Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn 325
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni spjalla hjónin Guðbjörg Viggósdóttir og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri við ókunnugt fólk. Guðbjörg og Magnús eru til hægri. Lengt til vinstri sér í Hallbjörn Björnsson.
Skagaströnd - safn368
Þessi mynd var tekin 1.febrúar 1992 þegar Stóra Berg var rifið. Húsið stóð suð-austan við kirkjuna rétt hjá Iðavöllum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 424
Stundum þarf að koma vélarvana bátum í slippinn. Á þessari mynd er verið að koma einum slíkum í sleðann með hjálp tveggja hjálparbáta.
Skagaströnd - safn349
Hólaneskirkja eldri rifin 19. febrúar 1992. Kirkjan var vígð 1928 en var afhelguð 1991 nokkru áður en hún var rifin.
Guðmundur Guðnason 2 443
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í Spákonufellsrétt en skeggjaði maðurinn er Jónatan Jónsson (d.17.7.1971) frá Hólagerði á Skagaströnd. Til hægri, í ljósum jakka, er Björn Helgason (d. 11.3.1983) frá Læk.
Skagaströnd - safn402
<p>Einungis tveir af þessum bröggum standa ennþá (maí 2015). Hvíti bragginn var kallaður Skáli og skiptist í Norður skála og Suður skála. Búið var í báðum endum fram yfir 1970 og lengi vel var skrifstofa Höfðahrepps í herbergi í norður enda Norður skála. Nú er Skáli notaður sem bílskúrar og geymslur. Skátaskálinn/Skátabragginn er sunnan við Skála en þar réð skátafélagið Sigurfari lengi vel ríkjum. Seinna var Skátaskálinn svo notaður sem mötuneyti fyrir starfsmenn Síldarverksmiðju ríkisins, þá sem billjardstofa en er nú í einkaeign. Braggarnir tveir sem sjást í baksýn voru um tíma notaðir til íbúðar og sá sem er nær okkur þó mun lengur en hinn. Næst okkur á myndinni til vinstri er hafnavogin en hún stóð þarna þar til hún var flutt niður á höfn. </p>
Skagaströnd - safn 328
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd í ræðustól á mótinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn162
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson, Bergþór Gunnarsson (fjær) og William Sillar (nær). Uppsviðs dansar Steindór Haraldsson við óþekkta leikkonu.
Skagaströnd - safn371
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að fóðra innan ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru Rúnar Jóhannsson í bláum samfestingi og Sigurjón Ástmarsson bílstjóri sem stjórnar krananum með fjarstýringu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 431
Birgir Þórbjarnarson gefur skipanir úr brúarglugganum á Arnari HU 1 - Japans Arnari - en þar var Birgir stýrimaður og seinna skipstjóri í mörg ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 365
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Jón Ingvar Valdimarsson, Fannar Viggósson, Ástmar Kári Ástmarsson, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir
Magnús B Jónsson096
Þessi mynd var tekin 1998. Á henni er verið að leita að heitu vatni í landi Höfðahrepps með jarðbor. Boraðar voru allmargar holur, 30 metra djúpar, á völdum stöðum hér og þar , til að leita að heitu vatni. Ekkert heitt vatn fannst við þessa leit.
Guðmundur Guðnason 2 474
Messa í Holtastaðakirkju. Fyrir miðri mynd er Katrín Grímsdóttir frá Steiná síðan kemur óþekktur maður þá Bjarni Sigurðsson Eyvindarstöðum, Runólfur Aðalbjörnsson Hvammi og Valgarður Hilmarsson frá Fremsta - Gili lengst til hægri. Við hljóðfærið er Gerður Aðalbjörnsdóttir fá Hólabæ. Aðrir eru óþekktir. Ef þú veist hver kirkjan er eða þekkir fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn216
Kristbjörg Una Guðmundsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990
Guðmundur Guðnason 2 405
Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996)
Guðmundur Guðnason 2 398
Gréta Jónsdóttir frá Laufási.
Skagaströnd - safn339
Eftir að nýja Hólaneskirkja hafði verið vígð 21. október 1991 var haldið kaffisamsæti í Fellsborg og þar var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Julian Hewlet, Hlíf Sigurðardóttir (fjær), Árni Sigurðsson, Adolf J. Berndsen (fjær), Rosemary Hewlet og Guðmundur Sigvaldason.
Guðmundur Guðnason 2 499
Myndin er tekin sumarið 1988 á Flúðum/Vesturbrún 6 þar sem Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum og Auður Harpa Ólafsdóttir bjuggu. Ingi Heiðmar og Auður eru á sinn hvorum enda en gestirnir á milli þeirra eru Stefán Gunnarsson frá Æsustöðum og kona hans Hertha W. Jónsdóttir. Ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason sem hefur væntanlega verið í heimsókn hjá þeim Stefáni, gömlum nágranna þegar foreldrar Guðmundar bjuggu í Hvammi á Laxárdal en Stefán á Æsustöðum. Ungbarnið er Halla Ósk Heiðmarsdóttir.
Jón Jónsson338
<p>Þetta fólk var í forystusveit skíðafólks á Skagaströnd meðan skíðalyfta var rekin í Spákonufelli. Frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Á þessari mynd eru þau að afhenda verðlaun á skíðamóti kringum 1985. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 396
Gauti Hu 59 í slippnum á Skagaströnd. Þessi bátur hét áður Húni II og var svo gerður upp og skírður aftur sínu fyrra nafni Húni II. Báturinn er nú á Akureyri og er í eigu Hollvina Húna II þar. Báturinn er gerður út sem ferðamannafley og til lengri og skemmri ferða um Eyjafjörð.
Barnaból - safn165
Jenný Lind Sigurjónsdóttir á leikskólaárum sínum kringum 1990
Leikklúbbur Skagastrandar - safn156
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Guðmundur Guðnason 2 465
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í Gömlu Tunnunni á einhverri skemmtun. Frá vinstri á myndinni eru: María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Jón Þorgeirsson og Jónína Valdimarsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn166
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson í hlutverki sínu sem sýslumaður.
umf Fram 315
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Norður- skála hreppstjóri á Skagaströnd heldur hér ræðu í 50 ára afmælisfagnaði umf Fram.
Magnús B Jónsson094
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru þeir Guðmundur til vinstri og Ólafur til hægri, kampakátir að skoða hvalinn í fjörunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 474
Benni Ólafs er skemmtibátur sem Guðmundur Björnsson og Ólafur Bernódusson keyptu frá Dalvík 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 419
Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði ræsinu og veginum burt svo ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd sjást leyfarnar af ræsinu og stálið í vegstæðinu þar sem bílar bíða í ráðaleysi á brúninni að sunnanverðu.
Guðmundur Guðnason 2 459
Þessi kona er óþekkt og sama gildir um stúlkubarnið sem hún hampar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 487
<p>(H)eldri borgara á Skagaströnd, og fleiri, fóru saman í ferðalag og þar á meðal var fólkið á myndinni. Stoppað var á Kerlingarholtinu og þar var spilað og sungið. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmóniku, Helga Guðmundsdóttir með gítar og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 422
Þessi mynd var tekin á athafnasvæði slippsins og á henni eru tveir af ötulustu starfsmönnum þar. Ólafur Guðmundsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 433
Þessi mynd er frá sjómannadegi en árið er óþekkt. Þarna er tekist á í reiptogi á Skúffugarðinum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Adolf J. Berndsen (með sólgleraugu), óþekkt kona, Helga Guðmundsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Lárus Ægir Guðmundsson (nær), Jón Ingi Ingvarsson? (fjær) og óþekkt fólk. Á reipinu er Gylfi Sigurðsson næst okkur og Gunnar Sveinson næstur honum. Aðrir á reipinu eru óþekktir. Hægra megin við reipið eru talið frá okkur: Sigurður Björnsson, Ómar Þorbjörnsson (strákur með húfu), Jón Stefánsson og Högni Jensson en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn281
Ólafur Magnússon á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
umf Fram 326
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Steingrímur Ingvarsson Eyjólfsstöðum, Jón Torfason Torfalæk, óþekktur, Jóhann Guðmundsson Holti, Ragnar Bjarnason Haga, Björn Magnússon Hólabaki, Guðmundur Guðbrandsson Saurbæ og Eggert Levy á Húnavöllum.
Barnaból - safn278
Helga Dögg Jónsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 364
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Jón Ingvar Valdimarsson, Fannar Viggósson, Þorvaldur Skaftason, Ástmar Kári Ástmarsson, Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn004
Ung stúlka prófar Kajak í víkinni austan við Skúffugarðinn 10. september 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 417
Snjómokstur á Mánabraut. Eins og sjá má er af nógu að taka. Sennilega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 - 1996 þegar allt fór á kaf í snjó.
Árni Geir Ingvarsson - safn 466
1995 og 1996 voru mjög snjóþung ár á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af Gylfa Sigurðssyni að moka frá útidyrunum sínum að Bogabraut 12. Ljósmyndarinn stendur upp á ca 4 metra þykkum snjó á Bogabrautinni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn174
Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og þorvaldur Skaftason í hlutverkum sínum í verkinu.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn013
Myndin var tekin á skólaskemmtun Höfðaskóla í Fellsborg 5. mars 1997. Frá vinstri eru: Gunnlaugur Briem, Þóra Lísebet Gestsdóttir, María Markovic, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Jón Gunnar Einarsson og óþekktur.
umf Fram 320
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Bátsferð á Svínavatni var eitt af því sem var á dagskrá krakkanna í búðunum. Hér er verið að koma úr einni "sjóferð" með Karli búðastjóra. Drengirnir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 476
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku né hvar myndin var tekin. Í öftustu röð frá vinstri: séra Hjálmar Jónsson, Sólveig Sigríður Einarsdóttir (Sísa), Margrét Jónsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Guðrún Kristjánsdóttir og Sigurður Daníesson. Fremri röð frá vinstri: Bjarni Th. Rögnvaldsson, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), séra Ólafur Hallgrímsson, Helga Kristjánsdóttir, séra Yrsa Þórðardóttir, séra Dalla Þórðardóttir, Margrét Bóasdóttir, séra Sigurpáll Óskarsson og séra Kristján Valur Ingólfsson.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn010
Myndin var tekin á jóla-barnaballi í Höfðaskóla um jólin 1962. Strákurinn með svarta bindið til vinstri er Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009). Fyrir ofan jólasveininn sést Þorvaldur Skaftason en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir konurnar á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn289
Sindri Njáll Hafþórsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn 326
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni eru hjónin Jökulrós Grímsdóttir og Sigurjón Ástmarsson að spjalla við ókunnan mann. Yfir öxl Sigurjóns sér í Dagný Sigmarsdóttur.
Barnaból - safn219
Einar Oddsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd
Skagaströnd - safn263
Þessi mynd var tekin 20. ágúst 1998 í ferð vinnuskólans eftir sumarvertíðina, líklega í Varmahlíð. Frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson og Rósa Björg Högnadóttir flokksstjóri
Árni Geir Ingvarsson - safn 375
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Fannar Viggósson og Sigrún Jónsdóttir.
Jón Jónsson352
Þó skíðalyfta væri rekin í hlíðum Spákonufells um árabil fyrir svigskíðafólk nýtti áhugafólk um skíðagöngu sér snjóinn í fjallinu líka til að stunda sína íþrótt. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) á gönguskíðum en hjá honum eru frá vinstri: Guðmundur Björnsson að klæða sig í skíðaklossa en bak við hann er líklega Þórunn Bernódusdóttir. Einar Haukur Arason sem hallar sér upp að Volkswagen Variantinum, Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Minjasafn 65
Gripur nr. 65. Eftirprentun af Monu Lisu eftir Da Vinci innrömmuð í gylltan ramma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 449
Helga Björg HU 7 var togari í eigu Skagstrendings hf og gerður út til rækjuveiða bæði hér við land og á miðunum á Flæmingjagrunni. Helga Björg var keypt frá Grænlandi og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 17. janúar 1996.
Skagaströnd 1959 b
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Á þessari mynd er nýbúið að renna fullsmíðuðu kari á flot. Báturinn sem dregur það yfir að hafnargarði er líklega Stígandi Hu 9. Við hafnargarðinn var gengið frá karinu til flutnings á endanlegan áfngastað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 436
Ólafur Guðmundsson skipasmiður hefur ný lokið við að saga sundur bátsskrokk í slippnum með keðjusög.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn090
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Fannar Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson, Ingólfur Bjarnason og Rúnar Jóhannsson.
Guðmundur Guðnason 2 456
Þessi mynd var líklega tekin í sundinu milli Gamla kaupfélagsins til hægri og Kaupfélagshússins til vinstri en það hús er nú löngu horfið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn á myndinni er Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri. Finnur er sparibúinn og vel ríðandi með tvo til reiðar.
Skagaströnd - safn290
Vígsla íþróttahússins á Skagaströnd fór fram 15. mars 1998 við hátíðlega athöfn. Fyrsti húsvörður hússins var Ragnar Smári Ingvarsson sem sést hér á myndinni bak við afgreiðsluborðið í anddyri hússins.
Barnaból - safn230
Arnar Ólafur Viggósson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1980.
umf Fram 342
Þessir tveir herramenn hafa starfað ötullega innan ungmennafélagshreyfingarinnar í allmörg ár auk annarra félagsstarfa. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Skagaströnd og Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Tilefni handtaksins er óþekkt en tengist mjög líklega einhverjum sigrum umf Fram félaga.
Guðmundur Guðnason 2 444
Óþekkt stúlka á sjómannadegi á Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. H 30 mun Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) frá Blönduósi hafa átt. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
96
97
98
…
167
Leita í myndasafninu
Leita