Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Séra Pétur Þ. Ingjaldsson ( f. 11. janúar 1911 - d.1. júní 1996 ) þjónaði sem prestur á Skagaströnd í 41 ár. Pétur var afar farsæll í öllum störfum sínum, maður vinsæll og eftirminnilegur öllum þeim er honum kynntust. Hann hóf prestsskap sem sóknarprestur að Höskuldsstöðum 1941, en þá heyrði sóknin á Skagaströnd undir Höskuldsstaði. Pétur flutti til Skagastrandar á sjötta áratugnum og bjó lengi í Höfða en seinna að Hólabraut 1, sem þá var prestbústaður á Skagaströnd. Prófastur varð Pétur 1967 og var stuttu seinna kjörinn á kirkjuþing þar sem hann starfaði þar til hann hætti prestskap. Séra Pétur giftist Dómhildi Jónsdóttur (f. 22. mars 1926 - d. 18. nóvember 2012 ) húsmæðrakennara frá Akureyri eftir að hann var kominn á miðjan aldur og eignuðust þau hjón tvo drengi; Jón Hall og Pétur Ingjald. Eftir að séra Pétur lést starfaði Dómhildur sem safnaðarsystir í Hallgrímskirkju og sá þar um félagsstarf aldraðra. Var Dómhildur kraftmikil og vinsæl kona sem lét sig mjög varða málefni þeirra sem höllum fæti stóðu í þjóðfélaginu bæði meðan þau hjón bjuggu á Skagaströnd og einnig eftir að hún flutti suður. Síðustu æviárum sínum eyddi Dómhildur í Hnitbjörgum á Blönduósi. Í minningargrein sem herra Sigurbjörn Einarsson biskup skrifaði um vin sinn og skólabróður, séra Pétur Ingjaldsson eru eftirfarandi orð sem þeir sem þekktu Pétur geta heilshugar tekið undir:" Þegar sr. Pétur Ingjaldsson lagði út í prestsskapinn hafði hann ekki háar hugmyndir um sjálfan sig. Það er mér kunnugt um. En hann var ráðinn í því að vera Guði sínum og kirkju hollur og trúr í vandasömu starfi. Því áformi hefur hann ekki brugðist".
Halldór001
Myndin var tekin þegar Örvar Hu 2, áður Blængur Nk 117, kemur í heimahöfn á Skagaströnd nokkrum dögum fyrir jólin 1998. Þann 22. desember 1998 kom eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu: "Nýtt skip Skagstrendingur hf, Örvar HU 2, verður til sýnis á Skagaströnd á morgun en það kom til heimahafnar síðastliðinn sunnudag. Að auki bjóða Skagstrendingur og sjómenn félagsins til skötuveislu í Fellsborg en hún er árviss viðburður. Loks verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni af 30 ára afmæli Skagstrendings og komu nýja skipsins um borð í Örvari HU 2. Örvar HU 2 bar áður nafnið Blængur NK 117 og var í eigu Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað en Skagstrendingur hf. festi kaup á skipinu fyrir skemmstu. Örvar er smíðaður á Spáni árið 1993. Skipið er 1.200 brúttótonn að stærð, tæpir 52 metrar að lengd og með 3.000 hestafla aðalvél. Örvar leysir eldra rækjuskip Skagstrendings hf., Helgu Björgu HU 7, af hólmi. Dagskrá hátíðarhaldanna hefst kl. 11 að morgni Þorláksmessu með hefðbundinni skötuveislu í Fellsborg í boði Skagstrendings og sjómanna félagsins. Kl. 13.30 verður nýja skipið blessað af sóknarpresti og að því loknu, eða frá kl. 14 til 17, verður boðið upp á veitingar um borð í Örvari í tilefni afmælisins og komu skipsins".
Séra Pétur og Dómhildur - safn115
Þarna er nýbúið að opna bókasafn Skagastrandar í kjallara Fellsborgar. Bókavörðurinn Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) afgreiðir, frá vinstri: Pálínu Freyju Harðardóttur, Jóney Hrönn Gylfadóttur, Katrínu Bryndísi Sigurjónsdóttur og Áslaugu Sif Gunnarsdóttur. Hrafnhildur Jóhannsdóttir bíður eftir að röðin komi að henni.
Hjördís Sigurðardóttir - safn021
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir situr á þessari mynd í góðu yfirlæti hjá tengdaföður sínum, Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983).
Guðmundur Guðnason143
Þessi maður er óþekktur. Myndin var sennilega tekin í gömlu Tunnunni þar sem maðurinn er að lesa eitthvað upp. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari168
Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) fyrrverandi oddviti og sveitarstjóri á Skagaströnd.
Kvenfélagið Eining - safn102
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Þessi mynd var tekin af hópnum þegar áð var við Húnavallskóla. Á myndinni eru frá vinstri:Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Hallur Hilmarsson bílstjóri, Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d. 21.1.2012), Björgvin Jörgensson (d. 26.2.1999), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004), óþekkt barn, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007), Hallgrímur Kristmundssson (d. 9.10.1998), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Erna Högnadóttir og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Guðmundur Guðnason082
Myndin var tekin 1958 - 1960 þegar yfir stóð uppboð á ýmsum eigum úr búi Engilberts Óskarssonar (d. 13. 9. 1982) og Sigríðar Helgadóttir í Skálholti. Þau voru að flytja til Reykjavíkur og til að minnka umfang flutningsins héldu þau uppboðið. Á þessari mynd eru: Albert Haraldsson (d. 28.9.1980) Litla Bergi með derhúfu og ljósan trefil um hálsinn. Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982) Fjallsminni er aftast á myndinni. Maðurinn með poka undir hendinni er Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) Kárastöðum og til hægri við hann með ljóst um hálsinn er Elínborg Árnadóttir (d.7.4.1979) Sólheimum. Vinstra megin við Kára er Björgvin Guðmundsson (d. ?) frá Melstað. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir hitt fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 507
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd biður séra Egill Hallgrímsson fyrir Arnari og áhöfn þess og blessar skipið. Fréttamaður útvarps tekur upp en Guðjón Ebbi Sigtryggsson hlustar á og sama geri Steindór Haraldsson (með skegg) til hægri. Aðrir eru óþekktir. </p>
Ólafur Bernódusson481
Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007) veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla.
Óþekktur ljósmyndari278
Einbúinn upp af Skagastrandarhöfn. Sú saga gengur um Einbúann að ekki megi skerða hann á nokkurn hátt því í honum sé álfabyggð og sé hann skemmdur muni álfarnir hefna sín grimmilega á bæjarbúum. Eins og sést á þessari mynd gekk sjórinn upp að Einbúanum þangað til 1934 þegar uppfylling var gerð vestan við hann út í Spákonufellsey við byggingu hafnarinnar.
Ólafur Bernódusson483
Þröstur Árnason veturinn 1990 - 91 í 10. bekk Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason158
Aftan á þessari mynd af Bergi Þórðarsyni stendur: Bergur Jón Þórðarson á Núpsskjóna. Húnaver og Bólstaðarhlíð í baksýn.
Óþekktur ljósmyndari260
Gott hal um borð í Arnari HU 1, fyrsta skuttogaranum með það nafn. Á pokanum standa þeir Níels Grímsson og Gestur Arnarson. Við hlið pokann til hægri stendur Guðmundur E. Guðmundsson. </p>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn010
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Sigfús Sævar Sigurðsson vinnur á lyftara.
Ólafur Bernódusson 500
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtyggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Ernst Berndsen vélstjóri, Gylfi Sigurðsson sjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Myndin var tekin í brú hins nýja skips. </p>
Guðmundur Guðnason088
Þessi mynd var tekin í ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar hringinn í kringum landið sumarið 1974. Á myndinni er fólkið að skoða bænahúsið á Núpsstað. Konan á myndinni er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) en drengurinn við hlið hennar er Kristinn Guðmundsson. Lengst til vinstri er Friðbjörg Oddsdóttir. Baksvipinn í köflóttu skyrtunni neðst í horninu til vinstri á Guðmundur Haukur Sigurðsson og hinn baksvipinn, í blárri peysu, á Sigurður Jónsson í Fjallsminni. Aðrir eru óþekktir.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn004
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á þessari mynd er vinnsla í fullum gangi. Frá vinstri á myndinni: Hans Birgir Högnason, óþekkt, Aðalheiður Harðardóttir (Dússý), Erla Theódórsdóttir og Ottó Ákason (d. 17.9.2005).
Ólafur Bernódusson487
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Á þessari mynd eru í efri röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, Vilborg Magnúsdóttir, Bára Kristinsdóttir, Jón Hilmar Indriðason og Maríanna Ástmarsdóttir. Í fremri röðinni frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Guðný Finnsdóttir og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir,
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn019
Frystihús Hólaness hf á Hólanesi - nú listamiðstöðin Nes. Mennirnir eru óþekktir en líklega er maðurinn til hægri með hattinn Jón Áskelsson (d. 1989) framkvæmdastjóri Hólaness hf. Myndin var tekin af bryggjustúf sem var vestan við frystihúsið. Húsin sem sjást í baksýn á milli húsa frystihússins eru Bogabraut 9 (Þorfinnshúsið) til vinstri og Holt til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrri 1957 því annars mundi Höfðaskóli líka sjást á milli húsanna.
Óþekktur ljósmyndari212
Háagerðisbærinn 1964. Síðustu ábúendur voru Kristján Guðmundsson (d. 16.4.1979) og Fjóla Gísladóttir (d.5.11.1991) en þau hættu búskap og fluttu til Skagastrandar upp úr 1970. Bærinn er nú löngu horfinn og á jörðinni er nú golfvöllur - Háagerðisvöllur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn096
Þetta er mynd af gömlu brúnni yfir Laxá í Refasveit. Brúin gat verið varasöm að vetri í hálku því það voru brekkur að henni beggja megin og vinkilbeygjur inn á hana. Þetta var ekki fyrsta brúin yfir ána því að áður var brú mun nær sjónum, nálægt þeim stað þar sem laxastigar eru nú í ánni. Nýja brúin sem notuð er í dag, er staðsett um það bil þar sem rafmagnsstaurarnir eru á myndinni.
Ólafur Bernódusson534
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á myndinni sést mjólkurbíllinn og dráttarvélar bændanna með mjólkurílátin sín. Allir voru bændurnir á öflugum dráttarvélum enda ófært fyrir önnur farartæki en þau sem voru vel búin t.d. með fjórhjóladrif.
Ólafur Bernódusson533
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. Í baksýn eru að spjalla Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði.
Kvenfélagið Eining - safn085
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er kynnir sýningarinnar Gunnar Svanlaugsson. Viggó Magnússon til vinstri og Ægir Jónsson til hægri virðast skemmta sér vel.
Óþekktur ljósmyndari187
Nýbyggingarráð kom í heimsókn til Skagastrandar í lok apríl 1945. Ráðinu var haldin veisla og þessar konur gengu um beina í veislunni. Frá vinstri: systurnar: Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Magdalena Helgadóttir (d. ?), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) og Jóninna Pálsdóttir. Drengurinn á myndinni er Adolf J. Berndsen <font size="1">(Heimild: Byggðin undir Borginni (1989) bls 186).</font>
Guðmundur Guðnason098
Ásbjörg Hu 5 að koma úr róðri. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir svo um þennan bát: <em>" Ásbjörg Hu 5 292. Báturinn var smíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1953 var sett í hann 118 ha. Caterpillar vél og 1970 kom 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn frá Hafnarfirði 1947 og hét hann þá Ásbjörg GK 300. Hann var gerður út til 1959 en seldur í febrúar 1960 til Reykjavíkur og skráður þar Ásbjörg RE 55. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í árslok 1977 en þá var hann með sama nafni í eigu aðila á Hólmavík:"</em>
Óþekktur ljósmyndari313
Húni HU 1 liggur innan við Húna II HU 2 við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn árið 1963 eða ´64. Aftan við þá liggja Hrönn HU 15 og Helga Björg HU 7. Bátarnir til hægri eru líklega Loftur HU 5, næst okkur, Ægir HU 30 og Njörður HU 16 upp við bryggjuna.
Guðmundur Guðnason104
Guðrún Angantýsdóttir hellir á könnuna heima í eldhúsinu sínu að Hólabraut 3.
Dagný Sigmarsdóttir004
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru þau Jóna Guðjónsdóttir og Grétar Haraldsson verkstjóri við vinnu sína í pökkunardeildinni.
Óþekktur ljósmyndari347
Gatnagerð við undirbúning lagningar slitlags á Fellsbraut 1976. Á myndinni er verið að slétta undirlagið með veghefli. Maðurinn með skófluna er óþekktur.
Kvenfélagið Eining - safn115
Þessi mynd var tekin í rútu í ferðalagi eldri borgara á vegum kvenfélagsins Eining að sumri til. Ekki er vitað um tímasetninguna. Frá vinstri á myndinni eru: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991), Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) stendur í ganginum, óþekkt, Björk Axelsdóttir situr hjá Ottó Ákasyni (d. 17.9.2005), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004) (fjær), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011)(nær), Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) og Sigurður Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson543
Óskar Þórðarson við vinnu sína sem framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Myndin var tekin veturinn 1995.
Ólafur Bernódusson516
Á þessari mynd sýnir, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, óþekktum ráðherra frá Namibíu vinnsludekkið í Arnari Hu 1. Myndin var tekin í nóvember 1994.
Guðmundur Guðnason078
Áhorfendur fylgjast spenntir með langstökkskeppni á ókunnu íþróttamóti. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson547
Hólaneskirkja og Spákonufellið 1996.
Ólafur Bernódusson544
<P>Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á þessari mynd er Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri að þakka ungum mönnum fyrir veturinn. Frá vinstri: Baldur Magnússon, Friðrik Gunnlaugsson, Atli Þórsson, Jón Heiðar Jónsson, Reynir Lýðsson, Björn Sigurðsson Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Ingibergur. </P>
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn014
Á þessari mynd býr Karl Þ. Berndsen sig undir að stökkva stangarstökk á einhverju íþróttamóti. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar.
Óþekktur ljósmyndari219
Gamli Grafarholtsbærinn sem stóð þar sem Bjarmaland stendur í dag við Skagaveg.
Óþekktur ljósmyndari241
Félagar úr hestamannafélaginu Snarfara á Skagaströnd á hestamannamóti á Vindheimamelum 1974. Í fremri röð eru Jóna Kristjánsdóttir og Magnús Hjaltason. Aftari röð frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011) og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989).
Óþekktur ljósmyndari345
Spákonufellsbærinn og kirkjan að Spákonufelli. Þessar byggingar stóðu þar sem kirkjugarðurinn sóknarinnar er í dag. Samkvæmt Byggðin undir Borginni<font size="1"> </font> var alkirkja á Spákonufelli a.m.k. allt frá 1318 því frá þeim tíma er til máldagi kirkjunnar. Kirkjan á myndinni var fyrsta timburkirkjan, sem þarna stóð, en hún var byggð 1852. Fram að því höfðu kirkjurnar verið byggðar úr torfi og grjóti. Þessi var notuð þar til ný kirkja var svo vigð á Skagaströnd 17. júní 1928 og enn ný kirkja þar í október 1991. <font size="1">(Heimildir: Byggðin undir Borginni bls 34 - 37 og Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 bls 26 - 28 eftir Lárus Ægi Guðmundsson).</font>
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn011
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Erla Theódórsdóttir að vinna við pökkun á saltfiski.
Kvenfélagið Eining - safn063
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn108
Konur í kvenfélaginu Hekla í Vindhælishreppi hinum forna (nú í Skagabyggð) tóku sig til á árunum 1930 - 33 og unnu að vegabótum á Skaganum. Þetta gerðu þær með aðstoð barna sinni en karlarnir komu ekki að verkinu. Minnisvarði um þetta framtak kvennanna var afhjúpaður við þjóðveginn um Skeiðamel stutt norðan við bæinn Hafnir hinn 2. júlí 1989. Á þessari mynd flytur Árný Hjaltadóttir formaður Heklu ræðu við afhjúpun minnisvarðans.
Ólafur Bernódusson497
Á þrettándanum (6. janúar) 1994 var spilað bingo í Sæborg í boði Íslandsbanka. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) og óþekkt. Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) er konan í hvítu peysunni við næsta borð og maður hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) er við hlið hennar. Pétur Eggertsson forstöðumaður Sæborgar stendur við skenkinn í baksýn á milli tveggja óþekktra kvenna.
Hjördís Sigurðardóttir - safn003
Tvíburarnir Ingibergur Guðmundsson og Karl Guðmundsson í kerrunni sinni fyrir utan Þórsmörk. Myndin var líklega tekin sumarið 1955. Þórsmörk er til hægri og Bjarmaland fjær.
Ólafur Bernódusson 523
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd eru leiknir ræningjarnir Jesper, Kasper og Jónatan úr Kardimommubænum. Þeir sem leika eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Rúnar Jóhannsson og Ingólfur Bjarnason.
Óþekktur ljósmyndari188
Á stríðsárunum voru nokkrir hermenn staðsettir á Skagaströnd. Þeir höfðu ekki mikið að gera og fannst þess vegna ágætt að grípa í hin ýmsu daglegu störf með íbúum bæjarins. Á þessari mynd er einn þeirra að beita með Jörgen Berndsen (d. 25.11.2012), sem er til hægri.
Óþekktur ljósmyndari218
Gömul mynd af Bankastræti. Myndin var sennilega tekin upp úr 1940 en óvíst er með hvenær. Næst okkur á myndinni er búið að taka grunn að Höfðaborg (Bankastræti 9). Þar fyrir aftan sést grind að Flankastöðum (Bankastræti 7) og er þetta a.m.k. annað húsið sem byggt var á þessum reit undir Flankastaðanafninu. Þetta er þó ekki húsið sem stendur þarna í dag, það var byggt miklu síðar. Lágreista húsið sem ber yfir grindina að Flankastöðum var Kárastaðir (Bankastræti 5). Seinna var byggð önnur hæð ofan á Kárastaði og enn síðar var það rifið. Enn aftar eða fjær okkur á myndinni standa Draumaland og Dvergasteinn sem bæði eru horfin. Stórholt (Bankastræti 3) er ekki komið en það var byggt 1950 - 51. Lengst til hægri á myndinni er Þórshamar við Skagaveg og síðan Skálholt sem einnig stendur við Skagaveg. Húsið sem stendur vinstra megin við Skálholt, dálítið nær Höfðanum, er Höfðakot. Önnur hús á myndinni eru fjós, hlöður eða hest- eða fjárhús sem tilheyrðu þeim sem bjuggu við Bankastræti. Þó er húsið, sem stendur vinstra megin við grindina að Flankastöðum, sennilega eldra Flankastaðahús sem svo var aflagt með tilkomu hins nýja.Takið eftir að ekki er búið að gera götuna, Bankastræti, eins og við þekkjum í dag. Takið líka eftir fólkinu sem er í heyskap á blettinum neðan við Tjaldklaufina næst okkur á myndinni.
Ólafur Bernódusson 519
M - kvöldvaka var haldin í Fellsborg 1. maí 1992. Hér var um menningarviðburð að ræða sem byggður var upp af mörgum atriðum frá heimamönnum. Húsfyllir var á kvöldvökunni og á þessari mynd spila saman hjónin Rosemary Hewlett og Julian Hewlett.
Óþekktur ljósmyndari339
Gamli bærinn í Réttarholti. Hann brann eftir að flutt hafði verið úr honum fyrir nokkru. Á myndinni sést lítið sem ekkert af Landsendarétt sem stóð á sjávarbakkanum norðan við bæinn. Fyrir miðri mynd er greinileg gamla Réttarholtsvörin eins og skurður í fjörunni.
Guðmundur Guðnason096
Þetta prúðbúna fólk er á áramótadansleik með viðeigandi höfuðföt. Frá vinstri: Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og hjónin Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) og Jón Kr. Jónsson frá Laufási.
Óþekktur ljósmyndari213
Litla Fell. Lengra frá sér í gamla bæinn að Spákonufelli. Myndin var lúiklega tekin 1949.
Óþekktur ljósmyndari208
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns. </p><p><br></p>
Óþekktur ljósmyndari261
Þessi mynd var tekin 1937 eða 1938 af síldarskipum við Skagaströnd. Á þessum tíma var Hafnarhúsið enn á þessum stað en það var síðan flutt á núverandi stað síðar til að rýma fyrir síldarverksmiðju á sömu lóð. Nær okkur á myndinni til vinstri sést í bryggjuna frá 1922 rétt austan við Hólsnefið og þar eru menn í aðgerð.
Kvenfélagið Eining - safn061
Kvenfélagið Eining stóð fyrir samkomu í Fellsborg í janúar 1986 sennilega í samvinnu við kvenfélagið Vöku á Blönduósi. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi. Á myndinni eru frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Gréta Arelíusdóttir, Sigrún Lárusdóttir með gítarinn, Jökulrós Grímsdóttir, Alda Friðgeirsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Óþekktur ljósmyndari249
Kjötþvottur í sláturhúsi Kaupfélags Skagstrendinga KAST einhverntíma upp úr 1960. Konurnar á myndinni eru Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Ólína Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) til hægri. Sláturhúsið var þar sem seinna var fiskmóttaka í frystihúsi Hólaness hf við Einbúastíg.
Guðmundur Guðnason172
<p>Jóhanna Bertelsdóttir</p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn104
Þessi mynd var sennilega tekin fyrir utan Hofskirkju eftir fermingu. Ekki er vitað hvenær en það mun hafa verið í kringum 1948. Aftan á myndinni stendur: <em>Einar Guðmundsson Saurum, Helgi Ólafur Pálsson Bakka, Sigurður Björn Arason Örlygsstöðum, sr. Pétur Ingjaldsson Höskuldsstöðum, Guðfinna Pálsdóttir Hofi, Sveinn Sveinsson Tjörn, Árni Hólm Víkum, Stefán Hólm Skeggjastöðum, Hallmann Lárusson Kálfshamarsvík.</em>
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn007
Starfsstúlkur í frystihúsi Hólanes hf meðan það var með vinnslu sína á Hólanesi. Frá vinstri: Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Jóhanna Jónasdóttir, Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d. 22.4.1998), Guðrún Angantýsdóttir, Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998), Oddný Jóhannsdóttir, Elín Jónsdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
68
69
70
…
167
Leita í myndasafninu
Leita