Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Bjarni Jónsson 14
Myndina af snjótittlingunum gerði Bjarni Jónsson á jólakort 1984. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 16
Rjúpur á jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá árinu 1994. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson405
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Páll Leó Jónsson skólastjóri í ræðustól.
Bjarni Jónsson 34
Bjarni Jónsson gerði þetta jólakort líklega árið 1983. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson358
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Dagbjörtu Bæringsdóttur lyklana að nýrri leiguíbúð að Skagavegi 12.
Ólafur Bernódusson224
Séð yfir salinn í saumastofu Violu á efstu hæðinni í Gamla kaupfélagshúsinu í nóvember 1987. Konurnar eru óþekktar nema Guðný Finnsdóttir er lengst til hægri.
Ólafur Bernódusson433
Skagastrandarhöfn full af bátum og togurum í október 1990.
Ólafur Bernódusson424
Elva Ösp Gunnarsdóttir í júlí 1990.
Halldór Pétursson 12
Þessi mynd er af jólakorti eftir Halldór Pétursson frá árinu 1970. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Ólafur Bernódusson281
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Á þessari mynd frá júní 1989 standa stjórnarkonur Sjúkrasjóðs Einingar við ný tæki sem kvenfélagið færði heilsugæslunni að gjöf. Frá vinstri: Birna Blöndal, Ása Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir( d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson484
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tilbúinn við teig eitt á Háagerðisvelli í júní 1992.
Ólafur Bernódusson409
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á myndinni er Jóhanna Jónsdóttir kennari að afhenda nemendum 2. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir er frá vinstri: Bæring Jón Skarphéðinsson, Álfheiður Guðmundsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hallgrímur Þór Axelsson,Trausti Magnússon , Birna Ágústsdóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Inga Valdís Heimisdóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Kristrún Linda Jónasdóttir og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson315
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Yngstu börnin að perla eitthvað fallegt. Frá vinstri: Heiðrún Ósk Níelsdóttir, óþekkt, karen Petrea Karlsdóttir, óþekkt(við gluggann), Gunnar Helgason, óþekktur, þrjú óþekkt börn, Birkir Rafn Gíslason og Ólafur Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarni Jónsson 35
Mynd á jólakorti frá 1982 eftir Bjarna Jónsson. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 7
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1985. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson367
Þessi mynd var tekin í desember 1989 af piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli. Bryndís Guðjónsdóttir aðstoðar dóttur sína, Tinnu Gunnarsdóttur og Bergþór Gunnarsson aðstoðar sína dóttur, Evu Dögg Bergþórsdóttur en hún snýr baki í myndavélina.
Ólafur Bernódusson455
Í júní 1991 gaf Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) á Lækjarbakka, Höfðahreppi, fánastöng sem reist var þar sem áður hafði verið æskuheimili hennar að Höfðahólum. Við sama tækifæri var afhjúpaður minningarskjöldur um Höfðahóla, sem á öldum áður var eigandi að stórum hluta þess lands sem Skagaströnd stendur á í dag. Á myndinni þakkar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Sigríði gjöfina. Fólkið er frá vinstri: Magnús sveitarstjóri, Helga Jóhannesdóttir, Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) eiginmaður Sigríðar, Sigríður, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ása Jóhannsdóttir, dóttir Sigríðar, Sveinn S. Ingólfsson oddviti Höfðahrepps og Steindór R. Haraldsson
Ólafur Bernódusson382
<p>Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sigrún Jónsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir. Atriðið á myndinni átti að gerast í frystihúsinu þess vegna er flæðilínan á myndinni. </p>
Ólafur Bernódusson371
Kristján Kristjánsson (d. 10.10. 2007) frá Steinnýjarstöðum, sóknarnefndarformaður í Hofssókn og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð, oddviti Skagahrepps, á tröppum Hofskirkju eftir að endurbyggingu hennar var lokið í desember 1989. Kristján er til vinstri á myndinni.
Ólafur Bernódusson426
Guðbjartur Guðjónsson við skógræktarstörf í hlíðum Spákonufells í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson390
Tvær ungar stúlkur spila á þverflautur með kennara sínum Rosemary Hewlet á árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Stúlkurnar eru frá vinstri: Álfheiður Guðmundsdóttir og Tinna Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson413
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Sigríður Einarsdóttir nemendum 6. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Ólafur Magnússon, Ragna Fanney Gunnarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Jóhannes Heiðmar Indriðason og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson 506
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson298
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Þessi mynd er frá skemmtun sem haldin var á túninu neðan við Hólabergin þar sem nú er tjaldsvæði. Viggó Magnússon, Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson og Kristján Blöndal halda uppi fjöri í rigningarsudda sem var þennan dag.
Selma P. Jónsdóttir 8
Myndin er af jólakorti eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1983. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson282
Hofskirkja í endurbyggingu í júlí 1989.
Kvenfélagið Eining - safn041
Kvenfélagið Eining hefur alltaf borið hag eldri borgara fyrir brjósti. Oft hafa kvenfélagskonur boðið eldra fólki í einhverja dagsferð að sumri. Þessi mynd var tekin í einu slíku ferðalagi sumarið 1986. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011).
Bjarni Jónsson 47
Jólakort gert af Bjarna Jónssyni, líklega árið 1970. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 12
Þvörusleikir er einn af íslensku jólasveinunum. Þessa mynd af honum gerði Bjarni Jónsson fyrir jólakort, árið 1995 eða 1996. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Selma P. Jónsdóttir 12
Þetta er jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá 1979. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson376
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í desember 1989.
Ólafur Bernódusson403
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg . Á þessari mynd eru nemendur 1. bekkjar. Frá vinstri: Andri Þór Ómarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Ólafur Guðmundsson, Karen Peta Karlsdóttir, Erla Björgheim Pálsdóttir, Hafsteinn Auðunn Björnsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson332
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Þórdísi var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Kvenfélagið Eining - safn003
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Björk Axelsdóttir, Jón Pálsson og Guðmunda Sigurbrandsdóttir.
Selma P. Jónsdóttir 19
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1968. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson438
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon að keppa í þrautabraut með níðþungar skjalatöskur í höndunum. Jónas Fanndal Þorvaldsson hvetur hann áfram og Milan Djurica íþróttakennari tekur tímann. Uppi á sviðinu í baksýn eru Helgi Marínó Magnússon kennari og Páll Leó Jónsson skólastjóri (í röndóttri peysu) að fylgjast með.
Halldór Pétursson 11
Þessi mynd er af jólakorti eftir Halldór Pétursson frá árinu 1972. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Halldór Pétursson 3
Halldór Pétursson gerði þetta listaverk sem birtist á jólakortum, líklega 1985. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Ólafur Bernódusson377
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Fannar Viggósson og Ingibergur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson343
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Steindór Haraldsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Ólafur Bernódusson442
Á Flippíþróttadegi Höfðaskóla keppa nemendur í óhefðbundnum greinum. Í desember 1990 var Flippíþróttadagurinn í Fellsborg þar sem þá var kennd leikfimi. Á myndinni er Karen Peta Karlsdóttir að keppa í pokahlaupi undir hvatningarópum bekkjarfélaga sinna.
Ólafur Bernódusson476
<p>Formleg vígsla Hólaneskirkju fór fram 20. október 1991. Á þessari mynd er verið að bera muni inn í kirkjuna. Fremst eru Gunnlaugur Sigmarsson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir úr sóknarnefnd. Næst koma Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Fjóla Jónsdóttir úr byggingarnefnd kirkjunnar. Stefán Jósefsson og Hallbjörn Hjartarson eru næstir en séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur er fremstur prestanna til hægri. Séra Oddur Einarsson er til vinstri í annarri röð prestanna. Aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson392
Myndin er frá árshátíð Höfðaskóla í apríl 1990. Krakkarnir á myndinni eru óþekkt nema Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir sem stendur lengst til hægri og Atli Þórsson sem er annar frá vinstri. Ef þú þekkir fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson380
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Vigdís Viggósdóttir. Þau eru að leika sauðsvartan almúgann sem er að reyna að koma auga á frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta í heimsókn hennar til Skagastrandar sumarið 1988.
Kvenfélagið Eining - safn097
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004).
Ólafur Bernódusson312
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Á þessari mynd eru Arnar Ólafur Viggósson til vinstri og Sigurður Berndsen í góðum gír í smíðahópi.
Selma P. Jónsdóttir 17
Þessa mynd af heimkomu manns úr kaupstaðarferð gerði Selma P. Jónsdóttir, líklega 1976. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Kvenfélagið Eining - safn053
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd syngur fjölskyldan frá Breiðabliki. Frá vinstri: Svava Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason, Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir. Við píanóið situr Jane Sillar (d.2017) og hlustar.
Bjarni Jónsson 29
Bjarni Jónsson gerði þetta jólakort árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Þórdís Tryggvadóttir 7
"Jólasveinar ganga um gólf....." eftir Þórdísi Tryggvadóttur frá árinu 1990. Þórdís Tryggvadóttir (14.12.1927 – 10.2.2012) stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Danmörku. Þórdís hélt sýningar bæði hérlendis og erlendis og myndskreytti fjöldan allan af bókum, einkum barnabækur. Jólakort voru eitt af því sem hún gerði og þetta er eitt sýnishorn af þeim.
Ólafur Bernódusson466
Ræðumaður á sjómannadaginn á Skagaströnd 1991 var Guðjón Arnar Kristjánsson (Addi Kidda Gau) sem þá var í forystu fyrir sjómannastéttina á Íslandi.
Ólafur Bernódusson359
Leiguíbúðirnar að Skagavegi 10 - 12 teknar í notkun í september 1989.
Bjarni Jónsson 51
Mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1988. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson417
Bar var opnaður á hótel Dagsbrún í júní 1990. Var það að öllum líkindum fyrsti barinn sem opnaður var frá því að gistihúsið í Viðvík lagði upp laupana. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörn Sigurjónsson, Árni Geir Ingvarsson, Ágúst Ómarsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Selma P. Jónsdóttir 18
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur, líklega frá árinu 1975. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Kvenfélagið Eining - safn035
Hér borða kvenfélagskonur úr Einingu í Kántrýbæ. Frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Ása Jóhannsdóttir
Halldór Pétursson 8
Þessi mynd af Kertasníki er eftir Halldór Pétursson líklega frá 1972. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar.
Bjarni Jónsson 53
Þetta er mynd af jólakorti eftir Bjarna Jónsson líklega frá árinu 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008). Var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Kvenfélagið Eining - safn056
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd er vistfólkið að njóta þess sem í boði var. Fremst á myndinni næst okkur er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhverja á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson470
Lárus Ægir Guðmundsson talar til Hallgríms Kristmundssonar (D. 9.10.1998) á sjómannadegi 1991 þegar sjómannadagsráð heiðraði Hallgrím fyrir farsæla sjómennsku í áratugi.
1
…
62
63
64
…
167
Leita í myndasafninu
Leita