Máni kom til Skagastrandar fyrst í september 1960 í eigu Hólaness hf. Hann var svo talinn ónýtur og tekinn af skrá 1965. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Ólafur Bernódusson 639
Mánaðarmótin febrúar mars 2011 var haldin "vinnuvika/þemavika" í Höfðaskóla. Þá var öllum nemendum skólans skipti í hópa þvert á bekki. Hver hópur fékk svo verkefni sem öll tengdust vesturferðum Íslendinga á árunum 1873 - 1914 á einhvern hátt. 4. mars var síðan haldin sýning á verkum nemendann í íþróttahúsinu. Verkin voru afar mismunandi en á sýningunni kynnti hver hópur sitt verkefni. Á þessari mynd er hluti kennaranna, frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Guðrún Elsa Helgadóttir, Erna Hreinsdóttir og Agnes Sævarsdóttir. Elva og Agnes eru með "indíánafléttur" í tilefni dagsins.
Hjördís Sigurðardóttir - safn064
Á myndinni eru frá vinstri: Helga Berndsen, Knútur Berndsen (d.31.8.2013) og Theodóra Berndsen (d.25.1.2007) kona hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn063
Líkami og sál var félagsskapur kvenna á Skagaströnd sem stóð fyrir margs konar uppákomum til að rækta líkama og sál veturinn 2002 - 2003. Þær héldu veislu- og skemmtikvöld innan sinna raða á þrettándanum 2003 í Fellsborg þar sem þær borðuðu góðan mat og skemmtu hver annarri með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru systurnar Hjördís, til vinstri, og Guðrún Sigurðardætur að spila og syngja fyrir og með konunum í veislunni.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 009
Hallbjörg Jónsdóttir á vagninum sínum fyrir utan Bankastræti 9 líklega 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn 859
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af bílaflotanum á bílastæðinu við virkið. Greinilegt að Willys jeppar hafa verið vinsælir bílar á þessum tíma.
Hjördís Sigurðardóttir - safn087
Þökurnar sem notaðar voru á flatirnar á Háagerðisvelli voru skornar annarsstaðar á vellinum utan brauta. Á þessari mynd frá því í ágúst 1993 eru Árni Jón Guðmundsson (d. 8.11.2006) til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) að rífa upp þökur til flutnings á rétta staði.
Hjördís Sigurðardóttir - safn118
Ingibergur Guðmundsson á Hágerðisvelli í september 1996 með verðlaunabikar. Ingibergur er einn af ötulustu forystumönnum Golfklúbbs Skagastrandar. Drengurinn í bayn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson665
Myndin var tekin í 35 ára afmæli Barnabóls 7. júní 2012. Þá komu Skoppa og Skrítla í heimsókn og skemmtu. Á myndinni eru þær stöllur að gera sig klárar fyrir atriði sitt. Krakkarnir og foreldara þeirra bíða spennt eftir að sýningin hefjist.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 053
Aðalbjörg Hu 7 á landleið með fullfermi af síld sumarið 1961. Nótabáturinn með síldarnótinni innanborðs flýtur við hlið bátsins. Ofan á borðstokkana hafa verið settar upphækkanir, "merar", til að koma fyrir meiri síld á dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 932
Tveir herramenn í kaupstaðarferð á Djúpuvík. Myndina tók Herbert Ólafson (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær, líklega hefur það verið á fimmta áratugnum. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 070
Myndin var tekin af Skagstrendingum á vinabæjarmóti en ekki er vitað hvar eða hvenær. Frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Finnur Kristinsson.
Elínborg Jónsdóttir - safn 22
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, fremst miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og milli þeirra er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 886
Hvar var þessi mynd tekin árið 1964? Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 871
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af tjaldsvæðinu, bílastæðinu og Borgarvirki sjálfu sem gnæfir yfir í baksýn.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn045
Eldri borgarar á ferðalagi heimsóttu Hóladómkirkju í september 2004. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir, Guðný Finnsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 857
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af óþekktum ræðumanni í Borgarvirki.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 026
Stoltir með reiðhjólin sín, Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk til vinstri og Bergur Jón Þórðarson í Herðubreið til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 141
Systrasynirnir Heiðar Elvan Friðriksson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri sumarið 1963.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983) skáld og verkamður. Angantýr var sonur Guðrúnar Árnadóttur - Guðrúnar frá Lundi - og Jóns Þorfinnssonar. Hann var í sambúð með Jóhönnu Jónasdóttur á Skagaströnd og eignuðust þau þrjár dætur: tvíburana Guðrúnu og Sigurbjörgu (d. 10.9.1997) og Bylgju. Angantýr gaf út tvær frumsamdar ljóðabækur: Geislar og glæður 1962 og Huldar slóðir 1964 einning skrifaði hann töluvert í blöð og tímarit. Til gamans er hér birt fallegt en stutt kvæði eftir Angantý:
Enn þá vakir einhver þrá
innst í hugans línum.
Alltaf finn ég ylinn frá
æskustöðvum mínum.

Þar var allt til ununar
út við bláan sæinn.
Man ég grænu grundirnar
og gamla sveitabæinn.

Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Ingólfur Bjarnason á heimavelli í Rækjuvinnslunni hf en hann vann þar sem verkstjóri um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 801
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: tveir óþekktir og Kristín Jónsdóttir fjærst, Þorvaldur Skaftason nær, Ingimar Oddsson fjær, Steindór Haraldsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og William Sillar. Á bakvið sér í Þórhildi Jakobsdóttur spilandi á harmóniku.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn030
1996 stóðu nokkrar konur fyrir átakinu Líkami og sál á Skagaströnd. Hópurinn sem tók þátt í átakinu stundaði leikfimi af miklum móð, fór í gönguferðir og fjallgöngu og nærði líka sálina með ýmsum uppákomum. Þessi mynd var tekin þegar hópurinn gekk á Spákonufellið í maí 1996. Á myndinni eru þáverandi sambýlisfólk, Garðar Geirfinnsson og Íris Valgeirsdóttir að taka sér pásu á leiðinni upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 908
Brugðið á leik á Djúpuvík. Fólkið, sem er að skemmta sér, er óþekkt en ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Hjördís Sigurðardóttir - safn134
Sumarið 1986 tóku áhugamenn um líkamsrækt á Skagaströnd sig saman og stofnuðu félag um það áhugamál sitt. Lögðu þeir fram fé til kaupa á líkamsræktartækjum sem komið var fyrir í kjallaranum í Höfðaskóla. Formleg vígsla líkamsræktarstöðvarinnar var síðan í desemer 1986 og þá var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen og Fríða Hafsteinsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 079
Þessi mynd var líklega tekin 1954 á fermingardegi tvíburasystranna Guðrúnar og Sigurbjargar, sem eru hvítklæddar á myndinni. Fólkið er frá vinstri talið: Sigurbjörg Jónasdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Guðrún Árnadóttir (Guðrún frá Lundi) (d.22.8.1975), Jón Þorfinnsson (d.20.12.1960), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983). Guðrún frá Lundi og Jón voru foreldrar Angantýs en Sigurbjörg Jónasdóttir var móðuramma systranna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 27
Þrjár óþekktar, prúðbúnar konur. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) en ekki er vitð hvenær né hvar. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1001
Árni Geir Ingvarsson
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn080
Konurnar sem þátt tóku í Líkami og sál verkefninu veturinn 2003-2004 fóru í óvissuferð í byrjun maí 2004. Þessi mynd var tekin út í Hrísey af þeim, frá vinstri: Hildi Ingólfsdóttur, Vigdísi Elvu Þorgeirsdóttur og Dagný Marín Sigmarsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 961
Drengurinn annar frá hægri og stúlkan eru með poka í höndunum og eru líklega að gæða sér á einhverju nammi. Aftan á þessari mynd stendur: "Lilja 5 ara Lyður 8 ára Þorsteinn Rúnar 12 ára". Á myndinni eru frá hægri: Lilja Elsa Sörladóttir, Lýður Sörlason og Þorsteinn Rúnar Sörlason. Þau voru börn Sörla Hjálmarssonar (d.1.3.1984) og Guðbjargar Pétursdóttur (d.26.7.1987) á Gjögri í Árneshreppi. Drengurinn lengst til vinstri er óþekktur. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Árni Geir Ingvarsson - safn 951
Síldarbátar í höfn á Djúpavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Báturinn næst okkur ber einkennisstafina SF 58 en nafnið er óþekkt. Á kinnunginn á stálbátnum í baksýn stendur Jörundur. Líklega er það báturinn Jörundur Bjarnason frá Bíldudal.
Hallgrímur Kristmundsson safn061
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum systkinum en líklega hefur það verið einhverntíma upp úr 1940. Frá vinstri: Anna Kristmundsdóttir, Hallgrímur kristmundsson (d. 9.20.1998) og Ingibjörg Kristmundsdóttir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 071
Það var alltaf stutt í gleðina hjá þessu fólki, sem var við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Á myndinni er Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) með tvíburasystrunum Guðrúnu Angantýsdóttur til vinstri og Sigurbjörgu Angantýsdóttur (d.10.9.1997) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 791
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu. Leikararnir eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Gunnar Halldótr Hallbjörnsson, Jónas Þorvaldsson nær, Sigrún Jónsdóttir fjær, Þórey Jónsdóttir, Steindór Haraldsson, Ingimar Oddsson, Ingibergur Guðmundsson og þrír óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) frá Kambakoti sker grásleppu um borð í bát sínum Ósk Hu 33. Stefán gerði Óskina út á grásleppu margar vertíðir og þá gjarnan í samvinnu við Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) eða Indriða Hjaltason (d. 2.4.2006). Drógu þeir tvær skektur á Óskinni sem karlarnir fóru svo um borð í og vitjuðu um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan hinir fóru í næstu trossur.
Ólafur Bernódusson 619
Á hverju vori eru haldnir lokatónleikar Tónlistarskóla A-Hún, Skagastrandardeildar. Þar koma nemendurnir fram og spila fyrir gesti sem yfirleitt fylla Hólaneskirkju þar sem tónleikarnir eru haldnir. Þessi mynd er frá tónleikunum vorið 2010 og er af Elínu Ósk Björnsdóttur að spila á trompet við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur kennara á píanó.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 20
Aftan á þessa mynd er ritað: "Ólafur Thórarensen Tekin Kúvíkum 1950". Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Guðrún Sigurðardóttir - safn 036
Kvennaskólastúlkurnar Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti til hægri fyrir utan íþróttahúsið - skólann - á Blönduósi veturinn 1959 - 1960. Til hægri skyggnir Axel ? íþróttakennari hönd fyrir augu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 958
Þessi litla stúlka er óþekkt. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 971
Óþekktur maður í Djúpavík. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn076
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hér stoltur við Willis-jeppann sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 860
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki að fylgjast með hátíðahöldunum af veggjum virkisins. Valdimar Benónýsson bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi gerði vísu af tilefni vígslunnar. Vísan varð fleyg enda vel gerð og skemmtileg:

Hlaðinn varðinn vitni ber
Víga-Barða stríði.
Þessi garður ennþá er
ættarjarðar prýði.

Hallgrímur Kristmundsson safn050
Ekki er vitað hvaða fólk er á myndinni en líklega eru það Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og systur hans Anna og Ingibjörg. Ekki er heldur vitað hvar myndin var tekin (?Akureyri?). Ef þú þekkir fólkið og/eða veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn046
Sambýlisfólkið Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Anna Ármannsdóttir lyfta glasi á góðri stund í Fellsborg.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 068
Helga Berndsen (Bíbí) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í góðum gír sitjandi á stigbretti á vörubíl. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur Gunnar átt bílinn því hann var vörubílstjóri að atvinnu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 58
Ekki er vitað um tilefni samsætisins á myndinni. Myndin, sem var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd, var líklega tekin seint á áttunda áratugnum eitthvað í tengslum við hestamennsku. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Salóme Rúnarsdóttir, Ásta Ásgeirsdóttir og Gunnar Tryggvi Ómarsson.
Jósef H Sigurðsson - safn 037
Þessi stúlka er annað hvort Rósa Dröfn Sigurðardóttir úr Hólaneshúsinu eða systir hennar Hugrún Sigurðardóttir. Ef þú veist hvor þeirra þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 044
Það ríkir gleði á þessari mynd hjá þeim, frá vinstri: Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011), Jósep Sigurðsson, Axel Gígjar Ásgeirsson og Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001).
Hjördís Sigurðardóttir - safn068
Hjónin Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) og Magdalena B. Jóhannesdóttir (d.?). Myndin ver tekin 1994. Róbert var fyrsti útbússtjóri Landsbankans á Skagaströnd eftir að bankinn yfirtók Sparisjóð Skagastrandar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Rækjupökkun í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórunn Óladóttir, Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jósef H Sigurðsson - safn 090
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsi heldur hér á Jósep syni sínum. Sigurður eignaðist ellefu börn með tveimur konum sínum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 072
Þessir tveir menn voru verkstjórar í Rækjuvinnslunni hf í fjölda ára. Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason (d.10.5.2000) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1

162
163
164

167
Leita í myndasafninu
Leita