Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn244
Jón Ingi Ragnarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1987
Guðmundur Guðnason 2 366
Þessi mynd er af tveimur leikurum í óþekktu leikverki. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er líklega Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti í hlutverki þínu.
Barnaból - safn203
Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1985.
Dagný Sigmarsdóttir027
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Barnaból - safn163
Sóley Elsa Magnúsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Skagaströnd - safn056
1979 Stóð FRÍ fyrir landshlaupi. Hlaupið var hringinn kringum landið en hlauparar komu frá ungmennafélögunum hverju á sínum stað. Á þessari mynd skiptast þeir á keflinu, Jón Pálsson til vinstri og Sigurður Guðmundsson til hægri. Báðir í umf. Fram á Skagaströnd.
Jón Jónsson234
Þetta ágæta fólk var umsjónarfólk með þolsundi skólakrakka úr Höfðaskóla í sundlauginni á Skagaströnd 1987. Frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) og Sylvía Hrólfsdóttir. Öll áttu þau börn sem tóku þátt í þolsundinu.
Guðmundur Guðnason238
Þessi mynd var tekin fyrir utan Lækjarhvamm eða Suðurveg 1. Stúlkan til vinstri er Harpa Friðjónsdóttir, sem átti heima í húsinu, en hin stúlkan er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn265
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina í nestisstoppi. Greinilega er grettukeppni í gangi þegar myndin var tekin. Hákon Þórarinsson rekur út úr sér tunguna framan í ljósmyndarann.
Guðmundur Guðnason274
Þessi mynd var tekin í hringferð starfsmanna Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd árið 1974. Á henni er fólk að undirbúa sig undir að tjalda á náttstað við Dynjanda í Hornafirði. Í baksýn sjást Vesturhorn og Stokknes. Næst okkur á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) en aftan við hana sést Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) en aftan við Sigmar sér í Eðvarð Jóhannesson. Næst rútunni og snúa baki í ljósmyndarann eru sennilega Guðmunda Sigurbrandsdóttir og Ólafur Guðmundsson. Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) heldur á rauðri fötu og grænum poka en lengst til hægri, með grænan poka, er Kristinn Guðmundsson.
Barnaból - safn306
Arnór Snorri Gíslason á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn041
Piparkökur bakaðar á leikskólanum Barnaból 14. desember 1983. Á myndinni er Þórunn Bernódusdóttir með dætrum sínum tveim sem sitja við borðið, Auður Eva Guðmundsdóttir vinstra megin og Elísabet Eik Guðmundsdóttir hægra megin. Birna Ágústdsóttir er í fangi Þórunnar.
Séra Pétur og Dómhildur - safn171
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Fremst á myndinni eru Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999) og Elínborg Guðmundsdóttir (d. 8.4.2005). Aftan við þær heilsar Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) Knúti Berndsen (d. 31.8.2013) með handabandi.
Skagaströnd - safn106
Skagastrandarhöfn 1935. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að byggja Hafnarhúsið við höfnina. Húsið var síðar fært á þann stað þar sem það stendur í dag til að rýma til fyrir síldarverksmiðjunni sem reis þarna á árunum kringum 1946.
Barnaból - safn215
Hildur Inga Rúnarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Dagný Sigmarsdóttir015
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá þegar hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru við hreinsi-færibandið, frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Dagný Hannesdóttir.
Þórður Jónsson047
Dökklædda fólkið fremst á myndinni eru hjónin Hulda Pálsdóttir og Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005). Yfir vinstri öxl Þorfinns sést Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) en milli Huldu og Þorfinns sést Elsa Axelsdóttir Schiöth (d. 14.7.1966) (eiginkona Lárusar Jónssonar (d. 3.7.1983) læknis á Skagaströnd). Við hlið Huldu situr Hallbjörn Ágústsson frá Blálandi fæddur 1954 þannig að myndin hefur sennilega verið tekin þegar Höfðaskóli var vígður 2. nóvember 1958.
Barnaból - safn155
Hörður Aðils Vilhelmsson á leikskólaárum sínum kringum 1991.
Guðmundur Guðnason335
Myndin var tekin frá Hótel Blönduós
Skagaströnd - safn302
Þessi mynd var tekin 28. desember árið 2000 af Stórholti eða Bankastræti 3. Í húsinu eru þrjár íbúðir.
Barnaból - safn029
Málfríður Jóhannsdóttir aðstoðar dóttur sína Söru Rakel Gunnarsdóttur við piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 16. desember 1984.
Árni Geir Ingvarsson - safn 371
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Magnús B. Jónsson, Ingibergur Guðmundsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Barnaból - safn022
Þórdís Sigurðardóttir er lenst til vinstri á myndinni og Hrafnhildur Jóhannsdóttir situr við borðsendann. Þær eru að baka piparkökur með börnum sínum í Barnabóli 16. des 1984. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson er hjá Hrafnhildi móður sinni, en börn Þórdísar sitja á móti henni Inga Valdís Heimisdóttir til vinstri og Sigurður Heimisson til hægri.
Barnaból - safn 097
Flestir hafa gaman af að skoða gamlar myndir. Á þessari mynd, sem tekin var 26. maí 2001, er fólk að skoða gömul myndaalbúm sem innihalda myndir frá starfi leikskólans Barnaból. Á myndinni eru frá vinstri talið: Einar Haukur Arason (fjær), Einar Ari Einarsson (nær), Guðjón Páll Hafsteinsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Linda Rún Einarsdóttir og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Barnaból - safn300
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn017
Þessi mynd var tekin í júlí 1986 á leikskólalóðinni við Barnaból í blíðskapar veðri. Frá vinstri Vilborg Magnúsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Brynjar Sigurðsson og Erna Hreinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 472
Drangey stóð við Fellsbraut gegnt kirkjunni. Húsið hefur nú verið rifið.
Barnaból - safn275
Viktor Pétursson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Barnaból - safn025
<p>Á myndinni er Steinunn Steinþórsdóttir með börnum sínum Karen Petu Karlsdóttur til vinstri og Gunnari Dór Karlssyni til hægri, við piparkökubakstur á leikskólanum Barnaból 16. desember 1984. </p>
Barnaból - safn252
Árný Guðrún Ólafsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Skagaströnd - safn107
Útbærinn á sjötta áratugnum. Næst Höfðanum eru frá vinstri: fjárhús og hlaða tilheyrandi Flankastöðum, Höfðabrekka, litla húsið aftan við Höfðabrekku var fjós sem tilheyrði Kárastöðum, Bjarnarhöfn, Höfðakot með sambyggðri hlöðu og fjárhúsum en svarta húsið, sem ber yfir hlöðuna við Höfðakot, er Höfðaberg. Hægra megin við Bankastrætið eru frá vinstri: Höfðaborg, Flankastaðir, Kárastaðir og Stórholt. Síðan eru húsin við Skagaveg frá hægri: lengst til hægri sér í hornið á útihúsum sem tilheyrðu Garði, Héðinshöfði, Þórsmörk (nær), Bjarmaland (fjær), hlaða, fjárhús og hjallur sem tilheyrðu Þórsmörk (nær), Þórshamar (fjær) og Skálholt. Við hornið á Héðinshöfða er svo Gunnarshólmi (Grafarbakki) lengra frá. Næst okkur á myndinni er óþekktur skúr þar sem litlar stúlkur eru að leik. Myndina tók Björn Bergmann.
Skagaströnd - safn089
Gatnagerð sumarið 1982. Þá var lögð olímöl á Túnbraut, Sólarveg, Sunnuveg, Suðurveg, Ægisgrund, Skagaveg og Bankastræti. Á myndinni mokar Guðmundur Björnsson olíumöl á bíla en mennirnir eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Einar Haraldsson (d. 14.11.1983) og hægra megin við gröfuna er Guðbjartur Sævarsson.
Skagaströnd - safn213
Höfðahreppur varð 50 ára 1989. Í tilefni af því voru ýmsir viðburðir á Skagaströnd. Þeirra á meðal var skemmtun og grill á tjaldsvæðinu 29. júlí. Þessi mynd sýnir eitt af skemmtiatriðunum þar sem "síldarstúlkur" syngja með Hallbirni Hjartarsyni. Á myndinni eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Þorvaldur Skaftason, Hallbjörn Hjartarson, Guðbjörg Viggósdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Vigdís Viggósdóttir og óþekkt.
Séra Pétur og Dómhildur - safn154
1. júlí 1998 var Kántrýbær endurvígður eftir að nýtt bjálkahús hafði verið reist á brunarústum eldra Kántrýbæjar. Af þessu tilefni var fólki boðið að koma og skoða bæinn og njóta veitinga. Húsfyllir var og leist fólki vel á nýju bygginguna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Hallbjörn Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, tveir óþekktir, Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Fríða Hafsteinsdóttir. Aðalbjörg styður hönd á öxl Friðvins Inga Berndsen. Aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn294
Rebekka Maren Þórarinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Séra Pétur og Dómhildur - safn121
Þessir áhugasömu lestarahestar sem eru að lesa í bókasafninu í kjallara Fellsborgar eru, frá vinstri: Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir, Pálína Freyja Harðardóttir og Jóney Hrönn Gylfadóttir.
Barnaból - safn033
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 14. desember 1985. Næst okkur á myndinni eru bræðurnir Gunnar Guðmundsson vinstra megin og Ólafur Guðmundsson hægra megin. Við borðir sitja líka Kristín Björnsdóttir með dætur sínar Þóru Ágústsdóttur til vinstri og Birnu Ágústsdóttur til hægri.
Barnaból - safn005
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd er Gréta Gunnarsdóttir að gantast við Brynjar Sigurðsson.
Skagaströnd - safn073
Skagstrendingar fjölmenntu til Akureyrar til að fylgjast með þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni 1982. Á myndinni er verið að binda hann við bryggju að sjósetningu lokinni.
Barnaból - safn277
Sigríður Ragna Árnadóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega kringum 1980
Dagný Sigmarsdóttir028
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar tók sig saman og eyddi kvöldstund á barnum á hótel Dagsbrún ásamt mökum sínum árið 1992. Á þessari mynd eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir. Maðurinn sem situr við hlið Kristínar er Kári Lárusson.
104-0436_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að horfa á uppákomu sem leikskólabörnin fluttu fyrir gesti sína.
Jón Jónsson323
Á þessari mynd verslar Ingibjörg Kristinsdóttir, lengst til vinstri, sér grænmeti á grænmetismarkaði utan við Bogabraut 3 - líklega sumarið 1988. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir.
Barnaból - safn280
Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Barnaból - safn246
Jón Haukdal Þorgeirsson á leikskólaárums sínum á Skagaströnd kringum 1985
Þórður Jónsson042
Öflugt skátastarf var á Skagaströnd á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Meirihluti unglinga á Skagaströnd, á þessum árum, tók þátt í skátastarfinu sér til uppbyggingar og ánægju. Þessi mynd var tekinn af hópi skáta úr Sigurfara, sem var nafn skátafélagsins á Skagaströnd, að leggja af stað í gönguferð á Spákonufellsborg í vetrarfærð. Frá vinstri: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) Steinholti, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Jóhann Björn Þórarinsson Höfðaborg, Hrafnhildur Jóhannsdóttir Blálandi og Hallbjörn Björnsson Jaðri. Í baksýn er hluti af útbænum með mörgum húsum sem eru horfin í dag. Myndina, sem sennilega var tekin 1964, tók Þórður Jónsson (d.25.12.2009)sem lengi var félagsforingi Sigurfara.
Jón Jónsson312
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni sitja að spjalli, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Charlotta Traustadóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Skagaströnd - safn236
Félagsstarf aldraðra fer fram í Fellsborg. Á þessari mynd frá 16. nóvember 1998 eru þær niðursokknar í að mála, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, María Magnúsdóttir og Guðrún Ágústsdóttir.
Skagaströnd - safn304
Skagavegur 14 eða Bjarmaland. Myndin var tekin 27. desember 2000.
Jón Jónsson263
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið Er þetta ekki mitt líf? veturinn 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Skagaströnd 1966 b
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er verið að gera klárt fyrir að láta karið renna í sjóinn. Bátarnir á myndinni sáu um að koma taug úr karinu yfir í stærri bát sem dró það síðan yfir að hafnargarðinum þar sem karið var gert klárt fyrir ferðalag á endanlegan áfangastað. Stærri báturinn er líklega Ægir Hu 30.
Ólafur Bernódusson562
<p>Þessi mynd var tekin á götu í London í september 2002. Þá tóku sig til 11 Skagstrendingar og fóru á tónleika með Rolling Stones í borginni. Á myndinni eru hjónin Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir.</p><p><br></p>
Barnaból - safn078
Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í leikskólanum Barnaból 20. desember 1996. Við borðið nær okkur sitja, frá vinstri: þrjú óþekkt börn, Halla Björk Víðisdóttir með hatt, Unnar Leví Sigurbjörnsson (nær), Sonja Sif Ólafsdóttir (fjær), Ellen Sigurjónsdóttir (nær), Silfá Sjöfn Árnadóttir (fjær) og Telma Dögg Bjarnadóttir. Börnin við hitt borðið eru óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 225
Karlakór syngur við hátíðlegt tækifæri í Húnveri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Því miður er filman orðin slæm þannig að ekki er auðvelt að þekkja mennina á myndinni en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn248
Andri Þór Ómarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Óþekktur ljósmyndari354
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn199
<p>Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) - Bergur sterki eins og hann var gjarnan kallaður.</p>
Barnaból - safn272
Jóhannes William Grétarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Ólafur Bernódusson569
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 1997 eða 1998. Á myndinni eru krakkarnir á torginu framan við Amalienborg. Strákurinn í ljósa bolnum til vinstri er Magnús Líndal Þrastarson síðan koma talið frá vinstri: Gunnar Helgason, Geirþrúður Guðmundsdóttir, óþekktur, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, María Markovic, óþekkt, Elín Anna Konráðsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn144
Á myndinni ávarpar Herra Karl Sigurbjörnsson biskup þau séra Pétur Þ. Ingjaldsson (1.6.1996) og Dómhildi Jónsdóttur (d. 18.10.2012) konu hans. Pétur var sóknarprestur á Skagaströnd 1941 - 1981 en þau Dómhildur giftust 1956. Eftir að Pétur lét af prestskap starfaði Dómhildur mikið við Hallgrímskirkju í Reykjavík en Herra Karl biskup var prestur þar áður en hann gerðist biskup. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin.
1
…
85
86
87
…
167
Leita í myndasafninu
Leita