Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
umf Fram252
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru tvær stúlkur úr Fram á Skagaströnd. Guðbjörg Gylfadóttir til vinstri og Sólveig Gunnarsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson080
Miðar afgreiddir inn á diskótek í Höfðaskóla 1983. Ingimar Oddsson situr við borðið í lopapeysu. Framan við borðið er Hugrún Pálsdóttir í úlpu, Laufey Vilmundardóttir er sú með gleraugun og Jensína Lýðsdóttir er að klæða sig í vettlinga. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason808
Hér hefur veiðst vel af silungi. Frá vinstri eru hjónin í Sænska húsinu þau Jón Þorgeirsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) með bróður Jóns, Styrmi Haukdal Þorgeirssyni og Sigurveigu Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson088
Töffarar á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Hrólfur Pétursson situr á borðin, næstur honum er Ingvar Þór Jónsson og svo Sigurjón Karlsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson305
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun og varðeldi sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði
Óþekktur ljósmyndari151
Hafrún Hu 12 á skemmtisiglingu á sjómannadegi. Björgunarbáturinn Þórdís siglir nær okkur og óþekkt lítil fleyta er fyrir framan Hafrúnina. .
umf Fram243
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd hlýða keppendur á reglurnar lesnar upp áður en keppnin hefst. Lengst til vinstri, á mótorhjóli, er Sigurjón Ingólfsson. Gestur Arnarson frá Brandaskarði er til vinstri í gulum jakka. Hendrik Berndsen situr þriðji hægra megin við steypta stólpann og stúlkan til hægri í appelsínugulri peysu er Þórdís Sigurðardóttir. Við hlið hennar í köflóttum buxum situr Sigurlaug Eðvarðsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson139
Guðmundur J. Björnsson frá Jaðri. Myndin var tekin 1987.
Ólafur Bernódusson085
Á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Frá vinstri: Þórarinn B. Ingvarsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Þór Jónsson, óþekkt stúlka, Hrólfur Pétursson, Friðrik Birgisson, óþekkt, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, óþekkt, Jóhann Ásgeirsson, þrír óþekktir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir og Áslaug Gunnarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari157
Mynd frá lokahófi vinabæjarheimsóknar 2004 í Fellsborg. Sitjandi eru Ágúst Þór Bragason starfsmaður Höfðahrepps og kona hans Guðrún Benediktsdóttir. Fyrir aftan þau stendur Alda Ingibergsdóttir sópransöngkona og syngur aríu.
umf Fram141
Starfsmenn á íþróttamóti á Blönduósi seint á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Baldur Valgeirsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson318
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Páll Leó Jónsson talar við nemendur á sal.
Óþekktur ljósmyndari148
Myndin er af Gyðu Ölvisdóttur er hún hélt málverkasýningu í Höfðaskóla á sjómannadegi.
Ólafur Bernódusson142
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd er Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólanes hf í ræðustól. Jóhann Ásgeirsson starfsmaður fyrirtækisins í forgrunni.
Ólafur Bernódusson274
Dvalarheimilið Sæborg var vígt formlega 22. október 1988. Við það tækifæri fluttu þau hjónin Julian Hewlet og Rosemary Hewlet tónlist og spiluðu líka undir söng. Meðal söngvara voru Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til vinstri Kristján Hjartarson (d. 2.8. 2003) í miðjunni og svo sést í Sigmar Jóhannesson (d. 20.4. 2000) lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson256
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Steindór Haraldsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Sigrún Jónsdóttir
Ólafur Bernódusson145
Þessi mynd var tekin í hófi sem haldið var til að vígja endurbyggingu Hólanes frystihússins 1986 eða 87. Meðal annars var verið að fagna tilkomu glæsilegrar kaffistofu á efstu hæð hússins. Á þessari mynd sér yfir salinn í kaffistofunni þar sem starfsmenn Hólaness hf og aðrir gestir njóta kaffiveitinga í tilefni dagsins.
Ólafur Bernódusson230
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Á þessari mynd leiðbeinir Sigurjón Guðbjartsson þeim Guðmundi J. Björnssyni og Jakob Guðmundssyni (með skegg) um meðferð tækjanna.
Ólafur Bernódusson162
<p>Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli tarna í lauginni þótti gott að slaka á í heita pottinum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Inga Rós Sævarsdóttir (nær), óþekkt, María Rós Karlsdóttir, Brynjar Pétursson og Róbert Gunnarsson.</p>
Ólafur Bernódusson086
Spilað og teflt á diskóteki í Höfðaskóla 1983. Fremst er Viggó Magnússon en við næsta borð er Hólmgeir Kristmundsson niðursokkinn við spilaskoðun. Í dyrunum stendur Elísabet Hallbjörnsdóttir og til vinstri er ?Aðalheiður Árnadóttir? með flösku í höndunum. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson067
Litlu jól í skólanum eru alltaf tilhlökkunarefni nemenda og starfsfólks. Þann dag mæta nemendur og kennarar í betri fötunum í skólann og eiga saman skemmtilega og notalega stund fyrir jólafríið. Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í Höfðaskóla 1983. Íþróttahúsið var ekki komið svo þá var gengið syngjandi kringum jólatré á sal í þá nýrri viðbyggingu við skólann. Frá hægri: Elísbet Hallbjörnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, óþekkt, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, óþekktur, Guðmundur Oddsson, Jóhann Ásgeirsson, Jón Indriðason, óþekktur, Magnús B. Jónsson kennari, Ingvi Sveinn Eðvarðsson, Kristjana Jónsdóttir, óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, óþekktar stúlkur en lengst til vinstri er Þorbjörg Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson237
17. júní 1988 var haldið kaffisamsæti til að fagna 60 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju - eldri. Að sjálfsögðu söng kirkjukórinn við þetta tækifæri. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Helga Guðmundsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Sigurðardóttir, Guðmundur Guðnason(d. 21.11.1988), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Kristín Kristmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Í forgrunni myndarinnar eru hjónin Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) en konan lengst til vinstri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson361
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er björguninni lokið og félagarnir í björgunarsveitinni eru að draga gúmmíbjörgunarbátinn upp á bryggju. Guðmundur Jón Björnsson snýr baki í myndavélina, Magnús Sigurðsson er honum til hjálpar og Ástmar Kári Ástmarsson er um borð í Þórdísi.
umf Fram190
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd er Jón Ingi Ingvarsson, einn af fyrri formönnum félagsins, með hljóðnemann í afmælishófinu.
Ólafur Bernódusson341
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Einar Haukur Arason, þorvaldur Skaftason, Herborg Þorláksdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Jóhann Lúðvík Ásgeirsson.
Ólafur Bernódusson383
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Hér syngja fullum hálsi, frá vinstri: Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Fannar Viggósson, Vigdís Viggósdóttir, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Ólafur Bernódusson328
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Ástmari Kára var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson078
Vinirnir og nágrannarnir Katrín Sigurjónsdóttir og Jón Indriðason á diskóteki í Höfðaskóla 1983.
Ólafur Bernódusson269
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er búið að hífa Skarfinn úr kafi og verið að dæla úr honum sjó. Björgunarsveitarbáturinn Þórdís kom að góðu gagni við að ná Skarfinum upp en um borð í honum má sjá Guðmund Jón Björnsson lengst til hægri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
umf Fram162
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd svífur Karl Lúðvíksson yfir hástökksrána með fosbury-stíl. Áhorfandinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson064
Haldið var körfuboltamót á Húnavöllum um jólin 1982. Þar kepptu að gamni sínu lið frá Hvöt, Fram og Geislum. Á þessari mynd eru hressir körfuboltamenn Fram í búningsklefanum fyrir leik. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Kristinn Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Vilhelm Jónsson, Fannar Viggósson og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
umf Fram233
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Jón Pálsson, Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti, Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson og Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) frá Höfðabrekku.
Ólafur Bernódusson083
Tvær grímubúnar stúlkur á öskudaginn 1983 fyrir utan Bogabraut 27. Hulda Magnúsdóttir til vinstri og Kristjana Erlingsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson184
Magnús Líndal á grímuballi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 1987.
Ólafur Bernódusson212
Að lokinni vel heppnaðri bátaæfingu hjá Björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd (eins og það hét þá) í nóvember 1987. Búið er að hífa gúmmítuðruna í land en Þórdís er enn á floti. Á myndinni má sjá Margréti Ólafsdóttur lengst til vinstri, Gunnlaug Sigmarsson og Birnu Sveinsdóttur. Í hópnum nær Þórdísinni er Sigurjón Ástmarsson lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson304
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá fjöldasöng við varðeld sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Þorvaldur Skaftason leikur undir sönginn á gítar.
Ólafur Bernódusson227
Þessi vaski hópur tók pungapróf - 30 tonna skipstjórnarréttindi - eftir námskeið á Skagaströnd í febrúar 1988. Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu en þangað fór hópurinn til að kynna sér tækin í brúnni. Í brúarglugganum er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aftari röð frá vinstri: Björgvin Karlsson, Þorvaldur Skaftason, Vilhelm Jónsson, Jakob Guðmundsson og Gunnar Hafdal. Fremri röð: Árni Björn Ingvarsson, Magnús Sigurðsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Herborg Þorláksdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Guðmundur J. Björnsson, Ólafur Bernódusson og Gylfi Guðjónsson sem var leiðbeinandi á námskeiðinu.
umf Fram197
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru hjónin Karl (Carl) Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir í hófinu.
Ólafur Bernódusson278
Á þessari mynd er Rúnar Kristjánsson við uppáhalds iðju sína - að skrifa. Rúnar er trésmiður og skáld en út hafa komið nokkrar ljóðabækur eftir hann og a.m.k. ein skáldsaga. Auk þess er Rúnar iðinn bloggskrifari og pistlahöfundur. Þessi mynd var tekin í janúar 1989.
umf Fram143
Á árum áður stóð umf Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd er þó blandaður hópur enda var allra yngstu krökkunum ekki skipt eftir kynjum. Á myndinni eru, frá vinstri: Tveir óþekktir, Erla María Lárusdóttir, óþekktur, Sóley Elsa Magnúsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Bryndís Axelsdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Sara Gunnarsdóttir og óþekkt stúlka. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson156
Landsbankinn stóð í mörg ár fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 er verið að verðlauna unga drengi fyrir framistöðu sína. Frá vinstri: óþekktur, óþekktur, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Þorlákur Guðjónsson, Viktor Pétursson, Ólafur Magnússon, Árni Max Haraldsson og Ása Ósk Ásgeirsdóttir.
Ólafur Bernódusson110
Norðurlandsmót vestra í Bridge var haldið í Fellsborg 1986. Þátttaka var góð þannig að það þurfti líka að nýta sviðið undir spilara.
Ólafur Bernódusson165
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Töluvert var um gestagang á meðan á sundinu stóð. Á bakkanum eru frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, óþekkt kona með barnavagn, Páll Leó Jónsson skólastjóri, Elísabet G. Kristjánsdóttir, óþekktur, Steinunn Steinþórsdóttir, Inga Stefánsdóttir íþróttakennari heldur á klukku, Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Vigdís Viggósdóttir, Súsanna Þórhallsdóttir, Helga Jóhannesdóttir og Gylfi Sigurðsson eru í dyrunum á bakvið Maríu Jónu Alexandersdóttur sem er lengst til hægri. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Guðmundur Guðnason874
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Söngmaðurinn í miðjunni er Guðmundur Sigfússon frá Eiríksstöðum (d. 27.3.1993). Hinir söngmennirnmir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir hina söngmennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari150
<P>Þessi hestasteinn er staðsettur á túnbletti sunnan við Kántrýbæ. Hann er hugsaður fyrir þá sem koma ríðandi til að njóta þess sem Kántrýbær hefur upp á að bjóða. </P>
Ólafur Bernódusson186
Fólkið á þessari mynd var starfsfólk Hólaness hf meðan þar störfuðu kringum 40 manns við fiskvinnslu. Fólkið sat námskeið á vegum fyrirtækisins 1987 og hlaut eftir það starfsheitið: Sérhæfður fiskvinnslumaður. Hólanes hf hélt sínu fólki kaffisamsæti við lok námskeiðsins og öllum voru afhent skírteini og blóm í tilefni dagsins. Frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Guðbjartur Sævarsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna ? ( Bakka í Skagahreppi), Rúnar Jóhannsson er á bakvið Önnu, Fjóla Jónsdóttir, Magnús Guðmannsson, Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Gunnar Stefánsson, Soffía Pétursdóttir, Arnar Arnarsson, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), Amy Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Þórunn Þorláksdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Þorgeir Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Erna Högnadóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) og Erna Sigurbjörnsdóttir. Myndin var tekin í kaffistofu Hólaness hf.
umf Fram186
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur Guðmundur Haukur Sigurðsson þáverandi formaður félagsins ræðu.
umf Fram151
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd eru strákar að raða sér upp á ráslínuUndir stjórn Ingibergs Guðmundssonar og Stefáns Jósefssonar sem eru fullorðnu mennirnir lengst til vinstri og litla barnið er sennilega Jón Örn Stefánsson. Strákarnir á ráslínunni eru, talið frá vinstri: Björn Sigurðsson, Friðrik Gunnlaugsson, Kristján Gunnar Guðmundsson (Rúnarsson), óþekktur, Jósef Stefánsson, Svanur Árnason, Theódór Karlsson, óþekktur (?Sveinn Jónasson?), Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Jónas Þorvaldsson, Þröstur Árnason, Atli Þórsson og óþekktur.
Ólafur Bernódusson118
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd sést hluti starfsmannanna hlusta á einhvern óþekktan leiðbeinanda. Frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Líney Jósefsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Björn Ingi Óskarsson.
umf Fram293
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd kastar Sveinn Ingólfsson spjóti. Jón Jósefsson gengur yfir atrennubrautina fyrir aftan Svein meðan hann bíður eftir að röðin komi að honum. Vinstra megin fylgjast Ernst Berndsen og Sigurjón Ingólfsson með Sveini kasta. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson175
Fyrstu árin eftir að stjórnsýsluhúsið var byggt var Hótel Dagsbrún rekið á miðhæðinni. Fyrstu rekstraraðilar hótelsins voru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir. Þau eru hér fremst á myndinni til hægri en síðan koma tvær starfsstúlkur, Þórhalla Þórhallsdóttir og óþekkt kona. Myndin var tekin í veitingasal hótelsins en það var í eigu Skagstrendings hf á þessum tíma. Eftir að þau hjón Sveinn Ingi og Líney hættu rekstri hótelsins hafa nokkrir aðilar spreytt sig á að reka það en allir hætt þannig að í nokkur ár hefur engin starfsemi farið þar fram. Hótelið er nú í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. Ef þú veist hvað konan lengst til vinstri heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson271
Fegrunarátak var gert á Skagaströnd sumarið 1988. Á þessari mynd er fólk sem tók sig til í ágúst það ár og málaði Drangey að utan. Húsið hafði þá verið í niðurníðslu um tíma svo ekki var vanþörf á að gefa því andlitslyftingu. Málararnir eru frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Axel Hallgrímsson, Vigdís Viggósdóttir og Ingibjörg Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er. Drangey var seinna rifin en húsið stóð norðan við Fellsbraut fyrir neðan Ásgarð, beint á móti kirkjunni.
Ólafur Bernódusson324
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Sveinbjörgu Dóru var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson207
Jólatónleikar Tónlistarskólans 1987 í Höfðaskóla. Þrjár stúlkur syngja saman. Frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson245
Sigríður Ásgeirsdóttir í febrúar 1988.
Ólafur Bernódusson172
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd hvílast, frá vinstri: Helga Kristmundsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, María Rós Karlsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson.
Ólafur Bernódusson103
<p>Haldið var handboltamót á skólavellinum í apríl 1986. Á þessari mynd eru Skagastrandarstúlkur í sókn að marki Blönduósinga. Frá vinstri inni á vellinum eru: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir,Hugrún Pálsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Hugrún Sigurðardóttir. </p><p> </p>
Ólafur Bernódusson195
Þessi ungi sjómaður er Jónas Fanndal Þorvaldsson sem á myndinni rær bát afa síns, Litla Kóp, um höfnina á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1987.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson169
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á milli gátu krakkarnir hvílt sig í búningsherbergjunum. Á þessari mynd er slökun í gangi en á myndinni eru frá vinstri: Óskar Óskarsson situr á bekknum, Helga Kristmundsdóttir, sem sefur fremst á myndinni, Hugrún Sigurðardóttir liggur framan við Óskar, Halldór Gunnar Ólafsson, Gígja Óskarsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir.
1
…
58
59
60
…
167
Leita í myndasafninu
Leita