Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason434
Starfsmenn í frystihúsi Hólaness hf á Hólanesi fyrir utan frystihúsið. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Henrý Kristjánsson (22.6.1972) Kárastöðum, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1998) Sævarlandi, Jón Árnason (d. 5.9.1993) Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Fjalli, Árni Max Haraldsson ( d. 6.12.1976) Litla Bergi, Jón Áskelsson (d. 26.3.1989) Hólanesi og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) þá: Sólvöllum
Magnús B Jónsson007

Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi, líklega 1989. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir. Þessi sveit keppti fyrir Kaupfélagið en stúlkurnar voru allar satrfsstúlkur þar. Sigrinum fylgdi bikar til varðveislu í eitt ár. Ef sama sveitin vann bikarinn þrisvar í röð eða fimm sinnum alls vannst hann til eignar. Enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi á Skagaströnd á bátunum Gusti og Golu, sem byggðir voru í bátastöð Nóa Kristjánssonar á Akureyri árið 1948 og notaðir í fyrsta sinn á sjómannadegi það ár. Allt upp í 16 róðrarsveitir hafa keppt á sjómannadegi en það var 1988 sem þær voru svo margar. Yfirleitt eru sveitirnar þó mun færri.

Heimild: Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár eftir Lárus Ægi Guðmundsson útgefið 2009.

Guðmundur Guðnason181
Fólkið í þessum sönghópi er talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir frá Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum, Friðrik Björnsson Gili og Sigurbjörg R. Stefánsdóttir. Myndin var tekin þegar karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt tónleika á Húnavöku. Ártalið er óþekkt.
Guðmundur Guðnason277
Maðurinn til vinstri er Sigurður Ísólfsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jóhannes Pálsson og 10 börn hans 037
Jóhannes Pálsson skósmiður frá Garði (d. 9.3.1972) með 10 af börnum sínum. Fremri röð frá vinstri: Elín, Birna, Jóhannes Pálsson, Sigríður og Hrefna. Aftari röð frá vinstri: Guðjón, Hartmann, Jóhanna, Þorleifur, Guðmundur og Páll.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn051
Guðbjartur Guðjónsson (Bjartur í Vík) og Bernódus Ólafsson (Benni Ólafs). Bjartur er til vinstri á myndinni. Þessi mynd er tekin á sýningu í skólanum á handavinnu í Félagssarfi eldri borgara í desember 1987. Einnig var sölusýning á handunnum munum og var verið að safna fyrir stórri kaffivél og læstum skáp undir handavinnu og lager . Þetta tókst. Kvennfélagið seldi kaffi til styrktar sér.
Magnús B Jónsson017

Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Eins og sjá má þá var vísukorn límt á setuna. Vísan, sem var eftir Kristján Hjartarson sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, var eftirfarandi:

Ljúfi Valdi líttu á
látt ei í þig fjúka

Magnús B Jónsson053
Vormynd af Skagaströnd tekin frá skíðasvæðinu í suðurhlíðum Spákonufells. Myndin sennilega tken um 1980.
Magnús B Jónsson049
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, óþekktur gítarleikari, Kristján Blöndal, Bóel Hallgrímsdóttir og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson020
Stoltir verðlaunahafar á golfmóti á Hágerðisvelli. Hér hefur greinileg verið keppt í karla- kvenna- og unglingaflokkum. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Oliver Oliversson, Kristján??son, Ingvar Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Björn Sigurðsson, Karl Berndsen og líklega Sigurbjörn Kristjánsson sem horfir niður.
Óþekktur ljósmyndari130
Lokahátíð vinnuskólans 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Magnús B Jónsson020
Barnaleikur í gangi á sjómannadegi. Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Sveinsson og Hinrik Jóhannesson stjórna leiknum.
Guðmundur Guðnason236
Stúlkurnar þrjár á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason336
Þessi mynd af kirkjukórnum var tekin á einhverju námskeiði þar sem Kjartan Jóhannesson var leiðbeinandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Aftari röð frá vinstri: Kjartan Jóhannesson söngþjálfari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason428
Myndin var tekin á hrútasýningu sennilega á árunum upp úr 1960. Frá vinstri: Guðbjartur Guðmundsson ráðunautur, Skarphéðinn Einarsson frá Dagsbrún, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) Lækjarhvammi, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og lengst til hægri er Sigurlaug Jónsdóttir Ási.
Sigurbjörn Kristjánsson 1970 077
Sigurbjörn Kristjánsson - Bjössi á Kárastöðum - (d. 10.9.1989). Myndin var tekin 1970 heima á Kárastöðum.
IMG_3294
Þessi loftmynd er hluti af stærri loftmynd af Skagaströnd sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum kringum 1965. Ekki er vitað hver tók myndina en eftirtöku annaðist Árni Geir Ingvarsson. Ef rýnt er í myndina sjást mörg hús sem horfin eru í dag og gatnakerfið hefur líka tekið allmiklum breytingum.
Guðmundur Guðnason285
Áramótabrenna. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Magnús B Jónsson035

Dansatriði á árshátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Vigdís Ósk Ómarsdóttir , Dagbjört Jóna Jóhannsdóttir, Elísabet Stefanía Hallbjörnsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Hafdís Eygló Þorvaldsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Stúlkurnar dönsuðu frumsaminn dans sem þær sömdu með hjálp kennara síns, Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara. dansað var við lagið "How will I know" með Whitney Huston. Búningana hönnuðu stúlkurnar sjálfar og saumuðu buxurnar sem þær eru í á myndinni.

Margrét Pétursdóttir 065
Margrét Pétursdóttir. Ef þú veist eitthvað um þessa konu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason232
Gauti Jónsson frá Gautsdal hvílir sig á snjósleða um há sumar. Myndin er sennilega tekin á hlaðinu í Gautsdal.
Ólafur Bernódusson056
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Hér eru starfsmenn Útvarps Höfðaskóla að störfum. Frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorsteinn Jónsson, Ægir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson
Magnús B Jónsson032
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni eru: Viggó Magnússon bassaleikari og söngvari, Ægir Jónsson trommuleikari og Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Lára Kristjánsdóttir 1981 053
Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Myndin var tekin 1981
Helga Þorbergsdóttir 027
Helga Þorbergsdóttir frá Garði (f. 30.4.1884 - d. 30.9.1970). Helga var gift Jóhannesi Pálssyni skósmið í 68 ár og eignuðust þau hjónin fjölda barna.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason258
Þessi mynd var tekin á skíðamóti við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Maðurinn fyrir miðri mynd, með dökk gleraugu, er Björn Sigurbjörnsson þáverandi formaður USAH. Erna Högnadóttir er þriðja frá vinstri og Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) er aftan við Björn. Aðrir eru óþekktir.
Magnús B Jónsson051
Skíðalyftan í suðurhlíðum Spákonufells. Óþekktur maður afgreiðir stafi út af lyftunni en Magnús B. Jónsson ber áburð á skíðin sín utan við lyftuskúrinn. Fyrir kom að það var svo mikill snjór á skíðasvæðinu að skúrinn fór á kaf ásamt lyftunni. Örlög skúrsins urðu síðan þau að hann splundraðist í ofsaveðri og dreifðist um nágrennið.
Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason197
Karlar á spjalli við Spákonufellsrétt 1962. Bíllinn til hægri var af gerðinni Unimog og þótti sérkennilegt farartæki. Bíllinn var í eigu Jóhanns Péturssonar (d.13.1.1999) frá Lækjarbakka.
45_Helga_Dan_sidari_madur_hennar_Einar
Helga Daníelsdóttir frá Syðri-ey og maður hennar Einar Soderholm
Guðmundur Guðnason211
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Brugðið á leik í vinnunni. Frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Helgi Jónatansson og Þórarinn Hjartarson frá Vík.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
Guðmundur Guðnason166
Réttastörf í Stafnsrétt 1963. Maðurinn til vinstri, með derhúfu, er Magnús Indriðason frá Húsey. Þriðji frá hægri er Jakob Sigurðsson (d. 27.5.1991) frá Steiná síðar á Hóli. Til hægri er Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrarseli og teymir hyrnda kind.
Magnús B Jónsson011
Heiðrun á sjómannadegi á Skagaströnd 1989. Lárus Ægir Guðmundsson heiðrar Jón Jónsson frá Asparlundi, Jóhann Pétursson frá Lækjarbakka og Jóhönnu Jónasdóttur frá Höfðatúni fyrir áralöng störf sína á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason191
Réttað í Spákonufellsrétt haustið 1962.
Guðmundur Guðnason247
Fermingarárgangur 1981. Fremst frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Svenny Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir. Miðröð f.v.: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson, Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð f.v.: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Erna Rós Magnúsdóttir og Ingvar Þór Jónsson. Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri).
Guðmundur Guðnason188
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri:. Pétur Sigfússon bóndi í Álftagerði Seyluhreppi, Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð í Svartárdal og Jónas Haraldsson á Völlum í Skagafirði sem skoðar markið á hrossinu. Sá með gleraugun er Björn Eysteinn Jóhannesson bóndi í Stokkhólma í Vallhólmi. Ljósklæddi maðurinn til hægri er Guðmundur Ó. Guðmundsson en hann var um skeið skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Guðmundur Guðnason186
Þessi mynd var tekin 1970 sennilega í Stafnsrétt. Á myndinni er réttarstörfum að ljúka og fólk er að skoða hross og spá í lífið og tilveruna. Guðmundur Ó. Guðmundsson er fjórði frá vinstri í ljósum buxum. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson054
Starfið í Höfðaskóla er stundum brotið upp í nokkra daga og þá fást nemendur við annað en hefbundið skólastarf. Þessi mynd er tekin í vinnuviku 1986 eða 1987. Á henni er skólasjórinn Páll Leó Jónsson og tveir starfsmenn Útvarps Höfðaskóla sem starfrækt var þessa viku. Starfsmennirnir eru Viggó Magnússon útvarpsstjóri með hljóðnemann og Þorlákur Sveinsson tæknimaður. Börnin tvö í forgrunninum eu óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn057
Guðrún Þórbjarnardóttir á sjötta áratugnum. Myndin var tekin utan við Stórholt.
Guðmundur Guðnason231
Þessi mynd var líklega tekin í heimsókn Lionsmanna frá Skagaströnd á Siglufjörð ásamt mökum sínum. Á myndinni sýnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson? gestunum kirkjumuni. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Edda Pálsdóttir dóttir hans, óþekkt kona og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) ljósmyndari og skátaforingi.
Guðmundur Guðnason293
Hólabraut 17 byggðu hjónin Hallbjörn Björnsson og Guðný Sigurðardóttir á áttunda áratugnum. Þarna ólu þau upp börnin sín þrjú : Björn, Elísabetu og Gunnar Halldór.
Steinþór Ólafsson 085
Steinþór Carl Ólafsson (d.18.9.1985) póstmeistari á Skagaströnd.
Jón Jónsson184
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Steindór Rúniberg Haraldsson, meðhjálpari í Hólaneskirkju, ávarpar samkomuna.
Guðmundur Guðnason256
Þessar ungu stúlkur tóku þátt í einhverri skíðakeppni við togbrautina í Spákonufelli einhverntíma á árunum 1974 - 1978. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Hjá þeim stendur þáverandi formaður USAH, Björn Sigurbjörnsson skólastjóri á Blönduósi. Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir026
Gæðastund heima á Jaðri. Frá vinstri: Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) með afabarn í fanginu og Hallbjörn Björnsson sonur hans. Barnið er líklega Elísabet Hallbjörnsdóttir. Myndin var tekin kringum 1970.
Guðmundur Guðnason403
Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal frá Dvergasteini.
Guðmundur Guðnason346
Þetta káta fólk situr að kaffidrykkju. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Ágústa Ágústsdóttir og Georg Hjartarson(13.9.2001).
Magnús B Jónsson039
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Magnús B Jónsson037
Myndin var tekin af fimleikasýningu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Inga Matthíasdóttir kennari stendur lengst til hægri.
Guðmundur Guðnason360
Hér syngur kirkjukór Hólaneskirkju undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri í kórnum eru: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir (Bebbý).
Magnús B Jónsson026
Einn sjómannadag var farin Karnivalganga frá kaupfélaginu að hátíðasvæðinu við Hafnarhúsið. Myndaður var risafiskur í anda dagsins og þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Myndin er af Vigdísi Viggósdóttur til vinstri en hún var með sporð fisksins á bakinu og gekk því aftast. Kolbrún Viggósdóttir er til hægri með borða og skraut sem notað var í göngunni.
Hverjar eru þetta 030
Elísabet Frímannsdóttir - Beta á Jaðri (d. 1.9.1990) með litla stúlku. Ef þú þekkir stúlkuna , vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason414
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna) á Hólanesi.
Guðjón, Mundi, Gunna, Palli, Jonna, Hrefna, Sigga 017
Hluti systkinanna frá Garði, sem voru alls sextán. Frá vinstri: Guðjón Jóhannesson, Guðmundur Jóhannesson, Páll Jóhannesson, Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Sigríður jóhannesdóttir.
Magnús B Jónsson046

Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Hrönn Árnadóttir, Ólafur Ingibjörnsson, Bernódus Ólafsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Anna H. Aspar, Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Erna Hreinsdóttir með barn í fanginu.

Magnús B Jónsson070
Ungir verðlaunahafar á páskamóti á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd með kennaranum sínum. Myndin var tekin ca 1980. Drengirnir með páskaeggin eru óþekktir nema sá í miðið er Brynjar Pétursson og kennarinn er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) frá Ísafirði. Ef þú þekkir hina drengina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kristín Lúðvíksdóttir 049
Kristín Lúðvíksdóttir. Myndin var tekin kringum 1965.
Guðmundur Guðnason433
Jón Þorsteinsson (d. 17.9.1994) alþingismaður til vinstri spjallar við óþekktan mann (gæti verið Rósberg G. Snædal frá Ægissíðu) á Skúffugarðinum.
1

40
41
42

167
Leita í myndasafninu
Leita