Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Dagný Sigmarsdóttir016
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við Hreinsi-færibandið, frá vinstri: Berglind Karlsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Sandra Ómarsdóttir.
Skagaströnd - safn181
Þessi mynd var tekin vorið 1965 en þá rak hafís inn á Húnaflóa með tilheyrandi vandræðum fyrir sjófarendur. Konan á myndinni er Ardís Ólöf Arelíusdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn179
Þetta góða fólk sá um kirkjuskólann/sunnudagaskólann í Hólaneskirkju í mörg ár á árunum kringum 1965. Frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 8.10.2012) kona hans, Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri Höfðaskóla og organisti við Hólaneskirkju. Barnið á myndinni er sennilega Pétur Ingjaldur Pétursson sonur Péturs og Dómhildar. Myndin var tekin á tröppum Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1965- 1968.
Barnaból - safn036
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni situr Bjarney Valdimarsdóttir með dóttur sína, Erlu Maríu Lárusdóttur, í fanginu. Eldri dóttir hennar Soffía Lárusdóttir er næst okkur til vinstri en milli þeirra mæðgna situr Anna Dröfn Guðjónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Skagaströnd - safn039
1978 var rekið niður stálþil og gerður viðlegukantur - Ásgarður - í Skagastrandarhöfn austan við síldarverksmiðjuna. Þessir tveir ungu menn, sem unnu við hafnargerðina, eru hér í smók-pásu sem þá tíðkuðust. Gréta Smári Hallbjörnsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri.
Skagaströnd - safn065
Þetta káta fólk er að fagna vígslu fjögurra þjónustuíbúða fyrir aldraða við Ægisgrund árið 1980. Öll bjuggu þau sér heimili hvert í sinni íbúð. Frá vinstri: Karitas Pálsdóttir (d. 3.5.1989), Sigurður Jónsson (d. ? ) og Hallbjörg Jónsdóttir (d.22.12.1987).
Óþekktur ljósmyndari337
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1961 - 1962. Aftari röð frá vinstri: Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) hús- og gangavörður, Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010) ræstitæknir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) kennari, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari. Fremri röð frá vinstri: Jón Pálsson kennari, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prófdómari og kennari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og Sveinn Ingólfsson kennari.
Óþekktur ljósmyndari202
Þessi mynd var tekin sumarið 1934 þegar byrjað var á að gera upfyllingu frá landi út í Spákonufellsey. Á sama tíma var unnið við að brjóta niður hluta eyjarinnar til að nota í uppfyllingu í væntanlegri höfn. Á myndinni má sjá, ef grannt er skoðað, gálga og menn að vinnu úti í eyju ásamt mönnunum sem eru að vinna við að hlaða kant að vestanverðu á uppfyllingunni til varnar sjógangi. Grjótið í uppfyllinguna var sótt í Höfðann þar sem það var sprengt niður.
Skagaströnd - safn202
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Ari Guðmundsson (d.6.9.2003) starfsmannastjóri LÍ , Þorbjörg Magnúsdóttir, Kjartan Birgisson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Lúðvík Jósefsson (d. 18.11.1994) alþingismaður og ráðherra, Ragnar Arnalds alþingismaður, óþekktur og Hallbjörn Björnsson.
Barnaból - safn082
Þessi mynd var tekin 25. febrúar 1997 á leikskólalóðinni eftir miklar byggingaframkvæmdir barnanna þar. Flestir eru komnir með þak yfir höfuðið á myndinni og virðast ánægðir með það.
Óþekktur ljósmyndari343
<p>Þessi mynd var tekin 1905 af Pétri Ólafssyni og fjölskyldu hans. Pétur var sonur Ólafs Jónssonar sem var veitingamaður í Viðvík á árunum 1868 - 1883 þegar hann flutti með fjölskyldu sína til Akureyrar. Pétur Ólafsson fæddist 1.maí 1870 og dó 11.maí 1949 og var því unglingur þegar fjölskyldan flutti til Akureyrar. Pétur var við nám og verslunarstörf á Eskifirði en flutti til Kaupmannahafnar og var þar 1890 - 92 og lauk þar námi í verslunarfræðum ásamt því að stunda frönskunám hjá Jóni Sveinssyni - Nonna, enskunám og nám í Íslensku hjá Bjarna frá Vogi. Eftir að hafa unnið við verslun í Flatey og í Kaupmannahöfn settist hann að á Patreksfirði og varð þar yfirmaður yfir öflugu verslunar - og útgerðarfyrirtæki - IHF. Pétur var forstjóri Síldareinkasölunar, sat í stjórn Eimskipafélagsins sem formaður um tíma, starfaði fyrir ríkisstjórnina við gerð viðskiptasamninga erlendis og við markaðsleit víða um heim. Hann var norskur konsúll og einnig barsilískur konsúll á Íslandi, stundaði hvalveiðar í fimm ár með tveimur bátum frá Tálknafirði, rak selveiðiskip og togara. Þá var Pétur frumkvöðull í ljósmyndun og kvikmyndagerð. Kona Péturs, sem er með honum á myndinni, var Marie Kristine Arnesen. Saman eignuðust þau sex börn auk tveggja uppeldisbarna. </p><p>(Heimild: <a href="http://www.borgarskjalasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-4242/6667_read-1552/start-p/6630_view-2789/">http://www.borgarskjalasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-4242/6667_read-1552/start-p/6630_view-2789/</a>)</p>
Barnaból - safn069
Laufey Inga Stefánsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból 23. ágúst 1996.
Þórður Jónsson046
Ekki er vitað tilefni ferðalags þessa prúðbúna fólks á H 275 - hugsanlega leikferð?. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960. Á myndinni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Stórholti, Helga Berndsen Karlsskála, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) Héðinshöfða, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður-Skála, Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) Flankastöðum, óþekkt, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður-Skála, Ingólfur Ármannsson (d.1.9.2019), Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, óþekktur og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari221
<p>Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) heldur ræðu á sjómannadegi af svölum Hólaneshússins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1950. </p>
Barnaból - safn 106
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni er Signý Magnúsdóttir með tveimur af sonum sínum þeim Árna Halldóri Eðvarðssyni til vinstri og Hilmari Eðvarðssyni til hægri.
Óþekktur ljósmyndari289
Lárus Ægir Guðmundsson á kunnuglegum slóðum á efsta palli á íþróttamóti á Blönduósvelli. Eins og sjá má hefur Lárus unnið til a.m.k. sex verðlauna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1970.
Skagaströnd - safn201
Opnun Landsbankaútibús á Skagaströnd 1982. Á myndinni eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ragnar Arnalds alþingismaður, Adolf J. Berndsen, Róbert Þórðarson (d. 26.11.2011), Páll Pétursson alþingismaður, baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996) og Bjarney Valdimarsdóttir.
Skagaströnd - safn267
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Frá vinstri: Elva Gunnarsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og sér í Eygló Amelíu Valdimarsdóttur lengst til hægri.
Óþekktur ljósmyndari228
Þessi höfn/bryggja var byggð rétt austan við Hólsnefið (syðsti oddi Höfðans) árið 1922. Sjómenn á Skagaströnd gáfu 130 dagsverk við bygginguna en Verslunarfélag Vinhælinga sá um fjármögnun að öðru leyti. Bryggjan var byggð úr hlöðnu grjóti en fremst var trékar sem var fyllt af grjóti. Fiskvinnsluhús voru svo beint upp af bryggjunni. Þetta var aðal (eina ?) bryggjan á Skagaströnd þar til höfnin var byggð 1934 -1935. Í dag sjást engin ummerki eftir bryggjuna. Báturinn á myndinni er líklega Magnús Jónsson Hu 29, sem var trilla í eigu Þorkels Magnússonar í Goðhól.
Skagaströnd - safn076
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í kaffistofu Slippstöðvarinnar en þar bauð stöðin upp á molakaffi en síðan til kvöldverðar í Sjallanum um kvöldið. Frá vinstri á þessari mynd: Steindór Gíslason, óþekktur, Ólafur Ingibjörnsson (situr), Högni Jensson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Skagaströnd - safn009
Árblik var spunaverksmiðja sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsinu við Einbúastíg eftir að fiskvinnsla lagðist þar af. Vélar verksmiðjunnar voru keyptar notaðar ásamt stórum lager af garni og fleiru sem þurfti til rekstursins en reksturinn gekk ekki vel og starfsemin var lögð af og vélarnar fjarlægðar úr húsinu. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks við eina af vélum fyrirtækisins.
Skagaströnd - safn243
Að lokinni sumarvinnu 2001 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi. Á myndinni eru Sigurbjörn Björgvinsson (Sibbi) og María Rós Karlsdóttir að gera aðalréttinum skil.
Hjördís Sigurðardóttir - safn020
Starfsfólk Hólaness hf og stjórnendur fóru saman til Kaupmannahafnar í frí einhverntíma í kringum 1980. Á þessari mynd er hluti hópsins sólbakaður í heimsókn í dýragarðinum. Frá vinstri: Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Sigrún Lárusdóttir, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Sigurður Bjarnason og Haraldur Árnason.
Skagaströnd - safn001
Íþróttahúsið á Skagaströnd var tekið í notkun 1998. Í því eru einnig þrjár kennslustofur og varð það til þess að Höfðaskóli hefur verið einsetinn síðan.
Séra Pétur og Dómhildur - safn120
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við afgreiðslu í nýopnuðu bókasafninu í kjallara Fellsborgar kringum 1980. Lengst til vinstri er Hrafnhildur Jóhannsdóttir að skoða bók sama á við um séra Pétur Þ. Ingjaldsson en Gestur Arnarson fær afgreiðslu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Síðan þessi mynd var tekin hefur bókasafninu heldur betur vaxið fiskur um hrygg með auknum bókakosti.
Óþekktur ljósmyndari264
Verkamannabústaðirnir á Bogabraut 3 og 5 í byggingu 1962 -1964.
Skagaströnd - safn288
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Kirkjukór Hólaneskirkju söng við undirleik Mike Jones organista. Frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Dagný Hannesdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson, Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og bak við hana sér í Einar Hauk Arason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn145
Presturinn til vinstri er séra Jóhann Briem (d. 8.6.1959) prestur á Melstað 1912 - 1954 en sá hægra megin er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Sennilega hefur myndin verið tekin á fimmta áratugnum en ekki er vitað hvar.
Óþekktur ljósmyndari198
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Bernódus var vélstjóri, tollvörður, oddviti og leikari á Skagaströnd um árabil.
Barnaból - safn052
Laufey Sunna Guðlaugsdóttir. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Ólafur Bernódusson472
Þessi mynd er frá fundi í Rækjuvinnslunni 1990. Á fundinn mættu fulltrúar erlendra kaupenda og innlendur útflytjandi á vörum Rækjuvinnslunnar. Tilefni fundarins með starfsfólkinu var að afhenda þeim viðurkenningu fyrir vörugæði. Á myndinni eru frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, fjórir óþekktir. Standandi upp við gluggann til vinstri: Sigrún Jónsdóttir og Hjalti Indriðason. Sigrún Lárusdóttir situr í horninu til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson situr með hönd undir kinn. Upp við gluggann fyrir endanum eru Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Grétar Haraldsson og Björn Ingi Óskarsson. Við borðin hægra megin í salnum sitja frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Lísebet Gestsdóttir, Sigurþór Sigurðsson, óþekkt, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sólveig Eiðsdóttir og óþekktur.
Skagaströnd - safn197
<p>Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga. Hann aflaði vel og Skagstrendingur hf, eigandi Örvars, gerðist stór hluthafi í fyrirtæki sem keypti lítið flutningaskip, Ísberg, og var það notað til að koma afurðum Örvars beint til kaupenda erlendis. Samstarfið stóð í nokkur ár en síðan var farið að flytja afurðirnar út í gámum og Ísbergið var selt. </p>
Skagaströnd - safn015
Malbikunarframkvæmdir á Bogabraut sennilega kringum árið 2000.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn008
<p>Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Tobaco Road eftir Caldwell og Kirkland leikárið 1975 - 1976. Myndin var tekin á sýningu í Fellsborg. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Elín Njálsdóttir, Guðný Sigurðardóttir (standandi) og Kristín Björnsdóttir.</p>
Dagný Sigmarsdóttir014
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er starfsfólk í leikfimi til að liðka sig eftir langa setu við færiband eða við önnur einhæf störf. Frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, baksvipur Söndru Ómarsdóttur og Lísebet Gestsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari270
Í þessu húsi var verslunarútibú Kaupfélags Skagstrendinga - KAST. Húsið stóð stutt vestan og norðan við Holt. Kassinn til vinstri við glugga verslunarinnar er útstillingarkassi frá Skagastrandarbíói sem rekið var um árabil í gömlu Tunnunni og seinna í Fellsborg.
Skagaströnd - safn074
<p>Kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Einingu sáu um veitingar í kveðjuveislu séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) í nóvember 1982 í Fellsborg. Á myndinni eru þær sem sáu um framreiðsluna í veislunni. Frá vinstri standandi: Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008), Anna Skaftadóttir, Halldóra Þorláksdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Ása Jóhannsdóttir. Sitjandi eru Helga Ottósdóttir vinstra megin og Birna Blöndal hægra megin. Allar þessar konur tóku virkan þátt í starfi kvenfélagsins Eining áður en þær fluttu burt frá Skagaströnd. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn140
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) leiðir fermingarbörn úr Hólaneskirkju (eldri) að lokinni fermingu 1970. Fermingarbörnin eru talið frá Pétri: Sigríður Birna Björnsdóttir, Kristín Hrönn Árnadóttir, Birna Bjarnadóttir, Ómar Gísli Másson (d. 16.6.2002) og Gunnar Jón Jónsson.
Barnaból - safn023
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 16. des 1984. Við borðsendann situr Soffía Lárusdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir móðir hennar er í röndóttum bol. Hin dóttir Bjarneyjar, Erla María Lárusdóttir situr hjá henni nær okkur á myndinni. Konan vinstra megin við borðið er Ingibjörg Skjaldardóttir með dóttur sinni Kristbjörgu Guðmundsdóttur.
Barnaból - safn 105
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru mæðginin Kristín Jónsdóttir og Jón Ingi Ragnarsson við baksturinn. Heiða Berglind Fannarsdóttir sést í bakgrunninum á milli þeirra.
Guðmundur Guðnason319
<p>Jón Kristinsson og kona hans sem er óþekkt. Ef þú veist hvað hún heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Skagaströnd - safn229
Fermingarmynd af Guðbjörgu Þorbjörnsdóttur frá Akurgerði.
Skagaströnd - safn261
Þessi borði blasti við aðkomufólki á Kerlingarholti þegar það mætti á kántrýhátíð á Skagaströnd 1996. Á myndinni er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri að koma borðanum fyrir með aðstoð lyftara. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn017
Bílafloti Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf utan við starfsstöð fyrirtækisins við Oddagötu 18.
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn015
Guðrún Angantýsdóttir á gangi á Skagaströnd vorið 1963.
Skagaströnd - safn144
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd bíða ræsingar í pokahlaup, frá vinstri: Gunnar Tryggvi Ómarsson, Viktor Pétursson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Birkir Rafn Gíslason, Salóme Ýr Rúnarsdóttir og Íris Jóna Gunnarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari200
Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) oddviti á Skagaströnd
Hjördís Sigurðardóttir - safn018
Þetta fólk voru nágrannar við Bankastrætið undir Höfðanum. Myndin sýnir að þeim kom greinilega ágætlega saman. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) Höfðaborg (Bankastræti 9), Gunda Jóhannsdóttir (d. 9.11.2013) Höfðaborg (Bankastræti 9), Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) Flankastöðum (Bankastræti 7) og maður hennar Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996).
Jóhanna Jónsdóttir (Nanna á Hólanesi) - safn013
Rósa Pétursdóttir (d. 10.10.1998) Miðnesi í Spákonufellsrétt við réttarstörf.
Jón Jónsson235
Þetta ágæta fólk var umsjónarfólk með þolsundi skólakrakka úr Höfðaskóla í sundlauginni á Skagaströnd 1987. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Inga Matthíasdóttir íþróttakennari og skipuleggjandi þolsundsins, Súsanna Þórhallsdóttir, Ingibjörg Skúladóttir, María Alexandersdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Steinunn Steinþórsdóttir. Öll áttu þau börn sem tóku þátt í þolsundinu nema Inga kennari. Í heita pottinum er Jóhanna Sveinsdóttir. Húsin í baksýn eru gamall beitninga- og geymsluskúr en brúna húsið var notað sem rafmagnsverkstæði fyrir Hólanes hf. Þetta hús þjónar nú sem golfskáli á Háagerðisvelli. Hitt húsið og tankurinn á bakvið húsin hafa verið rifin.
Séra Pétur og Dómhildur - safn177
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla af krökkum sem sóttu kirkjuskólann/sunnudagaskólann í Hólaneskirkju ásamt fólkinu sem starfaði við hann. Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma á árunum 1965 - 1970. Í öftustu röð eru frá vinstri: Þórdís Guðmundsdóttir?, Víkingur Viggósson, Birna Bjarnadóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Jón Hallur Pétursson, óþekkt, Páll Jónsson (d. 19.7.1979)skólastjóri, Jón Ingvar Valdimarsson, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, og Sigríður Gestsdóttir. Næstu röð eru frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir, Anna Bjarnadóttir, þrjú óþekkt börn, Þorlákur Jónsson, Sigurður Pétur Jónsson, Rósa Ingólfsdóttir, Pétur Ingjaldur Pétursson (fjær), Hörður Jónasson (nær) Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9. 1974) og Dagný Guðmundsdóttir (d. 22.4.2004). Næst fremsta röð frá vinstri: Óþekkt, Ólafur Valdimarsson? (með hatt), Hafþór Gylfason, Ástmar Kári Ástmarsson, Páll Jónsson (fjær), óþekktur (nær), Gísli Snorrason, Valdís Edda Valdimarsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og þrjár óþekktar stúlkur. Börnin í fremstu röðinni eru öll óþekkt nema rauðhærða stúlkan í bláu peysunni með rauðu hjörtunum er Guðrún Ágústsdóttir. Ef þú þekkir óþektu börnin og/eða getur staðfest nöfn þeirra, sem spurningarmerki er við, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn059
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) var umsvifamikill atvinnurekandi á Skagaströnd í áratugi. Hér er hann árið 1981 að vinna við að steypa þekju á viðlegukant á Ásgarði í Skagastrandarhöfn ásamt mönnum sínum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn013
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á myndinni eru fjórir alþingismenn Norð- vesturlands. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson (d. 10.9.2011), Ragnar Arnalds, Páll Pétursson (d.23.11.2020 og Pálmi Jónsson (d.9.10.2017).
Skagaströnd - safn005
Ránarbraut 9 - 15 voru byggð í kringum 1990 af Eðvarð Hallgrímssyni byggingameistara.
Skagaströnd - safn234
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: María Magnúsdóttir, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3. 2011), Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir. Hægra megin við borðið sitja í röð: Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) í rauðri peysu.
Óþekktur ljósmyndari172
Kristján Guðmundsson bóndi í Háagerði slær með hestasláttuvél sem hann hefur beitt tveimur hestum fyrir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Skagaströnd - safn190
Þessi mynd frá 1961 sýnir verkamenn vinna við að handmoka möl á vörubílspall. Myndin var sennilega tekin í malarkrúsinni ofan við Skagaströnd. Ekki er vitað hverjir mennirnir eru.
Jón Jónsson270
Á þessari mynd eru leikararnir í Saumastofunni sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið undir leikstjórn Halldórs Laxnes veturinn 1984. Myndin var tekin á sýningu og á henni eru, talið frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Sigmarsdóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Skagaströnd - safn218
Myndin var tekin í flökunar- og vélasal frystihúss Hólaness hf 1976. Á myndinni eru frá vinstri: Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) handflakari, Guðjón Jóhannesson (d. 11.2.2011) handflakari, Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) við roðflettivél og Kjartan Bjarnason líka við roðflettivél.
Séra Pétur og Dómhildur - safn148
Á þessari fjölskyldumynd eru þau hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir með börnum sínum. Börnin eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Hafþór Gylfason og Guðbjörg Gylfadóttir.
1
…
77
78
79
…
167
Leita í myndasafninu
Leita