Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason070
Á þessari mynd, sem tekin var á tröppunum framan við kirkjudyrnar á Höskuldsstaðakirkju (eldri), er fólk úr kirkjukór Hólaneskirkju. Konurnar eru frá vinstri: tvær óþekktar, Ása Hafsteinsdóttir Reykholti, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri og óþekkt. Karlarnir eru frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu, óþekktur, Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki. Myndin var sennilega tekin kringum 1960 en þessi kirkja var rifin 1964 eftir að ný kirkja var byggð skammt frá.
Ólafur Bernódusson463
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af skipstjóranum, Finni Sigurbjörnssyni, sem sýnir að ramminn, sem hélt rúðunni, brotnaði við átökin og í baksýn má sjá hvernig skipverjar lokuðu glugganum eftir óhappið.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn005
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myninni er Davíð Reynisson.
Guðmundur Guðnason058
Séra Sigtryggur Guðlaugsson Núpi.
Kvenfélagið Eining - safn112
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd eru frá vinstri: Árný Hjaltadóttir Steinnýjarstöðum, Lilja Karlsdóttir, Valgeir Karlsson og Árni Karlsson (d. 19.7.2011) öll frá Víkum.
Ólafur Bernódusson 529
Togarinn Arnar Hu 1 tók þátt í togararallyi í maí 1993. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar um borð tóku með sér ýmis konar lífverur í land en þær höfðu komið í trollið hjá Arnari. Börnum úr Höfðaskóla, Blönduósskóla og Húnavöllum var boðið að koma og skoða lífverurnar. Eins og sjá má á myndinni þá var áhuginn gríðarlegur hjá krökkunum.
Kvenfélagið Eining - safn106
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd eru þær Íris Valgeirsdóttir til vinstri og Kristín Ólafsdóttir til hægri að taka til eftir laufabrauðsbakstur í eldhúsinu í Fellsborg í aðdraganda þorrablóts í febrúar 1996.
Guðmundur Guðnason138
Bólstaðarhlíð.
Guðmundur Guðnason118
Lengst til vinstri í fremstu röð er Sigurður Árnason (d. 26.3.2013) og Úlfar Björnsson er lengst til hægri. Í öftustu röð fyrir miðju, með derhúfu, er Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi. Hjalti Skaftason er fyrir miðri mynd í hvítri skyrtu en fyrir framan hann er Áslaug Hafsteinsdóttir með mikið hár. Stúlkan sem stendur við vinstri hlið Hjalta er Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994). Aðrir eru óþekktir eins og tilefni myndarinnar og hvenær hún var tekin. Ef þú veist eitthvað meira um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason064
Þessi mynd var tekin á hrútasýningu einhverntíma kringum 1960. Slíkar sýningar voru haldnar reglulega og vöktu mikla spennu því á þessum tíma voru margir með kindur og starfandi var ræktunarfélag sauðfjárbænda á Skagaströnd. Frá vinstri eru á myndinni: óþekktur drengur, Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) Skálholti, óþekktur, Páll Jóhannesson, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi (fjær), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi (nær), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Stórholti (nær) og óþekktur (fjær). Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn034
Hér er stjórnsýsluhúsið í byggingu. Litla húsið til vinstri var Ólafsvellir eða Náttbrún eins og húsið var líka kallað. Myndin var tekin um miðbik níunda áratugarins.
Ólafur Bernódusson 533
<p>Í maí 1993 smíðuðu trillu - og jullueigendur á Skagaströnd flotbryggjur til að bæta aðstöðu sína innan hafnarinnar. Þessi mynd var tekin af körlunum við starf sitt að smíðinni. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur Björnsson, Vilhjálmur Skaftason og Baldvin Hjaltason. Þorvaldur Skaftason sagar lengst til hægri og Snorri Gíslason (d.29.5.1994) er í baksýn. </p>
Guðmundur Guðnason048
Þetta hús þjónaði sem útibú kaupfélagsins í mörg ár. Það var staðsett vestan við Holt eiginlega í suðvestur horni skólalóðarinnar sem nú er og út á götuna sem þar er (Oddagötu). Húsið komst svo í eigu Hestamannafélagsins Snarfara á Skagaströnd og ætluðu félagar í félaginu að fara með húsið upp að skeiðvelli sínum, sem er á melunum ofan og norðan við bæinn. Húsið var dregið af stað á símastaurum sem virkuðu eins og meiðar undir því. Þegar komið var með húsið að Snorrabergjunum og átti að fara þar upp voru staurarnir hins vegar uppeyddir og húsið komst aldrei lengra. Það var seinna rifið þarna sem það stendur á myndinni og aldrei reist við skeiðvöllinn.
Ólafur Bernódusson 520
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd les Jóney Gylfadóttir upp fyrir gesti.
Guðmundur Guðnason052
Rúta /áætlunarbíll á fullri ferð neðan við Borgina. Þessir bílar þóttu afar flottir á sinni tíð.
Kvenfélagið Eining - safn080
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Ólafur Bernódusson543
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri að afhenda einhverjar viðurkenningar. Stúlkan lengst til vinstri er óþekkt en síðan kemur Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir og Hugrún Pálsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari220
Tveir starfsmenn Hólaness hf 1957 eða 1958 fyrir utan frystihús félagsins. Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri til vinstri og Jón Áskelsson (d. ?) framkvæmdastjóri til hægri.
Guðmundur Guðnason170
Halla Björg Bernódusdóttir á fermingardaginn sinn.
Kvenfélagið Eining - safn096
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni eru frá vinstri: Birna Blöndal, Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998).
Kvenfélagið Eining - safn015
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Kristín Grímsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn102
Myndin var tekin af fermingarsystkinum og séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996)í Hólaneskirkju eldri. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Sigríður Laufey Ólafsdóttir, séra Pétur, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og Hjalti Skaftason. Myndin var sennilega tekin vorið 1954.
Óþekktur ljósmyndari173
Skagaströnd 1947. Byggingaframkvæmdir við síldarverksmiðjuna í fullum gangi.
Séra Pétur og Dómhildur - safn100
Kvenfélag Engihlíðar - og Höskuldsstaðasókna 1960. Á myndinni eru frá vinstri í fremri röð: Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) Njálsstöðum (í peysufötum), Ragnhildur Þórarinsdóttir Efri Mýrum, Soffía Pétursdóttir Líndal (d. 18.4.1990)Holtastöðum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) Höskuldsstöðum, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) kona hans með Jón Hall Pétursson í fanginu og Inga Garðarsdóttir Kúskerpi. Aftari röð frá vinstri: Anna Björnsdóttir (d. 18.6.2001) Móbergi, Helga Ólína Aradóttir (d. 27.6.2004) Móbergi, Guðlaug Sigurðardóttir (d. 17.1.2002) Kúskerpi, Björg Runólfsdóttir (d. 10.4.1977)Hvammi, Valgerður Ágústsdóttir Geitaskarði, Guðrún Magnúsdóttir Fagranesi, Petrea Jónsdóttir (d. 22.3.1972) Skrapatungu og Björg Benediktsdóttir (d. 20.11.1991) Efri Lækjardal.
Ólafur Bernódusson535
Í apríl 1993 var stofnuð Rauðakrossdeild á Skagaströnd. Á þessari mynd, frá stofnfundinum í Fellsborg, er Pétur Eggertsson fyrsti formaður deildarinnar í ræðustól. Pétur var aðal hvatamaður þess að stofna sérstaka deild á Skagaströnd og kaupum á sjúkrabíl til staðarins. Við borðið sitja Ingibergur Guðmundsson sem var fundarstjóri, Ása Jóhannsdóttir fundarritari og Ólafur Oddsson erindreki frá Rauðakrossinum á Íslandi.
Ólafur Bernódusson515
Á myndinni, sem var tekin í október 1993, er Ólafur Magnússon Hu 54 að skoða borgarísjaka sem strandaði skammt fyrir innan Skagaströnd á 40 metra dýpi. Um borð voru krakkar og kennarar úr Höfðaskóla. Þetta er sami borgarísjakinn og er á mynd númer 5186 en sú mynd var tekin af honum fyrir utan Skagaströnd. Á leið sinni framhjá Skagaströnd og þar til hann strandaði hafði jakinn velt sér og sýnir því aðra ásýnd hér en á hinni myndinni.
Guðmundur Guðnason166
Fólk að koma frá messu í Hólaneskirkju eldri. Maðurinn á miðri mynd með barn í fanginu er Sigurður Árnason (d. 26.3.2013) en drengurinn til hliðar við hann til vinstri er Sævar Rafn Hallgrímsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson553
Á myndinni sem tekin var 1984 er Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) að afhenda séra Oddi Einarssyni styrk til hjálparstarfs kirkjunnar. Styrkurinn var frá starfsfólki saumastofunnar Violu sem starfrækt var á efstu hæð í gamla kaupfélaginu þar sem nú er Rannsóknasetur Háskóla Íslands og námsstofa.
Guðmundur Guðnason112
Þessi mynd sýnir fjárhús og hlöðu. Ekki er alveg víst hvar þessi skepnuhús voru en líklega tilheyrðu þau Bergsstöðum. Búið er að bera heyið á túninu upp í sátur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 493
Fjölmenni við opnun málverkasýningar Sigríðar Einarsdóttur - Sissíar - í Gamla kaupfélaginu í september 1992. Til vinstri eru Jón Ingvar Valdimarsson í ljósri blússu og Sveinn Ingólfsson er stóri maðurinn við dyrnar. Aðrir eru óþekktir
Ólafur Bernódusson 502
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fer Gylfi Sigurðsson stjórnaformaður Skagstrendings hf yfir byggingarsögu skipsins. Notast var við hátalarakerfi skipsins til að hægt væri að hlusta á Gylfa hvar sem var um borð. </p>
Kvenfélagið Eining - safn038
Kvenfélaskonur úr Einingu funda í herbergi sínu í Fellsborg. Frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn007
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er verið að pakka saltfiski til útflutnings. Frá vinstri: Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) og Davíð Reynisson.
Kvenfélagið Eining - safn005
Kvenfélagið Eining var stofnað í febrúar 1927. Félagið varð því 50 ára 1977. Þessi mynd er frá afmælishátíð í Fellsborg. Á myndinni er Björk Axelsdóttir að flytja ræðu.
Kvenfélagið Eining - safn105
Kvenfélagið Eining hefur staðið fyrir árlegum þorrablótum á Skagaströnd í áratugi. Á þessari mynd eru kvenfélagskonur að vinna að laufabrauðsgerð fyrir þorrablót í febrúar 1996 í eldhúsinu í Fellsborg. Við borðið eru frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Íris Valgeirsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Fjóla Ævarsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) (fjær), Hafrún Eva Kristjánsdóttir , Lilja Nótt Sævarsdóttir og sú sem snýr baki í myndavélina er Rósa Högnadóttir.
Kvenfélagið Eining - safn111
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd syngur fólk undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar (d. 2.8.2003) við afhjúpunina. Kórfólkið er frá vinstri: Svava Steinsdóttir (d. 18.12.2001) frá Neðra Nesi, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), óþekkt, Sigurður Bjarnason, óþekkt, óþekkt, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Svava Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason106
Þessi mynd var tekin eftir árekstur þessa tveggja jeppa. Líklega var myndin tekin á þjóðveginum fyrir neðan Hvamm í Norðurárdal í Borgarfirði. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa rekist saman H 94 og S 95. H var á þessum tíma á bílum úr Húnavatnssýslum en S á bílum frá Seyðisfirði og Norður Múlasýslu. Síðastur til að nota númerið H 94, áður en tekið var upp nýtt númerakerfi, var Ástmar Kári Ástmarsson á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson545
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd afhendir Ingibergur Guðmundsson, Hólmfríði Önnu Ólafsdóttur (Díu Önnu), viðurkenningu fyrir góða frammistöðu sem hringjari skólans veturinn 1989 - 1990.
Kvenfélagið Eining - safn087
<p>Ferðalag eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining. Árið er ekki þekkt né áfangastaðurinn. Á myndinni eru: fremst: Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000) frá Akurgerði til vinstri og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka til hægri. Næsta sæti: Ingiríður Jónsdóttir (d. 21.10.2011) frá Ólafsvöllum til vinstri og Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) frá Litla Bergi til hægri. Í sætunum þar fyrir aftan eru hjónin Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) frá Litla Bergi. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason050
Þessi ofn var reistur á melunum ofan við kirkjugarðinn. Hann þjónaði sem sorpbrennsluofn. Ofninn var fremur óvinsæll því reykinn úr honum lagði gjarnan yfir bæinn ef vindátt var þannig. Einkum var þetta áberandi á Felli og í Mýrinni. Ofninn var ekki notaður lengi vegna mengunarvarna því bruninn í honum var ekki nógi hreinn.
Ólafur Bernódusson552
Þessir dugmiklu drengir tóku sig til og héldu tombólu til ágóða fyrir einhver hjálparsamtök. Strákarnir eru frá vinstri: Eyþór Ernstson, Vignir Hafþórsson, Jón Gunnar Einarsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Myndin var tekin kringum 1990.
Kvenfélagið Eining - safn090
<p>Kvenfélagskonur í Einingu hafa komið víða við. Á þessari mynd eru þrjár þeirra með bunka af ullarnærfatnaði, sokkum og vettlingum, sem Eining gaf um borð í báta og togara, sem gerðir voru út frá Skagaströnd. Fatnaðurinn var hugsaður sem neyðarfatnaður ef eitthvað kæmi fyrir um borð. Það að gefa slíkan fatnað um borð í skip frá Skagaströnd fór ekki hátt enda hafa kvenfélagskonur oftar en ekki starfað "bak við tjöldin" og ekki barið sér á brjóst vegna ýmissa líknar- og mannúðarstarfa sem þær hafa sinnt í gegnum árin. Á myndinni, sem tekin var í Höfðaskóla, eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) prestsfrú á Skagaströnd, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) úr Sænska húsinu og Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Sæbóli (áður Njálsstöðum). Allar voru þessar konur ötular í kvenfélaginu á sinni tíð. </p>
Guðmundur Guðnason068
Aftan á þessari mynd stendur: "Í skógarkjarri hjá Laugarvatni - ljósm. (Guðm. Kr. Guðnason)". Á myndinni eru: fremst eru systkinin Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) og Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) frá Brúarlandi. Í aftari röðinni er Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) frá Iðavöllum í hvítri blússu, óþekktur maður með sólgleraugu, Axel Helgason (d. ?) frá Læk , óþekkt kona, Jón Sölvason ? (d. ?) Réttarholti og maðurinn lengst til hægri er Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990). Aðrir eru óþekktir
Óþekktur ljósmyndari204
Þetta er líklega mynd af uppboði á hlaðinu hjá Árnesi. Húsið til hægri er Sigurðarhús (Miðnes). Uppboð voru mun algengari áður fyrr þ.e.a.s. uppboð sem fólk hélt vegna flutninga eða einhvers annars þvíumlíks en ekki endilega vegna þess að það væri komið í þrot. Þannig var t.d. algengt að fólk héldi uppboð á eigum sínum áður en það flutti til vesturheims.
Kvenfélagið Eining - safn060
Kvenfélagið Eining stóð fyrir samkomu í Fellsborg í janúar 1986. Á þessari mynd sýnir Jökulrós Grímsdóttir föt.
Ólafur Bernódusson521
Krökkum á Skagaströnd voru kennd rétt viðbrögð í sjávarháska og ýmis konar annarri vá um borð í Sæbjörgu í júní 1994. Þá kom skipið til Skagastrandar og sjómenn frá Skagstrendingi hf og fleiri fyrirtækjum sátu björgunarnámskeið um borð. Krökkunum var boðið upp á styttra námskeið. Frá vinstri: óþekktur leiðbeinandi, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Linda Hafdal, Finnbogi Guðmundsson, Guðrún B. Elísdóttir, Jóhannes Grétarsson, Sara Gunnarsdóttir, Kristján Gunnar Guðmundsson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir, Jón Örn Stefánsson, Sigurbjörg Jónasdóttir, Elísabet Vatnes, Guðrún Elsa Helgadóttir og óþekktur leiðbeinandi.
Guðmundur Guðnason092
Snjómokstur á götunni fyrir ofan Ægissíðu. Maðurinn á myndinni er Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) í Ægissíðu. Húsið sem sér í bakvið jarðýtuna var Melstaður sem stóð suðaustan við Laufás.
Ólafur Bernódusson499
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Við borðið nær okkur eru frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d. 21.12.1994), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004) og Auður Ágústsdóttir (d. 21.1.1997). Við borðið til vinstri eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og tvær óþekktar konur. Milli Jónínu og Jónu sér í Guðný Hjartardóttur (d. 14.3.2011). Við borðið í horninu til hægri eru frá vinstri: tveir óþekktir, María Magnúsdóttir, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 18.9.1999) og Árný Halla Magnusdóttir (d. 12.5.1996) og Guðný Finnsdóttir (fjær).
Kvenfélagið Eining - safn019
Kvenfélagið Eining bauð eldri borgurum á Skagaströnd í ferðalag sumarið 1985. Á þessari mynd, sem tekin var í rútunni á leiðinni, eru fremst þau Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) í Vík og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Í sætunum fyrir aftan eru Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) í Blálandi og Sigurður Jónsson í Fjallsminni.
Óþekktur ljósmyndari206
Ólafur Björnsson og Sigurlaug Sigurðardóttir á Bergi. Ólafur var farkennari á Skagaströnd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn112
Séra Pétur Þ Ingjaldsson (d. 1.6.1996) leiðir fermingarbörn til kirkju til fermingar, sennilega vorið 1958. Fremst í hægri röð er Anna Skaftadóttir, þá Halla Björg Bernódusdóttir Stórholti og Sigrún Jósteinsdóttir Sólvangi. Milli þeirra glittir í Björn Sigurðsson Hólanesi. Birgir Þórbjarnarson Flankastöðum er aftan við Sigrúnu og svo Kristinn Lúðvíksson Steinholti en aftastur er Sævar Bjarnason frá Bjargi . Stúlkan sem sér í yfir öxl séra Péturs er Bylgja Angantýsdóttir.
Guðmundur Guðnason168
Þessi unga kona er óþekkt. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari196
Þessi mynd er á bls 289 í Byggðin undir Borginni (1989) og undir henni stendur<em>:" Á skíðum í Tjaldklauf. Árið 1940 festi Umf. Fram kaup á skíðum og leigði út. Á myndinni eru frá vinstri Guðmundur Lárusson, Ægir Einarsson, Jörgen Berndsen og Ingvar Sigtryggsson".</em>
Guðmundur Guðnason156
Þetta er óþekktur kirkjukór. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 494
Krakkarnir í 5. og 6. bekk Höfðaskóla 1992 syntu áheitasund í sundlauginni á Skagaströnd í október það ár ásamt kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Á þessari mynd fagna krakkarnir að loknu sundi. Frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, óþekktur á bak við hann, Elva Dröfn Árnadóttir, Sverrir Brynjar Berndsen, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Unnur Kristjánsdóttir kennnari, Bæring Jón Skarphéðinsson, Andri Þór Ómarsson, Sveinþór Ari Arason, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Kristrún Linda Jónasdóttir,óþekkt, óþekkt, Birna Ágústsdóttir og ?Þóra Lísebet Gestsdóttir?. Drengurinn á bakkanum er Birkir Rafn Gíslason. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn011
Systurnar Dagný Hannesdóttir til vinstri og Bylgja Angantýsdóttir til hægri. Myndin var tekin á sjötta áratugnum en húsið sem þær standa við er gamla Óseyrarhúsið sem stóð inn við ósa Hrafnár. Húsið var notað sem hesthús mörg síðustu árin áður en það var rifið.
Kvenfélagið Eining - safn071
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn012
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Spjall í kaffipásu, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), og Dana ? . Ef þú veist eftirnafn Dönu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson551
Þessi mynd var tekin sumarið 1983 af hvalskurði á bryggjunni í Skagastrandarhöfn. Á þessum árum voru tímabundið gerðir út hrefnuveiðibátar frá Skagaströnd af aðkomumönnum sem áttu hrefnukvóta. Þeir drógu síðan hvalskrokkana til hafnar þar sem þeir voru dregnir á land með vörubíl eða gröfu. Síðan var hvalurinn skorinn á bryggjunni og kjöti og spiki komið fyrir í körum sem síðan voru flutt burt til kaupenda. Beinin, bægslin og annað sem ekki nýttist var síðan tekið með um borð og því fleygt í hafið á Húnaflóa fjarri landi.
Ólafur Bernódusson 530
Togarinn Arnar Hu 1 tók þátt í togararallyi í maí 1993. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar um borð tóku með sér ýmis konar lífverur í land en þær höfðu komið í trollið hjá Arnari. Börnum úr Höfðaskóla, Blönduósskóla og Húnavöllum var boðið að koma og skoða lífverurnar. Eins og sjá má á myndinni þá var áhuginn gríðarlegur hjá krökkunum. Maðurinn með gleraugun er Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri í Höfðaskóla.
1
…
66
67
68
…
167
Leita í myndasafninu
Leita