Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 88
Gripur nr. 88. Mynd af fólki sem fór á ball í Búðardal 1941 eða 1942 ásamt lýsingu á farartæki þeirra.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn168
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Ingimar Oddsson. Aftan við Magnús grillir í Þorvald Skaftason.
Minjasafn 312
Gripur nr. 312. Kvenmannsveski úr svörtu leðri lengd 25 cm, hæð 15 cm. Breiðast neðst. Veskið er með svörtu leðurhaldi. Var í eigu Mörtu Guðmundsdóttur Lækjarbakka, Skagaströnd, dáin 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
umf Fram 334
Þessi mynd af Unni Gunnarsdóttur var tekin í 50 ára afmælisveislu umf. Fram hinn 28. desember 1976. Unnur var þá í stjórn félagsins. Í baksýn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) í ræðustól.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn219
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Aðalheiði Harðardóttur sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn005
Hér taka hjónin, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson, vel undir í söng á einhverri góðri stund.
Guðmundur Guðnason 2 501
Árið 1977 gengu þeir félagar Sigurður Jónsson, sem myndin er af, og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) um Laxárdalinn en báðir áttu þeir ættir að rekja í dalinn og voru að hluta aldir þar upp. Náttstaður þeirra var hjá bænum Vesturá þar sem þessi mynd var tekin. Bærinn var þá löngu kominn í eyði en þar átti Guðmundur æskuár sín.
Jón Jónsson321
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Axel Jóhann Hallgrímsson til vinstri og Ingibjörg Kristinsdóttir til hægri hafa lokið keppni í að mata hvort annað á jógúrt í keppni við annað par. Bæði voru þau í hreppsnefnd Höfðahrepps á þessum tíma.
Skagaströnd - safn352
Búið er að fjarlægja báða þessa tanka í dag (apríl 2015). Þeir voru upphaflega báðir jafn stórir en síðan var annar þeirra lækkaður um helming. Þeir voru reistir í sambandi við smíði síldarverksmiðjunnar á árunum kringum 1943-´46 og þá notaðir undir svartolíu og lýsi. Þegar þeir voru byggðir voru ekki gerðar kröfur um lekaþró kringum þá þ.e. svæði sem gæti tekið við hugsanlegum leka úr tönkunum án þess að menga umhverfið. Í dag eru kröfurnar um slíkt mun strangari sem betur fer. Tankarnir stóðu vestur undir Höfðanum ekki langt frá sundlauginni.
Skagaströnd - safn390
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson gengur fyrir skrúðgöngunni í hempu með pípuhatt á höfði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 480
Húsið til vinstri var Sunnuhlíð - Bogabraut 19. Húsið hefur verið rifið og nýtt hús reist á sama stað.
Minjasafn 160
Gripur nr. 160. Kaffikvörn úr járni rauð á lit. Máluð blóm framan á gul, blátt og grænt. Hæð 20 cm og breidd 14 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir 1984.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn211
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórdísi Skúladóttur sem þátt tók í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 434
Gripur nr. 434. Grá dömuhúfa/hattur með svörtum borða og slaufu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn182
Gísl eftir Brendan Beham í þýðingu Jónasar Árnasonar setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikárið 1979 - 1980. Leikstjóri var Ragnhildur Steingrímsdóttir. Leikritið gekk vel og var sýnt víða m.a. á Seltjarnarnesi fyrir fullu húsi. Á myndinni, sem Jónas Baldursson tók, eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Ólafur Bernódusson. Myndina tók Jónas Baldursson.
Guðmundur Guðnason 2 406
Þessi stúlka, Heiðdís Sigrún Þorbjörnsdóttir, er ein af dætrum Þorbjörns Jónssonar og Aðalbjargar Sigurðardóttur sem lengi bjuggu í Akurgerði á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 407
Þessi fjölskylda flutti frá Skagaströnd að Núpi í Laxárdal árið 1957 en flutti síðan á Blönduós 1976 en þá fór Núpur í eyði. Hjónin eru Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson. Valgerður situr undir Valgarði Jökulssyni, Halla Jökulsdóttir er á milli hjónanna og Jökull situr með Kristján Jökulsson.
Baldur Eðvarðsson - safn 2
Þorvaldur Skaftason á Höfðanum með Skagaströnd í baksýn. Myndin var sennilega tekin kringum 1965. Við vinstri öxl Þorvaldar má sjá Efri-Læk sem nú er löngu horfinn. Vinstra megin við Þorvald er Jaðar hvítmálaður og þar enn lengra til vinstri er Efri Jaðar sem líka er löngu horfinn.
Minjasafn 86
Gripur nr. 86. Plagg í brúnum tréramma. Leiðbeiningar um batterínotkun.
Guðmundur Guðnason 2 362
Þessi mynd var tekin vestan við húsið Lækjarhvamm (Suðurvegur 1) líklega 1956. Önnur frá vinstri í öftustu röðinni er Anna Skaftadóttir og hægra megin við hana er Harpa Friðjónsdóttir, sem átti heima í Lækjarhvammi með foreldrum sínum. Stúlkan við hlið Hörpu er líklega Sigrún Kristófersdóttir. Sitjandi framan við Önnu er Björn Ómar Jakobsson en milli þeirra stendur Eyrún Birgisdóttir. Harpa heldur í Ragnheiði Lindu Kristjánsdóttur. Lengst til hægri í öftustu röðinni er Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) en sennilega er það Birgir Þórbjarnarson sem er lengst til vinstri í öftustu röð. Við hlið Björns Ómars í fremstu röð er Guðmundur Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri í röðinni er Árni Björn Ingvarsson. Aftan við hann stendur systir hans, Elínborg Ingvarsdóttir og hallar sér að Sigrúnu. Á þessum tíma bjuggu systkinin Björn Ómar, Guðmundur Rúnar og Ragnheiður Linda í litlu húsi á sömu lóð - Gamla Lækjarhvammi - ásamt foreldrum sínum. Húsið stóð til vinstri, út við götuna, rétt utan við ramma þessarar myndar.
Guðmundur Guðnason 2 457
Líklega var þessi mynd tekin í Laxárdal þar sem fjölskylda Guðmundar ljósmyndara bjó á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Maðurinn á hestinum er líklega bróðir Guðmundar, Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983). Maðurinn á bakvið er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn014
Þessi mynd frá 1977 var tekin á skíðamóti í Spákonufellinu. Á myndinni tekur Gestur Arnarson við verðlaunum sínum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn215
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðjón Árnason sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn181
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Birna Blöndal, Ólafur Bernódusson, Þórey Jónsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Magnús B. Jónsson
Minjasafn 140
Gripur nr. 140. Ístað 13 cm breitt og 13 cm hátt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Guðmundur Guðnason 2 440
Pálfríður Bjarnadóttir í Bjarnarhöfn á Skagaströnd. Dóttir Fanneyjar Jónsdóttur og Bjarna Loftssonar.
Guðmundur Guðnason 2 390
Þetta barn með skólatöskuna sína er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn419
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 440
Ólafur Magnússon HU 54 í slippnum á Skagaströnd. Einn af mörgum bátum í eigu Stefáns Jósefssonar með þetta nafn.
Minjasafn 172
Gripur nr. 172. Koparkanna með gylltum stút og handfangi. Einnig er gyllt rönd um hana miðja. Kannan er 23 cm á hæð og 53 cm að ummáli þar sem hún er breiðust. Með könnunni fylga tvö staup á fæti í sömu litum og kannan. Gefandi: Borghildur Jónasdóttir Álftamýri 40, Reykjavík í júlí 1994.
Guðmundur Guðnason 2 392
Eygló Guðbjartsdóttir frá Vík.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn053
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur, Magnúsi B. Jónssyni, sem var aðalleikarinn í verkinu, og Guðjóni Sigurvaldasyni leikstjóra.
DX-11
Piparkökubakstur í Barnabóli 30. nóvember 2002. Á þessari mynd eru frá vinstri: Cornelia Silud Boncales, Eymundur Grétarsson, Elmar Grétarsson, Amy Eymundsdóttir og Linda Ómarsdóttir. Amy er amma barnanna á myndinni en Cornelia er móðir drengjanna tveggja.
umf Fram 325
USAH stóð nokkrum sinnum fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinendur á þessum námskeiðum voru Ólafur Oddsson og Pétur Eysteinsson til skiptis. Á námskeiðunum var fólki kennd ræðumennska, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Pétur Eysteinsson leiðbeinandi, Jónas Bjarnason Blöndudalshólum og Guðmundur Valtýsson frá Brattahlíð.
Skagaströnd - safn375
Fermingarsysturnar Ingibjörg Kristinsdóttir til vinstri og Ester Axelsdóttir til hægri. Árið er 1962.
Guðmundur Guðnason2 343
Á þessari mynd sjást uppáhalds skepnur Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar - kindur. Í baksýn má sjá gapandi sárið í Höfðanum eftir grjótnám þar. Til vinstri sjást svo nokkur fjárhús, sem karlarnir sem bjuggu í Bankastræti undir Höfðanum, áttu.
Barnaból - safn003
10. júlí 1987 var haldin grillveisla á leikskólanum. Allir fengu grillaðar pylsur og djús. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Magnús Filip Sævarsson, Magnús Líndal Þrastarson og Gunnar Helgason.
Jón Jónsson251
<p>7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd er Birna Blöndal í hlutverki sínu í sýningunni.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn153
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Bóel Hallgrímsdóttir niðri og Björk Sveinsdóttir uppi í hlutvekum sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 427
<p>Þarna er verið að fara með Arnarborgina HU 11 upp í slippinn til að setja á hana nýjan hvalbak og snúa spilinu, sem var langsum bakborðsmegin. Spilinu var snúið þvert eins og venja er að spilin snúi. Líklegt var myndin tekin í kringum 1985-86. Helga Björg HU 7 aðstoðar við að koma Arnarborginni í slippinn. </p><p><br></p>
Skagaströnd - safn408
Lýsistankur SR- Mjöls rifinn haustið 1994. Olís tankurinn við hlið hans hefur einnig verið rifinn.
Guðmundur Guðnason 2 453
Heyskapur upp á gamla mátann. Myndin var tekin á Vesturá í Laxárdal við heimili Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og sér í mynni Vesturáarskarðs í baksýn. Fjölskylda Guðmundur bjó í dalnum á nokkrum bæjum áður en þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Konan lengst til vinstri er Klemensína Klemensdóttir (d.12.6.1966) móðir Guðmundar. Ungi maðurinn sem bindur bagga er Pálmi (d. 23.3.1994), Ingvi (d. 31.12.1991), eða Rósberg (d. 9.1.1983) en þeir voru bræður Guðmundar (líklegast er að þetta sé Rósberg). Guðmundur sjálfur heldur í hestinn og faðir hans Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) hleður fúlgu úr heyinu í baksýn.
Guðmundur Guðnason 2 411
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á hestbaki. Líklega var myndin tekin einhversstaðar á Laxárdal þar sem Guðmundur var alinn upp.
Skagaströnd - safn372
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson, Rúnar Jóhannsson og Sigurjón Ástmarsson.
Jón Jónsson272
Skíðaskálinn í Spákonufelli var vígður vorið 1985. Skálinn var að mestu byggður í sjálfboðavinnu af skíðaáhugafólki. Á þessari mynd er fólk að njóta veitinga í tilefni dagsins. Frá vinstri: Rúnar loftsson, Linda Kristjánsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Lilja Bernódusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) (nær) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) (fjær). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson314
Vigdís Finnbogadóttir forseti kom í opinbera heimsókn til Skagastrandar 1988. Í heimsókninni gróðursetti hún tré með ungmennum á Hnappstaðatúni og síðan sat hún kaffisamsæti í Fellsborg þar sem öllum var boðið til að hitta forseta sinn. Á myndinni eru María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Sigríður Ólafsdóttir - Sissa - (d. 2008) til hægri í veislunni.
Sigurður Jónsson - safn 005
Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981) og Sigurður Jónsson í Vestfjarðaferð 1974 ásamt fjölmörgum öðrum Skagstrendingum. Myndin var tekin í Ísafjarðardjúpi - líklega á Arngerðareyri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 399
Arnar Hu 1 í eigu Skagstrendings hf að koma til hafnar á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn 327
Þessi mynd var tekin á vinabæjarmóti í vinabæ Skagastrandar í Finnlandi, Lohja. Á myndinni eru hjónin Adolf H. Berndsen oddviti Höfðahrepps fyrir miðri mynd og Dagný Sigmarsdóttir, lengst til hægri, að spjalla við hjónin Matti og Aila Saarinen frá Lohja en Matti er þingmaður á finnska þinginu. Vinstra megin við Dagnýju er Ritva Sylvander frá Lohja.
umf Fram 337
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í þokunni utan við skálann við þetta tækifæri, eru félagarnir og skíðamennirnir Stefán Ægir Lárusson til vinstri og Arnar Arnarsson til hægri.
Minjasafn5
Gripur nr. 5. Nærskyrta með milliverki í kringum handveg, hálsmál og lagt niður á brjóst. Hneppt á öxlum. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Magnús B Jónsson093
<p>Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru tveir fulltrúar Hafró, í hlífðarbuxum, að byrja að skera í hvalinn. Ólafur Bernódusson stendur til hægri með hendur í vösum og fylgist með en aðrir eru óþekktir. </p>
Minjasafn 126
Gripur nr. 126. Ljósmynd af kirkjukór Hólaneskirkju. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn045
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þau Elín Njálsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 436
Gengið til kirkju á sjómannadegi. Fremstur fer Hörður Ragnarsson með fána. Prestarnir eru óþekktir en næstur þeim, einnig með fána, er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og þriðji maðurinn með fána er ?Sigurður Guðmonsson? (d.5.8.1981). Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Skagaströnd - safn399
Drekkhlaðinn síldarbátur á landleið fyrir Höfðann með nótabátinn í drætti. Í forgrunninum til vinstri sér í olíutankana sem stóðu á Höfðanum fram undir aldamót. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Minjasafn 349
Gripur nr. 349. Hengilás með keðju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 469
Þessi mynd var tekin á logndegi í Skagastrandarhöfn en margir bátar í höfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 417
Þessi kona, sem var ljósmynduð á ljósmyndastofu Ólafs Magnússonar í Reykjavík, er óþekkt. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 477
Gunnar Jónsson vinnur við að taka upp bát sinn Funa HU 89. Bátinn gerði Gunnar út á færi á árunum 1992 - 1996.
1
…
98
99
100
…
167
Leita í myndasafninu
Leita