Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari159
Skagaströnd er í vinabæjasambandi við Lojo í Finnlandi, Hönefoss í Noregi, Växjö í Svíþjóð og Aabenraa í Danmörku. Vinabæjarmót var haldið á Skagaströnd sumarið 2004. Meðal annars var farið með norrænu gestina í veiðitúr að Langavatni. Ekki fer miklum sögum af veiðinni en á þessari mynd hefur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri þó sett í einn kaldan því hann er með bjórdós á króknum hjá sér.
Guðmundur Guðnason876
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Björn Bergmann020
Þetta ágæta fólk, búsett á Skagaströnd, sótti félagsmálanámskeið hjá Baldri Óskarssyni í Fellsborg einhverntíma snemma á áttunda áratugnum. Þar lærði fólkið ræðuflutning og fundarsköp og ýmislegt annað, sem gott er og gagnlegt að kunna, ef maður tekur þátt í félagsstörfum eins og allt þetta fólk gerði meira og minna í mörg ár. Á myndinni eru, frá vinstri í aftari röð: Jón Geir Jónatansson frá Höfðabrekku (Bankastræti 10), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3), Jón Ingi Ingvarsson frá Sólheimum, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) frá Lækjarhvammi (Suðurvegur 1), Helgi Gunnarsson frá Lundi, Hallbjörn Björnsson frá Jaðri, Sveinn S. Ingólfsson kennari og seinna framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Jón S. Pálsson skólastjóri , Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24) og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund (áður Vík). Fremri röð frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d.?) frá Höfðabrekku, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) frá Höfðakoti (Bankastræti ?), Baldur Óskarsson leiðbeinandi, Björk Axelsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Guðmundur Jóhannesson maður hennar úr Skeifunni. Myndina tók Björn Bergmann
Guðmundur Guðnason626
María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti til vinstri og Hrefna þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (sem var rifið 2002 og bygg nýtt hús á lóðinni - Hólabraut 9) til hægri. Myndin var tekin upp úr 1960.
umf Fram270
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í langstökki. Frá vinstri: Lára Guðmundsdóttir, Guðrún Berndsen og Sigríður Fr. B.. Stúlkan sem gengur hlæjandi frá er Laufey Karlsdóttir Berndsen.
Guðmundur Guðnason786
Kristján Eldjárn Þórarinsson (d. 14.9.1982) forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1969. Á myndinni eru frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir frá Árnesi, Kristján Eldjárn, Halldóra Ingólfsdóttir Eldjárn (d. 21.12.2008) forsetafrú, Sigurður Björnsson (10.5.1987) hreppsstjóri Örlygsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð), Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi, Adolf J. Berndsen oddviti, óþekkt kona og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki lengst til hægri. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram178
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari mynd frá mótinu stekkur Jón Ingi Ingvarsson langstökk. Áhorfendur og starfsmenn eru frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir, Jón Gunnar Jósefsson, óþekktur, Karl Lúðvíksson, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) með málbandið, óþekktur, Sigríður Gestsdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, tveir óþekktir menn og Hjörtur Guðmundsson með hrífuna. Börnin lengst til hægri eru óþekkt. Þekkir þú einhvern af óþekkta fólkinu á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason816
Systkini frá Akurgerði. Talið frá vinstri: Heiðrún Þorbjarnardóttir, Þröstur Þorbjarnarson, Kristjana Þorbjarnardóttir, Sonny Lísa Þorbjarnardóttir og Heiðdís Þorbjarnardóttir.
Ólafur Bernódusson068
Litlu jól í Höfðaskóla 1983. Gengið syngjandi kringum jólatré á sal. Frá vinstri: Kristín Karlsdóttir, Svenný Hallbjörnsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson170
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd sefur Helga Kristmundsdóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir horfir á ljósmyndarann og Halldór Gunnar Ólafsson dormar í baksýn.
Ólafur Bernódusson091
Sigurbjörg Guðmundsdóttir skírir nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Sigurbjörg er dóttir Guðmundar Lárussonar (d. 15.10.2002) eiganda stöðvarinnar. Sigríður Gestsdóttir systir hennar fylgist með.
umf Fram247
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd hafa Gestur Arnarson til vinstri og Kristinn Guðmundsson fengið afhent verðlaunaskjöl sín.
Guðmundur Guðnason046
<P>Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997)
umf Fram146
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd eru þó stúlkur og drengir látin hlaupa saman. Á ráslínu eru frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Eiríkur Lýðsson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Erlingur Ottósson, systurnar Rakel og Kristjana Jónsdætur, óþekkt, Þorsteinn Jónsson, óþekkt stúlka, Viggó Magnússon (á hjóli), Dagbjört Jóhannsdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram221
Þessir ungu stígvélaklæddu grallarar eru með verðlaunaskjöl í höndunum sennilega eftir góða frammistöðu í reiðhjólakeppni Fram. Myndin var tekin snemma á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Árni Geir Ingvarsson og Valdimar Viggósson
umf Fram240
Haldin var sýslukeppni þriggja héraðssambanda, Þristurinn, í frjálsum íþróttum, milli USAH, USVH og UMSS, við Reykjaskóla í Hrútafirði 29 ágúst (1976?). Á þessari mynd stekkur Karl Lúðvíksson USAH langstökk.
umf Fram138
Karl Lúðvíksson startar unglingum í kapphlaupi á íþróttavellinum á Blönduósi seint á áttunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason676
Hjónin Björgvin Jónsson og Þorgerður Guðmundsdóttir frá Höfðabrekku dansa á Siglufirði 15. júní 1968.
Guðmundur Guðnason700
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Óþekkt, Pálfríður Benjamínsdóttir úr Skálholti, Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Myndin var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1960.
umf Fram241
Haldin var sýslukeppni þriggja héraðssambanda, Þristurinn, í frjálsum íþróttum, milli USAH, USVH og UMSS, við Reykjaskóla í Hrútafirði 29 ágúst (1976?). Á þessari mynd stekkur Guðrún Berndsen USAH hástökk með Fosbury stíl.
umf Fram163
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd mælir Karl Berndsen (d. 12.2.1995) í kúluvarpskeppninni.
Ólafur Bernódusson183
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd er fólk sem tengdist Rækjuvinnslunni sem stjórnarmenn eða viðskiptamenn t.d. sjómenn á rækjubátum. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir,Jón Jónsson, Sveinn Ingólfsson fyrir aftan Jón, Vilhjálmur Egilsson frá atvinnurekendum, Adolf J. Berndsen, Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson og Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri. Til hægri sjást Ingvar Þór Jónsson og Líney Jósefsdóttir,
umf Fram287
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 100 metra hlaupi. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson Fram, Jóhannes Sigurbjörnsson Hvöt, Lárus Ægir Guðmundsson Fram og Þórður Daði Njálsson Hvöt.
Guðmundur Guðnason020
Þessi drengur er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) en myndin var tekin við bæinn Vesturá í Laxárdal þar sem Guðmundur ólst upp að hluta. Áin í baksýn rann hjá bænum og heitir Vesturá.
Ólafur Bernódusson215
Örvar Hu 21 kemur að landi með fulla lest af frosnum afurðum í apríl 1988. Örvar var fyrsti frystitogari Íslendinga en hann var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri fyrir Skagstrending hf.
Ólafur Bernódusson131
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
umf Fram279
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), stökkstjóri mótsins, niðursokkinn í pappírana sína.
Guðmundur Guðnason636
Guðrún Sigurjónsdóttir frá Brandsstöðum með brúðuna sína.
Guðmundur Guðnason894
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir bara hluta söngmannanna.
Ólafur Bernódusson264
Báturinn á myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Þórir var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffæran. Mennirnir á myndinni eru Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar til vinstri og eigandi bátsins Matthías Ingibergsson til hægri.
Guðmundur Guðnason628
Bræðurnir Guðmundur Kristinsson (Lilli) og Sigurður Kristinsson úr Bræðraborg. Guðmundur er til vinstri á myndinni sem var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason864
Bogabraut 10 - Pósthúsið (nú Tónlistarskólinn). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65. Þá var pósthús og símstöð á neðri hæðinni en íbúð á efri hæðinni.
Guðmundur Guðnason613
Pétur Jónsson (d. 18.2.1966) Stóra Bergi fylgist með á hrútasýningu. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason686
Réttastörf við rúning í Hofsrétt í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Fólkið á myndinni er óþekkt.
Skagaströnd - safn472
Inga Rós Sævarsdóttir sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018.
umf Fram271
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Þorleifur Arason (d. 11.11.1991) kringlu.
Ólafur Bernódusson100
Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Hér sækja Skagstrendingar að marki Blönduósinga. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Heiðar Jónsson, Börkur Árnason (stendur í markinu), Björn Sigurðsson með boltann og Baldur Magnússon er sá með gleraugun. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason892
Þessi mynd var tekin af hressum Skagstrendingum 9. júní 1963. Að öllum líkindum hafa þau verið á leið inn á Blönduós á karlakóramót, sem þar var haldið þennan dag, eða að koma heim af því. Bíllinn var líklega í eigu Ástmars Ingvarssonar (d. 10.10.1977) en hann stundaði fólksflutninga frá Skagaströnd í mörg ár. Frá vinstri á myndinni eru: Jónas Skaftason frá Dagsbrún, Ingibjörn Hallbertsson sem lengi bjó með sína fjölskyldu á Hólabraut 7. Þá kemur Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk sem styður sig við Guðmund Guðnason (d. 21.11.1988) póst og ljósmyndara frá Ægissíðu. Við hina öxl Guðmundar styður sig Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) frá Höfðakoti. Þá kemur Guðrún Árnadóttir (d. ?) kona Ingibjörns en svo Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) bóndi frá Hágerði. Að lokum eru svo hjónin Jón Kr. Jónsson og Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) frá Laufási.
umf Fram226
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Ólafur Oddsson leiðbeinandi á námskeiðinu í ræðustól í lokahófinu.
Guðmundur Guðnason036
<P>Þessi fermingardrengur er Jón Sveinsson sonur Birnu Þuríðar Jóhannesdóttur frá Garði og Sveins Sveinssonar. Þau bjuggu lengst af í Höfnum á Suðurnesjum. Myndin var sennilega tekin 1968. </P>
Guðmundur Guðnason868
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason820
Fermingarsystur frá 1964. Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti til vinstri og Signý Ástmarsdóttir úr Héðinshöfða til hægri.
Ólafur Bernódusson221
<p>Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) til vinstri og Birna Bjarnadóttir til hægri við sníðaborðið á saumastofunni Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd. Myndin var tekin í nóvember 1987. </p>
umf Fram258
Þessir einstaklingar skipuðu sundlið USAH sem keppti við lið USVH í sundi á Reykjaskóla 15. ágúst (1976?). Aftari röð frá vinstri: Birkir Fossdal, Þórður Daði Njálsson, Axel Jóhann Hallgrímsson, Pétur Þormóðsson og Brynjólfur Friðriksson. Fremri röð frá vinstri: Unnur ?, Hafdís Húnfjörð, Lára Guðmundsdóttir og Sigríður Friðriksdóttir. Ef þú þekkir föðurnafn Unnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson122
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd hefur fólk safnast saman á túninu í muggunni. Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri er lengst til hægri á myndinni en síðan verður hver að þekkja sig ef hægt er.
Guðmundur Guðnason766
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, heimsótti Húnaþing 1969. Á myndinni er óþekktur maður í ræðustól í móttöku í félagsheimilinu á Blönduósi. Ef þú veist hver maðurinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson231
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þegar hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - kom til að kynna sér tækin í brúnni. Á myndinni er Sigurjón Guðbjartsson að sýna tækin.
Skagaströnd - safn477
Hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2010 - 2014 var sjálfkjörin því aðeins kom fram eitt framboð til sveitarstjórnar. Á myndinni er nefndarfólkið ásamt sveitarstjóra. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Jensína Lýðsdóttir, Péturína L. Jakobsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Jón Ólafur Sigurjónsson.
umf Fram166
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd hlaupa, frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, óþekkt og Þórhildur Jakobsdóttir. Ef þú veist hver óþekkta stúlkan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason784
Kristján Eldjárn Þórarinsson (d. 14.9.1982) forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1969. Á myndinni bíður séra Pétur Þ. Ingjaldsson sóknarprestur eftir forsetanum og föruneyti hans við kirkjudyrnar á Hólaneskirkju meðan hann heilsar fólki við kirkjuhliðið.
Guðmundur Guðnason846
<P>Karlakórinn Vökumenn sungu í Tunnunni á Skagaströnd 1. maí 1963. Frá vinstri: Þorvaldur Ásgeirsson, Guðmundur Theódórsson, Þorbjörn Sigurðsson, Sveinn Þórarinsson, Páll Eyþórsson, allir frá Blönduósi. Kristófer Kristjánsson frá Köldukinn hneigir sig. Fyrir aftan hann sér í Heiðar Kristjánsson frá Hæli og óþekktan mann. Þá koma Björn Sigurfinnsson frá Hurðabaki og Óskar Sigurfinnsson bróðir hans frá Meðalheimi, Reynir Hallgrímsson frá Kringlu, tveir óþekktir, Jóhann Jónsson frá Beinakeldu og Pálmi Ólafsson frá Holti. </P>
Ólafur Bernódusson121
Það snjóaði duglega þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 1985. Á þessari mynd syngur kirkjukórinn jólalög. Frá hægri á myndinni eru: Gylfi Sigurðsson, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir (leiðir barn), Bára Þorvaldsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Stjórnandinn er óþekktur og sama má segja um aðra á myndinni nema manninn lengst til vinstri en það er séra Oddur Einarsson þá sóknarprestur á Skagaströnd.
umf Fram187
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd flytur Björk Axelsdóttir ræðu í afmælishófinu.
Guðmundur Guðnason844
Kristófer Kristjánsson frá Köldukinn les upp á sviðinu í Tunnunni sennilega 1.maí 1963.
umf Fram223
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku í ræðustól í lokahófinu.
umf Fram154
Kristjana Jóndóttir frá Brandaskarði var mikil íþróttakona á unglingsárum sínum. Hér hefur hún tekið við verðlaunum eftir íþróttamót sem haldið var á Blönduósi.
Guðmundur Guðnason838
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið 1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason032
Óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason896
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason900
Myndin var tekin inni í Hólaneskirkju eldri. Fyrir dyrum er útför óþekkts einstaklings.
1
…
54
55
56
…
167
Leita í myndasafninu
Leita