Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason358
Sóllundur - Hólabraut 8. Í þessu húsi bjuggu Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1997) og Sigríður Björnsdóttir (d. 17.6.1979) og bjuggu í því með dóttur sinni Sylvíu. Húsið var rifið og nýtt byggt á lóðinni af Ástmari Kára Ástmarssyni og Jóhönnu Harðardóttur.
38_Skemmtun_i_Vatnsdalnum
Óveður geysar á Skagaströnd á 9. áratugnum.
Guðmundur Guðnason418
Steinunn M. Ellertsdóttir.
Guðmundur Guðnason469
Hér sitja við hlaðið kaffiborð í Höfðaskóla af óþekktu tilefni, talið frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi, Guðmundur Guðnason ( d. 21.11.1988) Ægissíðu, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Þorgerður Guðmundsdóttir Höfðabrekku, Hrólfur Jónsson ( d. 1.8.1989) Bjarmalandi, Þórey Jónsdóttir ( 29.12.1966) Norður Skála, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður Skála og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höfða.
Adolf H Berndsen - safn028
Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlasíus fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6800 manns. Steindór Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á myndinni hellir Steindór sjávarrétta áleggi sem hann útbjó á pizzubotninn. Tveir kokkar úr kokkalandsliði Íslands hjálpa til við að dreifa úr álegginu á pizzabotninn. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Kristín Björnsdóttir029
Sigurður Björnsson fylgist með ungum frænda sínum Birni Hallbjörnssyni skríða á hlaðinu á Jaðri. Myndin var sennilega tekin 1968.
Guðmundur Guðnason421
<p>Kristín Helgadóttir eiginkona Hjálmars Eyþórssonar lögreglumanns.</p>
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn084
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Oft fiskaðist vel í ísnum ef hægt var að athafna sig. Hér eru við vinnu sína um borð í Vísi, frá vinstri: Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson og Bernódus Ólafsson. Auk þeirra var um borð skipstjórinn Sigurður Árnason.
Guðmundur Guðnason222
<p>Þessar konur eru á leið upp veginn frá Fossá, en sá vegur lá til Stafnréttar. Myndin var sennilega tekin 1968. </p>
Guðmundur Guðnason465
Lionsfundur í Lionsklúbbi Skagatrandar með gestum. Þessi Lionsfundur hefur verið sérstakur því yfirleitt voru konur ekki á fundum klúbbsins. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11. 2005), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), óþekktur, Margrét Valdimarsdóttir, Valdimar Númi Guðmundsson ( d. 14.3.1972), óþekktur, Unnur Ingvarsdóttir (d. 18.6. 1977), Jón Pálsson, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Sveinn Ingólfsson og Páll Þorfinnsson.
Guðmundur Guðnason378
Myndin var tekin í Ásholti. Hjónin Þorgerður Guðlaugsdóttir og Óskar Axelsson sitja hjá syni sínum Birni Inga Óskarssyni og móður Óskars, Sveinbjörgu Björnsdóttur. Myndin er sennilega tekin á fermingardegi Björns Inga.
Guðmundur Guðnason522
Þorkell Magnússon úr Goðhól (d. 30.8.1968) dregur lamb í dilk í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason273
þessi mynd var sennilega tekin á ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á árunum kringum 1975. Á myndinni er Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) á spalli við Selmu Þórarinsdóttur (d. 14.9.1990) og Eið Hilmarsson.
Guðmundur Guðnason430
Myndin er tekin í óþekktri kirkju. Fremst á myndinni er séra Ragnar Fjalar Lárusson. Maðurinn til vinstri aftan við Ragnar er líklega séra Bjarni Jónsson vígslubiskup. Aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir annað hvort þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason527
Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19)(d. 7.12.1973) með hrút.
Reykjavík 1874
Þessi mynd sýnir Reykjavík 1874 eins og hún leit út í augum Melton Priors sem gerði myndina. Þekkja má Menntaskóla Reykjavíkur, dómkirkjuna og stjórnarráðið. Melton Prior (1845 - 1910) var þekktur teiknari sem vann mikið fyrir Illustrated London News þar sem myndir hans birtust.
Guðmundur Guðnason178
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðni Sveinsson Ægissíðu (d.15.11.1971), Eggert Skarphéðinsson Sólheimum (d. 2.6.1987) og óþekktur maður.
Magnús B Jónsson069
Hér er handagangur í öskjunni. Verið er að afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun á skíðamóti. Eins og sjá má voru margir þátttakendur enda skíðaiðkun vinsæl á Skagaströnd á þessum árum. Myndin var tekin ca 1980. Maðurinn með sólgleraugun er Ólafur Bernódusson og konan í ljósa jakkanum er Sigríður Einarsdóttir (Sissa) skíðakennari frá Ísafirði.
Guðmundur Guðnason505
Leiksýning í Tunnunni, Klerkar í klípu. Frá vinstri : Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík, óþekktur, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) frá Suður Skála, Ari Ólafsson frá Sævarlandir, Helgi Gunnarsson, Hörður Ragnarsson og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001).
Adolf H Berndsen - safn032
Þessir upprennandi fótboltakappar kepptu undir merki umf. FRAM á Skagaströnd. Hér eru þeir í blá-hvítu búningunum sínum merktir styrktaraðilanum Marska. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Árni Max Haraldsson, Gunnar Guðmundsson, Sigurgeir Árni Ægisson, Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes Grétarsson, Gunnar Borg Jónsson og Sigurður Berndsen. Krjúpandi frá vinstri: Birkir Rafn Gíslason, Jón Örn Stefánsson og Gunnar Dór Karlsson.
HuniHU2_1963_2_SM
Húni ll HU-2 á síldarmiðunum við Jan Mayen 1966 með fullfermi 170-80 tonn sem komst ekki allt í land vegna brælu.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn063
Á þessari mynd eru ungar konur frá Skagaströnd í skemmtiferð, sennilega í Listigarðinum á Akureyri ca 1950. Frá vinstri: Elísabet G. Kristjánsdóttir (Elsa)(d. 21.3.1991), Guðný Pálsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Vilborg Jónsdóttir Stóra Bergi og Ásdís Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason552
Hjónin Sigurjón Ólafsson (13.1.1971) og María Steingrímsdóttir í Húnaveri 1959.
Adolf H Berndsen - safn002
Hér er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) að koma úr róðri á Svaninum. Gulli Árna er og var sjómaður af lífi og sál og kom víða við á sínum farsæla sjómennskuferli.
Guðmundur Guðnason486
Guðmundur Guðnason frá Ægissíðu (d. 28.11.1988) er fyrir miðri mynd með þverslaufu um hálsinn. Aðrir eru óþekktir eins og tilefni myndatökunnar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn067
Þetta fólk virðist vera að bíða eftir einhverju. Eftir hverju veit enginn. Á myndinni eru frá vinstri: Unnur G. Björnsdóttir (d. 14.12.1990), Þórshamri, Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) Karlsskála, Pálína Árnadóttir, Anný Jóhannsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991). Myndina tók Helga Bendsen líklega á bryggjunni á Blönduósi en þangað flutti Ernst konurnar á bát sínum, Litla Gul, því þær fóru á einhverja hannyrðasýningu þar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn071
<P>Hjónin Sigríður Helgadóttir og Engilbert Óskarsson með dóttur sína Ingibjörgu Engilbertsdóttur. Fjölskyldan bjó í Skálholti þangað til þau fluttu til Reykjavíkur á árunum kringum 1960. Engilbert var vörubílstjóri og flutti vörur og fólk milli Skagastrandar og Reykjavíkur á eigin bíl.</P>
Guðmundur Guðnason710
Vilhjálmur Skaftason
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason746
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Kristján Hjartarson(d. 2.8.2003) harmonikuleikari frá Vík (Grund) er þó auðþekktur á sviðinu.
Guðmundur Guðnason500
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri leikur hér á móti Ingvari Jónssyni Norður Skála (d. 29.7.1978)í óþekktu leikriti í Tunnunni.
Guðmundur Guðnason305
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti við innsiglingavörðuna á Höfðanum með nammi í poka.
Guðmundur Guðnason440
Valgerður Kristjánsdóttir frá Núpi í Laxárdal (Gerða frá Núpi).
Guðmundur Guðnason386
Rósa Sigurðardóttir frá Hólanesi með vini sínum Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1989) frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Guðmundur Guðnason487
Jólasveinninn kemur í heimsókn á jólatrésskemmtun á Sturluhóli. Konan með gleraugun er Dómhildur Jónsdóttir prestsfrú frá Skagaströnd. Drengurinn fremst á myndinni til vinstri er Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi og hægra megin sést bróðir hans, Valgarður Jökulsson til hálfs. Hægra megin við Dómhildi er svo Halla Jökulsdóttir systir þeirra. Stúlkan sem sést í fremst í horninu til hægri er Halldóra Ingimundardóttir frá Enni. Myndin var tekin milli jóla og nýárs 1967. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason369
Jón Pálsson í ræðustól á sviðinu í Fellsborg. Við borðið í salnum má þekkja hjónin Þorvald Skaftason og Ernu Sigurbjörnsdóttur vinstra megin en hjónin Sigurð Bjarnason og Sigrúnu Lárusdóttur hægra megin við borðið.
Guðmundur Guðnason511
Fjársafnið kemur af fjalli í Spákonufellsrétt á gangnasunnudegi 1958.
Guðmundur Guðnason239
Á þessari mynd, sem sennilega var tekin kringum 1955, eru vinkonurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Kristín Lúðvíksdóttir til hægri.
Guðmundur Guðnason303
Systkinin Gígja Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Ásholti í gönguferð á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason400
Matthildur Fossdal til vinstri og Sóley Benjamínsdóttir leika sér á sumardegi á Höfðanum.
Geirfugl
Mynd af geirfugli og sagan um hvenær sá síðsti var drepinn. Geirfugl var stór fugl allt að 70 cm hár og 5 kg en ófleygur og því auðveld bráð. Hann gaf 1,5 kg af kjöti auk fitu og lýsis og var því mikilvægur afli fyrir margan fátæklinginn. Ekki er vitað hvenær þetta póstkort var gefið út en það gerði Helgi Árnason (26.11.1974 - 24.10.1954). Um hann er sagt í "Íslenskar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1940" : "..... var um skeið mesti póstkortaútgefandi á Íslandi....."
Magnús B Jónsson047
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Viggó Magnússon, tveir óþekktir, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, óþekktur, Ægir Jónsson.
Guðmundur Guðnason514
Réttastörf í Vindhælisrétt. Frá vinstri: Ingvi Guðnason Valhöll (d. 31.12.1991), Ólafur Jónasson Syðri Ey (d. 8.9.1980) og Þorkell Magnússon úr Goðhól ( d. 30.8.1968).
Magnús B Jónsson073
Maðurinn í dökku úlpunni er William Sillar sem er að prófa skíði í fyrsta sinn. Næst yst til hægri fylgist Guðrún Pálsdóttir spennt með. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason506
<P>Guðbjartur Guðjónsson frá Vík leikur í leikritinu "Klerkar í klípu" í Tunnunni. </P>
Kristín Björnsdóttir016
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri situr glaðbeittur á vörubílspalli.
Guðmundur Guðnason668
Þorrablót í gömlu Tunnunni sennilega kringum 1965. Að áti loknu voru borðin færð til svo pláss myndaðist til að dansa á miðju gólfi.
Guðmundur Guðnason509
þórður Jónsson (d.25.12.2009), lengst til vinstri, stjórnar verðlaunaafhendingum á grímuballi í Tunnunni. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason454
Hér syngja saman, á hótel Dagsbrún, hjónin Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir ásamt dætrum sínum Svövu og Ingu Láru. Tilefnið var þegar eldri borgurum frá Hvammstanga var boðið í heimsókn til Skagastrandar í félagsstarf aldraðra þar. Frá vinstri: Svava Sigurðardóttir, Inga Lára Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason441
Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Guðmundur Guðnason452
Dvalarheimilið Sæborg tekið í notkun. Í fremstu röð sitja, frá hægri: Eðvarð Hallgrímsson sem byggði dvalarheimilið, Helga Guðmundsdóttir kona hans, Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Guðmundur Bjarnason þáverandi heilbrigðisráðherra og tvær óþekktar konur. Næst okkur á öðrum bekk eru séra Ægir Fr. Sigurgeirsson og Pétur Eggertsson sem var fyrsti forstöðumaður Sæborgar. Í þriðju röðinni næst okkur situr Páll Þorfinnsson rafvirki sem sá um raflagnir í húsinu
Guðmundur Guðnason562
Börn frá Ártúnum leika sér á og með einhvers konar fleytitæki. Drengurinn til vinstri er Ingi Heiðmar Jónsson og hægra megin er Tryggvi Jónsson. Milli sín draga þeir Klöru Sólveigu Jónsdóttur, systur sína.
Guðmundur Guðnason545
Eyrún Birgisdóttir frá Straumnesi
Guðmundur Guðnason453
Tilefni þessarar myndar er óþekkt. Frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason696
Réttað í Spákonufellsrétt. Konan til vinstri er Guðmunda Árnadóttir frá Flankastöðum. Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti er maðurinn fremst á myndinni með skíðagleraugun. Aftan við hann er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) frá Ægissíðu. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason538
Þessi litla stúlka er óþekkt. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn033
Ungir knattspyrnumenn ásamt þjálfara og liðsstjóra frá umf. FRAM á Skagaströnd til í að mæta hvaða andstæðingi sem er. Aðal styrktaraðili liðsins var Marska á Skagaströnd. Myndin var tekin á Hvammstanga sennilega á árunum 1985 - 1987 af Vigdísi Þorsteinsdóttur. Standandi frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Jón Heiðar Jónsson, Friðrik Gunnlaugsson, Björn Sigurðsson, Vilhjálmur Jónsson, Atli Þórsson, Baldur Magnússon, Einar Guðjónsson, Róbert Freyr Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Krjúpandi frá vinstri: Jósef Ægir Stefánsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson, Börkur Árnason, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Viktor Pétursson, Leifur Guðjónsson (frá Grindavík) Svanur Árnason og Jónas Þorvaldsson.
Kristín Björnsdóttir014
Jaðar - Neðri Jaðar. Byggður af hjónunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) og Elísabetu Frímannsdóttur (d.1.9.1990) á stríðsárunum. Börnin á myndinni eru Engilráð Guðmundsdóttir ca 8 ára og Sigurður Björnsson ca 2 ára.
Adolf H Berndsen - safn001
Skrúðganga á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er sennilega tekin á árunum; 1940-1945 en fyrst var haldið upp á daginn á Skagaströnd 1939 (samkv. "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár", höf. Lárus Ægir Guðmundsson). Eins og sést á myndinni hefur snemma verið byrjað á að ganga í skrúðgöngu frá höfninni að kirkju á sjómannadegi. Myndin er sennilega tekin af tröppunum á Karlsskála.
1
…
46
47
48
…
167
Leita í myndasafninu
Leita