Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason581
Óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason385
Fermingarbörn 1981 (fædd 1967) með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju á fermingardaginn sinn. Aftasta röð frá vinstri: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Laufey Vilmundardóttir og Ingvar Þór Jónsson. Miðröð frá vinstri: Óafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson og Björn Hallbjörnsson. Fremsta röð frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, séra Pétur, Svenny Hallbjörnsdóttir og Rósa Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason317
Þessi skúr var við Spákonufellsrétt. Þarna seldu kvenfélagskonur gjarnan kaffi og með því á réttardögum. Skiltið málaði Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og hafði Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) frá Brautarholti sem fyrirmynd.
Guðmundur Guðnason338
Messa í Hólaneskirkju eldri. Organisti er Jane Sillar (nú Jane Grose) en presturinn í stólnum er séra Ægir Fr. Sigurgeirsson. Hinn presturinn er séra Guðni Ólafsson á Melstað. Kirkjugestir eru óþekktir nema konan sem situr vinstra megin framan við hvíthærðu konuna er Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007).
Guðmundur Guðnason494
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var tekin áður en ný búningsaðstaða var byggð en húsið til vinstri á myndinni var kyndiklefi/hús fyrir sundlaugina. Hér er verið að bera saman tímana eftir eitt kappsundið. Aðrir keppendur bíða í ofvæni eftir að röðin komi að þeim.
Guðmundur Guðnason286
Fólkið sem hér stendur með Gullfoss í baksýn eru hjónin Hertha W. Jónsdóttir og Stefán Gunnarsson (d. 2011) frá Æsustöðum. Með þeim er dóttir þeirra Sigríður Þrúða Stefánsdóttir.
Guðmundur Guðnason476
Kaffisamsæti í Höfðaskóla 1958 þegar byggingin var tekin í notkun. Maðurinn á miðri mynd er Sveinn Kristófersson frá litla Bergi (d. 9.5.1991). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason332
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason582
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Ole Aamundsen - Óli norski -(d.?) fer með gamanmál og Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3.1972) fylgist með.
Guðmundur Guðnason352
<P>Bernódus Ólafsson kynnir atriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.</P>
Guðmundur Guðnason206
Handtak á fjöllum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin og mennirnir á henni eru líklega Konráð Guðmundsson í Garðhúsum til vinstri og Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) úr Miðnesi til hægri.
Guðmundur Guðnason387
Rósa Sigurðardóttir með Sigurði Magnússyni (d. 2.8. 2002) föður sínum frá Hólanesi.
Jón Jónsson226
Örvar Hu 21 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn077
Systurnar Halla Björg Bernódusdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri. Myndin var sennilega tekin 1950 - 1955.
Adolf H Berndsen - safn008
Myndin var tekin framan við Karlsskála einhverntíma upp úr 1940. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (situr), Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995), Ernst G. Berndsen (d. 21.8.1983) og Ríkharður Pálsson frá Sauðanesi. Greinilega er a.m.k. strákunum mjög skemmt yfir einhverju. Í baksýn sér í húsið á Læk.
Guðmundur Guðnason337
Vala Rós Ingvarsdóttir stendur milli föður síns Ingvars Sigtryggssonar og séra Péturs Þ. Ingjaldssonar á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Magnús B Jónsson016
Leikfimiæfingar á sjómannadegi 1983. Frá vinstri sýna æfingar: Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Guðnason422
<p>Þessi lögreglumaður er Runólfur Aðalbjörnsson frá Hvammi í Langadal. Þarna er hann 22 - 23 ára gamall og myndin var líklega tekin á sjómannadegi annað hvort árið 1956 eða 1957.</p>
Guðmundur Guðnason535
Baldur Eðvarðsson
Guðmundur Guðnason368
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) skáld, organisti og kórstjórnandi frá Grund á sviðinu í Fellsborg.
Adolf H Berndsen - safn009
<p>Unnið í heyskap á góðviðrisdegi á Skagaströnd. Frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) með foreldrum sínum Guðrúnu Helgadóttur (d. 15.4.1987) og Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála</p>
Magnús B Jónsson087
Leikklúbbur Skagastrandar hélt Jónasarvöku í Fellsborg , líklega um jólin 1983, til heiðurs Jónasi Árnasyni en klúbburinn hafði sýnt a.m.k. tvö leikrit eftir hann. Jónas kom sjálfur á skemmtunina með konu sína með sér og tók þátt í skemmtuninni. Á myndinni syngja félagar í Leikklúbbnum einhvern af fjölmörgum söngtextum Jónasar. Frá vinstri: Óafur Bernódusson, Díana Kristjánsdóttir, Erna Hreinsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Hermannsdóttir, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir, Þorvaldur Skaftason, Kolbrún Viggósdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Vígsla Barnaskólans 2. nóv. 1958 091
Vígsla nýbyggingar barnaskólans 2. nóvember 1958. Skólabörn og foreldrar þeirra hlusta á vígsluræður.
Óþekktur ljósmyndari131
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri klippir á borða í Áhaldahúsinu í september 1998.
Guðmundur Guðnason316
Óþekktur harmoníkuleikari. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn066
Hjónin Anna H. Aspar og Bernódus Ólafsson í lystisiglingu á bát Bernódusar, Blíðfara, inn á Vækilvíkinni í Höfðanum. Litla stúlkan fremst í bátnum er Þórunn Bernódusdóttir og aftast er systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir. Stúlkan í miðjunni er Selma Þórarinsdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn074
Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa) ( d. 21.3.1991).
Guðmundur Guðnason195
Kristín Sigurðardóttir frá Kárastöðum og óþekkt stúlka á hestbaki við Spákonufellsrétt 1962.
Guðmundur Guðnason411
Margrét Guðlaugsdóttir.
Guðmundur Guðnason426
Helga Bachmann.
Guðmundur Guðnason437
Helga Ólafsdóttir í sparikjólnum, sennilega á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason240
Þetta fólk er óþekkt nema Sigurður Ísólfsson sem er jakkafataklæddi maðurinn fyrir miðri mynd. . Ef þú þekkir einhvern annan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason389
Börn Sigurðar Magnússonar (f. 18.11.1920 - d. 2.8.2002) frá Hólanesi og tveggja eiginkvenna hans, Sigurbjargar Björnsdóttur (d. 6.1.1956) og Dórotheu Hallgrímsdóttur. Aftari röð frá vinstri: Björn, sem heldur á yngstu systur sinni, Hugrúnu, Jósef, Þórunn og Árni, Fremri röð frá vinstri: Sigríður, Hjörtur, Magnús Elías, Rósa Dröfn og Kolbeinn Vopni
Guðmundur Guðnason309
Þrír félagar á ferðalagi í Húsafelli 1974. Frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu (d. 21.11.1988), Guðmundur Rúnar Kristjánsson frá Grund og Sigurður Bjarnason frá Bjargi standa við fræga kvíahellu þar.
Guðmundur Guðnason556
Ásólfur Guðlaugsson, Birgir Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) Æsustöðum og Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) Brandsstöðum í Húnaveri 1959.
Magnús B Jónsson058
Baldur Magnússon á skíðum á skíðasvæðinu við Skagaströnd ca 1980.
Adolf H Berndsen - safn004
Guðrún Helgadóttir á Karlsskála með börnin sín þrjú. Frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen, Guðrún, Adolf Jakob Berndsen og Hega Berndsen. Myndin var tekin upp úr 1940.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn073
Helga Berndsen frá Karlsskála
Guðmundur Guðnason425
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum.
img011
Á slíkum vagni eða bílpalli var féð flutt á milli staða eftir að réttarstörfum lauk. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason458
Konan til vinmstri er óþekkt en sú til hægri er Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Guðmundur Guðnason446
Myndin var líklega tekin í brúðkaupi Ómars Jakobssonar og Bjarnhildar Sigurðardóttur. Frá vinstri: Sigurbjörg Björnsdóttir (d. 3.4.1981) frá Grund, móðir Ómars, Ómar Jakobsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), Ragnhildur Þórarinsdóttir og Bjarni Frímannsson (d. 10.11.1987) fósturforeldrar Bjarnhildar.
Guðmundur Guðnason408
Þetta eru systurnar Margrét og Sigrún Guðlaugsdætur.
Guðmundur Guðnason353
Þessir ungu menn létu sig ekki vanta á hátíðasvæðið á sjómannadegi. Til vinstri er Axel Gígjar Ásgeirsson en til hægri er Björn Ingi Óskarsson.
Guðmundur Guðnason260
Á þessari mynd sést vel togbrautin, sem var notuð með hléum á árunum 1974 - 1978, í Spákonufelli. Drifhjól var útbúið og tengt við drifúttak vélarinnar og svo var blökk komið fyrir uppi á hæðinni. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp. Bannað var að vera með trefla í lyftunni því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni og átti til að grípa vettlinga sem þá festust við kaðalinn og losnuðu ekki fyrr en á niðurleiðinni. Eitt sinn munaði litlu að slys yrði þegar kona gleymdi sér og fór upp með trefil um hálsinn. Kaðallinn greip endann og byrjaði að snúa honum um sig. Konan áttaði sig hvað verða vildi og gat losað sig við trefilinn rétt áður en hún kom að blökkinni uppi. Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) átti og sá um dráttarvélina og sést hann á myndinni aftan við vélina. Til vinstri er Karl Berndsen (d. 12.2.1995) að búa sig undir að binda á sig skíðin. Aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson182
Myndin var tekin 1990 í kirkjukaffi í Fellsborg til að kveðja séra Ægi Fr. Sigurgeirsson sem var þá að hætta prestskap á Skagaströnd og taka við nýju embætti í Kópavogi. Við borðið sitja, frá vinstri: Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001), Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) kona hans og Níels Grímsson. Bak við þau á næsta borði sést Steindór R. Haraldsson.
Guðmundur Guðnason298
Séra Árni Sigurðsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergastaðakirkju 1983.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn068
Myndin er tekin í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - í kringum 1950. Á myndinni eru Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Adolf H Berndsen - safn015
<p>Þetta heyskaparfólk er talið frá vinstri: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Adolf J. Berndsen, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983), Karl Þ. Berndsen (d. 12.2.1995) öll frá Karlsskála, Magdalena Helgadóttir (d. ?) systir Guðrúnar og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) úr Árnesi. </p>
Magnús B Jónsson074
Hópur skíðagöngufólks gengur upp þáverandi tún við Hágerði - núverandi Golfvöll. Fremstur fer Magnús B. Jónsson og síðan kona hans Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir. Þriðji er Bernódus Ólafsson en aðrir eru óþekktir. Í baksýn grillir í Höfðann í skafrenningnum sem var þennan dag.
Guðmundur Guðnason402
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason281
Þetta fólk er líklega Sigurður Ísólfsson og fjölskylda hans. Sigurður er maðurinn í gráu jakkafötunum. Ef þú þekkir hitt fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason621
Andrés Árni Baldursson ólst upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason341
Bræðurnir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) til vinstri og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) til hægri drekka kaffi með Ágústu Ágústsdóttur söngkonu og úlpuklæddum manni sem mun vera Einar Helgason sem bjó í Sólvangi um tíma.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
Guðmundur Guðnason291
Bogabraut 17 byggðu hjónin Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir. Þarna ólu þau upp börnin sín þrjú Gunnar Þór, Önnu Elínborgu og Áslaugu Sif.
Guðmundur Guðnason269
Hólabraut 30 er prestsbústaðurinn á Skagaströnd. Húsið byggði Birgir Þórbjarnarson skipstjóri.
Guðmundur Guðnason479
Jón Ísberg sýslumaður (d. 24.6.2009) með konu sinni Þórhildi Guðjónsdóttur Ísberg. Maðurinn til hægri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson018
Kassahlaup á sjómannadegi 1983. Tilbúnir að leggja af stað eru frá vinstri: Jón Jónsson, Sigurjón Guðbjartsson og Kristján Karlsson. Lengst til hægri er ræsirinn Jón Ingi Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason504
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri eru í hlutverkum sínum: Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Björg Ólafsdóttir (d. 1.4.2007) og Edda Pálsdóttir.
1
…
44
45
46
…
167
Leita í myndasafninu
Leita