Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason 2 451
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson leiðir fermingarbörn til kirkju fyrir fermingu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Fermingarkrakkarnir eru óþekkt. Húsið til vinstri á myndinni er Iðavellir en innst með fjörunni sér í Óseyri og Bráðræði. Milli aftasta og næst aftasta fermingardrengsins sér í Rjúpnafell en yfir höfuð næst fremstu stúlkunnar sér í Konnabæinn (Garðhús). Dagsbrún er svo húsið sem sést bak við prestinn. Öll eru þessi hús horfin í dag nema Iðavellir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamleag sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn245
Eygló Amelía Valdimarsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn172
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Helga Jóhannesdóttir, Adolf J. Berndsen oddviti og Sólveig Róarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 381
Þessi myndarlegi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson291
Útibú Landsbanka Íslands á Skagaströnd var opnað með pompi og prakt árið 1982. Á myndinni, sem tekin var í opnunarhófinu, blandar Hallbjörn Hjartarson drykki fyrir gesti sem kona hans Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012) ber fram. Milli þeirra stendur Sólveig Róarsdóttir.
Barnaból - safn179
Björgvin Örn Ragnarsson á leikskólaárum sínum kringum 1990.
Jón Jónsson344
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson, Viggó Magnússon og Jón Arnarson.
Jón Jónsson297
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi líklega 1988. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri er til vinstri en í barminum ber hann heiðurskross sjómannadagsins, sem hann var sæmdur þennan dag. Við hlið Björns er Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) en þeir tveir voru vinir og samherjar í mörgu í daglegu lífi.
Barnaból - safn146
Þessi mynd var tekin eftir hádegið í Lundi, í leikskólanum Barnaból, í febrúar 1998. Fremsta röð frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir og Þórður Indriði Björnsson. Miðröð frá vinstri: Hjördís Laufey Ásgeirsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Elísabet Anna Einarsdótttir, Valþór Óli Vilhelmsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Aftasta röð til vinstri: Alex Már Gunnarsson, Guðjón Oddur Ingólfsson, Lilja Kristinsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Helga Bergsdóttir, Elías Kristinn Sæmundsson, Alexandría Björg ? og Alexander Ragnarsson.
Árni Geir Ingvarson - safn 467
Þessi mynd var tekin af Skúffugarðinum þegar allt er á kafi í snjó.
Skagaströnd - safn085
Örvar Hu 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 7. apríl 1982. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip og eftir það var haldið hóf í Fellsborg þar sem ræður voru fluttar og skálað fyrir skipinu. Á þessari mynd er fólk að hlusta á einhvern ræðumann. Frá vinstri: Eiður Hilmarsson, Sævar Bjarnason, Stefán Jónsson (d. 29.6.2009), Sigríður Höskuldsdóttir (d. ?), Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004) og Hjalti Skaftason.
Barnaból - safn 098
Þessi mynd var tekin fyrir utan útihús sem eru á Steinnýjarstöðum. Kristján Kristjánsson (d. 10.10.2007) bóndi heldur á óþekktu barni og hjá honum stendur annað barn sem ekki er vita hvert er. Drengurinn á reiðhjólinu er afabarn Kristjáns, Heiðmar Kristjánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 455
Unnið við löndun úr Örvari HU 21. Á myndinni eru þau samhent að vinna; Jón Vilhjalmsson (d. 31.8.2011) og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jón Jónsson273
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd eru gestir í kaffi vegna vígslunnar. Frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir, Sigfús Jónsson, Gylfi Sigurðsson, Emelía Rós Sigfúsdóttir, Kristbjörg Antonsdóttir , Lárus Ægir Guðmundsson, og Hörður Ragnarsson.
Skagaströnd - safn245
Að lokinni sumarvinnu 1996 hjá vinnuskóla Höfðahrepps gerði starfsfólkið sér glaðan dag og fór saman út að borða á hótel Dagsbrún á Skagaströnd. Á þessari mynd er Linda Kristjánsdóttir á góðri stund fyrir matinn.
Scan10095
Kamrar teknir af vagni í undirbúningi kántrýhátíðar árið 2000. Kömrunum var siðan komið fyrir á tjaldsvæðum hátíðarinnar.
Jón Jónsson244
<p>1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendur og starfsfólk vann að ýmsum verkefnum sem yfirleitt eru ekki á dagskrá í skólanum. Á þessari mynd eru umsjónarmenn skólaútvarpsins sem rekið var þessa viku. Frá vinstri: Baldur Magnússon, Hallgrímur Oddsson (sitjandi nær), Hans Birgir Högnason (standandi fjær), Viggó Magnússon og Halldór Gunnar Ólafsson. </p>
Jón Jónsson242
Þessi mynd var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 1985. Á myndinni situr Signý Richter með dóttur sína Maríu Markovic í fanginu. Hjá þeim situr Lísebet Gestsdóttir frá Brandaskarði.
Barnaból - safn241
Kristín Dís Sigurðardóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 450
Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) í Skálholti átti H 333 sem sést á myndinni þar sem hann stendur utan við Fellskjör, seinna Kántrýbæ, en húsið brann eins og kunnugt er og nýtt bjálkahús var reist á grunninum.
Guðmundur Guðnason 2 397
Elínbjörg Kristjánsdóttir frá Höskuldsstöðum.
104-0428_IMG
Leikskólinn Barnaból varð 25 ára 2002. Blásið var til afmælisveislu 8. júní um sumarið og þá tók Ólafur Bernódusson þessa mynd. Á henni eru gestir og nemendur leikskólans að bíða eftir að fá grillaða pylsu hjá starfsfólki leikskólans.
Barnaból - safn090
Myndin var tekin í fimm ára afmæli Alexanders Ragnarssonar í leikskólanum Barnaból 4. júlí 1997. Hann situr við enda borðsins með kórónu á höfðinu. Aðrir á myndinni eru talið frá Alexander til hægri: Aðalheiður Ragnarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, óþekkt. Arnar Freyr Sigurjónsson, óþekktur, Eyþór Vilhjálmsson, Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir og Hanna María Gylfadóttir.
umf Fram 317
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar.Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Krakkarni fengu að upplifa ýmislegt í búðunum meðal annars að fara á hestbak. Á myndinni er hópur krakka í hestamennsku.
Skagaströnd - safn344
Myndin var tekin á sjómannadegi af sigursveit kvenna í kappróðri eftir verðlaunaafhendingu. Efst stendur Þorvaldur Skaftason stýrimaður sveitarinnar þá Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Hugrún Pálsdóttir, Erna Högnadóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Gígja Óskarsdóttir.
umf Fram 329
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd var tekin af þátttakendum á Skagaströnd. Frá vinstri: óþekktur (nær), Ólafur Bernódusson (fjær), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Guðmundur Haukur Sigurðsson (nær), óþekkt (fjær), Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Sigurður Guðmundsson, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003)(fjær), Jón Jónsson (d. 9.7.1991)(nær).
Jón Jónsson300
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru standandi þeir Rafn Sigurbjörnsson frá Örlygsstöðum 2 til vinstri og Sveinn Sveinsson Tjörn til hægri. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Salóme Jóna Þórarinsdóttir, frú Vigdís Finnbogadóttir og Vilhjálmur Skaftason. Fyrir aftan Vilhjálm spjalla saman þeir Kári Lárusson til vinstri og Jón Benediktsson (d. 30.12.2002) Höfnum til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn269
Patrik Heiðarsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd sennilega í kringum 1985
Guðmundur Guðnason325
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin af Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1988) með ?Þórey Ólafsdóttur? frá Árbakka vinkonu sinni. Ef þú getur staðfest að konan sé Þórey Ólafsdóttir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn271
Ólína Laufey Sveinsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
Skagaströnd - safn396
<p>Báturinn Re 317 hét Sæljón og landaði oft á Skagaströnd en hinn báturinn er Brynjar St 50 frá Hólmavík. Eigendur bátanna voru bræðurnir Gunnar Guðmundsson eigandi Sæljóns og Jóhann Guðmundsson sem átti Brynjar. Milli bátanna eru nótabátarnir en þeir voru notaðir við síldveiðarnar þannig að nótin var dregin inn í þá þegar snurpað var (= þrengt að síldinni í nótinni). Var það gert með handafli en síðan var síldin háfuð um borð í móðurbátinn með háf eins og þeim sem sést hanga í bómunni á Sæljóninu. Bassaskýli var nafnið á litlu kössunum/skjólunum sem sjást uppi á stýrishúsum bátanna. Þegar verið var að leita að síld var einn eða fleiri menn hafðir uppi í Bassaskýlinu til að reyna að koma augu á vaðandi síldartorfur. Þó að skýlin væru axlarhá og lokuð allan hringinn var oft kalsamt að standa þar og stara út á hafið í kring. Bassaskýlin voru síðan aflögð með tilkomu astiks og fleiri tæknivæddra fiskleitartækja um borð í bátunum. </p>
Jón Jónsson257
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd, sem tekin var á frumsýningarkvöldinu, eru höfundarnir og leikstjórinn með leikurunum á sviðinu. Allir í salnum sungu þá saman "Síldin kemur og síldin fer". Talið frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þröstur Guðbjartsson leikstjóri, tveir óþekktir, Iðunn Steinsdóttir höfundur, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Hendrik Berndsen, Kristín Steinsdóttir höfundur, Viggó Magnússon, Steindór Haraldsson og Magnús B. Jónsson.
Jón Jónsson309
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru hjónin Steindór Haraldsson og Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn032
<p>Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð sem var sýnd á Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni leikarar og starfsfólk sýningarinnar eftir æfingu í Fellsborg. Fremsta röð frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Magnús B. Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d. 29. 7.2003). Næsta röð frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Einar Helgason, Rúnar Loftsson, Hjörtur Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Bernódus Ólafsson. Fjórða röð frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Þar fyrir ofan frá vinstri: Birna Blöndal, Hjörtur Guðmundsson og Hallbjörn Hjartarson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Jón Jónsson259
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Ingimar Oddsson í hlutverki sínu.
Barnaból - safn262
Kristinn Björgvinsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1983.
Guðmundur Guðnason 2 364
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: <em>" Á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Klemens Kristjánsson (á miðri mynd) segir frá tilraunum með Kornrækt. Ljósm. Guðm. Kr. Guðnason".</em> Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið á myndinni er óþekkt nema Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem horfir í átt að ljósmyndaranum.
Skagaströnd - safn 318
Á níunda áratugnum var unninn hörpudiskur á Skagaströnd. Eftir nokkur góð ár dró mjög úr veiði í Húnaflóa þannig að veiðum og vinnslu var hætt. Á þessari mynd eru konur að hreinsa innyfli frá vöðva hörpudisksins en vöðvinn var afurðin, sem var hirt og skapaði verðmæti vinnslunnar. Brosandi konan á myndinni er Bajrnhildur Sigurðardóttir en aðrir eru óþekktir.
Jón Jónsson276
Þessar tvær blómarósir voru gengilbeinur í 50 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar sem hann hélt í Skátaskálanum 1973. Konurnar voru í kvenfélaginu á þessum tíma en félagið sá um veitingar fyrir Guðmund. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir og Helga Ottósdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn173
Myndin var tekin í Kántrýbæ, sennilega árið 1998, á einhverjum hittingi eldra fólks úr héraðinu. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir frá Kárastöðum og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) frá Bjargi. Yfir öxl Jónínu sést Elínborg Guðmundsdóttir (d. 8.4.2005) og Helga Daníelsdóttir (d. 17.1.2013) situr gegnt henni við borðið. Aftan við Rósu situr Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999).
Barnaból - safn142
Þessi börn voru í Sæbóli á leikskólanum Barnaból 1997 - 1998. Fremri röð frá vinstri: Bryndís Brá Guðmundsdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Indriði Theódór Hjaltason og Einar Kristberg Einarsson. Aftari röð frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Birna Blöndal, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Skagaströnd - safn212
Bændur í Austur Húnavatnssýslu tóku sig til og keyptu líflömb - líklega vestan af Ströndum - til að kynbæta hjá sér fjárstofninn. Lömbin voru flutt sjóleiðis til Skagastrandar þaðan sem þeim var svo ekið til nýrra heimkynna sinna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekinn né hvaða fólk er á henni en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn301
Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006) á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1992.
Guðmundur Guðnason2 342
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er grjótnám í Höfðanum í fullum gangi. Sennilega var myndin tekin kringum 1950 af hlaðinu í Ægissíðu, þar sem ljósmyndarinn bjó.
Séra Pétur og Dómhildur - safn147
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) frá Viðvík. Þessi mynd var tekin af Gísla á tröppunum í Reykholti þar sem hann bjó á sínum efri árum. Á myndinni er hann með heiðursmerki (?sjómannadagsins?) í barminum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 420
Ólafur Magnússon Hu 54, einn af mörgum bátum með þessu nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt gegnum tíðina.
Barnaból - safn 133
Guðbjörg Viggósdóttir, Jón Atli Magnússon sonur hennar og feðgarnir Gylfi Guðjónsson og Ívar Gylfason (í gulri peysu) baka piparkökur á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból í desember 1991.
Guðmundur Guðnason 2 438
Þórgunnur Snædal á Höfðanum á góðum degi. Þórgunnur er bróðurdóttir Guðmundar Guðnasonar sem tók þessa mynd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 385
Á þessari mynd er annað hvort verið að sjósetja Lottó Hu 538 eða taka bátinn upp. Maðurinn á myndinni er Árni Guðbjartsson en hann átti bátinn með bróður sínum Sigurjóni Guðbjartssyni. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1990 -1992 en það er sá tími sem þeir bræður áttu bátinn.
Árni Geir Ingvarson - safn 362
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Fannar Viggósson, Ástmar Kári Ástmarsson, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Barnaból - safn212
Gunnar Dór Karlsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Jón Jónsson243
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þeir Sveinn Ingólfsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að hlaupa í Langadalnum með logandi kyndil. Hlaupið var með kyndilinn hringinn í kringum landið líklega vegna baráttunnar fyrir friði í heiminum. Hlaupararnir komu úr hinum ýmsu íþróttafélögum um allt land en Sveinn og Magnús mættu fyrir hönd USAH ásamt fleiri hlaupurum.
Guðmundur Guðnason284
<p>Þessi mynd sýnir fjölskylduhóp afkomenda séra Gunnars Árnasonar á Æsustöðum. Maðurinn til vinstri er Stefán Gunnarsson og þriðji frá vinstri í öftustu röð er Haraldur Ólafsson tengdasonur Gunnars. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Barnaból - safn054
Helgi Óskarsson. Myndin var tekin á leikskólanum Barnaból.
Jón Jónsson231
Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju eldri 17. júní 1988. Þá voru liðin 60 ár frá vígslu kirkjunnar. Til messunnar mættu fjögur fermingarsystkin sem fermd voru á vígsludeginum 17. júní 1928. þau eru frá vinstri: Guðmann Einar Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Henrietta Berndsen (d. 15.2.1998), Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka og Guðmunda Pétursdóttir (d. 2.2.2001) frá Lækjarbakka. Prestarnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson standa aftan við fermingarsystkinin.
Jón Jónsson319
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri til hægri mata hvorn annan á jógúrt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn059
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason, í Fellsborg í febrúar 1988. Þessi mynd var tekin á æfingu af þeim Sigrúnu Jónsdóttur til vinstri og Hallveigu Ingimarsdóttur til hægri í hlutverkum sínum.
umf Fram 331
Ekki er vitað hvenær þesi mynd var tekin en það var gert á íþróttavellinum á Skagaströnd. Á henni er verið að afhenda þeim Soffíu Guðmundsdóttur; Birnu Sveinsdóttur og Hallbjörgu Jónsdóttur (talið frá vinstri) verðlaun fyrir unnin afrek á vellinum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn154
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Hallveig Ingimarsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 386
<p>Um Kristján Hu 123 segir svo í bókinni ,,Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:</p><p><em>,, <strong>Kristján</strong> HU 123 <strong>734. </strong>Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1948 og var 38 brl. með 132 ha. Kelvin vél. Hann var endurbyggður 1970 og sett í hann 240 ha.Caterpillar vél og mældist þá 37 brl. Báturinn var endurbyggður öðru sinni árið 1979 og árið 1983 kom í hann 325 ha. Catepillar vél. Skagstrendingur h/f eignaðist Kristján árið 1990 en þá var félagðið að safna rúmmetrum vegna smíði nýs togara. Báturinn var leigður Björgu s/f og var gerður út á úthafsrækjuveiðar sumarið 1990. Hann var seldur til Ólafsvíkur árið 1991."</em></p>
1
…
90
91
92
…
167
Leita í myndasafninu
Leita