Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn271
Páll Jóhannesson fylgist með vatnsdælingu við vatnsleit í Hrafndal sumarið 1996.
Dagný Sigmarsdóttir007
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) við vinnu í pökkunardeildinni.
Skagaströnd - safn132
Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Fremst frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Kolbrún Viggósdóttir og Eyþór Kári Egilsson.
Guðmundur Guðnason253
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Á þessari mynd er skíðmennskan í fullum gangi en dráttarvélin var í eigu Ásgeirs Axelssonr (d. 8.6.2011) Litla-Felli.
Jón Jónsson233
<p>Þessi mynd var tekin í sundlauginni á Skagaströnd 1987 af þeim Helgu Kristmundsdóttur til vinstri og Jóhönnu Sveinsdóttur til hægri. </p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn113
Síldarverksmiðjan á Skagaströnd að bræða. Sennilega er verið að bræða fiskibein og úrgang en ekki síld eins og upphaflega var ætlað. Í forgrunni er fjara sem mynduð var með uppdælingu við dýpkun hafnarinnar hinum megin við verksmiðjuna. Sennilega var myndin tekin kringum 1970.
Guðmundur Guðnason207
Kappreiðar á Hvammsbökkum 1961. Knapar og hestar bíða ræsingar. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson245
1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur á fundi með Ingibergi Guðmundssyni kennara. Líklega er þetta ritstjórnarfundur vegna skólablaðsins. Frá vinstri eru á myndinni: Hjalti Magnússon, Ingibergur, Óskar Óskarsson, Jóney Gylfadóttir og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn142
Fjórir prestar í Hólaneskirkju (eldri). Myndin var sennilega tekin þegar séra Oddur Einarsson tók við af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem sóknarprestur á Skagaströnd 1981. Séra Oddur þjónaði söfnuðinum á árunum 1981 -1986 en séra Pétur hafði þá þjónað í 40 ár 1941 -1981. Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, séra Róbert Jack (d. 11.2.1990) og séra Oddur Einarsson.
Skagaströnd - safn193
Myndin var tekin á fundi í gömlu Tunnunni. Tilefnið er óþekkt og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremst til vinstri sitja Edda Guðmundsdóttir og Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), Peysuklæddur fyrir miðju á fremsta bekk er Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Til hægri við hann, aftar, situr Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968) en annar til hægri frá honum enn aftar er Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989). Aftan við Friðjón sést Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og aftan við Kristján til vinstri er Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013). Milli þeirra Friðjóns og Kristjáns, á næsta bekk fyrir aftan sitja systurnar Hólmfríður Hjartardóttir (d. 15.12.1991) til vinstri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) til hægri. Á milli þeirra sér svo í Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Ungi maðurinn sem stendur í horninu til hægri er Þorvaldur Skaftason. Ræðumaðurinn sem sér aftan á er Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007). Yfir vinstri öxl hans sér í Pálma Sigurðsson (d. 21.4.1992). Aðrir eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn168
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Næst okkur á myndinni eru Björgvin Jörgenson (d. 26.2.1999) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Maðurinn í bláa jakkanum aftan við Björgvin er Haukur Gunnlaugsson (d. 18.1.2004). Konan í hvíta jakkanum sem ber yfir höfuð Önnu er Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir026
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru hjónin Jóhanna Karlsdóttir og Þráinn Bessi Gunnarsson.
Óþekktur ljósmyndari215
Sigríður Helgadóttir í Skálholti. Í baksýn eru Kárastaðir til vinstri, Draumaland til hægri og fjárhús frá Flankastöðum eða Kárastöðum fjær. Myndin var tekin kringum 1945.
Skagaströnd - safn016
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Höfðahrepps, og eftir nafnbreytingu, Sveitarfélagsins Skagaströnd, á skrifstofu sinni.
Skagaströnd - safn130
<p>Veglega var haldið upp á 17. júní 1994. Myndin er frá skrúðgöngu dagsins. Fremstar fara prúðbúnar í íslenskum búningum, frá vinstri: Bergþóra Huld Guðjónsdóttir, Kristín Jóna Sigurðardóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir og Hildur Inga Rúnarsdóttir. Fánaberarnir voru líka prúðbúnir en þeir eru frá vinstri: Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Eiður Örn Þórsson og Jón Örn Stefánsson. Lögreglumaðurinn er Þór Gunnlaugsson. </p><p><br></p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn135
Rósa Sigurðardóttir í Hólanesi á fermingardaginn sinn 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri).
Skagaströnd - safn004
Ránarbraut 17 - 23 voru byggð á níunda áratugnum af Eðvarð Hallgrímssyni byggingameistara.
Óþekktur ljósmyndari179
<p>Von Hu 2. Um þennan bát segir svo í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:<em> "Von HU 2. Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Reykjavík 1908 og var 4,8 brl. með 12 ha Dan vél. Árið 1930 var sett í bátinn 38 ha. Tuxham vél. Hann var keyptur frá Hólmavík í júní 1944 og hét þá <strong>Von ST 22</strong>. Eigendur voru Guðmundur Jóhannesson, Guðmundur Karlsson, Hallgrímur Kristmundsson, Óskar Frímannsson og Snorri Gíslason. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1948".</em> </p><p><br></p>
Hjördís Sigurðardóttir - safn008
Myndin er frá vígslu söluskála Olís á Skagaströnd 1979. Á myndinni eru þeir Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) til vinstri og Sigurður Guðmundsson til hægri. Báðir unnu þeir við byggingu skálans.
Skagaströnd - safn163
Lárus Ægir Guðmundsson til hægri afhendir Jóni Pálssyni skólastjóra formlega nýja viðbyggingu við Höfðaskóla haustið 1982.
Dagný Sigmarsdóttir031
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru þær Aðalheiður Guðmundsdóttir til vinstri og Edda Pálsdóttir til hægri að gera leikfimiæfingar eftir langa setu við hreinsi-færibandið.
Skagaströnd - safn022
Sjórinn gengur yfir eyjuna og brimvörnina vestan við verksmiðjuna í slæmum veðrum - einkum í suðvestanátt. Nú hefur brimvörnin verið hækkuð og bætt til að minnka ágang sjávarins í höfninni.
Barnaból - safn012
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Á myndinni erRagnheiður Magnúsdóttir að hjálpa syni sínum Magnúsi Filip Sævarssyni en í baksýn má sjá Sigrúnu Jónsdóttur í grænni peysu fyir miðri mynd og Signý Richter er til hægri.
Barnaból - safn013
Þessi mynd var tekin 13. desember 1986 af piparkökubakstri á leikskólanum Barnabóli. Signý Richter og Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) aðstoa dætur sínar og annarra við baksturinn. Næst Þórarni situr dóttir hans, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir en næst Signý situr hennar dóttir, María Markovic. Milli stúlknanna tveggja situr svo Guðrún Ásta Guðmundsdóttir.
Skagaströnd - safn257
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð. Salernisaðstöðu var komið fyrir við öll tjaldsvæðin og hér er mynd af salernunum fyrir sunnan íþróttavöllinn. Þeim var haldið snyrtilegum og þau tæmd tvisvar - þrisvar á dag. Aftur á móti gekk erfiðlega að halda svæðinu kringum þau í góðu horfi eins og sést á þessari mynd.
Skagaströnd - safn078
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991), framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf, á vinnsludekkinu í Örvari.
Barnaból - safn292
Hanna Rúna Gestsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn100
Ólafur Magnússon Hu 54 við Skúffugarðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1990 - 1996.
Skagaströnd - safn007
Vélaverkstæðið er að hluta til starfrækt í gamalli skemmu sem byggð var í tengslum við byggingu síldarverksmiðjunnar á árunum 1946 - 47. Sá hluti er fjær á myndinni en hlutinn sem er nær er seinni tíma viðbygging.
Ólafur Bernódusson 554
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir - Alla á Póshúsinu - vinnur að gróðursetningu í Borginni. Hér er hún að gera plöntnum til góða með áburðargjöf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn045
Að lokinni hafnargerð í Skagastrandarhöfn 1978, þar sem byggður var viðlegukanturinn Ásgarður, var haldið hóf með þeim sem helst komu að framkvæmdunum. Á þessari mynd eru þeir Kristján Helgason tæknifræðingur hjá Vitamál til vinstri og Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri .
Hjördís Sigurðardóttir - safn014
Þessi mynd var tekin í hófi af tilefni opnunar Landbankaútbús á Skagaströnd 1982. Við opnunina yfirtók Landsbankinn Sparisjóð Skagstrendinga. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Magdalena Jóhannsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Þórður Jónsson054
Ísleifur Haraldsson frá Jaðri, sennilega á fermingardaginn sinn. Ísleifur átti heima í eldra Jaðri, sem nú er horfinn, en stóð beint á móti þeim sem enn stendur.
Hjördís Sigurðardóttir - safn027
Á þessari mynd eru hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (1930-2015) og Þorbjörn Jónsson (1922-1986) í Akurgerði með börnin sín þrettán. Aftari röð frá vinstri: Ómar Þorbjörnsson(1946-2021), Heiðdís Þorbjörnsdóttir(1957), Ísleifur Þorbjörnsson(1951), Hrefna Þorbjörnsdóttir(1948), Sigurður Þorbjörnsson(1953), Guðbjörg Þorbjörnsdóttir(1949), Hallbjörn Þorbjörnsson(1954), Valborg Þorbjörnsdóttir(1950) og Þráinn Þorbjörnsson(1955). Fremri röð frá vinstri: Kristjana Þorbjörnsdóttir(1959), Sonný Þorbjörnsdóttir(1964), Aðalbjörg, Þorbjörn, Þröstur Þorbjörnsson(1962) og Heiðrún Þorbjörnsdóttir(1960).
Skagaströnd - safn066
Kaffisasæti í Fellsborg 1980 í tilefni þess að teknar voru í notkun fjórar þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Ægisgrund. Við háborðið sitja frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Þórhildur Ísberg og Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður.
Skagaströnd - safn162
Sveitarstjóraskipti 1984. Lárus Ægir Guðmundsson, sem var sveitarstjóri á árunum 1972 til 1984, afhendir Sigfúsi Jónssyni lyklavöldi sveitarstjóra en hann tók við af Lárusi og var sveitarstjóri á Skagaströnd í um það bil tvö ár þegar hann tók við sem bæjarstjóri á Akureyri. Hreppsnefndarmennirnir, frá vinstri: Adolf J. Berndsen oddviti, Magnús B. Jónsson og Gylfi Sigurðsson fylgjast með.
Þórður Jónsson050
Guðbjörg Guðjónsdóttir (d. 3.7.1981). Guðbjörg var verkakona sem bjó lengi í kjallaranum í Gamla skólanum - Bjarmanesi, en seinna bjó hún á efstu hæðinni í Herðubreið.
Skagaströnd - safn086
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Næst okkur á myndinni eru frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hulda Pálsdóttir (d. 9.1.1995), Páll Pétursson Alþingismaður og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Skagaströnd - safn119
Grafið fyrir grunni dvalarheimilisins Sæborgar við Ægisgrund. Guðmundur Björnsson mokar á vörubíl Sigurjóns Ástmarssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Sæborg var vígð 22. október 1988.
Ólafur Bernódusson 557
Þorvaldur Skaftason heima í stofunni sinni. Tilefni myndatökunnar var að daginn áður hafði trilla, sem Þorvaldur var einn á, sökk undir honum þegar hann var á leið í róður. Þorvaldur komst í gúmmíbát og sendi upp blys sem sást frá landi og var honum bjargað um borð í Þórdísi, sem var björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Þorvaldi var ekki meint af volkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það mun hafa verið á níunda áratugnum.
Skagaströnd - safn068
<p>Séar Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd og prófastur Húnavatnsprófastsdæmis ásamt konu sinni Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012). Myndin var tekin í fjölmennu kveðjuhófi í Fellsborg þeim hjónum til heiðurs í nóvember 1982.</p>
Skagaströnd - safn141
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd er hjólbörukapphlaup í gangi. Fjær ekur Atli Þórsson Guðrúnu Pálsdóttur en til hægri er Finnur Kristinsson við stjórnvölinn og ekur dóttur sinni Guðný Finnsdóttur. Maðurinn í hvítu úlpunni er Ólafur Bernódusson.
Skagaströnd - safn205
Mikill og almennur skíðaáhugi var á Skagaströnd á áttunda áratugnum og fram eftir þeim níunda. Fólkið á þessari mynd gekk á skíðum frá Skagaströnd út að Háagerði og til baka einn sunnudag veturinn 1983. Myndin var tekin efst á Bogabrautinni áður en lagt var af stað. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldóra Þorláksdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Guðrún Sigurðardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Anna Bára Sigurjónsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson. Börnin tvö framan við röðina eru óþekkt. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Barnaból - safn089
Leikskólakrakkarnir í Barnabóli fóru og höfðu "Sleep-over" í skíðaskálanum vorið 1997. Á þessari mynd eru þær komar í svefnpokana sína, frá vinstri: Aðalheiður Ragnarsdóttir, Helena Mara Velemir og Elna Ragnarsdóttir.
Skagaströnd - safn196
Karl Árnason (d. 25.12.1995) bóndi og þúsundþjalasmiður í Víkum.
Barnaból - safn 108
Mynd frá árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli í desember 1989. Á myndinni eru feðginin Fannar Viggósson og Heiða Berglind Fannarsdóttir.
Skagaströnd - safn189
Frysti- og sláturhús Kaupfélags Skagstrendinga - KAST - einhverntíma á sjötta áratugnum. Stóru lýsis- og olítankarnir eru í baksýn. Í þá daga voru ekki gerðar athugasemdir við að hugsanleg megnunarhætta gæti stafað frá olíutönkum á næstu lóð við matvælafyrirtæki.
Guðmundur Guðnason299
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Skagaströnd - safn233
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á myndinni er kaffitími hjá þessu góða fólki með starfsmönnunum 16. nóvember 1998. Frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), óþekkt, Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), óþekkt, Guðný Finnsdóttir (fjærst), Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Guðrún Ágústsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir.
Guðmundur Guðnason333
Þessi mynd var tekin frá Hótel Blönduós inn yfir Blöndu.
Ólafur Bernódusson570
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju sennilega í desember 1998. Börnin eru frá vinstri: Steinar Ólafsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Ástrós Vilhelmsdóttir, Elna Ragnarsdóttir (fjær), Sylvía Ósk Hrólfsdóttir (nær), Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Þórir Óskar Björnsson, Brynjar Max Ólafsson, Sunna Gylfadóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir og óþekkt barn. Lengst til hægri er séra Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur sem leiðir sönginn.
Þórður Jónsson049
Þessar fínu konur sáu um framreiðslu á einhverjum óþekktum viðburði á óþekktum tíma. Konurnar eru frá vinstri: Ragna Bjarnadóttir Bjargi, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994) Höfðakoti, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) Höfðabrekku, Helga Berndsen Karlsskála og Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012) frá Harrastöðum.
Skagaströnd - safn140
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd eru þeir Halldór Hermannsson til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri að fylgjast með á hátíðarsvæðinu.
Skagaströnd - safn071
Fjölmenni mætti í kveðjuhóf í Fellsborg þegar séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) lét af störfum sem sóknarprestur á Skagaströnd eftir 40 ára starf. Á myndinni eru þeir sem stjórnuðu fjöldasöng í hófinu. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Heiðmar Jónsson við hljóðfærið.
Skagaströnd - safn305
Skagavegur 11 eða Héðinshöfði. Myndin var tekin 27. desember 2000. í húsinu voru tvær íbúðir en húsið er nú löngu horfið (rifið).
Skagaströnd - safn139
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Höfðahrepps í lok júlí 1989. Meðal þess sem boðið var upp á var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu. Einnig var kvölddagskrá. Veðrið lék ekki beint við hátíðargesti; norð-austan kaldi með skúraleiðingum. Fólk lét það ekki á sig fá heldur klæddi sig bara eftir veðri. Á þessari mynd eru frá vinstri: Linda Kristjánsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Díana Kristjánsdóttir.
Guðmundur Guðnason313
Guðmundur Guðnason tók stóran hluta myndanna sem eru í eigu Ljósmyndasafns Skagastrandar. Þær birtast ekki nærri allar á netinu en eru vel geymdar hjá safninu. Ein tegund mynd sem ekki birtast mikið á netinu eru myndir sem Guðmundur tók af sjónvarpsskjánum, sem hann tók mikið af. Þar er um að ræða mikið af kirkju-tengdum myndum og mannamyndum af prestum og fólki. Þessi mynd er sett á netið sem sýnishorn þessara sjónvarpsmynda Guðmundar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - sfn085
Ánægðir veiðimenn með mikinn afla úr Skagaheiðinni. Frá vinstri: Stefán Stefánsson ( d. 2.1.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) en hann var fjórði veiðifélaginn í túrnum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn022
Adolf H. Berndsen situr á neðstu tröppunni við Karlsskála en afi hans Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) stendur ofan við hann. Myndin var sennilega tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson554
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni eins og sjá má í hillunum til hægri á myndinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru að sýna, þær: Valrún Eva Vilhelmsdóttir lengst til vinstri, Auðna Ýr Oddsdóttir og Dagbjört Agnarsdóttir lengst til hægri. Í bakgrunninum sést Magnús B. Jónson filma herlegheitin og í áhorfendahópnum eru góðir og gegnir Skagastrendingar.
1
…
79
80
81
…
167
Leita í myndasafninu
Leita