Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir034
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru að koma á vakt eða fara af vakt, frá vinstri: Ragna Gunnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Solla S. eins og segir aftan á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari314
Verslunarhúsin á Hólanesi voru reist 1885 en brunnu til kaldra kola sjö árum síðar 1892.<font size="1"> (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 83) </font> Þar brunnu inni m.a. gjafakorn sem átti að úthluta fátækum þannig að sumum varð meiri eftirsjá að korninu en húsunum sjálfum.
Kvenfélagið Eining - safn117
Þessi mynd var tekin inni í Hólaneskirkju eldri sem vígð var 17. júní 1928. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin en hún sýnir altarið með altaristöflunni sem var gjöf til Spákonufellskirkju 1838 frá Peter Duus en fór svo í Hólaneskirkju þegar hún var byggð. Stóri ofninn til vinstri var fjarlægður úr kirkjunni síðar þegar tekin var upp rafmagnskynding í henni. Hólaneskirkja eldri var afhelguð og rifin 1991 og þá var tekin í notkun Hólaneskirkja hin nýrri.
Guðmundur Guðnason102
Glatt fólk á dansleik með Spur Kóla á borðum. Frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) Höfðabrekku, Guðrún Halldórsdóttir, Óli Bogason , Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Erla Lárusdóttir (d. 24.8.1995) og Steinþór Carl Ólafsson (d. 18.9.1985).
Ólafur Bernódusson473
Á myndinni, sem tekin var í kaffistofu Rækjuvinnslunnar 1990, er Sigurður Bjarnason að taka við viðurkenningu fyrir vörugæði , fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar, úr höndum Ingimundar Konráðssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem flutti út vörur fyrirtækisins.
Óþekktur ljósmyndari294
Ekki er vitað hvað þær kölluðu kvartett sinn konurnar á myndinni en þær eru frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Ólína Hafsteindsdóttir (Lilla), Erla Lárusdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma á sjötta áratugnum.
Dagný Sigmarsdóttir033
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir og Dagný Hannesdóttir. Konan í baksýn er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari305
Hermannabyrgi sunnarlega á Höfðanum. Fyrst voru nokkrir breskir hermenn á Skagaströnd en síðan voru þeir leystir af af Amerískum hermönnum. Hlutverk hermannanna var að fylgjast með umferð skipa og flugvéla á og yfir Húnaflóa. Á þessari mynd er breski hermaðurinn Tom sem lætur fara vel um sig.<font size="1"> (Heimild: Byggðin undir Borginni bls. 180).</font>
Óþekktur ljósmyndari353
Auðunn Bragi Sveinsson (d. 2.1.2013) kennari og skólastjóri, en hann ólst upp á Sneis og Refsstöðum í Laxárdal.
Óþekktur ljósmyndari169
Myndin var tekin af Höfðanum 1946 eða 1947. Síldarverksmiðjan er í byggingu en virðist jafnframt vera komin í notkun því það rýkur úr skorsteininum. Einungis grindin er komin að skemmunni og enn eru vinnupallar á skorsteininum. Verkamenn sem unnu við bygginguna bjuggu í tjöldum sem sjást í forgrunni myndarinnar. Þá eru komnar undirstöður undir Kaupfélagsskemmuna norðan við gamla kaupfélagið.
Hjördís Sigurðardóttir - safn030
Glaðlyndir bræður úr Þórsmörk taka lagið saman. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson555
Vorið 1992 voru þessir þrír krakkar í fjöruferð í fjöruna fyrir neðan rækjuvinnsluna. Þar rákust þau á þennan smáhval - hnýðing - rekinn í fjörunni. Að sjálfsögðu létu þau vita af þessum merka fundi og fengu mynd af sér í Morgunblaðinu að launum. Krakkarnir eru frá vinstri: María Markovic, Eva Dögg Bergþórsdóttir og Sveinþór Ari Arason.
Óþekktur ljósmyndari209
Myndin er af Laufey Jónsdóttur (d. 25.12.1969) frá Reykholti með kúna sína hana Gránu.
Guðmundur Guðnason197
Bólstaðarhlíð - myndin sennilega tekin á sjöunda áratugnum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn007
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Hallbjörn Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir og Kristín Björnsdóttir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn043
Hafnarsvæðið á Skagaströnd 1978. Framkvæmdir standa yfir við verksmiðjuna þegar áætlanir voru uppi um að fara að bræða loðnu í henni. Undirbúningur að smíði viðlegukants við verksmiðjuna í undirbúningi með dýpkun hafnarinnar sem er í fullum gangi. Húsið sem sést í horninu neðst til vinstri eru vinnubúðir sem tiheyrðu framkvæmdum við verksmiðjuna. Þær brunnu seinna um miðja nótt en allir sem inni voru sluppu heilir út í tæka tíð.
Þórður Jónsson034
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hér er líklega verið að bera kistu frá Brautarholti eftir húskveðju þar. Sennilega hvílir kistunni Þuríður Jakobsdóttir (d. 19.7.1965) sem átti heimili í Brautarholti. Líkmenn eru frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986), Guðjón Andrésson (d. 20.6.2012), Hörður Ragnarsson, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) og óþekktur. Í líkfylgdinni má þekkja frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðlaug Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Eggert Skarphéðinsson (d. 2.6.1987), Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Pálma Sigurðsson (d. 21.4.1992). Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) er frakkaklæddur með húfu, hjá hornstaurnum. Til vinstri við Ólaf sést Guðrún Björnsdóttir (Góa) í Sæborg og til vinstri við hana er Guðbjörg Guðjónsdóttir. Fast við öxl Ólafs vinstra megin sést andlit Körlu Helgadóttur. Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004 )er konan sem ber í hornið á félagsheimilinu til vinstri með slæðu á höfði og ljósri yfirhöfn.
Skagaströnd - safn176
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Mikið fjör var í hófinu og mikið sungið við harmónikuundirleik. Á þessari mynd syngja fullum hálsi, frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir kona Lárusar, Elín Njálsdóttir hreppsnefndarkona, Guðrún Pálsdóttir starfsstúlka á skrifstofu Höfðahrepps og Guðbjörg Viggósdóttir.
Óþekktur ljósmyndari237
Skautaferð inn á Vindhælistjörn á níunda áratugnum. Fólkið er óþekkt.
Skagaströnd - safn241
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á þessari mynd er Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba) sem var einn af flokksstjórunum þetta sumar.
Óþekktur ljósmyndari210
<p>Hjónin Regína og Fritz Berndsen á Bergi með óþekkta stúlku og kálf. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn021
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru þeir Hallbjörn Hjartarson til vinstri og Guðmundur Haukur Sigurðsson til hægri í hlutverkum sínum. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason249
Þórunn Bernódusdóttir. Myndin var sennilega tekin kringum 1955.
Guðmundur Guðnason108
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór féll upp að honum. Það þýðir að myndin hefur sennilega verið tekin ekki seinna en 1934 því það ár var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði. Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið, sem er systi oddi Höfðans. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar, óþekkt, Karlsskáli, Lækur, Lundur, Lækjarbakki og Karlsminni. Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn114
Dælt upp úr Skagastrandarhöfn. Dæluskipið dældi sandinum upp úr höfninni vestur fyrir höfnina í fjöruna fyrir neðan sundlaugina. Þannig myndaðist landfylling sem er þar í dag.
Þórður Jónsson027
3. bekkur miðskóla Höfðaskóla 1962. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkur bekkur var starfræktur á Skagaströnd og þá fyrir nemendur fædda 1945 og 1946. Útbúin var sérstök kennslustofa í suðurenda á ganginum á efri hæðinni því þetta var áður en byggt var við skólann. Þessi stofa var svo notuð í mörg ár eða allt til þess að byggt var við skólann upp úr 1980. Á myndinni eru frá vinstri í fremri röð: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum og Þórunn Bernódusdóttir Stórholti. Aftari röð frá vinstri: Hallbjörn Björnsson Jaðri, Lárus Ægir Guðmundsson, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði og Kristinn Lúðvíksson Steinholti.
Skagaströnd - safn026
Kvöldstemning við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn044
Efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Skagaströnd 1974. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson í 3. sæti, Sveinn Ingólfsson í 2. sæti, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í 1. sæti og Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) í 4. sæti. Í kosningunum voru Adolf og Sveinn kjörnir í hreppsnefndina af listanum.
Skagaströnd - safn019
Á góðviðrisdögum þyrptist fólk á skíði í Spákonufelli og skemmti sér í brekkunum. Þessi mynd var tekin á einum slíkum skíðadegi í nægum snjó.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn033
Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru í hlutverkum sínunm frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Hallveig Ingimarsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Birna Blöndal, Guðbjörg Viggósdóttir og Rúnar Loftsson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Óþekktur ljósmyndari326
Á sjómannadegi sennilega 1949. Hátíðahöld fóru fram á Hólanesinu og þarna hafa menn sest sunnan undir vegg á Árnesi en krakkarnir stjákla í kring. Fólkið er óþekkt.
Hjördís Sigurðardóttir - safn028
Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) kvödd af kirkjukór Hólaneskirkju þegar hún flutti burt frá Skagaströnd. Við borðið eru frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Sigurður Bjarnason og Jakob Guðmundsson.
Adolf H Bernsden - safn036
Starfsmenn Marska og Rækjuvinnslunnar í kaffipásu. Frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Hjördís Sigurðardóttir, Sylvía Hrólfsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari269
Skrúðganga skáta á sumardaginn fyrsta að Hólaneskirkju í skátamessu. Fremstur ber fána Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004) og stúlkan við hlið hans með hvíta skuplu er líklega Guðrún Þórbjarnardóttir. Aftan við þau er líklega, með þriðja fánann, Árni Sigurðsson (d. 14.11.2006) frá Sólvöllum. Lárus Ægir Guðmundsson gengur fyrir aftan aftasta fánann en fullorðni maðurinn til hliðar við fylkinguna er Ingólfur Ármannsson skátaforingi. Bak við Guðrúnu sér líklega í Hrafnhildi Jóhannsdóttir (Abbý). Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Ef þú þekkir einhvern í myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari307
Angantýr Jónsson (d. 28.7.1983) ljóðskáld á Skagaströnd sonur Guðrúnar frá Lundi rithöfundar.
Óþekktur ljósmyndari341
Hér er unnið við grjótnám í Höfðanum. Grjótið var sprengt úr Höfðanum, síðan komið á bíl sem flutti það í uppfyllingu við hafnargerðina. Myndin var líklega tekin 1934 en þá var hafnargerðin í fullum gangi. Eins og sjá má var tæknin við grjótnámið samkvæmt því sem þá þekktist. Greinilega hefur derhúfan - "sixpensarinn" - þjónað því hlutverki sem öryggishjálmar gera í dag. Í baksýn sést Ægissíða sem nú er löngu horfin. Myndina tók Björn Bergmann en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn007
Mynd frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Á myndinni er Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) smiður til vinstri og óþekktur starfsmaður Olís í Reykjavík til hægri.
Ólafur Bernódusson537
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að þjappa snjóinn með jarðýtu og síðan var ekið ofan á snjósköflunum kannski tveggja metra þykkum. Myndin var tekin frá Bogabraut og húsið sem er á kafi er Bogabraut 26. Ef vel er skoðað sést "akbrautin" ofan á snjóskaflinum.
Skagaströnd - safn082
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps í ræðustól.
Kvenfélagið Eining - safn078
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir
Þórður Jónsson030
Þessi mynd sýnir hátíðafund Lionsklúbbs Skagastrandar (eldri) í Skátaskálanum. Hér hafa félagarnir boðið mökum sínum eða vinkonum með sér á fund. Við háborðið sitja frá vinstri: Ole Aamundsen (d.?), Margrét Jóhannesdóttir, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), Helga Berndsen, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996), Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009). Standandi frá vinstri eru: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jón Pálsson, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hulda Pálsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jóna Guðjónsdóttir, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Edda Pálsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á árunum 1960 - 1965.
Ólafur Bernódusson 492
Fjölmenni við opnun málverkasýningar Sigríðar Einarsdóttur - Sissíar - í Gamla kaupfélaginu í september 1992. Ljóshærða stúlkan vinstra megin við miðju er Jóney Gylfadóttir og fyrir aftan hana er Jón Valdimarsson á spjalli við Magnús B. Jónsson sem er í ljósum jakka. Hafdís Ásgeirsdóttir horfir á ljósmyndarann hægra megin við Magnús og hægra megin við hana er Aðalheiður Árnadóttir. Aftarlega fyrir miðri mynd sér í Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010). Aðrir eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn028
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Meðal annars var farið með sýninguna til Siglufjarðar þar sem þessi mynd var tekin. Frá vinstri í fremri röð: Rúnar Loftsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Helga Ottósdóttir, Jónas Baldursson og Hilmar Hilmarsson rútubílstjóri. Aftari röð frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Árni Björn Ingvarsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Ragnar Jónsson, Jón Helgi Eiðsson, Birna Blöndal, Lilja Kristinsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Helga Hermannsdóttir. Myndina tók Jónas Baldursson.
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir - safn009
Saltfiskur var unninn í gamla Hólanes frystihúsinu á Hólanesi þar sem í dag er áhaldahús hreppsins. Á myndinni er verið að meta saltfiskinn í flokka til útflutnings. Uppi satendur Högni Jensson og einhver óþekktur. Guðmundur ? fiskmatsmaður er með gleraugu og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) horfir á ljósmyndarann.
Óþekktur ljósmyndari257
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn nýsmíðaður frá Akureyri. Eins og sjá má var fjölmenni á bryggjunni til að fagna hinu nýja skipi.
Óþekktur ljósmyndari245
Þessi mynd var tekin í apríl 1989 þegar verið var að moka Mánabrautina. Fremst til hægri er vélaverkstæðið á kafi í snjó og ekki dugir minna en ein traktorsgrafa, hjólaskófla og jarðýta af stærstu gerð til að ráða við verkefnið.
Óþekktur ljósmyndari285
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 - 1940. Planið þar sem söltunarplanið er var fullgert fyrir síldarvertíð 1935 og hófst þá þegar söltun þar. Hafnarhúsið sem sér í til vinstri á myndinni var byggt sumarið 1935 en seinna (1943 - 1945) flutt á núverandi stað til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Bryggjan skemmdist um veturinn 1936 þannig að hún gekk upp um miðbikið (allt að 1 metra) og var hún því rifin niður og endurbyggð vorið 1937. Húsin í baksýn eru frá hægri: Lækjarbakki (gamli bærinn), Jaðar (Efri Jaðar), Lækur og Karlsskáli. Á bak við staurinn sem er á planinu má sjá Brúarland og lengst til vinstri er Gamla búðin. Önnur hús eru óþekkt.
Skagaströnd - safn284
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Jón S. Pálsson fyrrverandi skólastjóri fagnar tilkomu hússins í ræðustól.
Kvenfélagið Eining - safn099
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni, sem tekin var í Þingeyrarkirkju eru, frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), óþekkt stúlka, Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) (fjær) og Erna Högnadóttir.
Guðmundur Guðnason174
Þessi mynd var tekin á Hótel Blönduós en karlarnir voru kostgangarar en stúlkurnar voru starfsstúlkur þar. Aftan á myndinni stendur: "Efri röð frá v. Lárus Jónsson, Pálmi Guðnason, Einar Pétursson, Steingrímur Björnsson, Hergeir Albertsson. Fremri röð frá v. Ingibjörg Daníelsd., Þórunn Steinþórsd., María Steingrímsd Dalvík, Sigrún. Ljosm. B. Bergmann". Ekki er vitað hvenær Björn tók myndina.
Óþekktur ljósmyndari321
Trjáplöntur gróðursettar á skógræktarsvæði Skóræktarfélags Skagastrandar ofan við Hólabergin. Hér er verið að gróðursetja víðiplöntur í skjólbelti nyrst á svæðinu árið 1988. Fólkið á myndinni eru óþekktir frumkvöðlar. Myndina tók Jón Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari280
Guðbjörg Gylfadóttir úr umf. Fram kastar hér kúlu á héraðsmóti sumarið 1986 á íþróttavellinum á Blönduósi. Guðbjörg var ósigrandi í kúluvarpi í fjölda ára og setti Íslandsmet í greininni 17. maí 1992 (16,33 metrar) sem enn stendur 6. október 2014. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Hjördís Sigurðardóttir - safn038
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar sumarið 1988. Henni til heiðurs var haldið kaffisamsæti í Fellsborg þar sem fólkinu í sveitarfélaginu gafst færi á að hitta forseta sinn. Á þessari mynd sker Vigdís fyrstu sneiðina af glæsilegri rjómatertu sem meðal annars skartar skjaldarmerki sveitarfélagsins. Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti bíður eftir að röðin komi að honum. Aðrir fylgjast með forseta sínum áður en þeirra tími kemur.
Óþekktur ljósmyndari272
<p>Undir þessari mynd á bls. 213 í Byggðin undir Borginni stendur: <em>"Á línuveiðum. Þorkell Magnússon í Goðhól heldur á þorski, fyrir aftan hann er Gísli Jóhannesson frá Garði og Einar Guðjónsson er við rúlluna".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Gísli drukknaði í Laxá í Dalasýslu 11.5.1953 þannig að myndin var sennilega tekin 1945 - 1950. </p>
Ólafur Bernódusson534
Hér er Arnarborg Hu 11 í sinni síðustu sjóferð. Verið er að koma Arnarborginni í dráttarbrautin þar sem hún var síðan söguð niður og eyðilögð. Myndin var tekin vorið 1993.
Séra Pétur og Dómhildur - safn110
Aftan á þessari mynd stendur: <em>Gamli bærinn á Bergstöðum. Kirkjan endurvígð. Á myndinni sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, Guðmundur á Eiríksstöðum, Guðmundur Jósafatsson á bak við þá er Sigurbjörn Einarsson biskup.</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagný Sigmarsdóttir005
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru félagarnir Ilic ? til vinstri og Hjalti Indriðason til hægri frammi í móttöku.
Þórður Jónsson026
Myndin af þessum fjórum vinum var tekin í Hólaberginu líklega upp úr 1960. Frá vinstri eru: Ingibergur Guðmundsson, Bergur Jón Þórðarson, Böðvar Jónsson og Arelíus Viggósson (d. feb. 1978).
Óþekktur ljósmyndari277
Naustavík EA 151 var stundum gerð út frá Skagaströnd tíma og tíma. Báturinn var meðal annars einn af þeim sem gerður var út á hrefnuveiðar þó hvalbyssan sé ekki um borð á þessari mynd.
Guðmundur Guðnason178
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni en hún fór að stórum hluta fram í tjöldum eins og sjást á þessari mynd. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
1
…
72
73
74
…
167
Leita í myndasafninu
Leita